Þjóðviljinn - 07.03.1957, Page 9
ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI; FRtMANN HELGASON
Er íslenzka glíman
Ég gat þess í svari mínu til
Kristjáns H. Lárussonar að ég
mundi í framhaldi af því varpa
fram nokkrum spurningum
varðandi glímuna, ef þær gætu
orðið til þess að sýna fram á
að það er illa við glímuna gert
á flestan hátt. Það verður ekki
annað sagt en að það sé rækt-
arleysi við góðan vin, sem á
sínum tíma var lífgjafi og
endurvekjandi íþróttalífs í
landi voru. Hún var líka að
vissu leyti aflgjafi í þeirri
þjóðernisvakningu sem af al-
vöru greip hugi ungra manna
um og eftir aldamótin. Þessu
má íþróttahreyfingin ekki
glejTna og þar eiga allir hlut
að máli, en ekki sízt þeir sem
hafa iðkað hana og haft for-
ustu um hana, þeir verða að
halda uppi merki hennar.
Okkur er líka vandara við
hana en aðrar íþróttir því hún
er sérstæð fyrir okkur og við
verðum að skapa henni reglur
og fylgjast með henni á alla
lund. Við getum ekki farið til
annarra landa og séð reglur
um íslenzka glímu, eins og um
aðrar greinar íþrótta.
Flestir sem koma nærri glím-
unni eiga nokkra sök á því,
hvernig komið er fyrir þjóðar-
íþróttinni okkar.
Verður nú vikið að sumum
atriða, og varpað fram nokkr-
um spurningum sem ég mun
leitast við að svara og svo geta
aðrir spreytt sig á því að
finna réttu svörin. Framtið
glímunnar veltur e.t.v. á því
að rétt svör finnist.
Hvað hefur orðið af öllum
glímuköppunum ?
Þegar maður litur yfir þá
sem fara með mál glímunnar
rekur maður augun í það að
það eru þar tiltöíulega fáir
sem hafa um langan aldur
verið þátttakendur í glímu og
þeir sem lengst hafa komizt
og heztum árangri náð eru
þar í miklum minnihluta.
Nokkrir þeirra hafa fengizt við
að kenna hana, en það er langt
frá að það sé nógu almennt,
og eftir þvi sem bezt verður
vitað vantar alltaf glímukenn-
ara. Afleiðingin verður eðlilega
sú að hætt verður að kenna
glímuna og með sama áfram-
haldi legst hún alveg niður.
I þessu efni verðum við að búa
að okkar mönnum, því að
menn annarra landa kunna
hana ekki. Það er því ekki
hægt áð fá erlenda kennara.
Það verður því ekki hjá því
komizt að gera mikla kröfu
til þeirra glímumanna, sem
lengst hafa komizt, um það að
þeir fyrst og fremst vinni að
því að viðhalda henni, leggi
fram krafta sína til að gera
hana lifandi og þannig að hún
verði öðrum það sem hún þeim
var, að því er ætla má,
skemmtileg og aðlaðandi í-
þrótt.
I þessu efni hafa alltof marg-
ir brugðizt glímunni, og þar
með eiginlegá eiga þeir mikinn
þátt í því að glímunni hnignar,
og að hún skipar ekki eins veg-
legt sæti meðal iþrótta á Is-
landi og hún á skilið. Víst er,
að ýmsir hafa ekki aðstöðu til
þess að leggja stund á glímu-
kennslu, en langtum stærri
hópur hefur þó haft tækifæri
til þess, ef þeir hefðu viljað
eða verið glímunni trúir.
Fyrsta grein
Hér er þvi lýst eftir þéssum
rnönnum og á þá skorað að
beita áhrifum sínum í þá átt
að viðhalda, bæta og leiða
þjóðaríþróttina.
Hví halda þeir ekki uppi áróðri
fyrir glímunni ?
Naumast. er haldið svo mót
hér í Reykjavík t.d., að ekki
sé frá því skýrt, sem þar ger-
ist í blöðum bæjarins. Glímari
er þó undantekning í þessu
efni. Það má gott kallast éf
getið er stiga þeirra sem giíma.:
Á þetta horfa sérfræðingamir
sjálfir, og láta sem ekkert sé.
