Þjóðviljinn - 08.05.1957, Qupperneq 3
Miðvikudagur 8. maí 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (8
Elliði landar á
Siglufirði
Siglufirði í gær. Frá
fréttar. Þjóðviljans
Togarinn Elliði lagði upp í
gær tæplega 180 tonn af fiski.
Aflinn verður hertur og fryst-
ur.
Sýningarsalurinn
Sýningu hinna sjö myndlist-
armanna í Sýningarsalnum í
Alþýðuhúsinu lýkur í kvöld.
Opið til kl. 11 e.h. Næst mun
Karl Kvaran sýna þar nokkrar
álímingar og gouachemyndir.
Frá afgreiðslusal Orlofs h.f.
Orlof h.f. fhitt í n\ og
vistleg húsakynni
Ferðaskrifstofan Orlof h.f. hefur fyrir nokkru flutt í
ný og rúmgóð húsakynni í Austurstræti 8, gamla ísa-
foldarhúsinu.
Á imdanförnum árum hefur'
örlof haft afgreiðslu í Hafn- í
arstræti 21. Þetta húsnæði
reyndist þó fljótt ófullnægjandi'
og þegar starfsliðið var aukið
var óhjákvæmilegt að fá
stærri húsakynni.
Orlof er i hinu nýjn húsnæði
5 Austurstræti í sambýli við
Blóanaverzlunina Flóru. Er af-
greiðslusalu rinn mjög smekk-
legur og gefur ekki eftir snotr-
ustu og vistlegustu húsakynn-
um ferðaskrifstofa erlendis.
Bak við afgreiðsluboðið í saln-
uin eru tveir klefar sem notaðir
eru við afgreiðslu viðskipta-
vina, er hyggja á langferðir
og lengri tima þarf til að ræða
við.
Fyrstu hópferðir Orlofs til
útlanda eri! senn að hefjast,
auk þess vinna starfsmenn
ferðaskrifscofunnar að undir-
búningi mikils fjölda ferða hér
innanlands, ýmiskonar aðstoð
cg fyrirgreiðslu við erlenda
ferðamenn er hingað leita í
vaxandi mæli f'rátt fyrir til-
finnanlegan skort á gistirými
hér í bæ og úti um ’and. Ann-
riki er því mikið hjá hinum 8
starfsmönnum Orlofs.
Þrátt fyrir hin umfangsrr iklu
f-törf er fyigja allskonar hóp-
iérðum er þó einn stærsti lið-
urinn í rekstri Orlofs sala á
farseðlum með flugvélum, skip-
um og öðrum farartækjum til
fólks sem ekki tekur þátt í
Islandsglíman
• ísiandsglíman verður háð í
47. sinn á föstudaginn kl. 8.30
í íþróttahúsinu að Hálogalandi.
Meðal 16 þátttakenda má nefna
Ármann J. Lárusson, UMFR og
Trausta Ólafsson Á.
skipulögðum hópferðum. Þann-
ig fá kaupsýslumenn og ferða-
menn þjónustu hjá fyrirtækinu,
svo sem pantanir á gistingu er-
lendis o.fl. um leið og þeir
panta og kaupa farseðla hjá
skrifstofunni.
Aðalfundur
Prestafél. íslands
haldinn 19. júní
Aðalfundur Prestafélags ís-
lands verður haldinn 19. júní
í suraar, á Þingvöllum. Samtimis
verður aðalfundur Prestskvenna-
félags íslands. Hefjast fundirnir
með guðsþjónustu í Þingvalla-
kirkju kl. 10 að morgni. Þar
prédikar séra Þorbergur Kristj-
ánsson í Bolungavík, en séra
Bjami Sigurðsson á . Mosfelli
þjónar fyrir altari. Þá verður og
fluttur guðfræðilegur fyrirlestur.
Aðalumræðuefni prestafundarins
ins verður „Hagnýting prestsset-
ursjarðanna", og verða frum-
mælendur prófastarnir séra Sig-
urjón Guðjónsson í Saurbæ og
séra Sveinbjöm Högnason á
Breiðabólstað. — Að loknum
fundarstörfum í báðum félögun-
um, verður sameiginleg kvöld-
vaka að Hótel Valhöll, og fara
þar fram ræðuhöld, frásagnir,
upplestur og söngur.
Mildur vetur - vorhret
Atvinnuhorfm íitlar — vantar fiskiskip
Vopnafirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Síðastliðinn vetur verður að teljast mildur hér eystra.
Maí heilsaði með blíðu, en svo gerði hörkufrost og byl,
en hefur nú aftur brugðið til hlýinda.
