Þjóðviljinn - 29.04.1958, Side 9
Þriðjudagur 29. apríl 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (9
rani Yiiíxn Víking 6:0 í
tilþrifalitlum leik
Lið Fram:
Geir Kristjánsson, Gunnar
Leósson, Guðm. Guðmundsson,
Birgir Lúðvíksson, Steinn Guð-
mundsson, Ragnar Jóhannsson,
Dagbjartur Grímsson, Guðm.
Óskarsson; Rúnar Guðmanns-
son, Grétar Sigurðsson, Skúli
Nilsen.
Lið Yríldngs:
Valur Tryggvason, Hjörleifur
Þórðarson, Magnús Thjell, An-
drés Bertelsen, Pétur Bjarna-
son, Jón Stefánsson, Bragi Guð-
mundsson, Villi Andersen, Sig-
urður Hermannsson, Bergsteinn
Pálsson, Freyr Bjarnason.
Dóiuari: Magnús fétursson.
Með leik þessum má segja að
hin opinbeni knattspyrnumót
hafi byrjað því að þetta var
fyrsti leikur Reykjavíkurmóts-
ins í meistaraflokki.
Veður var allgott og völlur-
Inn ágætur. I heild var leikur-
inn fremur tilþrifalítill og það
kom mjög á óvart að leikur
Fram var mun lakari en á móti
Akranesi. Þrátt fyrir það að lið
Víkings væri skipað mörgum
nýliðum og margir þeirra sýni-
lega ekki í æfingu náði Fram
lengi vel ekki þeim tökum á
leiknum sem vænta mátti. Liðið
var eitthvað sundurlaust og
of mikil brögð að ónákvæmni í
sendmgum og eins í að stöðva
knöttinn. Eigi að siður hafði
Fram leikinn í hendi sinni, en
hann gekk ekki nógu leikandi
milli svo vel æfðra manna sem
Framarar eru.
Fram var með nokkuð breytt
lið frá því um daginn. Nú lék
Rúnar Guðmannnsson í stöðu
miðherja. Hann er fljótur og
hefur sennilega margt í það að
verða góður miðherji. Hann var
ófeiminn við að skjóta og gerði
þó ekki of mikið að því, en skot
hans voru yfirleitt of há og
verður liann sýnilega að leggja
mikla rækt við að breyta því.
Hann skoraði mjög fallegt
mark með skalla.
Grétar Sigurðsson sem lék í
staðinn fyrir Karl Bergmann er
fljótur, en hann hefur ekki lært
þá list að „leggja knöttinn fyr-
ir“ næsta mann, byggja upp.
Á vörn Fram reyndi ekki
mikið eða ekki svo, að um það
verði sagt hvort breytingarnar
tvær í vöminni hafi styrkt lið-
ið eða veikt, en Steinn Guð-
mundsson var miðvörður og
Birgir hægri framvörður.
Vafalaust hefur liðið í heild
ekki tekið leik þennan eins al-
varlega og leikinn við Akranes,
og gæti það verið skýringin á
því að hann var ekki eins Vel
leikinn. Það sterka við lið
Frám er það að þeir eiga hóp
af góðum mönnum til að láta
leika og keppa, menn sem litlu
munar á og tilviljun hver
er beztur í það og það skiptið;
með því fær liðíð það öryggi
sem öll lið verða að hafa eða
,,breidd“ eins og það er kallað.
í liði Víkings eru margir ný-
liðar og eru þeir í deiglunni.
Meðal þeirra eru sýnilega efni-
legir menn og má þar nefna
Bergstein og Val í rnark-inu. Því
miður hafa margir þeirra á sér
einkenni hins óæfða manns, og
meðan svo er verður allt svo
laust og erfitt. viðureignar. Til
hjálpar er því ekkert annað en
að vinna og aftur æfa og vinna.
Pétur Bjarnason var bezti mað-
ur liðsins og bjargaði oft bæði
með spvrnum og skalla, í fram-
línunni var Bergsteinn bezti
maðurinn, vann mikið og dró
hvergi af sér. Því miður vantar
hapn enn mikið leikni sem
mundi létta af honum miklu
erfiði, ef hann legði áherzlu á
það atriði.
