Þjóðviljinn - 24.12.1957, Side 17
JÓLABLAO þJÓBVIUANS 1957 (17
. Kvöld annars jóladags óg
langt fram eftir nóttu (1956)
las ég nýútkomna minningabók
eftir einn af mætustu framá-
mönnum íslenzkrar utanríkis'
þjónustu og varð það til þess
að ég setti saman þennan_frá-
söguþátt. Bók þessi: Enn á
heimleið eftir Vilhjálm Finsen,
fjallar um Svíþjóðardvöl höf-
undar meðan seinni heimsstyrj-
öldin stóð og nokkru lengur.
Beinist frásögnin allmjög að
hinu svokallaða diplomatíi. Seg-
ir höfundur frá ýmsum stéttar-
bræðrum sínum, er það vin-
samleg og stundum spaugsöm
frásögn, en engum gerir hann
jafnmikil skil og stéttarsystur
sinni, fyrstu konu heims, sem
varð sendiherra og siðar sendi-
ráðherra, frú Alexöndru Mika-
ilovnu Kollontay. Enda mun
hún hafa verið frægust og sér-
stæðust þeirra diplómata, er
bókin greinir frá. Átti að baki
sér stórviðburðaríka, ævintýra-
lega og háskalega ævi, var
glæsilegur persónuieiki, svo að
af bar, gædd kvenlegum yndis-
þokka til hárrar elli, áleitnum
persónutöfrum, sem erfitt var
að standast og þvi áróður henn-
ar og málafylgja jafnan sigur-
sæl.
í bók V. F. standa eftirfar-
andi ummæli um frú Kollontay,
höfð eftir Isabel de Palencia, er
var sendiherra spænska lýð-
veldisins í Stokkhólmi, meðan
börgarastyrjöldin geysaði á
Spáni: „Einhver svipmesti
, kvenskörungur, sem nokkurt
land hefur alið, var þessi unga,
gáfaða rússneska kona. Fögur
eins og ástargyðjan og brenn-
andi af áhuga fyrir hugsjóna*
stefnu sinni. Vissulega hefur
hún skrifað undarlega hluti um
konur, ástina og hjónabandið,
nokkuð frjálslega, en grunn-
tónninn er móralskur.“
Ég vil bæta við þessi orð, að
Alexandra Kollontay hlýtur að
hafa fæðst undir heillastjörnu
fyrst henni var stætt á því, hve
djarft hún tefldi með líf sitt
og mannorð, ekki sízt með skrif-
um sínum um jafnrétti kvenna,
því að hún barðist hispurslaust
og óvægilega gegn hefðbundnu
helsi kvenna og rangsnúnu
lífsviðhorfi, sem dregur þær
allar í sama dilkinn, án tillits til
persónulegra hæfileika og
margbreytilegra starfshneigða.
Þegar hún hóf skrif sín voru
skoðanir um frjálsar ástir,
frjálst móðerni og yfirleitt
frelsi kyenna til sjálfsákvörð-
unar, á hvaða sviði, sem var,
stórum nýstárlegri og djarfari
og mættu öflugri mótspyrnu en
nú, þegar búið er að klifa á
kvenréttindum í meira en öld,
ef miðað er við fundinn í Sen-
eca Falls í Bandaríkjunum árið
184S, sem grundvallaði alþjóð-
lega kvenréttindahreyfingu. En
konurnar í Seneca Falls höfðu
öðrum hnöppum að hneppa en
gera ályktanir um ástamál, slíkt
beið seinni tíma, og þar kom
frú Kollontay að lítt plægðum
akri og vart mun henni hafa
verið kunn sú barátta, sem
Camilla Collett hóf fyrir sjálfs-
ákvörðunarrétti kvenna í hjú
skaparmálum með skáldsögu
sinni: Dætur amtmannsins, sem
út kom árið 1855. En á þeim
tíma áttu konur ekki vald á
því hverjum þær gæfu hönd
sina.
