Þjóðviljinn - 04.01.1957, Side 7

Þjóðviljinn - 04.01.1957, Side 7
Föstudagur 4. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN ; S , ; • -:".v BnrÁttnn um olíunn Á sama tíma og svo mátti heita að Súez-skurðurinn lægi um stofu Eden-hjón- anna, eins og lafði Eden komst að orði skömmu eftir árás Breta og Frakka á Egyptaland, komst stífla í annan mikilvægan skurð: olíuflóðið mikla frá nálæg- ari austurlöndum til Evrópu. Árin eftir styrjöldina hef- ur Evrópa sífellt orðið háð- ari olíusendingum frá ná- lægari austurlöndum, en þaðan hafa komið um 70% af oíuþörfum Englendinga og 80—90% af olíuþörfum annarra Vesturevrópu- landa. Árið 1955 var olíuútflutn- ingur frá nálægari austur- löndum til Evrópu og Ame- ríku ca. 110 milljónir tonna, en af því magni fóru um 66 milljónir tonna um Súezskurðinn, um 40 millj- ónir um olíuleiðslur til hafna við austanvert Mið- jarðarhaf og aðeins 4 millj- ónir tonna suður fyrir Afríku. Af þessu olíumagni fóru um 100 milljónir tonna til Vesturevrópu. Aðeins ein olíuleiðsla í lagi Árás Breta og Frakka lokaði rækilega fyrir olíuna: eina ö- rofna olíuleiðslan til Miðjarð- arhafs er TAP-olíuleiðslan frá Saudi Arabíu, en hún er í höndúm Bandaríkjamanna. Leiðslan er 80 sentimetrar að þvermáli, en þó getur hún ekki annað nema 17 milljónum tonna á ári, eða 17% af magni því sem Vesturevrópa hefur að undanförnu fengið um Mið- jarðarhafið; það sem á skortir verður þannig fyrst um sinn að fara suður fyrir Afríku eða koma frá Ameriku. Þrjár olíuleiðslur hafa nú verið rofnar frá olíuhéraðinu Kirkuk í írak til Miðjarðar- hafshafnanna Banias og Tri- poli, en áður skiluðu þær ca. 28 milljónum tonna á ári sem hámarki. Þær voru rofnar í Sýríueyðimörkinni með því að nokkrar dælustöðvar voru sprengdar í loft upp. Því að- eins skila þær fullum afköst- um að dælustöðvarnar verði byggðar upp að nýju. En með bráðabirgðaráðstöfunum, sem Bandarísku olíuhringarnir mata krókinn eftir árás Breta og F rakka á Egypta Árið 1935 sölsuðu bandarísk félög undir sig sérréttindin í Saudi Arabiu, en þar hafði vinnsla hafizt í smáum stíl á stríðsárunum og var komin upp í 47 millj. tonn árið 1955. Árið 1940 skiptu Bandaríkjamenn og Bretar á milli sín sérréttind- unum í Bahrein. einnig munu taka nokkum tíma, er ef til vill hægt að flytja um þriðjung af venju- legu magni um leiðslurnar. Það er eins með olíuleiðslumar og Súezskurðinn, að veiga- mesta forsenda þess að þær séu hagnýttar er ró í löndum þeim sem þær liggja um, að sjálfstæði þeirra og fullveldi sé ekki ógnað. Keppnin í olíufram- leiðslunni Það er næsta nýtilkomið að olían frá nálægari austur- löndum skipti slíku meginmáli fyrir Vesturevrópu. Á sama tíma og olíuframleiðslan í heiminum hefur næstum því þrefaldazt, frá 1938 tii 1955, hefur hluti nálægari austur- landa í framleiðslu heimsins aukizt úr 6% í 21%, Nálægari austurlönd eru því orðin önnur í röðinni í heimin- um og framleiða nærri því helming á við Bandaríkin. Annars er mjög fróðlegt að kynna sér töfluna yfir olíu- framleiðsluna á tímabilinu 1938—1955, því hún gefur skýra mynd af þróun heims- málanna á þessu tímabili og einkanlega þróuninni í nálæg- ari austurlöndum, allt að hin- um síðustu átökum. Síðan farið var að nota olíu og' olíuvörur í ríkum mæli hafa Bandaríkin haft forustu i framleiðslunni. Auk fram- leiðslunnar í Bandaríkjunum sjálfum drottnaði bandarískt fjármagn yfir framleiðshmni víða annarsstaðar, en þar er alstaðar að finna nöfn eins og Standard OH, Socony Vacuum, Sinclair Oil og Gulf Oil. Bandarískt olíuauðmagn hefur fyrst og fremst rutt sér leið inn í Suðurameríku, en það drottnar yfir 70% af fram- leiðslu Venezúela, 100% af framleiðslu Kólumbiu, 78% af framleiðslu Perú og 7.5% af framleiðslu Argentínu. í Indó- nesíu eru um 40% af fram- leiðslunni í höndum Banda- ríkjamanna. I nálægari austurlöndum hefur hlutur bandariska fjái> magnsins í framleiðslunni auk- izt úr 15% í ca. 56% á tíma- bilinu 1938—55. Ef miðað er við framleiðslu- tölurnar