Þjóðviljinn - 09.03.1957, Page 9
4
10. tölublað
rr*
Eéttar vatn
Kvæðið Réttarvatn er úr kvæðaflokki, sem
nefnist á sjó og landi. Jónas orkti þann
flokk á síðustu árum ævi sinriar úti í
Kaupmannahöfn, þegar hann kom aftur úr
ferðum sínum um ísland. Það mun hafa
verið á árunum 1844—1845.
Efst á Arnarvatns-hæðum
oft hef ég fáki beitt;
þar er allt þakið í vötnum,
og þar heitir Réttarvatn eitt.
Og undir norður-ásnum
er ofurlítil tó,
og lækur líður þar niður
um lágan Hvannamó.
Á engum stað ég uni
eins vel og þessum mér;
ískaldur Eiríksjökull
veit allt, sem talað er hér.
Jónas Hallgrimssosi,
ORÐSENDINGAR
Ugla í Vik. Blaðið með
textanum skal ég láta
senda þér. Orðasamband-
ið „hún er ekkí öll þar
sem hún er séð“ þýðir
nokkum veginn, henni er
ekki alveg treystandi,
því hun er öðruvísi, en
framkoma hennar gefur
til kynna.
Fjórar heimasætur í
Suðursveit. í seinasta
blaði var textinn „oft
spufði ég mömmu“. Hina
textana munum við taka
til athugunar. Því miður
getum við ekki birt allan
þann grúa, sem okkur
berst af ..nýtízkudömum“
hvaðanæva af landinu,
en við þökkum ykkur og
öllum þeim, sem sent
hafa myndir af þokka-
dísum. Þið ættuð að
breyta til og senda við
og við eitthvað annað til
dæmis litlar sögur, fer-
skeytlur, smáleikþætti og
ferðasögur.
Systa. Þökk fyrir bréf-
ið þítt. Þér var alveg ó-
hætt að senda tvisvar í
skriftarsamkeppnina, það
er sízt verra. Það verður
birt mynd af Gunnari M.
Magnúss í blaðinu mjög
fljótlega.
Dísa. Við munum í
næsta blaði gefa þér eins
greið svör og kostur er á
við spurningu þinni um
dýragarða. Skriftin er
ekki slæm miðað við ald-
ur þinn, en þú þarft að
vanda þig alltaf, ef þig
langar til að skrifa lýta-
laust. Það er ágætt að
nota forskriftarbækur til
að æfa sig í. Bækur Guð-
mundar í. Guðjónssonar
eiga vel við stafagerð
þína.
Bréf frá Önundar-
firði
Kæra Óskastund’
Ég þakka þér innilega
fyrir alla skemmtunina,
sem þú hefur veitt mér
á liðnum árum. í hvert
skipti sem pósturinn hef-
ur komið, hef ég flýtt
mér að gá hvort nokkur
Óskastund væri í honum.
Því miður hefur fyrsta
blaðið af Óskastundinni
á þessu óri glatazt á leið-
inni og þykir mér leitt
að tapa því. Ég á hin
öll. Nú langar mig til að
vita hvort ekki er hægt
að fá það sent.
Gaman væri að fá
fleirí krossgátur í blaðið.
Hvernig væri að efna tíl
samkeppni meðal lesenda
blaðsins um frumlegasta
dulnefnið. Það held ég
gæti orðið spennandi.
Svo langar mig afar
mikið til að vita hvað
hægt er að lesa úr skrift-
inni minni, það eru allir
sammála um að hún sé
mesta hrafnaspark.
Hefur þú fengið mörg
bréf frá Önundarfirði?
Vertu svo blessuð og
sæl.
Þín Þóra,
Þetta er fyrsta bréfið,
Framhald á 3. síðu
ILaugardagur ff. marz 1957 — S. árgangur —•
Þegar ég var enn
drengur innan við ferm-
ingu átti faðir minn leir-
Ijósan hest, sem hét
Leiri.
Hann var litill vexti,
en ókaflega liðugur. Fót-
viss var hann með af-
brígðum og úthaldsgóður.
