Þjóðviljinn - 07.01.1958, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 7. janúar 1958
ÓÐVILIINN
Út.gefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar
Magnús KJartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. — Fréttaritstjóri: Jón
Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmunciur Sigurjónsson, Guðmundur Vigfússon,
ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson. — Auglýs-
Ingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar. prent-
amiðja: Skólavörðustírl9. - Sfmi: 17-500 (5 iínur). - Áskriftarverð kr. 25 á
máa. i Reykjavík og nágrenni; kr. 22 annarsst. — Lausasöluverð kr- 1.50.
Prentsmiðja Þjóðviljans.
Örlög króminnai
lyi'orgunblaðið birtir í fyrra-
dag teikningu af islenzkri
krónu liggjandi á sjúkrabeði.
Að henni sækja ráðherrar Al-
þýðuflokksins og Framsóknar,
vopnaðir byssu, öxi, sveðju
og kylfu, en til varnar krón-
unni eru ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins. Þessi mynd á að
sýna ástandið innan ríkis-
stjórnarinnar, hvemig ráð-
herrar Alþýðuflokks og Fram-
sóknar vilji fella gengið, en
ráðherrar Alþýðubandalagsins
komi í veg fyrir það.
TVTú er það svo að sjálfur
' kjarninn í stefnu núver-
andi ríkisstjómar er að engar
ráðstafanir skuli gerðar í
efnahagsmálum nema i sam-
ráði við verklýðssamtökin og
með samþykki þeirra. Hverj-
ar skoðanir sem ráðherrar Al-
þýðuflokks og Framsóknar
hafa á gagnsemi gengislækk-
unar hafa þeir heitið því að
hlíta í því efni samþykki verk-
lýðsfélaganna meðan núver-
andi stjórnarsamvinna helzt.
í ræðu sinni á gamiárskvöld,
sem sérstaklega veldur um-
ræðunum um gengislækkun,
sagði forsætisráðherra skýr-
um orðum: ,,En hver sem nið-
urstaðan verður, hvort sem
hún verður að halda núver-
andi hagkerfi með öflun tekna
eftir þörfum, eða breyta um
hagkerfi með einhverjum
hætti, er það víst, að það
verður ekki gert nema í sam-
ráði \ið fulltrúa bænda, fiski-
manna og annarra vinnu-
stétta, enda árangur vægast
sagt ótryggur án þess“. Þetta
er sjálf undirstaða núverandi
stjórnarsamvinnu og hin mik-
ilvægasta trygging fyrir alla
alþýðu.
17n það eru þessi völd verk-
lýðssamtakanna sem eru
íhaldinu mestur þyrnir í aug-
um. í Morgunblaðinu í fyrra-
dag segir Bjarni Benedikts-
son að því megi ekki una
stundinni lengur ,,að öfl utan
Alþingis" hafi hin víðtækustu
völd í efnahagsmálum þjóðar-
innar. Hann á við það að það
sé algerlega óþolandi að al-
þýðusamtökin skuli geta kom-
ið í veg fyrir þá gengislækkun
sem verðbólgubraskarar og
skuldakóngar íhaldsins þrá
hvað ákafast. Ef íhaldið væri
í stjórn, yrðu verklýðssam-
tökin sannarlega ekki spurð
um það hvort þau teldu geng-
islækkun rétta ráðstöfun í
efnahagsmálum eða ekki;
gengislækkunin . yrði einfald-
lega framkvæmd — og það á
þann hátt sem skerti mest
kjör alþýðu og færði auð-
mönnum mestan gróða. Þá
myndi Morgunblaðið ekki
birta mynd af neinum sem
stæðu vörð um verðgildi ís-
lenzkrar krónu, heldur myndu
nagdýr íhaldsins mola hana
niður.
Að neita allri samvinnu
A ðalfyrirsögn Alþýðublaðsins
á forsíðu í fyrradag hljóð-
ar á þessa leið: „Enginn vinstri
flokkanna fékkst til samvinnu
við kommúnista". Blaðinu finn-
ast sem sé þau tíðindi mest og
ánægjulegust þremur vikum
fyrir bæjarstjórnarkosningar
að Alþýðuflokknum hafi tekizí
að koma í veg fyrir samvinnu
vinstri flokkanna 1 kosningun-
um — og þar með fært íhald-
inu eina möguleikann sem það
hafðí til þess. að halda velli.
