Þjóðviljinn - 08.05.1957, Page 9
Miðvikudagur 8. mai 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (9
% ÍÞRÓTTIR
HrrSTJÓRI FRtMANN HELGASON
Sveit IR setti glæsilegt met í fjórsundi
á fyrsta degi sundmeistaramótsins
Guðmundur Gíslason ÍR bæfti drengjamet í 100 metra skriðsundi
um röska eina og hálfa sekúndu
Tuttugasta og sjöunda sund-
meistaramót íslands hófst á
mánudaginn var í Sundhöll
Heykjavíkur. Erlingur Pálsson
formaður Sundsambandsins
setti mótið með ræðu.
Áhorfendur voru allmargir,
þó virðist sem áhugi ætti að
vera meiri ef tekið er tillit til
þess hve sundið er útbreitt.
Einn aðalviðburðurinn á mót-
inu var drengjamet Guðmundar
Gíslasonar í 100 m skriðsundi,
hann bætti þar drengjamet
Péturs Kristjánssonar um 1
sek. og 6/10 sem er gott afrek.
Þess má líka geta að tími Pét-
urs í 100 m skriðsundi rétt áð-
ur var 1,01,2, en þar vantaði
Pétur harðari keppni.
í f jórsundinu synti Guðmund-
ur flugsund og var tími hans
þar 1,12,0 sem er næstbezti
tími íslendings á því sundi.
I síðustu greininni þetta
kvöld setti sveit ÍR undra gott
met í 4 X100 m fjórsundi, tím-
inn var 4,52,5 -sem er betra en
landssveitarmet (4,59,6) en
eldra félagsmetið átti Ægir og
var það 5,01,3. Ólafur Guð-
mundsson synti baksundið á
um 1,15 sem er góður tími og
lokasprettinn synti Gylfi Guð-
mundsson á 1,01,0. Fjórði mað-
urínn í sveitinni var Atli Stein-
arsson sem synti bringusunds-
sprettimi. Atli hefur að mestu
dregið sig í hlé í kappsundum,
sem þó sýnir sig að var full
fljótt.
Sumar greinar voru jafnar
og spennandi og má þar nefna
400 m bringusundið. Aðal bar-
áttan var milli Torfa Tómas-
sonar og Sigurðar Sigurðssonar
frá Akranesi. Þegar á fyrstu
þrem til f jórum leiðunum komst
Torfi nokkuð á undan Sigurði
en siðan tók Sigurður að stytta
bilið og um það stóð tvísýnan
hvort okkar ágæta Skagamanni
tækist að koma fyrr að marki.
Torfi, sem er sýnilega í góðri
þjálfun núna, gaf sig ekki og
kom í mark 7/10 úr sek. á
undan í mark. Sennilega sleppti
Sigurður Torfa of langt frá sér
í upphafi og misst fyrir það af
meistaratitlinum að þessu sinni.
Hafnfirðingar eiga góð efni í
Sigurjóni Hannessyni og Birgi
Dagbjartssyni. Að þessu sinni
voru óvenju fáir kepþendur frá
Keflavík.
I bringusundinu var dæmt
eftir nýjum reglum, þar sem
bannað er að synda í kafi, eins
og tíðkast hefur hér um langt
skeið. Stúlkurnar sérstakle'ga
höfðu, að því er dómararnir
töldu, ekki fylgt hinni nýju
reglu og var Ágústa Þorsteins-
dóttir sem var fyrst dæmd úr
leik fyrir meint brot og það
Framhald á 10. síðu.
Bcnedikt G. Waagc, iorseti Iþróttasambands lslands, afhendir Ellen
Mogensen og Wagner Walbom verSIaun sín. (Ljósm. Itafn Viggósson).
Wagner Walbom Islands-
meistari í badminton
Meistaramót íslands í bad-
minton var háð í íþróttahúsi
KR um síðustu helgi. Úrslit
urðu þessi:
MEISTARAFLOKKIJR
Einliðaleikur karla:
Wagner Walbom T.B.R. sigr-
aði Ágúst Bjartmars U.M.F.
Snæfell með 15:3 og 15:2.
Einliðaleikur kvenna:
Ebba. Lárusdlóttir T.B.R.
sigraði Júlíönu Isebarn T.B.R.
með 11:9 og 11:7.
Tom Finney knattspyrnu-
maðuir Englands 1956
Þeir sem fylgjast nokkuð
með enskri knattspyrnu munu
hafa heyrt nafnið Tom Finney
nefnt. Hann hefur lengst af
Jeikið sem útherji og oft verið
jafnað til liins óviðjafnanlega
Matthews, og sumir hafa vilj-
að telja hann meiri flokksleik-
mann en sjálfan meistarann
Matthews. Nú fyrir stuttu tók
hann að leika í stöðu miðherja
og gerði það með svo mikilli
prýði að hann var valinn til
þess að leika í landsliðinu
enska. IHann er jþó enginn
unglingur lengur, því að hann
er 34 ára gamall.
íþróttablaðamenn Englands
völdu nýlega. knattspyrnumann
ársins og varð Tom Finney
fyrir valinu. Er þetta í annað
sinn sem hann verður fyrír
þessum heiðri að vera valinn
maður ársins, en það gerðist
jrið 1954. Finney hefur leikið
63 landsleiki fyrir England, og
var síðasti leikur hans við
Skotland fyrir nokkru, en Eng-
land vann þann leik 2:1.