Það kemur þeim sýnilega ekk-
ert við, hvort frá íþrótt þeirra
er sagt eða ekki, hvort fræði-
iega sé um hana rætt, átalið
það sem illa er gert og því
hælt sem vel er gert. Það er
Fimmtudagur 7, marz 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (9
EHLENÐ TÍÐINDI
eins og það hafi aldrei komið
í hug þeirra að þetta muni
hafa áhrif á tilveru hennar og
viðgang, og það mikil áhrif.
Hér hafa þeir líka brugðizt og
það alvarlega, því umræður og
frásagnir um atburði hafa
mikið áróðursgildi. Varla getur
verið að þeir hafi ekki tíma til
að annast þetta, ekki eru mótin
svo mörg að það ætti að taka
mikinn tíma. Það hefur líka
sýnt sig, að meðal glímumanna
eru vel ritfærir menn. Það
verður því ekki skilið af hvaða
ástæðum þeir láta þetta þýð-
ingarmikla • atriði svo niður
falla. Elina skýringin gæti ver-
ið sú að glímumenn eru allra
manna viðkvæmastir fyrir því
eem sagt er um þá og þá ekki
sízt þeir sem fomstuna hafa,
og af þeim ástæðum vildu þeir
ekki taka á sig það að fella
dóma um menn og málefni op-
inberlega. Þetta væri sannar-
lega að hopa af hólmi og varla
glímumönnum sæmandi. En
hver svo sem ástæðan er þá
hafa þeir brugðizt þessum
þætti mjög alvarlega. Ekki er
því til að dreifa að blöðin
mundu ekki taka greinar um
glímuna, ef þær bærust.
Af hverju eru glímuinót
illa auglýst?
Svo sem það er nauðsynlegt
að skýra vel frá þvi sem ger-
ist á glímumótum, og að fróð-
ir menn um glímu geri það,
Framhald á 11. síðu.
Framhald af 6. síðu.
hans hafa spáð Ghana hrak-
spám og bent á fjármála-
hneyksli, sem nánir samstarfs-
menn Nkrumah hafa verið
bendlaðir við síðustu árin. Að
þeim frátöldum hefur sjálf-
stjómin farið Ghanamönnum
vel úr hendi.
l^yrst um sinn hefur Ghana
ekki bolmagn til að láta
verulega til sín taka út á við.
Fordæmi þess mun engu að
síður hafa gífurlega þýðingu
um alla Afríku sunnan Sa-
hara. Atvinnuvegir landsins
Namdi Azikíwe
eni vel reknir, bæði kakó-
rækt og námugröftur, en
Ghanamenn grafa úr jörðu'®'
mangan, gull og demanta.
Stærstu námurnar eru að vísu
í eigu brezkra félaga og
brezk fyrirtæki ráða einnig
yfir mestöllum kakóútflutn-
ingnum. Lækkandi kakóverð 4
heimsmarkaðnum veldur því
að nú gengur á 200 milljón
sterlingspunda inneign Ghana
í Bretlandi. Æðri menntun er
komin lengra á leið en í nokkru
öðru svertingjalandi Afríku, yf-
ir 600 stúdentar eru sem stend-
ur innritaðír í háskólann í
Accra. Nkrumah hefur látið í
ljós von um, að jafnóðum
og lönd Vestur-Afríku öðlist
sjálfstæði taki þau upp mcð
sér nána samvinnu og myndi
jafnvel sambandsríki. Bretar
hafa þegar lieitið Nigeriu,
fjölmennustu nýlendu sinni,
sjálfstjórn innan skamms.
Mestur áhrifamaður í Nigeriu
er Namdi Azikiwe, sem
mörgu sAÖpar til Nkrumah, en
töluverður rígur er milli mú-
hameðstrúarmanna í norður-
hluta landsins og fylgismanna
Azikiwes í suðurhlutanum.