En hann hafði það líka
til að vera var um sig
í haganum, ef hann hafði
grun um að ætti að nota
hann. Svo hændur var
hann að folöldum að oft
lagði hann á sig mikið
erfiði við að fylgja eftir
stóðhrossum, ef folöld
voru í hópnum. Urðu að
því vandræði þegar Leiri
fannst ekki í marga daga
vegna þess að hann hafði
slegizt í för með stóðinu,
sem var ekki við eina
fjölina fellt og lifði gjör-
ólíkt heimvönum notkun-
arhestum.
En allt þetta fyrirgafst
Leira vegna þess hve
duglegur hann var og
lipur jafnt á sléttum vegi
sem á ófærum.
Vegna þess hve ungur
ég var hafði ég ekki
mikið saman við Leira
að sælda, þó fór ég
stundum á bak hans bæj-
arleið, einkum ef ekki
voru fleiri samferða, en
Leiri hafði það til að
SAGA
UM
LEIM
vera dálítið viljugur í
sainfylgd.
Ein ferð er mér þó
minnisstæð. Ég hafði far-
ið fram í Skorradal í
sendiferð. Ég reið Leira.
Á bænum þar sem ég
kom voru böm og dvald-
ist mér þar lengi, en
Leiri var á beit í girð-
ingu alllangt frá bænum.
Þegar ég hafði leikiðméi;
og hugsaði til heimferð-
ar. var eitthvert barn-
anna sent til að sækjá
Leira. Þegar hann vau
teymdur í hlaðið og kormi
auga á mig hneggjaðíi
hann glaðlega og rak
snoppuna í fötin min„
þar sem ég stóð meðal
hinna barnanna.
g hef stundum hugs-
að um það síðan hvað
Leiri muni hafa sagt við
mig þá, hefði hann mátt
mæla.
Minningin geymist þo
mörg ár séu liðin og
Leiri litli hafi fyrir löngu
lokið hlutverki sínu og
verið lagður til hinztts
hyUdar.
Óskar Þórðarson
frá Haga
HELGI HJÖRVAR
les úr Islendingasögunum fyrir börrl
ITtvarpsráð hefur á-
J kveðið að gera til-
raun með lestur fornrita
í útvarp fyrir börn. Það
hefur falið Heiga Hjörv-
ar að sjá um lesturinn,
sem mun hefjast á mánu-
daginn kemur. Lesturinn
stendur yfir í 15 til 20
mín. í hvert skipti, og
verður á mánudögum og
fimmtudögum og er á-
kveðið að honum veiðí
haldið áfram til páska
að minnsta kosti. Hér er
um hreina tilraun að
ræða af hálfu útvarps-
ráðs og Helga Hjörvars.
Ritstjóri Óskastundar-
innar átti símaviðtal við
Helga Hjörvar um þetra
Framh. á 3. síöu
ÍÞRÓTT!
RITSTJÓRI: FRtMANN HELGASON
¥el
ð<
mm
ÍR-ingar sigruðu Íslandsmeisíarana í
körfuknattleik
Fyrsti þáttur í hátíðahöldum
þeim, sem ÍR gengst fyrir í
sambandi við 50 ára' afmæli sitt
var fimleikasýning og körfu-
knattleikskeppni.
Áður en sýningarnar hófust
gengu keppendur og sýningar-
fólk undir fána inn í salinn.
Þar flutti formaður ÍR Jakob
Hafstein ávarp, og bauð íþrótta
fólk og gesti sem voru margir,
velkomið til hátíðahalda ÍR.
Taldi hann það vel til fallið að
fyrsta atriðið í hátíðahöldunum
væri einmitt fimleikasýning. Á
fyrstu árum hefðu það verið
fimleikar sem félagið hefði beitt
sér fyrir og um skeið voru
fimleikaflokkar ÍR góðir og
gátu sér orðstír bæði heima
og erlendis. Jakob gat þess að
IR hefði ætíð fylgt þeirri stefnu
að tileirika sér nýjar greinar í-
þrótta.
