Þjóðviljinn - 10.07.1958, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 10. júlí 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Hvor vlnmir
- YerSnr el
Hér á íþiróttavellinum mun
ekki háfa farið fram jafn
ekemmtilegt og tvísýnt. einvígi
'í iþróttum eins og á sér stað
í kvöld,. síðan þeir leiddu sam-
an hesta sí.na þeir Örn Clau-
sen og Henreich hinn franski
hérna um árið.
Þetta einvígi þeírra þrí-
stökkvaranna er það þriðja í
röðinni, og hefur litlu mun-
að í, þau tvö skipti sem þeir
hafa reynt. með sér. 1 fyrra
sinnið var það í Melbourne í
Ástraliu þar sem Villijálmur
'fór framúr þeim glæstustu
vonum sem maður þorði að
gera, og þá munaði aðeins
9 sm.
Næsta skipti var það í
Moskva, að leiðir þeirra lágu
saman í keppni og þar mun-
aði aðeine 2 sm. Og nú vakn-
ar spurningin hver verður
munurinn í þetta sinn, og á
hvorn veginn?
Það er næsta athyglisvert
að Vilhjálmur hefur aldrei
tapað þrístökki nema fyrir
da Silva, og þó hefur hann
keppt við snjalla Rússa og
Japana, og fleiri ágæta þri-
stökkvara.
Að þessu sinni er erfitt að
spá um úrslit. Báðir eru vel
undir keppni búnir að því. að
talið er, þótt hvorugur hafi
mikla keppnisreynslu í ár.
Vilhjálmur hefur að því leyti
betri aðstöðu að hann er á
heimavelli og vanur öllum að-
stæðum. Hann er og vanur
Vithjálmur
því loftslagi sem hér er og
Biuna.r þar ef til vill mestu
hitastigið, sem er mun lægra
en da Silva á að venjast. Að
hinu leytinu er svo vitað að
gestur okkar er frægasti í-
þróttamaðurinn sem hingað
befur komið, og að hann er
beimsmethafinn í þrístökki og
befur um langt skeið verið
ésigrandi í iþrótt sinni, þar
siem hann hefur lagt til
heppni.
Eftir öllum sólarmerkjum
að dæma ætti keppni þessi að
geta orðið jöfn og ærið spenn-
andi, og vafalaust munu í-
þróttaunnendur fjölmenna á
einvígi þetta, sem er fyrir
Da: Silva
okkur íslendinga einstætt i
sinni röð, þar sem um er að
ræða mann eins og da Silva
og svo Vilhjálm sem er í dag
okkar snjallastí frjálsiþrótta-
maður, og í hópi beztu þrí-
stökkvara í heiminum.
Þetta einvigi, hvernig sem
það fer, er lika framúrskar-
andi góður undirbúningur
undir E.M. í Stokkhólmi fyrir
Vilhjálm, en sú keppni fer
fram siðari hluta ágústmánað-
ar.
Það verður ekki sagt að
Í.R. diggi á liði sínu með að
útvega. úrvalsíþróttamenn á
mót sín, því í mörg undanfar-
in ár hefur félagið fengið til
þátttöku í frjálsíþróttamótum
sinum menn sem hafa verið í
fremstu röð íþróttamanna
heiminum.
Er það vissulega lyftistöng
frjálsum íþróttum að slikir
m'enn koma í heimsókn, ekki
aðeins iR-ingum heldur öllum
þeim eem áhuga hafa fyrir
frjálsíþróttum, bæði áhorf-
endum og keppendum. —
Að fá heimsmeistarann sjálf-
an í þrístökki, snillinginn
da SilVa ■ til sérstaks einvígis
við Vilhjálm var eiginlega af-
rek útaf fyrir sig, og ber að
gleðjast yfir því og þakka
í allri fábreytninni hér.
Og vafalaust verður heim-
eókn da Silva atburður sem
lengi verður í minnum hafð-
ur.
# ÍÞRÓTTIR
frrsTJóKh rxiMAXH mucASoæ
iassværá I.F. leikur síðasta lák sinn
áld, og þá viS K.R.
Það er orðinn árlegur við-
burður eða- allt að því að
sjá hér í keppni ungá og geð-
þekka drengi sem koma fram
í dökkum peysum og hvítum
buxum með stöfunum þrem
á brjóstinu: B.Í.F. sem tákn-
ar að þeir séu frá Sjálenzka
félaginu Bagsværd I.F. Þessi
flokkur er sá fjórði sem kem-
Piltarnir frá Hróarskeldu létu
vel yfir dvöl sinni hér
Eins og áður hefur verið
fráí sagt voru hér í boði Fram
annarsflokks drengir frá Ros-
. kilde Boldklub af 1906, og
kepptu hér fjóra leiki við
gestgjafana og önnur lið. —
Fcru þeir heim um síðústu
helgi með flugvél en þeir
komu hingað með skipi. Var
þetta gagnheimboð, þar sem
Fram var í Hróarskeldu 1956,
á 50 ára afmæli félagsins, og
nú vildi svo til að Fram átti
50 ára afmæli í ár. Við brott-
förina létu gestimir hið bezta
yfir dvölinni, og dáðust að
hinu sérkennilega landi sem
þeir höfðu fyrir atbeina knatt-
spyrnunnar haft tækifæri til
að kynnast svolítið.