Það er ævinlega ánægjulegt
þegar menn hafa yfir einhverju
að hlakka, en ætli Alþýðublað-
áð hælist ekki um fullsnemma
Það er til önnur tegund sam-
vinnu en sú sem ákveðin er af
Áka Jakobssyni og félögum
hans. Fyrir síðustu Alþingis-
kosningar neitaði Alþýðublaðið
einnig „allri samvinnu við
kommúnista“ — en býsna
margir fylgismenn flokksins
voru á annarri skoðun. Þeir
tóku þátt í að mynda Aiþýðu-
bandalagið undir forustu
Hannibals Valdimarssonar, fyr-
verandi formanns Alþýðu-
flokksins og Alfreðs Gísiasonar,
aðalfulltrúa hans í bæjarstjóm
Reykjavíkur. Svo illa var Al-
þýðuflokkurinn kominn eftii
að hann hafði „neitað sam-
vinnu“, að hann sá fram á að
hann myndi engum manni
koma á þing, nema hann fengi
til þess mjög' víðtæka aðstoð.
Hann gerði þá hinn kunna
iáns- og leigusamning við
Framsókn sem gekk undir
nafninu Hræðslubandalag, og
með því einu móti — og mjög
hæpinni meðferð á landslögum
og stjómarskrá — tókst hon-
um að koma í veg fyrir að
hann þurrkaðist algerlega út af
Alþingi íslendinga. En í sömu
kosningum vai'ð Alþýðubanda-
lagið næststærsti fiokkur þjóð-
arinnar.
T eiðtogar Alþýðuflokksins eru
ákaflega tornæmir ef þeir
ímynda sér — eftir alla þá
reynslu sem þeir hafa þó hlot-
ið — að þeir get: skipað ís-
lenzkri alþýðu fyrir verkum
um það hvort hún megi vinna
saman eða ekki. Þeir ættu að.
setjast niður í kyrrþey og hug-
leiða það, að almenningur í
Reykjavík ræðir nú ekki um
það hvort Alþýðufiokknum
muni takast að halda tveimur
mönnum í bæjarstjóm eða ekki
— heldur um hitt hvort flokk-
urinn fái yfirleitt nokkum
G-lista kjósendur
Þeir stuðningsmenn Alþýðubandalagsins, sem vilja
aðstoða við undirbúning bæjarstjórnarkosninganna
eru beðnir að gefa sig fram á kosningaskrifstofunni
að Tjarnargötu 20.
Kosningaskrifstofan er opin alla virka daga frá kl.
10—12, 13—19 og 20—22. Á sunnudögum frá kl.
14—18.
Símar: Kjörskrársími er 2 40 70, utankjörstaðaat-
kvæðasími er 1 90 85 og almennar upplýsingar eru
gefnar í síma 17511.
Stuðningsmenn Alpýðubandalagsins, hafið samband
við skrifstofuna.
SKIPULAGSNEFND
ALÞÝÐUBANDA LAGSINS
Engum er eins vel ljóst og
eðlisfræðingunum, sem sjálfir
hafa gert hinar miklu upp-
götvanir, sem stuðluðu að
smíði kjarnorku- og vetnis-
sprengjunnar, hvað hljótast
mundi af lieimsstyrjöld, sem
háð yrði með slíkum vopnum.
Almenningur gerir sér það
ekki ljóst enn.
Hinn þýzki dr. Hahn (Nó-
belsverðlaun í efnafræði 1944),
sem fyrstum manna tókst að
láta atóm kljúfa atóm, m. ö.
o. koma af stað keðjuverk-
unum, hefur nýlega varað við
hinni ógurlegu hættu, sem slík
Listi vinstri
manna, HveragerSi
Villur urðu í frásögn blaðs-
ins af framboðslista vinstri
manna í Hveragerði. Réttur er
listinn þannig:
Rögnvaldur Guðjónsson
verkamaður,
Jón Guðmundsson, trésmiður,
Sigmundur Guðmundsson
verkamaður,
Unnar Benediktsson verkam.,
Magnús Sigurðsson student,
Magnús Hannesson, verkam.,
Þorlákur Guðmundsson múrari,
Hulda Sveinsdóttir húsfrú,
Jóhann Malmkvist verkamaður,
Jóhannes skáld úr Kötlum.
áf&imat
augl^ingar
attgl^íinga-
Spjöld
fyrirbw? )ír
bókakápur
myrnir i bækur
styrjöld felur í sér. Hann tel-
ur hana bráða og yfirvofandi.
Tíu kóbaltsprengjur, segir
hann, mundu nægja til að út-
þurrka gersamlega allt mann-
líf á þessum hnetti.
Gerið ykkur þetta í hugar-
lund. Á hnettinum lifa nú
sem stendur 2700 milljónir
manna, eða þar um bil. Ef
tíu kóbaltsprengjur verða
sprengdar í nótt, og ekki þarf
annað en að styðja á hnapp
til að gera það, — þær eru
til, þær eru tilbúnar —- verð-
ur enginn eftir af þessum óg-
urlega mannfjölda að tíu ár-
um liðnum, eða fimm árum,
eða jafnvel einu ári.