Hinn íslenzki stéttarbróðir
Alexöndru Kollontay lýsir
henni í bók sinni af velvild og
einlægri virðingu, enda hlaut
jafn stórbrotin og sérstæð hæfi-
leikakona, í mikilli virðingar-
stöðu fyrir stórveldi, að hafa
margt til síns ágætis og vera
mikils metin. Er ekki ofmælt að
augu heimsins hafi hvílt á
henni. Þó að á tímabili bærust
að henni böndin fyrir áróður.
jafnvel njósnir fyrir Rússa i
Sviþjóð, og að henni stafaði
hætta að heiman sakir tor-
tryggni Stalíns, en hún hafði
um eitt skeið átt rvána sam-
vinnu við Trotsky, tókst henni
með skörpum gáfum sínum og
undraverðu lagi að greiða úr
öllum flækjum, sigla með glæsi-
brag framhjá hverju skeri.
Frú Kollontay hefur með per-
sónutöfrum sínum verkað á fólk
eins og segull á stáL Veizlur
hennar voru víðfrægar, allar
dyr stóðu henni opnar, hún var
umsetin gestum og eftirsóttur
gestur sjálf. Hún var svo óhjá-
kvæm'ilega bundin tímafreku
samkvæmislifi, hverskonar
móttökum og einkaviðtölum að
hún varð að lengja starfstima
sinn fram á nætur, til þess að
geta annað umsvifamiklum
sendiráðherrastörfum, sem voru
þvi margbrotnari og annasam-
ari, sem hún var greiðviknari
og fúsari til að leysa hvers
manns vanda, en venjulegt má
teljast, og auk þess skarpskygn
og skjót til úrræða.
Frú Kollontay var af finnsku
bergi' brotin í móðurætt, nánar
tiltekið var móðurafi 'hennar fá-
tækur, íinnskur bóndasonur,
sem komst í efni og álit. Móðir
Alexöndru Kollontay erfði
finnskan búgarð eftir foreldra
sína og þar dvaldist fjölskyldan
á sumrum. Þar var gott að vera.
Alexandra Kollontay taldi
þennan stað sína æskuparadís,
og þó að hún teldist rússnesk
hafði hún sterkar taugar til
Finnlands og Finna. Vafalaust
hefur þetta tvennt, ættemi
hennar og yndisrík sumardvöl
í Finnlandi átt veigamikinn
þátt í því, hve finnska þjóðin
var henni hugfólgin. Hún
Höfundur grcinarinrtar.
reyndi að verða Finnpm til
hjálpar, er þeir áttu í ófriði við
Rússa, og sendi að sögn Síalin
skeyti og bað þeim griða, er
vetrarstyrjöldin 1939—40 stóð
sem hæst og harðast svarf að
Finnum.
Forseti Finnlands, Paasikivi,
leitaði aðstoðar frú Kollontay
til þess að binda enda á
styrjöldina, og er talið að frú
Kollontay hafi átt mikinn ©g
göðan hlut’ að þvi áð friður
var saminn með þá, eftir atvik-
um, viðhlítandi kjörum fyrir
Finna. Frá finnsku stjórninni
bárust tilmæli um það, að fi'ú
KoHontay yrðí veitt friðarverð-
laim Nóbels, þau fyrstu er veitt
voru eftir ófriðarlokin, og var
þaö mjög útbreidd skoðun, að
hún hefði meira til þeirra unn-
ið en þeir tveir Bandaríkja-
menn: E. G. Balch og J. R.
Mott er hrepptu þau. Geta má
þess að uppástunga kom fram
um það, að friðarverðlaununum
yrði skipt milH þeirra frú Alex-
öndru KoUontay og frú Elean-
or Roosevelt.
Erú Kollontay var sæmd
heiðursmerkjum margra ríkja
og átti að fagna vaxandi virð-
ingu og viðurkenningu, hún
stóð raunverulega á hátindi
frægðar og vinsælda er hún
haustið 1945 fékk aðkenningu
af slagi og lamaðist vinstra
megin, tók þó á móti gestum,
sitjandi í sjúkrastól á afmælis-
degi byltingarinnar 7. nóvem-
ber 1945. Skömmu síðar lét
hún af störfum og fluttist al-
farin til Rússlands.
