Þjóðviljinn - 20.10.1957, Side 4

Þjóðviljinn - 20.10.1957, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 20. október 1957 Ný tegund af CHAMPION bílkertum Sannreynt heíur verið að hin nýju CHAMPI 0 N „kraftkveikjukerti" geta endurnýjað bifreið yðar á eftirfarandi hátt: AI.LT Á SAMA STAÐ 1. MEIRA AFL Tilraunír, sem verkfræð- ingar hafa gert sanna að bifreiðin eykur afl sitt að mun . við notkun nýrra OHAMPION „kraft- kveikjukerta“ (Power- fire). 2. ÖRUGGAKI RÆSING Ný 5 grófa CIIAMPION „kraftkveikjukerti“ (Pow- erfire) stytta þann tíma sem fer í að ræsa bilinn. Þannig sparast rafmagn og benzín. 3. MINNA VÉLASLIT Gömul kerti kveikja ekki rétt, eyða benzíninu að óþörfu og skemma vélina. CHAMPION sparar yður því einnig viðgerðar- kostnað. 4. MINNI KOSTNAÐUR Hinar stórkostlegu nýju „kraftkveikju“ (Power- fire) platínur endast bet- ur en venjulegar. Gjör- nýta afl vélarinnar. M U N I Ð að sbipta þarf um kerti eftir ca. 16.000 km akstur. Bið.jið aðeins um CHAMF- ION .,kraftkveikju“ (Powerfire) bifreiðakerti. Laugavegi 118 —- Sími 2-22-40 H.f. Egill Vilhjá! IflSSOP Laugavegi 118 — Sími 2-22-4Q S K A K I N Ritstjóri: Sveinn Knstinsson f H asti ngs mótiS Hastingsmótið í vetur verð- ur án efa einn merkasti skák- viðburður vetrarins. Að þessu sinni munum við íslendingar ekki eiga neinn fulltrúa þar, enda munu Bretar telja að við höfum fengið okkar skammt í bili þar sem við höf- um fjcrum sinnum á síðustu tfu árum verið boðnir til mótsins og haft aðstöðu til að þekkjast boðið. Það mun líka vera sjaldgæft, að Bretar hafi boðið sama skákmannir.um þrisvar til þessa móts á jafn skömmum tíma og Friðriki Ól- afssyni. Getum við því vel við unað, þótt við eigum ekki full- trúa á þessu merka skákmóti á vetri komanda. Ekki mun enn fullráðið, hvernig mótið verður skipað, en samkvæmt brezkum blöð- um hafa þeir alþjóðlegi stór- meistarinn Rossolimo (tefldi í Reykjavík 1951), banda- ríska undrabarnið R. Fischer og skákmeistari Bretlands, Fazekas, þegar þekkzt boð um að tefla á mótinu, en auk þess hefur Ungverjanum Kluger, Tékkanum Filip og Bent Lar- sen verið boðin þátttaka. Þá hefur Rússum verið boðið að senda tvo keppendur á mótið, og væntanlega fylla svo Júgó- slavinn Gligoric og annar hvor Bretanna Clarke eða Penrose upp í tuginn. Er þannig ljóst, að Hast- ingsmótið verður engin veifi- skata samkunda að þessu sinni fremur en endranær. Ný stjarna á vestur- himni Bandaríkjamaðurinn R. Fischer er aðeins 14 ára að aldri, en hefur þegar náð furðulegum skákstyrkleika. — Nýlega vann hann unglinga- meistaramót Bandaríkjanna, sem skipað var 33 þátttakend- um. Hlaut Fischer 8V2 vinning af 9 mögulegum. Þá varð hann einnig hlutskarpastur á hinu svonefnda „Opna skák- meistaramóti" Bandaríkjanna, sem haldið er ár hvert. Hefi ég eigi fregnað nákvæm úr- slit frá þessu móti en eftir- farandi skálc, sem þar var tefld, gefur til kynna, að hér sé ósvikið efni á ferðinni. Andstæðingur Fischers D. Byrne er meðal þekktari skák- manna Bandaríkjanna. Hér kernur skákin: Hvítt: D. Byrne. Svart: R. Fischer. Reti-byrjun. 1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. b3 Bg7 4. Bb2 0—o 5. c3 (Þessi leikur er heizti róleg- ur og gefur svörtum fullmikið frjálsræði á miðborðinu. 5. d4 væri sterkari leikur). 5. d6 6. Be2 e5 7. o—o Rbd7 8. Rc3 He8 9. Hcl (Nú var 9. d3 betri leikur, til þess að geta svarað e4 með Rd2. Riddarinn hrckst nú á óheppilegri reit). 9. e4 10. Rel Re5 11. d3 Bf5 12. dxe4 Rxc4 13. Rxe4 (Ef 13. g4 kæmi — Rxc3. 14. Bxc3 Bd7 15. Rg2, f5 16. Dd5+, Kh8 17. Dxb7, Bc6 og svartur nær óstöðvandi kóngs- sckn). 13. Bxc4 14. Bc3 f5. 15. b4 b6 16. Db3 De7 17. c5f Kh8 co 00 (Betra var 18. cxd6 og síðan Rc2 — d4). 18. De6 (Fischer lætur ekki veiða sig í hina einföldu gildru 18. — Rxc6? 19. f3 og hvítur vinn- ur mann. Hvítur átti nú að þiggja drottningakaup og væri þá jafntefli líklegustu úr- slitin). 19. Db2 (Hótar f4) 19. — Df7 20. b5 g5 21. a4 f4 22. f3 Bf5 23. e4 Be6 24. Rc2 Dg6 25. Rd4 IH8 26. a5 IIac8 (Meðan hvítur gerir árangurs- lausar mótspilstilraunir á drottningarvæng lýkur svar’É- ur undirbúningi slnum undir kóngssókn). 