Þjóðviljinn - 07.01.1958, Side 11
Þriðjudagur 7. janúa.r 1858 — ÞJÓÐVILJINN — (11
BRNEST GANN:
Sýður ó keipum
4« dagur.
hann sér eins margt til tafar og hann gat. Það vai þessi
tími kvölds og því lengur sem hann var á leiðinni úr al-
menningsböðunum og niður að höfn, því betra Nú var
Tappi hreinn. Hann sagði við sjálfan sig', að lyktin af sér
væri þægileg. Jafnvel hvíta húfan hans, Lundberg
Stetsoninn, var þvegin. Hann hafði ýtt henni i'ram á
höfuðið, yfir hægra augáð Eftir spaghetti kvöldverðínn og
baðið, var Tappi blankur, en var það svo sem nokkuð
óvenjulegt. Þegar maður varð sextíu og fjögufra íára og
lifði án þess að fá einhverskonar ellilaun, eins og í tíma-
ritunum þar sem maður sat í róðrarbát og veiddi fisk
og reykti pípu og brosti vegna þess að hann fékk hundrað
og fimmtíu á mánuði fyrir að gera ekki neitt — þegar
maður var orðinn sextíu og fjögurra ára og fékk engan
ellistyrk, þá var hann í vanda staddur. Vandinn varð
meiri þegar löngunin sagði til sín, eins og hún gerði æv-
inlega um þetta leyti kvölds.
Það var ekki sá bar til á Skid Row sem Múskatvín
Mullins var ekki nákunnugur. Þegar hver flaska kostaði
næstum ekki neitt, þá hafði maður ekki efni á að vera
algáður. Aldrei nein vandræði, bara í kjallarann og aftur
ur kjallaranum næsta rnorgun, og athöfnin hófst ævinlega
um þetta leyti kvölds. Þetta gekk þægilega fyrir sig, þang-
að til einhverjum varð á alvarleg skyssa; í stað ..þess að
stinga Mullins inn í kjallarann til morguns, þá fluttu þeir
veslinginn á bæjarspítalann. Einhver var of fljótur á sér
og gamall, þreytur skrokkurinn hafnaði í kælikiefanum
með lak breytt yfir andlitið. Það réð úrslitum. Kandidatinn
sagði að þetta væri sannarlega önnur upprisa. Hann sagði
að annaðhvort væru tækin sín vitlaus eða það hiytu að
vera páskar. Að minnsta kosti voru nú fimm ár síðan^
þetta gerðist. Nú hafði nafn hans breytzt úr Múskatvín í
Tappi, og enginn dropi hafði vætt varir hans síðan. En
þetta var enn vandamál — á þessum tíma kvölds.
Tappi nam staðar til að horfa á símastaur, eins og hann
hefði aldrei fyrr séð slíkan grip. Hann las tilkynningu
sem fest var á staurinn orði til orðs. Tilkynningin var í
sambandi við skiptingu í lögreglusvæði. Málið var laga-
légt og óskiljanlegt. Hann las tillíynninguna einu sinni
til. Hann snýtti sér í hálsklútinn sinn, andvarpaði og var
að því kominn að snúa burt, þegar hann sá mann koma
hlaupandi upp hæðina hinum megin við götuna. Að því er
virtisj kom maðurinn auga á Tappa á sömu stundu, því
að hann hægði örlítið á sér. Maðurinn sneri til höfðinu
og' það var eins og götuljósin spegluðust í votu andliti
hans. Eins og í leiftursýn brá fyrir augum, nefi og opnum
munni, en svo sneri maðurinn höfðinu undan og hélt á-
fram að hlaupa upp hæðina. Tappi hori'ði á hann, þangað
til hann lrvarf inn í þolcuna. Þetta var frekar Jítill maður
og hann var svo sannarlega að flýta sér. Skellirnir í skón-
um nans við gangstéttina heyrðust löngu eftir að hann
var horfinn.
Að minnsta kosfi var þessi maður dálítið umhugsunar-
efni. Það dró úr vandamálinu, lönguninni, að einbeita
huganum. áð honum.