■
Svo sem vænta mátti varð frú
Kollontay þegar í lifanda lífi
mikil þjóðsagnahetja og frá-
sagnir um uppruna hennar og
upphaflega hefðarstöðu allmik-
ið ýktar. Var ef til vill nokkurt
vorkunnarmál, þó að menn
gleyptu við hverskonar ævin-
týralegum sögnum um hana,
unz hún sjálf opinberaði heim-
inum sannleikann með endur-
minningum sínum, er út komu
árið 1947. Var bersýnilegt, að
þar mundi vera um fyrra eða
fyrsta bindi að ræða, enda hét
það Fyrsti áfanginn. Ekki er
mér kunnugt um að framhald
hafi komið af sjálfsævisögu
hennar, og er mér nær að halda
að svo hafi ekki verið, enda
mun hún ekki hafa borið sitt
barr eftir að hún fékk slagið,
sem getið hefur verið um, þó
að henni treindist ævi á sjö-
unda ár eftir það, en hún lézt í
marz 1952.
í bók íslenzka diplómatsins
segir svo:
„Madame Kollontay var af
mjög tignum ættum hins gamla
rússneska keisaradæmis. Faðir
hennar hét Domontovitch og
var einn af hershöfðingjum
Rússakeisara við hirðina í Pét-
ursborg. Alexandra hafði þann-
ig alizt upp í umhverfi, sem vel
gat gefið tilefni til að snúa við
blaðinu og gerast verndari
þeirra, sem bágast áttu. Hún
var ung, gáfuð og fríð og eftir-
sótt af háttsettum karlmönnum,
hvar sem hún sýndi sig í sam-
kvæmislífinu í Pétursborg. Því
var þá haldið fram, að engin
stúlka í höfuðborginni hafi orð-
ið að vísu á bug jafnmörgum
biðlum sem hún. Hún gat valið
um eiginmenn.
Hlutskarpastur varð verk-
fræðingurinn -og stóreignamað-
urinn Kollontay, mesti lóða- og
fasteignaeigandi í Pétursborg.
Það var sagt, að hann ætti tí-
unda hluta allra verðmætustu
húsa og lóða í höfuðstaðnum.
Lifðu þau hjónin nokkur ár rík-
mannlega og liklega hamingju-
sömu lífi og þau eignuðust einn
sbn, Það fór orð af veizlunum i
höll Kollontayhjónanna, sem
var samkomustaður alls þess
fólks, sem háttsettast var í höf-
uðborg Rússlands, auk lista-
manna, vísindamanna og ríkra
iðjuleysingja. —
Alexandra var þá þegar
snortin af hinni leynilegu bylt-
ingaröldu, sem tekin var að rísa
allstaðar í hinu víðáttumikla
ríki, en lét þó Htið á sér bera
í fyrstú. En þegar maður henn-
ar dó skyndilega af hjartaslagi
og hún var þannig frjáls ferða
sinna þá kastaði hún grímunni
og gerðist opinberlega fylgjandi
byltingarhreyfingunni.“
— Margt af því, sem sagt er
í þessari tilvitnun kemur mjög
í bág við frásögn frú KoHontay
sjálfrar, og er því furðulegra,
sem höfundi er kunnugt um
ævisögu hennar og vitnar til
hennar.
Það eru einkum tvö atriði er
hér skulu tekin til samanburðar
samkvæmt reglunni, hafa skal
það, er sannara reynist: ætt-
erni frú Kollontay og hjúskap-
ur hennar, og verður síðan vik-
ið að sigursæUi baráttu henn-
ar fyrir eigin þroska og sjálf-
stæði, og dáðríkri þátttöku
hennar í viðleitni til að reisa
réttlátt alþýðuveldi á rústum
hins rangláta keisaraveldis.
Það ei\ þá fyrst til að taka er
segir: „Frú Kollontay var af
mjög tignum ættum hins gamla
keisaradæmis.“ Víst var um
það, að hún hefur verið af góðu
og traustu bergi brotin, konan
sú, en kannski dugði henni ekki
síður til þols og þoranraunar
hið finnska alþýðublóð en hið
rússneska aðalsblóð.
Móðurafi frú KoUontay var
eins og áður hefur verið getið
bláfátækur, en framgjarn og
stórhuga bóndasonur frá Ny-
slott í Finnlandi, Alexander
Massalín að nafni. Átján vetra
að aldri fór hann fótgangandi,
og meira að segja berfættur, til
höfuðborgar hins mikla Rússa-
veldis. Ekki er þess getið, að
hann hafi haft meðferðis hiS
fræga veganesti geitarost, en
vel dugði honum fótaskinnið,
því að heill komst hann leiðar
sinnar og hóf timburverzlun.