TJranska stjórnin hefur í
fyrsta skipti beitt sér fyr-
ir mjög takmarkaðri sjálf-
stjóm til handa frönsku ný-
lendunum í Aíríku, sem ná
yfir gífurlegt flæmi en eru
strjálbýlli en þær brezku»
Frakkar virðast því eitthvaS
hafa lært af reynslu sinni s
Indó Kína og Norður-Afríku,
en ekki taka þeir þó enn í mál
að fylgja fordæmi Breta og
heita nýlendunum fullu sjálf-
stæði með. tímanum. í Kongó,
hinni auðugu nýlendu Belga„
og nýlendum Portúgalsmanna
eru nýlenduyfirvöldin alls ráð»
andi, öll stjórnmálastarfsemii
er bönnuð og refsað af mestut
grimmd. Að öðru leyti ferst
Belgum og Portúgalsmönnum
ólíkt við Afríkumenn. I Kongó
er þeim séð fyrir staðgóðri
verklegri menntun og fá til-
tölulega góð laun. I portú-
gölsku nýlendunum er hina
vegar farið með Afríkumenn
eins og þræla. Syðst í Afríku
eru svo brezku samveldislönd-
in Suður-Afríka og Mið-Afr-
íka. Þar eru landnemar frá
Evrópu í miklum minnihluta
meðal landsmanna en fara
með Öll völd. Um allt þetta
víðlenda meginland er vand-
lega fylgzt með því sem gerist
í Ghana. Hátíðáhöldin í Accra
í gær eru merki þess, að nýtt
tímabil er hafið í sögu Afríku.
Sjálfstæði Ghana skýtur hin-
um drottnandi minnihluta,
Strydom og sálufélögum hans,
skelk í bringu, en það vekur
fögnuð í brjóstum 150 millj-
óna undirokaðra Afríkumanna.
M.T.Ó.
Aðalfundur FiSN
Aðalfundur var nýlega liald-
inn í Félagi ísl. stúdenta í Osló.
Var Ágúst Þorleifsson kjörina
formaður.
Félagsmönnum hefur fækkað
mjög hin síðustu missiri og
telja nú rétt aðeins tylftina.
Ekki hefur þó orðið úr að>
leggja félagið niður, enda efst
á baugi styrkjamál og gjali-
eyrisyfirfærslur, sem mönnura
þykja nú orðið helzti lágarq
enda mörg ár síðan þeim mál-
um var skipað svo sem þao)
eru nú, en verðlag hækkað á
flestum vörum í Noregi sens
annarstaðar. Bera stúdentar
traust til stjórnai'valdanna, að
þau geri þeim einhverja úr-
lausn. — Ritari félagsins var
kosinn Friðrik Þórðarson og ei'
fréttin frá honum send.
steihpöN
Fjölbreytt úrval af
TRULOFUNARHRINGIR.
STEINHRINGUM
18 og 14 karata.
— Póstsendum —
Heimsvieistarakeppninni í ísknattleik, sem háð hefur
veríð í Moskvu undanfarna daga, lauk í fyrradag með
óvœntum, sigri Svía. Kepptu peir pá til úrslita við sovézka
landsliöið og varð jafntefli, 4 mörk gegn 4. Svíunum
nægöi jafnteflið til sigurs, par sem peir höföu unniö alla
leiki sína fyrir úrslit en Sovétliðið gert eitt jafntefli. —
Myndin er af hinum nýbökuðu, sœnsku hemismeisturum
og var tekin við setningu keppninnar i Moskvu á
döffnrmnr'
l
■
j RANGEYINGAFÉLAGIÐ REYKJAVÍK
! SKEMMTÍFUM)
■
I heldur Rangeyingafélagið í Skátaheimilinu við Snorra-
: braút, föstudagiim 8. marz, kl. 8.30.
■
DAGSKRÁ:
Guðni Þórðarson segir frá Arabalöndum og
sýnir kvikmynd þaðan.
Skenmvtiþáttur með Rock’n roll sýningu,
Dans. — Sigurður Ólafsson syngur
með liljómsveitinni.
: , Stjórnin * -