Það vár aðeins framhjá fimm blölckum að fara niður að
bátabryggjunni Það yrði eitthvað fleira til að dreif'a hug-
anum en tilkvnningin um lögreglusvæðin; kannski fáein-
ar auglýsingar, kannski nýr bíll. Já, það lcæmi eitthvað til
að létta á huganum, það varð að vera, en framhjá fyrstu
blökkinni eða svo var maðurinn á hlaupum nægiiegt um-
hugsunarefni.
Innilegar þakkir vottum við Öllunj þeirn, er sýndu
okkur hluttekningu við andlát og jarðarför eiginmanns,
föður og tengdajflöður
HRÖÐMARS SIGltRÐSSONAR, kennara
Hveragerði.
Ingnnn Ií jarnadóttir,
börn og tengdabörn.
Brúnó hrasaði ekki um neitt. Hann vissi að það var
ekki neitt, því að hann hafði ekki séð neitt á gangstétt-
inni íramundan. Gangstéttina bar við himin, hun lá uppá-
við á sama heimskulega hátt og aðrar gangstéttir í San
Francisco — án þess að tekið væri tillit lil náunga sem
þyrftu að hlaupa.
Það voru skærir nálaroddar í þokunni núna, svífandi
nálaroddar sem færðust til eins ög þeim sýndist. Þeir
lögðust að augum Brúnós. Iiann gat ekki komið í veg fyrir
það. Hann lokaði augunum og hrasaði aftur, en hann vissi
að það var ekki vegna þess að hann var með lokuð aug-
un. Hann gat bara ekki lyft fótunum nógu hátt upp af
gangstéttinni. Hann var með sdðu fyrir eýrunum Það
var ekki meira loft til í heiminum. Þetta var eins og að
hlaupa í draumi, eða ef til vill á tunglinu. Enginn — hver
sem var og hvar sem var — hafði nokkurn tima verið
eins þreyttur og Brúnó Felkin.
Nýlenduvöruverzlunin á horninu spúði ljósgéisla út í
þokuna. Rétt áður en Brúnó kom inn í geislann, hallaði
hann sér upp að húsinu sem var sambyggt verzluninni.
Þaðan sá hann hluta af Kastaníustræti og Grant Avenue.
Hann gat líka séð gluggana í íbúð Connie á priðju hæð
í húsinu hinum megin við götuna. Það voru engin ljós í
gluggunum. íbúðin var dauðaleg. Ó, í guðs bænum Connie.
Taktu ekki svona hátíðlega það sem ég segi um rafmagns-
reikninginn þinn. Eg var bara aö gera aö gamni mínu.
Eg sagðist ætla að líta inn um sjöleytið. Eg er kannski
nokkrum tímum of seinn. Eg átti erindi við Sam
Ef til vill var hún í svefnherberginu, en það var þó ó-
hugsandi. Connie slökkti aldrei ljósin nema hún færi eitt-
hvað út. Já, Connie, þér væri ráðlegra að vera i svefn-
herberginu. Þér væri ráðlega að bíða reiðubúin annars
verðurðu vini fátækari. Ekki í nokkur ár, heldur að eilífu.
Gerðu það, Connie, kveiktu ijósin, svo að ég geti andað
aftur. Eg gefst upp. Við skulum koma á litla búgarðinn
þinn.
Brúnó tók um úlnliðinn og sneri honum til, þangað til
ljósið úr búðinni skein á úrið. Fimm mínútur nálcvæm-
lega. Aðeins fimm mínútur frá því að þú ■ lagðir tólið á
og fói’st að hlaupa — einhvers konar heimsmet. En ef
Connie var ekki á sínum stað, þá kom það að engu haldi.
Öll ráðagerðin varð að engu. Löggan gæti enga kæru
Itomið með fyrir það að koma að fólki saman í rúminu.
Connie gæti sagt, já, já, Brúnó var úti, en á þessuri stund
Trúloíunarhrir.gÍL-
Steinhringir. Hálsmen
14 og 38 Kt: gul'
I 'þv óttir
Framhald af 9. síðu.
það bezta sem Sovétríkin haía
sent frá sér til að kynna ís-
knattleik Sovétríkjanna.