Veturinn i heild verður að
teljast mildur, þótt norðaust-
anátt væri á þorra og góu, en
viku af einmánuði kom kyrr|
og mild veðrátta. Hlákur voru
litlar en leysti þó og vottaði
fyrir gróðri um sumarmál, sem
er óvenjulegt hér eystra. Mai
heilsaði með blíðu, en svo gerði
hörkufrost er valda mun kyrk-
ingi í þeim gróðri sem komirm
var, en nú hefur hlýnað aftur.
Rjúpur féllu.
Síðari hluta vetrar bar mjög
á því að rjúpur féllu. Var mikið
af þeim heima við bæi. Mun erf-
itt að fullyrða hvort þar hafa
harðindi valdið eða veikindi í
stofninum.
A'Seins smábátar.
Dálítill fiskur kom í Vopna-
fjörð í vor og er enn, en skort-
ir búta, eru veiðar aðeins
stundaðar á litlum trillum, þær
stærstu tveggja tonna. At-
vinnuhorfur eru því litlar. Lok-
ið mun v ;rða við vatnsveitu
Vopnafjarðe rkauptúns og eitt-
hvað unnið í vegavinnu. Ekki
eru taldar horfur á því að
fi-ystihúsið verði starfrækt í ár,
þar sem skip vantar. Horfa
menn með eftirvæntingu til
þess tíma að Vopnfirðingar
geti orðið aðilar að togara.
Póshsamgöngur hafa verið af-
leitar til Vopnafjarðar og frá
því snemma í marz hefur póst-
ur koinið aðeins tvisvar.
Frönsk mél-
verkasýning
opnuð í dag
í dag ld. 16 verður opnuð
almenningi í bogasal Þjóð
minjasafnsins, málverkasýning,
sem Alliance Francaise
Reykjavík stendur f.yrir í sam
vinnu við franska sendiráðið,
sem lánar myndirnar.
Hér er um að ræða 40—50
eftirmyndir af frönskum mál
verkum frá timabili „impress
ionismans“ til von-a daga. —
Prentuð hefur verið vönduð
sýningarskrá, þar sem skrifað
er alllangt mál um listamenn
þá, hvem fyrir sig, sem verk
sýningarinnar eru eftir. Er þar
að finna mörg hin þekktustu
nöfn meðal franskra listmálara
síðari tíma.
Ríkishappdrætti til sjúkrahiís-
byggiiiga góð hugmynd frá 1954
Verða happdrætti SÍBS og DAS sameinu^
slíku ríkishappdrætti í framtíðinni?
Á fundi efri deildar Alþingis í gær var frv. Ingólfs
Jónssonar um sjúkrasjóð og talnahappdrætti vísaö til
ríkisstj órnarinnar.
Meirihluti heilbrigðis- og fé-
lagsmálanefndar lagði til að sú
yrði afgreiðsla málsins en
minnihlutinn lagði til að það
yrði samþykkt.
Framsögumaður meirihlut-
ans, Alfreð Gíslason, ræddi
málið allýtariega i framsögu-
ræðu sinni. Fórust honum m.a.
orð á þessa leið:
Heilbrigðis- og félagsmála-
nefnd hefur haft til athugun-
ar frv. til laga um sjúkrahúsa-
sjóð og heimild fyrir ríkis-
stjórnina til þess að setja á
stofn talnahappdrætti. Gat
nefndin ekki orðið sammála um
afgreiðslu þess. Meirihluti
heimar telur sig ekki geta mælt
með samþykkt frumvarpsins í
þeirri mynd, sem það er, og á
þessu stigi málsins, og leggur
til, að frv. verði vísað til
hæstv. ríkisstjórnar í trausti
þess, að hún láti fara fram
nánari athugun á efni þess.
Minnihluti nefndarinnar mun
hinsvegar leggja til að frv.
verði samþykkt óbreytt.
Við umræðu innan nefndar-
innar um frv. þetta kom fram
efasemd um, að talnahapp-
drætti, sem er ein tegund get-
raunahappdrættis, væri heupi-
legt. hér á la.ndi. Mun ástæðan
til þeirrar efasemdar sú, að
íþróttamenn starfræktu hér um
nolckurra ára skeið getrauna-
hapndrætti, að vísu í öðru formi
en það hanpdrætti gekk illa og
skilaði litlum eða engum arði.
Hefur sú slæma reynsla, með
réttu eða rönsru. gert marenn
manninn vantrúaðan á get-
rannahapndrætti \'firieitt.
Einnig kom sú skoðun fram
á fundum nefndarinnar, að það
væri máske að bera í bakka-
fullan Iækinn að stofna til
rekstrar nýs happdrættis, þar
eð þrjár stonanir í landinu
(Háskóli Islands, SÍBS og
DAS) hefðu þegar með höndum
hver um sig fastan og stór-
felldan happdrættisrekstur.