Er ekki að orðlengja það, að
fátæki bóndasonurinn frá Ny-
slott varð mikill mektarmaður,-
kvæntist rússneskri stúlku sem
var menntuð, fín og stórlát,
keypti handa henni víðlenda
jörð í Finnlandi og húsaði stór-
mannlega, svo að þau gætu
samið sig að háttum rússnesks
sveitaaðals.
Móðir frú Kollontay hét
Alexandra. Þegar hún var upjD-
komin stúlka felldi ungur, rúss-
neskur liðsforingi Mikail Dom-
ontovitch hug til hennar, en
fékk hennar eigi, faðir hennar
kaus að gefa hana öðrum
manni og fyrir því valdi varð
hún að beygja sig, svo voru
tímarnir þá. En ástin lætur ekki
að sér hæða, seinna skildi Alex-
andra við mann sinn, sem hún
átti þó tvær dætur með, og
fékk að lokum þann, sem hún
unni, Mikail Domontovitch,
Þeim fæddist dóttir 1. apríl
1872, var hún skýrð Alexandra
Mikailovna, en kölluð gælu-
nafninu Schúra.
Ástarsaga foreldra Schúru
var sannarlega rómantísk eftir
beztu foi-skrift, en hafði það
fram yfir margar slíkar að hún
fór vel. Þau unnust vel og lengi,
má segja um foreldra Schúru,
en þarna hafði hún nærtækt
dæmi, er hún hóf á loft merki
frjálsra ásta og gérði skorin-
orða kröfu til sjálfsákvörðunar-
réttar kvenna í hjúskaparmál-
um. Hlutskipti móður hennar
hafði nefnilega orðið fágætlega
auðnurikt, dirfska hennar og
viljafesta mjög óvenjuleg.
Alexandra, dóttir bóndason-
arins frá Nyslott og rússnesku
hefðarkonunnar, verður í frá-
sögn dótturinnar einkar hríf-
andi persónuleiki, afburða frið,
ágætlega menntuð, unnandi
skáldskap og fögrum listum og
þó dugnaðarforkur í búsýslu
sinni og heimiHsistjórn. Hún
endurreisti búskapinn á föður-
leifð sinni með mikilli atorku
og útsjónarsemi og bjó þar fjöl-
skyldu sinni það ánægjulega
sumarheimili, er Schúra dóttir
hennar minnist sem sinnar
æskuparadísar.
Mikail Domontovich, faðir
Schúru, átti ekki til ríkra að
telja, en var af ukrainskri að-
alsætt. Hann varð með tímanum
háttsettur við rússneska herinn,
virðist þó hafa orðið að því
tálmi, að hann var frjálshuga og
góðviljaður, vafalaust hefur
honum verið það Ijóst, að
margt var rotið í ríki Rússa.
Þegar Mravinsky, fyrri maður
konu hans, var ákærður um
þátttöku í tilraun til að ráða
keisarann af dögum, gerði hann,
samkvæmt beiðni konu sinnar,
allt sem í hans valdi stóð til að
bjarga lífi mannsins, það tókst,
en frá hörðum kostum gat hann
þó ekki forðað honum. SHkur
atburður, sem þessi, háskalegur
og djarfur, er sýnir mannlund
og kjark þeirra hjóna, var ekk-
ert einsdæmi.
Schúra óx upp við velmegun,
þó að ekki væri um ríkidæmi að
ræða hjá foreldrum hennar, til
dæmis voru þau leigjendur I
Pétursborg. Hálfsystir Schúru,
Adela Mravinsky geklc að eiga
húseigandann, sem var stór-
eignamaður, fjörutíu árum
eldri en hún. Er þar kominn
hinn ríki fasteigna- og lóðaeig-
andi en sá er bara munurinn, að
hann var mágur frú Kollontay
en ekki maki hennar.
Er nú komið að öðru atrið-
Þórunn Elfa Magnúsdóttir:
Alexandra
Kollonlay