27. axb6 áxb6 28. Hal g4 (Hvítur er neyddur til að drepa g-peðið, því að svartur hótar mátárás með g3. Hvít- ur gæti ekki svarað þeim leik með li3, þar sem svartur léki þá Dh5 og fórnaði síðan bisk- upnum á h3). 29. Íxg4 Dxe4 30. Hael Dd5 31. b3 Ha8 (Hótar Ha2). :32. Rxe6 Dxe6 33. Db4 Dd5 34. Khl (Gallinn er sá, að kóngurinn er í litlu betra skjóli á hl en gl. Hdl strax var því eðlilegri leikur. Jafnvel 34. Hxf4 kom til greina. T. d. 34. — Hxf4 35. Dxf4 Dc5f 36. Bd4 0. s. frv. Eftir hinn gerða leik nær Fischer hins vegar óstöðvandi sókn). Svart : R. Fischer ABCOEFGH Nýjar bækur frá L e f f t í* i 'tMvm. wm áwí . m m ml m * B C D E F G Hvítt: D. Byrne 34. f3! 35. gxf3 Rxf3 36. Hdl (Eftir 36. Bxg7f Kxg7 37. Dc3f Rd4f 38. Kgl, De5 o. s. frv. vinnur svartur auðveld- lega). 36. Rd4f 37. Hf3 IIxf3 38. IIxd4 Hxh3tt 39. Kgl Dhlf 40. Kf2 Hf8t Framhald á 11. síðu. — ný sjálfstæð saga eftir Guðrúnu frá Lundi. Mörg undanfarin ár hafa bækur Guðrúnar frá Lundi verið nietsölubækur hér á landi. íslenzk alþýða dáir þessa stórvirku skáldkonu, scm lýsir svo spilldarlega :lífi og kjörum, hugsunum og viðfangsefnum alþýðunnar, að aðrir hafa ekki betur gert. Persónur hennar eru' sannaf og fastmöt- aðnr. í sögum hcniiar er íslenzk alþýða IjóslifandT í' önii' og ferll dagsins. Hringjarlnn frá Nofre Dame ^ .,yictor. »„»*• Bjorgulfur Olafsson - læknir Islenzkaði. — Skáldsagan sem hér birtist í íslenzkri þýðingu var rituð fyrir meira en heilli öld og kom fyrst út 1831. Hún er eftir franska stórskáldið Victor Hugo. Formála skrifar Magnús Jónsson prófessor. Hann segir þar m. a. um Hugo: „Hann býr yfir miklu ímyndunarafli og mælska hans er óþrjótandi .... Hinar gróskumiklu og litauðugu miðaldir freistuðu hans. Þangað sótti hann ýrkisefnið í þessa sögu sína, sem gerist- í París á 15. öld .... Með sköpunarmætli sínum heillar hann fram mynd af París, senr er sterk í litum — rík að andstæðum. Það er ekki sönn ijósmynd, heldur mynd frá töfraspegli snillingsins mikla.“ JAFET í föðurleii f» M(A“ýAT' kannast við hmn heimsfræga enska rithöfund Marryat. Margar af skáldsögum hans hafa verið þýddar á íslenzku, s. s. Hollendingurinn íljúgandi, Jakob ærlegur, Jón miðskipsmaður, Landnemarnir í Kanada, Perci- val Keene, Pétur Simple, Víkingurinn og Finnur frækni. Síðastnefnda bókin kom út í fyrra og seldist þá upp. — Þýð- andi sögunnar JAFET í föðurleit, Jón Óiafsson skáld og ritstjóri er þjóðfrægur maður. Auk stjórnmála og blaða- mennsku lagði hann gjörva hönd á margt. Hann var skáld gott og hafa kvæði hans komið út í þremur útgáfum. All margar þýðingar liggja eftir hann og eru þær með ágætum. TUMI á ferS og flugi eftir Mark Twain. Allir sem lesið hafa sögur eftir Mark Twain kannast við þá Tuma litla og Stikilberja-Finn, því þeir eru vinsælustu persónurnar í unglingabókum hans. Hér segir frá ævintýralegri flugferð með loftbelg, sem þeii Tumi litli og Finnur lenda í, og með þeim er líka negra- drengurinn Jim, sem kunnur er úr TUMA-bókinni Trnni gerist leynilögregla, og hefur hann oft reynzt þeim Tuma og Finni traustur og góður vinur. — Ævintýrin, sem þeir lenda í eru óteljandi og frásögnin snilldarleg eins og vænta má af höfundi sögunnar. JÓÍ og sjóræningjasfrákarnir Þessi bók er eftir ungan íslenzkan nit- höfund, sem ritar undir nafninu ÖRN KLÓI. Eftir hann hefur komið út Dóttir Hróa hattar, sem hlaut miklar vin- sældir og seldist fyrsta útgáfan á nokkrum vikum. I '1.1. eftir Kari Örbech. Arnheiður Sigurðardóttir ís- LíUICLla ienzkagi_ petta er fagurlega sögð saga handa ungum stúlkum, sem varpar birtu yfir hversdagsviðburðina. Efni sögunnar er sótt til hins hversdagslega lífs, en er þó fegurra en óskadraumurinn. Á afskekktu norsku skógarbýli elzt Lóretta upp fram um fermingaraldur. Móðirin er dáin og hlutskipti Lórettu verður því að annast heimilið, föður sinn og systkini. — í samkeppni sem útgáfufyrirtækið Damm efndi til fyrir beztu söguna handa 12—16 ára stúlkum, hlaut Kari Örbech 1. verðlaun fyrir þessá sögu. LEIFTUR h.f.r Þinghoifssfræti 27

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.