Tvær þessara stofnana verja
happdrættiságóða sínum í
byggingn heilbrigðisstöðva, sem
sé vinnuhæli bei-klasjúklinga að
Reykjalundi og elliheimili sjó-
manna. í Reykjavík. Sú spurn-
ing var fram borin í nefndinni,
hvort ekki mundi möguleikar
á, að sameina í náinni framtíð
happdrætti samhands herkla-
sjúklinga og elliheimilis sjó-
manna ríkishaupdrætti því, sem
frumvarpið ráðgerir, enda ættu
þessir aðilar óneitanlega skyldu
hlutverki að gegna. Þessari
spumingu vísaði nefnin til
stjórna SÍBS og DAS og fékk
frá þeim svör þess efnis, að
slíkri sameiningu væru þessi
fyrirtæki mjög andvíg. í svari
stjórnar DAS er á það bent,
að enn vanti rúmlega 20
millj. kr. til að ljúka byggingu
elliheimilis sjómanna og að það
yrði þeim framkvæmdum til
tjóns, að breyta frá núverandi
rekstrarfyrirkomulagi iiapp-
dættis þess. Álit stjórnar SlBS
er á þá leið, að verði slík sam-
eining framkvæmd, þá hljóti
hún að draga stórlega úr þeim
tekjum, sem áðurnefnd tvö fé-
lög hafa haft af happdrættis-
starfsemi sinni, því að næsta
ólíklegt verði að teljast, að
happdrætti í þeirri mynd, sem,
frv. á þingskjali 375 gerir ráð
fyrir, muni takast að ná við-
líka miklum viðskiptum og
hvort áðurnefndra fvrirtækja
fyrir sig hefur nú.
1 svörum beggja stjórna er
á það minnt, að áður hafi hér
verið rekið getraunahappdrætti
með áþekku sniði og um ræðir í
frumvarpinu, og gefi súi
reynsla, sem af því fékkst, eng-
an veginn tilefni til bjartsýni
um gróðavænlegan rekstur af
slíkri starfsemi. Þetta er álit
manna, sem reynslu hafa í
happdrættisrekstri, á talna-
happdrætti því, sem gert er
ráð fyrir í frumvapinu.
Mín persónulega skoðuu eí
sú, að hugmyndin um ríkis-
happdrætti til ágóða byggingií
sjúkrahúsa og annarra heil-
brigðisstofnana sé góð og
þurfi að komast í framkvæmð
í náinni framtíð. Vbrið 1954
var kosin milliþinganefnd í
heilbrigðismálum, og áttu sæti
í henni Páll Kolka, Esra Pét-
urss. og Alfreð Gíslason. Skil-
aði nefndin áliti um haustið, og
var þar einmitt stungið upo á1
ríkishappdrætti, sem föstum
tekjustofni sjúkrahúsa. Vat?
sérstaklega bent á fordæml
íra, sem láta allar tekjur afi
rikishappdrætti sínu renna tii
sjúkrahúsa og hafa þrnmg
komið spítalamálum sínum. i
fyrirmyndar horf, þrátt fvrín
fátækt íbúanna. Þetta fordrmal
tel ég athyglisvert og ti’. af-
huaamar fyrir okkur íslendinga,
Ef til vill á vantrúin á "e£-
raunahappdrætti ekki fi'Mai*
rétt á sér. í V-Þýzkalandi 'nun
talnahappdrætti ganga vel Etai
þessi vantrú er þó ekki til-
efnislaus. þar eð slæm re>- 'sla
varð af hanndrætti svipa<vra3?
tegundar hér á landi Hefur sú
revnsla óneitanlesra haft nokk-
ur áhrif á afsiöðuna til frum-
va.vnsins t heild
Það er einnig mín persónu-
lega skoðun að sameina eigi
væntanlegu ríkishappdrætti til
ágóða fyrir heilbrigðisstofnan-
ir landsins happdrætti sam-
bands berklásjúklinga og
happdrætti elliheimilis sjó-
manna. Þrískiptur happdrættis-
rekstur hlýtur að vera mikhS
Framhald á 10. síðu.
Ný jöklamerki 1
gefin út í dag
í dag verða gefin út þrjðf
ný frímerki, jöklamerki, með
sömu myndum og flugfrímcrkira
frá 1952, en flugvélin felld burí
af hverju merki.
Verðgildi merkjanna eru 2
kr. grænt, 3 kr. blátt og 10
kr. hrúnt.
Frímerkin eru teiknuð afi
Stefáni Jónssyni og prentuð hjál
firmanu Thomas de la Ri:e
Co., Ltd., London.