Fyrsta mark móts þessa
skoraði Dagbjartuf á 11. mín.
eftir að hafa átt í baráttu við
þrjá Víkinga, var hann heppinri
með skotið sem fór í horn
marksins. Næsta mark kom
ekki fyrr en á 25. mínútu, og
þá skoraði Guðmundur Óskars-
son, en það hefði Valur átt að
verja. Þriðja mark Fram kom
á næstu mínútu og var aðdrag-
andi þess samleikur og skot
mjög fallega gert, með snögg-
um sendingum t.il manna sem
voru á hreyfingu. Þannig end-
aði fyrri hálfleikur.
Þegar tæpur stundarfjórð-
ungur. var af síðari hálfleikn-
um skoraði Guðmundur mjög
glæsilega með löngu skáskoti
sem Valur fékk ekki við ráð-
ið.
Tíu mínútum síðar skorar
Guðmundur aftur, og síðasta
markið skoraði Rúnar með
mjög góðum skalla, er fram-
kvæmdur var eins og á að gera
það, sem sagt skallað en ekki
„stangað“, en það er tíðast að
knattspyrnumenn hér noti
,,stang“-aðferðina sem svo er
kallað að skalla, en á þessu
tvennu er 'stórmunur.
Sem sagt, ekki skemmtilegur
leikur. Áhorfendur voru ekki
margir, énda svolítið kalt í
veðri. Magnús dæmdi yfirleitt
vel.
SCefJvíkBiigcir oq ísfirðingar
eiga að keppa affur
Haiifettr Esigil-
bertsson fyrstur í
dreiigjaliíaupiiiu
Drengjahlaup Ármanns var
háð s.l. sunnudag og voru
þátttakendur mjög margir.
Fyrstur að marki varð Haukur
Engilbertsson, Umf. Reykdæla,
á 5 min. 30.0 sek, en hann
sigraði í Víðavangshlaupinu á
sumardaginn fyrsta. Kristleifur
Guðbjörnsson KR varð annar
á 5.32.6 og þriðji Jón Gíslason
Ums. Eyjafjarðar á 5.45.6. I
sveitakeppni 3ja og 5 manna
sigraði ÍR.
Eins og áður hefur verið frá
sagt og rnikið hefur verið um
rætt manna á milli, reis upp
deila milli Keflvíkinga og Is-
firðinga vegna aukaleiks í ann
arri deildinni um réttinn til að
leika í fyrstu deild árið 1958.
Málið kom fyrir rétt á Isa-
firði og áfrýjaði I.B.K. þeim
dómi. Nú fyrir nokkru féll
dómur í Knattspyrnudómstól
KSÍ, og er það lokadómur í
málinu og verður ekki áfrýjað.
Þar sem mál þetta hefur allt
frá því fyrsta vakið mikla at
hygli og dómsins beðið með
nokkurri eftin'-æntingu meðal
þeirra sem fylgjast með knatt-
! spyrnunni, verður dómur
Knattspyrnudómstóls KSÍ birt-
! ur hér í heild og fer hann hér
á eftir:
Árið 1958, mánudaginn 31.
marz, kvað knattspymudómstóll
Knattspyrnusambands Islands
upp í deilumáli Í.B.l. og I.B.K.
svoliljóðandi úrskurð:
Héraðsdómstóll Iþróttabanda-
Iags Isafjarðar hefur kveðið
upp hinn áfrýjaða úrskurð. 1-
þróttabandalag Keflavíkur hef-
ur skotið máli þessri til I
þróttadómstóls K.S.Í. með bréfi
dags. 31/12 1957, og krafizt
þess að hinn áfrýjaði úrskurð
ur verði úr gildi felldur og
lagt verði fyrir, að úrslitaleik-
ur 2. deildar 1957 verði látinn
fara fram að nýju og þá á
hlutlausum velli.
Germanía
Sumarfagnaður verður í Þjóðleikhúskjallaranum,
miðvikudaginn 30. apríl kl. 8,30 siðdegis.
Félagsstjórnin.
Stááentafékg leykjavíkur
Sumargleði
Stúdentafélags Reýkjavíkur verður lialdin að Hótel
Borg, miðvikudaginn 30. april kl. 21.00.