NÝTTEFNl
til aö þvo ull, silki, nœlon, leirtau og bor&búnað’
m
SKÝRIR LITIR I ULI.AKTAUI i
Þvol er betra en sápuspænir til að þvo ull, silki
og- nælon. l>að freyðir vel og skolast mjög
auðveldlegá úr. Þvol þvær jafnt í köidu sem heitu
vatni. Þvo) skýrir liti i ullartaui.
u u
MIKILL VINNUSPARN-
AÐUR VIÖ UPPÞVOTTINN
Fita og önnur óhreinindi
renna af diskum og giösum.
Ef þér hafið uppþvotta-
grind og notið vel heitt
vatn, þá þarf hvorki
að skola né þurrka og leir-
tauið verður skýlaust
og gljáandi.
• Þvol er einnig mjög gott
til hreingerninga, gólf-
þvotta, bletthreinsunar
o. m. fl.
» Þvoi er mjög drjúgt.
FER VEL MEÐ HENDU
Tvíliðaleikur karla:
Wagner Walborn og Friðrik
Sigurbjörnsson T.B.R. sigruðu
Ragnar Thorsteinsson og Karl
Maack T.B.R. með 15:7 og
15:6.
Tviliðaleikur kvenna:
Ebba Lárusdóttir og Júlíana
Isebarn T.B.R. sigruðu Jónínu
Niljóniusdóttur og Sigríði Guð-
mundsdóttur T.B.R. með 15:12
12:15 og 15:10.
Tvenndarkeppni:
Wagner Walbom og Ellen
Mogensen T.B.R. sigruðu Lárus
Guðmundsson og Jónínu Nil-
jóniusdóttur T.B.R. með 15:5
og 15:6.
1. FLOKKUR
Einliðaleikur karla:
Kristján Benediktsson T.B.R.
sigraði Gunnar Petersen T.B.R.
með 15:11 og 15:7.
Einliðaleikur kvénna:
Rannveig Magnúsdóttir T.B.R.
sigraði Ólöfu Lárusdóttir UMF
„Snæfell“ með 11:2 og 11:3.
Tvíliðaleikur karla:
Kristján Benjaminsson og
Guðlaugur Þorvaldsson T.B.R.
sigruðu Pétur Nikulásson og
Gunnar J. Friðriksson T.B.R.
með 15:9 og 15:9.
Tveimdárkeppni:
Giuinar Petersen og Guð-
munda Stefánsdóttir T.B.R.
sigruðu Ragnar Georgsson og
Rannveigu Magnúsd. T.B.R.
með 15:3, 11:15 og 15:13.
Lands)iðið-„Pressan
handknattleik í kvöld
ii * \
Hinn árlegi leikur í hand-
knattleik milli landsliðsins, sem
valið er af Handknattleiksdóm-
arafélagi Reykjavíluir og liðs
er íþróttablaðamenn velja, fer
fram í kvöld að Hálogalandi.
Lið það sem dómarafélagið hef-
ur valið hefur kjarnann úr FH,
en fyllir upp með mönnum úr
KR og IR.
Landsliðið er þannig skipað:
Guðjón Ólafsson KR og Hjalti
Einarsson FH, markmenn;
Sverrir Jónsson, Einar Sigurðs-
son, báðir úr FH, og Gunnlaug-
ur Hjálmarsson IR, bakverðir;
Bergþór Jónsson, Birgir Björns-
son, Ragnar Jónsson, allir úr
FH; Hermann Samúelsson IR,
Karl Jóhannsson KR og Heins
Steinmann KR.
Lið blaðamanna er þannig:
Gunnar Gunnarsson Fram, og
Kristófer Magnúss. FH, mark-
menn; Hörður Felixson KR,
Þórir Þorsteinsson KR og Jón
Erlendsson Áimanni, bakverð-
ir; Jóhann Gíslason Val, Karl
Benediktsson Fram, Ásgeir
Magnússon Val, Reynir KR,
Geir Hjartarson Val og Matt-
hías Ásgeirsson ÍR.
Pressuliðið í kvennaflokld, sem
keppir í kvöld:
Margrét Hjálmarsdóttir-
(Þrótti), Katrín Gústafsdóttii •
(Þrótti), Ólafía Lárusdóttir-
(Þrótti), Inga Magnúsdóttir-
(K.R.), Hrönn Pétursdóttir-
(K.R.) Aldís Einarsdóttir-
(K.R.), Þórunn Erlendsdóítii-
(Ármanni), Ása Jörgensdóttir-
(Ármanni), Inga. Lára Lárents-
íusdóttir (Fram) og Anný Ást-
ráðsdóttir (Fram).
Consolini ekki af
haki dottinn
I íþróttafréttum frá ítaliu er
þess getið að hinn aldni kringlu-
kastari, sem þó er síungur.,
Consolini, æfi af krafti og h fr
þegar kastað kringlunni 50
m. Næstur honum var Mec iS
með 46,67 m.
I hástökki fór 19 ára pil .r
yfir 1,91 m í hástökki.