Þjóðviljinn - 24.04.1958, Side 4

Þjóðviljinn - 24.04.1958, Side 4
.4) '— ÞJÓÐVlLjINN — Fimmtudagur 24. apríl 1958 ★ ★ ★ ★ Höggvarin Vatnsþétt 17 steina Fást hjá flestum úrsmiðum. Hátíðisdagur baruanna — Tíðarfarið og skapgerð manna— Gleðilegt sumar. „Ríður harpa í tún roðar röðull á brún rósum stráir um löndin og æginn. Vakna sveinar við það glaðir hlaupa á lilað hörpu viija þeir leiða í bæimi“. ÞANNIG var sungið í mínu ungdæmi, og þá var enn við lýði sá siður, að sveinamir drifu sig á lappir fyrir allar aldir á sumardagnn fyrsta, leiddu hörpu í bæinn og færðu heimilisfólkinu kaffi í rúmið. Ekki er mér kunnugt um, hvort þessi siður er enn við lýði ein- hvers staðar á landinu, en ekki hef ég orðið var við að sveinarnir hér í bæ væru ár- risulli þennan dag en endra- nær. Framangreint erindi úr ljóði Jóns Thoroddsen er heldur ekki eins alaunnugt núna og það var þegar ég var strákur; þá kunni hvert bam þetta erindi, i en nú hygg ég, að þau börn séu j! langtum fleiri, sem ekki kunna ’ það. Ef til vill er það bættur skaðinn, þetta erindi er svo sem ekki stórbrotinn eða veiga- mikill skáldskapur, en þó lumir það á innilegum vor- fögnuði og skirskotar auk þess til hins þjóðlega og skanmti- lega siðar, er sveinarnir „tóku á móti hörpu“, eins og fyrr er sagt. Sumardagurinn fyrsti er nú orðinn fyrst og fremst hátíðis- dagur barnanna, og finnst mér það vel til fallið. Þennan dag fara börnin í beztu fötin sin og fara í skrúðgöngur um bæ- inn, veifandi litlum fánum. Ýmiskonar skemmtanir ætlað- ar bömum eru á boðstólum, bæði úti og í samkomuhúsurn bæjarins. Hvar sem maður fer um bæinn, óma glaðværar barnaraddir, og það er regtu- lega gaman að sjá eftirvænt- ingar- og gleðisvipinn á andiit- um litlu krakkanna. Áður mun háfa verið siður Framhald a 9. síðu. sumars ^•••••••••••••©©••©••©•©••©••••••••••^©••i) ••#•••#•••#••#••••••••••••©••••••••••••• #•#•#••••••••••••••••••••••••••••••••••••

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.