Skemmtiatriði ?
Aðgöngumiðar seldir í dag frá kl. 5—7 og á
morgun ef eitthvað verður eftir.
S ÖS I A LIS TA FÉLAfi EEYKJAVÍKUR
HÁTÍÐ
félagsins verour i Tjarnarkaffi miðvikudaginn 30. apríl og
hefst klukkan 8.30.
DAGSKBÁ:
1. Ríeða, Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur,
2. Einsöngur, Árni Jónsson tenór,
3. Dans.
KYNNHB: Jón Múli Ámason.
Aðgöng-umiðar eru seldir í skrifstofu félagsins og Æskulýðs-
fylkingarinnar simar 17510 og 17513.
SKEMMTINEFNDIN.
Málavextir eru þeir, að 27.
ágúst 1957 Iauk úrslitaleik í 2.
deildarkeppninni með jafntefii
milli I.B.l. og I.B.K. Þann 12.
sept. tilkynnir stjórn K.S.l. I-
þróttabandalagi Isafjarðar að
þeir eigi að sjá um úrslitaleik
2. deildar, og eigi hanp að
fara fram á ísafirði 14. éða
15. september. Í.B.Í. sendi síð-
an skeyti til Í.B.K. um, að
leikurinn eigi að fara fram 14.
sept. kl. 17.
Síðdegis 12. sept. barst
stjórn I.B.K. þessi tilkynning.
Strax daginn eftir mótmælir
I.B.K. þessari ráðstöfun við
stjórn K.S.I. Á ákveðnum leik-
tíma mætti lið Í.B.K. ekki til
leiks. Iþróttadómstóll I.B.I.
dæmdi leikinn tapaðan fyrir
Í.B.K. og jafnframt var Í.B.K.
gert.að .gr.eiða I.B.I. 1000 kr.
í sekt.
I 4. gr. laga K.S.Í. í móta og
keppendareglum I.S.I., og 26.
gr. I.S.Í. er svo lagt fyrir að
sérsambandið skuli leita sam-
þykkis eða staðfestingar LS.I.
varðandi stað og tíma lands-
móta. I þessu sambandi hefur
dómstóllmn snúið sér til stjórn-
ar íþróttasambands íslands og
fengið þetta svar. „Að gefnu
tilefni vottast hérmeð að Knatt-
spyrnusamhand íslands, sótti
eigi um samþykki eða stað-
festingu framkvæmdastjórnar
ÍSl á landsmótum í knatt-
spyrnu s.l.“. Hvort um er" að
ræða heiÞ mót eða einstaka
leiki sem eru aukaleikir í móti,
skiptir ekki máli. Verður ekki
séð að um neinn eðlismun sé
að ræða. Sérsambandinu er
skylt í báðum tilfellum að leita
samþykkis eða staðfesttngar
Í.S.Í. um stað og tíma. Þetta
hefur K.S.Í. ekki gert í um-
ræddu tilfelli.
Málsúrslit verða því, að úr-
slitaleikur 2. deildar 1957 skal
leikinn að nýju á hlutlausum
velli. Kostnað við leikinn þ.á.m.
ferðakostnað heggja liða skal
greiðast af K.S.Í.
Þá átelur dómstóllinn stjórn
K.S.I. fyrir hvað framan-
greindur úrslitaleikíír, þegar
miðað er við allar aðstæður,
var boðaður með stuttum fyr-
irvara.
Bogi Þorsteinsson
Sigurjón Jónsson
Brandur Brjuijólfsson
Framhald af 12. síðu.
félögunum, sem þau eiga
heima í.
Hversvegna greiðir Innflytj-
enda.sanihandid ekki skatt?
Hjns vegar mge-tti benda á
önnur samtök með mikla veltu
em slyppu einkennilega ' vei
frá skattgreiðslu. T._ d. greiddi
Innflytjendasambandið, samtök
kaupmanna, hvorki, tekjuskatt
né eignaskatt og heldur ekki út-
svar. Vaéri það og fleiri slík
dæmi merkilegt rannsóknarefni.
Auglýsið
í ÞjóSviljanum