Og hverskonar dauðdaga
myndum við hljóta ? Ekki
hægan, ekki skjótan, heldur
langan og stríðan. Hinn versta
dauðdaga. Það munu allir
hljóta. Þeir sem síðastir
deyja, munu ekki verða jarð-
aðir, því enginn mun verða
eftir til að jarða þá. Líkin
munu liggja ofanjarðar á
hinni aleyddu jörð.
Tökum annað dæmi, styrj-
öld sem ekki verður háð með
slíkum aleyðingartækjum
heldur vopnum sem leyfa að
einhverjir lifi af. Þá verða
að styrjöld þeirri lokinni
hrundar borgir og auð lönd,
hundruð milljóna deydd, ó-
grynni sjúkra og fatlaðra,
Börnin, sem fæðast eftir þetta,
verða vansköpuð og vitlaus,
þau verða foreldrum ekki
til gleði. Af tvennu illu mundi
ég lieldur kjósa fyrra.
M. E.
Framboðslistar til bæjarstjórnarkosninga — Einræði
Bjarna og íhaldslistinn — Til aihugunar
íyrir íhaldsandstæðinga
KMRTAN
6VMÓNSS0N
Sími 1-40-9G
mann kjörinn. Og takist Al-
þýðuflokksleiðtogunum að
eyðileggja alveg atkvæði þeirra
sem kjósa lista flokksins hefur
sú stefna auðvitað verið full-
komnuð „að neita allri sam-
vinnu“.
FRAMBOÐSLISTAR til bæjar-
stjórnarkosninga hafa nú all-
ir verið lagðir fram, enda
ekki seinna vænna, þar eð
fresturinn til að skila þeim
mun vera útrunninn. í
Reykjavik efndi íhaldið til
prófkosninga í sambandi við
mannvalið á lista sinn, við
bæ jarstjómarkosningarnar;
þessi prófkosning var þó ekki
nema nafnið eitt, þar sem
ekkert mark var tekið á
henni. Bjarni Ben. virðist
hafa áskilið sér fullkomið ein-
ræði um skipun framboðslista
íhaldsins, eins og raunar um
allt starf og stefnu þess
flokks. Til marks um einræði
Bjarna má geta þess, að Guð-
jón Sigurðsson, formaður
Iðju, hafnaði einum tug
sæta neðar á listanum en
hann ætlaðist til og ýmsir
töldu hann eiga rétt á, sakir
viðvikalipurðar sinnar við
flokksfonistuna. En í það
sæti, sem Guðjón skinnið ætl-
aði sér, setti Bjarni einka-
spæjara sinn, og mun hans
hlutverk, umfram hina venju-
legu handauppréttingu, eink-
um eiga að vera það, að gefa
Bjarna nákvæma skýrslu um
framferði Gunnars Thor., bæði
á bæjarstjómarfundum og ut-
an þeirra. Húsbóndinn vill
sem sé vita hvernig hjúin
hegða sér. Á fundinum þar
sem listinn var samþvkktur,
munu hafa orðið nokkrar
orðahnippingar milli Bjarna
Ben. og Guðjóns Tðju-for-
manns, og Guðjón að vonura
farið halloka í þeim viðskipt-
mn; kvað Bjarni m.a. hafa
gert mannjöfnuð á honum og
einkaspæjaranum; og hlutur
Guðjóns í þeim samanburði
orðið næsta lítilfjörlegur.
Heyrt hef ég að Guðjón hafi
sagt sig úr Óðni í mótmæla-
skyni; en hinsvegar sá ég
mynd af honum í Morgunblað-
inu um daginn, og sem fylgi-
skjal með henni, var hairn
látinn hafa yfir nokkur bless-
unarorð um Sjálfstæðisflokk-
inn. Þótt það sé vafalaust
bættur skaðinn, að marg-
nefndur Guðjón er útilokaður
frá því að geta setið bæjar-
stjórnarfundi næsta kjörtíma-
bil, þá sýnir meðferðin á
þessum ,,verkalýðsforingja“
glöggt, að einvaldurinn í
„flokki allra stétta“ reynir í
lengstu lög að útiioka full-
trúa verkalýðsins frá trúnað-
arstöðum á vegum flokksins,
og allt fleipur Morgunblaðsins
nm velvilja íhaldsins í garð
verkalýðsins er uppspuni og
fals.
ÞVÍ MIÐUR stilla andstöðu-
flokkar ílialdsins upp hver í
sínu lagi, leggja fram sinn
listann hver hér í Reykjavík,
og auðvelda þannig íhaldinu
að halda meirihluta sínum í
bæjarstjói’n. Þetta er ófyrir-
gefanlegt; og vinstri sinnaðir
kjósendur eiga heimtingu á
að fá að vita, á hvaða flokki
eða flokkum strandaði að
mynda eina. fylkingn íhalds-
andstæðinga við bæjarstjórn-
arkosningarnar núna. Vinstri
kjósendur eiga skilyrðislaust
að fá að vita þetta, svo að
Framhald á 8. siðu.