Á éftir ávarpi formanns
hófst fimleikasýningin, en það
var kvennaflokkur undir stjórn
Sigríðar Valgeirsdóttur sem
sýndi. Stúlkur þessar munu
hafa æft á annan vetur undir
handleiðslu Sigríðar og töldu
fróðir menn, að með tilliti til
æfingatímans hefði sýningin
tekizt undra vel.
Að lokinni sýningu kvenn-
anna gekk stofnandi ÍR A. Bert
elsen fram með fagran blóm-
vönd í hendi og afhenti þess-
um glæsilegu blómarósum ÍR
blómin, sem þakklæti fyrir góða
og áuægjulega sýningu.
Næsta atriði var körfuknatt-
leikur kvenna og kepptu þar
ÍR og KR. Eru bæði liðin
byrjendur í þessari giein. Leik-
ar fóru þannig að afmælisbarn-
ið vann með 12 stigum gegn 8.
Síðari leikur kvöldsins var
milli Islandsmeistarana, Iþrótta
félags Keflavíkurflugvallar og
ÍR. Var beðið miklum spenningi
eftir þeim leik. Leikar fóru
þannig að afmælisbarnið vann
þann leik einnig og það með
meiri yfirburðum en nokkrum
datt í hug. Höfðu þeir sýnt
miklar framfarir frá því í vet-
ur. Fékk IR 46 stig en IKF 26
stig.
Þetta fvrsta kvöld ÍR var í
alla staði hið ánægjulegasta og
ríkti skemmtileg hrifni í saln-
um allt kvöldið.
Sigge Ericsson
keppir ekki meira
í vetur
Sænski skautahlauparinn
Sigge Ericsson hefur látið hafa
eftir sér að hann muni ekki
keppa í fleiri skautahlaupum í
vetur. Ástæðan er sú að hann
hefur verið ásakaður fyrir að
hafa ekki „gert sitt bezta“ ’
5000 m hlaupi um daginn í
landskeppni við Norðmenn. —
Hann mun því ekki keppa í
Bergen í landsleik þar og held-
ur ekki í nokkrum öðrum
skautahlaupum sem hann hafði
áður ákveðið.
Deilt hefur veiið fast á Sigge
fyrir 5000 m hlaupið, og fram-
koma hans þar ekki talin í hin-
inn rétta íþróttaanda.
Frá sýningu kvennajlokks ÍR (Ljósm. Þór Sig.)
Skíðagöngubraut opnuð við
Laugardalsieikvanginn
íþróttabandalag Reykjavíkur
hefur haft forgöngu um að
koma upp göngubraut hér í
Reykjavík, þar sem hægt er
að ganga 4 km í Landsgörigu
Skíðasambandsins á sjálfu bæj-
arlandinu. Hefur verið útbúin
ágæt skíðabraut utan í fláanum
umhverfis Laugardalsvöllinn
nýja, er hringurinn um 470 m
á lengd og þarf að ganga rúm-
lega 8 hringi.
Var brautin vígð í fyrrad kl. 2
og gengu hana Benedikt G.
Waage, forseti líS.Í., Bragi
Kristjánsson, formaður Olymp-
íunefndar íslands, Þorsteinn
Einarsson íþróttafulltrúi, Gís’i
Halldórsson formaður Í.B.R.,
tílfar Skæringsson formaður
Skíðaráðs Reykjavíkur, Baldur
Jónsson vallarstjóri og Sigur-
geir Guðmannsson framkv.stj.
Í.B.R. Var veður hið fegurst ■-
og hrautin mjög góð, renns
gott og tók gangan um 30 mín..
Verður brautin opin fr
mánudegi til föstudags í næst
viku ld. 2—8 s.d. Verður starfs-
maður þar við, sem skráir þ4
sem vilja ganga leiðina og at-
hendir merkin.
Fjölbreytt úrval af
TRÚLOFUNARHRINGIR
STEINHRINGUM
18 og 14 karata.
— Póstsendtim —