Þegar varaforsetinn sem
heitir Pesejak var spurður að
því hvort þeir gerðu ráð fyrir
því að vinna keppnina, svaraði
liann að ísknattleiksmenn Sov-
ét myndu géra allt sem þeir
gætu til þess að sigra Kanada-
mennina á Jordal Amfi, en við
verðum að bíða og sjá. Víst
er að minnsta kosti að sovét-
ísknattleiksliðið álítur Kanada-
menn elcki ósigrandi lengur.
ísknattleikur er tiltölulega
ung íþróttagrein í Sovétríkjun-
um, en þrátt fyrir það hefur
okkur tekizt að sigra Kanada
þar sem ísknattleíjcur er þjóð-
aríþrótt. Því má líka gefa gaum
að áður áttum við enga vél-
frysta velli og meðan svo var
voru æfingaskilyrðin ekki eins
og þau þurftu að vera. Nú höf-
um við fengið vélfrysta velli og
við vonum að þaö gefi árang-
ur.
V e ð r I ð
NorðausJan kaldi, él, en bjart
á milli. — K1 18 var 3ja stiga
frost í Reykjavík og 5 stiga
frost á Akureyri. Kaldast var
á Möðrudal 9 stiga. frost, en
hlýjast var 1 stigs hiti á nokkr-
e i ni11 i s þ á 11 n r
um stöðum.
Nokkrir staðir erlendis kl.
18: Kaupmannaliöfn 0, Ham-
borg 4, París 12, London 9
New York 3 og Þórsliöfn 2ja
stiga. lúti.
V é-1 jið
r é 11 s n I A
Þegar byrjendur hefja saumá-
slcap á kjól í fyrsta sinn, er
sjálfsagt að byrja á mjög ein-
földu sniði. Reynið . að ná í
snið með sléttum ísettuxn erm-
um og án erfiðra. uppslaga eða.
vasa.
Gætið þess að kaupa nægilegt
efni og efni sem hentar bezt í
þetta tiltelcna snið. Takið til-
lit til þess við hvaða. tækifæri
á að nota kjólinn og vaxtar-
lags yðar sjálfra.
Slétt, látlatfst pils er lang
liepiálega.st fyrir þær sem eni
lágár og þreknar.
Lesið vandlega. leiðarvísi
sniðsins og gangið úr skugga
um að þið skiljið lxann til fulls.
Til þess að villast elcki á snið-
unum, getur verið skynsamlegt
að merkja livert stykki með
nafni, t.d. framst.ykki, bak-
stykki, Jcragi, ermar o. s. frv.
Gefið yklcur góðan tíma. Of
mikill fJýtir ’ borgar sig ekki,
því að hrnn getur orsakað leið-
indaskyssur.
Kynnið yklcur sniðið fyrst,
í berið það saman við mál ykk-
| ar og Jjerið það við efnið. Fest-
:ið sniðið vandlega á efnið með
■ títuprjónúm og takið þá
j fyrst til við slcærin.
i Finnift réit inál.
Skilyrði fyrir því a.ð kaupa
snið, er að þið þekkið ykkar
eigið mál. Það fáið þið á eftir-
farandi hátt:
Bindið fyrst band um mittfð
og hnýtið hnút til að merkjá
miðjuria að frainan. Takið öll
mál rúm og laus.
Brjósl: Mælið á þreknasta
stað og lyftið málbandinu ögn
upp á við að aftan. (1)
Mitti: Mælt undir bandinu.
(2)
Mjaffmir: Þreknasti staðui’-
inn. (3)
Framstyldii að mitti: Frá
hálsi og að hnútnum i mittið.
Afturstyklci að nritti: Frá
hnakka og að bandinu í mittið.
ÖJI síddin áð framan: Frá
öxl, yfir brjóstið og niður að
gólfi (A—B)
Öll síddin að aftan: Frá
hnalcka, yfir botninn að gólfi
(B—-F)
Ermar: Fi’á handarkrika að
úlnlið (D—C)
Sídd á dagkjól: Mælið et'tir
eftirlætiskjól ykkai’, bæði að
•framan og aftan.