frá 1955 drottnar bandarískt auðmagn yfir ca. 67% af allri olíuframleiðsiu heimsins. Næststærsta olíusamsteypa í heimi er sú brezk-hollenzka (Royal-Dutch, Shell o. fl.), sem drottnar yfir ca. 607c af fram- leiðslu Indónesíu, 30 % af framleiðslu Venezúela, 100% af framleiðslu Trinidad, 21% af framleiðslu Argentínu, 20% af framleiðslu Perú, 100% af framleiðsiu Burma og 100% af framleiðslu Kanada. I nálægari austurlöndum var brezkt auðmagn “ að heita mátti allsráðandi fram að sið- ustu heimsstyrjöld, og réði yfir 80% framleiðslunnar, en hluti þess hefur lækkað síðan ofan í 35%. Hluti brezk-hollenzku sam- steypunnar af heimsframleiðsl- unni nam 1955 aðeins ca. 20%. Þegar undan er skilið franskt fjármagn sem litlu máli skiptir er olíuframleiðslan að öoru leyti þjóðnýtt, svo sem í Sovét- rikjunum, alþýðuríkjunum og Mexíkó og Argentínu. Bandarísk-brezk togstreita Bretar tóku fyrstir til við olíuvinnslu í nálægari austur- löndum og hófu hana þegar 1909 í Persíu (nú íran); var þar um að ræða félagið Anglo Persian Oil Co. (APOC), en skömmu fyrir fyrri heimsstyrj- öldina keypti brezka stjómin meirihluta hlutabréfanna í því. Vinnsla APOC jókst þegar í upphafi rnjög ört, úr 80.000 tonnum í 1.100.000 tonn á ári á tímabilinu 1913—1919. Þegar Bretar náðu forustu í nálæg- ari austurlöndum eftir heims- styrjöldina fyrri náði brezkt fjármagn undir sig sérréttind- um þeirn sem Tyrkir höfðu áð- ur haft í írak (sem áður nefnd- ist Mesópótamía) en varð að láta sér nægja 47% af hluta- bréfunum, en Frakkar og Bandaríkjamenn fengu 23.75% hvor. Einnig náðu Bretar undir sig ýmsum smávægilegri sér- réttindum á þessu tímabili. Það var ekki fyrr en 1934 að Bandaríkjamenn komu með í leikinn af kappi, en þá skiptu þeir og Bretar milli sín sér- réttindunum i Kuwait. Þar hófst vinnslan ekki fyrr en 1946, en komst á tiu ára tíma- bili upp í 56 milj. tonna árs- framleiðslu, eða um 35% af allri olíuvinnslu í nálægari austurlöndum. Baráttan um olíuna í Iran En Bandaríkjamenn höfðu engan veginn fengið nóg. Þeir höfðu augastað á olíuvinnsl- unni í íran, en árið 1950 nam hún meira en þriðjungi af allri oliuvinnslu í nálægari austur- löndum. Allt frá styrjaldarár- unum höfðu Bandaríkjamenn haft mikinn hug á íran og 1949, þegar sambúð írönsku stjórnarinnar og Anglo Iranian Oil Co. (AIOC, áður APOC) var mjög erfið, og íranska þingið neitaði að fallast á nýj- an samning milli ríkisins og olíufélagsins, unnu bandarísku oliufélögin markvisst að því að tjaldabaki að bola Bretum Framhald á 9. síðu. Olíuframleiðslan í nálægari austurlöndum í 1000 tonna 1938 1946 1950 1953 1954 1955 Tyrkland — — 17 26 59 200 Inak 4.370 4.700 6.457 27.716 30.145 33.209 Iran 1^360 19.460 32.259 1.345 3.022 16.025 Saudi Arabía 70 8.200 26.179 41.382 46.875 47.120 Kuwait — 800 17.291 43.286 48.473 56.006 Bahrein 1.130 1.100 1.510 1.504 1.443 1.500 Qator — — 1.632 4.062 4.778 5.438 Egyptaland . . . 223 1.280 2.349 2.388 1.970 1.800 16.153 35.540 87.694 121.709 136.765 161.298 Hluti nálægari aust- urlianda af olíufram- leiðslu heimsins i % 6,0 9,1 16,7 18,5 20,0 214- Olíuframleiðsla heimsins í 1000 tonna 1938 1946 1950 1953 1954 1955 Bandarikin 164.100 254.000 271.081 317.757 312.257 332.800 Venezuela 28.000 50.000 78.240 92.261 98.586 111.000 Sovétríkin og önnur sósíalistísk ríki 29.000 30.800 45.750 66.650 73.675 84.000 Nálægari austurlönd 16.153 35.540 87.694 121.709 136.765 161.298 Önnur lönd ... 31.947 19.960 42.235 58.623 63.717 73.902 Heimurinn alls: 269.200 390.300 525.000 657.000 685.000 763.000 Olíuframleiðsla heimsins í prósentum 1938 1946 1950 1953 1954 1955 Ba,ndaríkin 61,0 65,0 51,8 48,6 45,6 43,7 Venezúela 10,4 12,9 14,8 14,0 14,4 14,5 Sovétríkin og önnur sósíalistisk riki 10,8 7,9 8,7 10,0 10,7 11,0 Nálægari austurlönd 6,0 9,1 16,7 18,5 20,0 21,1 Önnur lönd . .. 11,8 5,1 8,0 8,9 93 9,7 Heimurinn alls: 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 1000

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.