Þeir fóru austur að Skóga-
skóla, á Þingvöll og í leiðinni
komu þeir að Gullfossi, og
þótti það fögur sjón, og þeim
óvenjuleg. Þeir sem tóku á
móti flokknum láta í Ijósi
mikla ánægju yfir þeirri við-
kynningu sem þeir áttu við
hina ungu gesti, og fullyrða
að það hafi verið góðir full-
trúar æsku lands síns.
Leikirnir fóru þannig: —
ÍMílari isliili fR-inóÉsins og
tngjii’auíar Ml í kvöld
I kvöld kl. 8 hefst síðari
hluti iR-mótsins og tugþraut-
ar Ml. Aðalkeppnisgreinin er
þrístökk, en í þeirri grein taka
þátt heimsmethafinn og ol
ympíumeistarinn A.F. da Silva
frá Brasilíu og Norðurlanda-
methafinn Vilhjálmur Einars-
son.
Margir bíða óþreyjufullir
eftir þessari keppni, en búast
má við góðum árangri og
mjög jafnri keppni. Da Silva
hefur verið ósigrandi i þess-
ari grein undanfarin 6—7 ár
og Vilhjálmur aðeins tapað
fyrir da Silva siðan hann
komst á heimsmælikvarða í
þrístökki. Það er því til mik-
ils að vinna fyrir báða kapp-
ana og ætti enginn að láta
þessa keppni fara fram hjá^
sér.
Aðrar greinar.
I kvöld verður keppt í 110
m grindahlaupi, kringlukasti,
stangarstökki, spjótkasti og
1500 m tugþrautarinnar og
má reikna með skemmtilegri
keppni.
Hilmar hleypur 200 m á-
samt Guðjóni Guðmundssyni
og Þóri Þorsteinssyni, Daníel
Halldórsson og Ingi Þorsteins
son eru með í 400 m grinda-
hlaupi. Friðrik, Hallgrimur og
Þorsteinn Löve kasta kringlu,
Gylfi Gunnarsson spjóti og
svo verður 1500 m hlaup með
Svavari og Kristleifi.
Tímaseðill kvöldsins:
KI. 20.00: 110 m grindahlaup
(tugþraut).
Kl. 20.15: Þristökk og kringlu
kast (tugþraut) aukamenn
á eftir.
Kl. 20.45: stangarstökk og
200 m hlaup.
Kl. 21.00: 400 m. grindahl.
Kl. 21.15: 1500 m hlaup og
spjótkast.
Kl. 21.30: spjótkast (tugþr.).
KI. 22.00: 1500 m hlaup (tug-
þraut).
Roskilde Boldklub af 1906 —
Fram 0:1. RB 1906 — Valur
1:2. RB 1906 — KR 1:0. RB-
1906 — Fram 2:0.
Eins og úrslitin bera með
sér unnu gestirnir tvo leiki,
og töpuðu tveim leikjum. Ber
það með sér að munur sé
ekki mikill á liðunum. Ef bet-
ur er að gætt er munurinn ef
til vill nokkru meiri en mörk-
in benda til. Yfirleitt höfðu
dönsku .piltarnir meiri leikni
en þeir íslenzku, og þeir höfðu
meiri hneigð til þess að leika
saman og gera tilraunir til
þess að byggja upp. Yfirleitt
hafa þeir betra jafnvægi en
þótt einkennilegt kunni að
þykja, þá er knattspyrna
mikil jafnvægislist, og er því
ekki veitt eins mikil athygli
hér af knattspyrnumönnum
og vert er. Fyrir þetta verða
heildaráhrifin af leik þessara
pilta þau, að þeir standa
skemmtilegar að knattspjTn-
unni en okkar ungu menn,
sem sennilega stafar fyrst og
fremst af því að þeir leggja
meiri rækt við leiknina og
eins það að ihuga hvernig á
að byggja upp skipulegan
knattspyrnuleik.
Piltarnir héldu til í Mela-
skólanum, en borðuðu á heim-
ilum Framara. — Fararstjór-
ar flokksins voru: Richard
Petersen, en hann er kunnur
dómari í heimalandi sínu, W.
B. Nielsen og Börge Christ-
iansen.
0HVi
■g$an4i
ur hingað í heimsókn og hann
er eins og hinir hafa verið
kærkominn gestur og þá sér-
staklega hinum yngri seni
líka þrá að reyna krafta sína
og getu við erlenda drengi.
Það er líka nauðsynlegt fyrir
framtíð knattspyrnunnar hér
að að hafa samband við yngri
kynslóðina sem upp vex með-
al erlendra þjóða. Af því, má
líka mikið læra, og það jafn-
vel þó þeir hvað sigur í leikj-
um anertir, hafi jafna sigra
og hin innlendu lið. Þó það
hafi lent í hlut K.R. að njóta
samvinnunnar við það þetta á-
gæta félag þá eru allir meira
og minna sem hafa gott af
þeim samskiptum, það er einn
þátturinn í því að freista
þess að efla knattspyrnuna
hér og koma henni á hærra
þroskastig. Þessir æskumenn
frá Sjálandi hafa með komum
sínum hingað vakið tilhlökk-
un eins og farfuglar gera að
vori, þeir gera lífið hér og
knattspyrnuna litauðugri og
skapa öðrum ungum drengj-
um, í þessu tilfelli KR-drengj-
um, möguleika til að svífa til
suðrænna landa og lifa þar
sín ævintýri fyrir tilverknað
knattarins og lifandi félags-
lífs.
í stuttu rabbi sem íþrótta-
siðan átti við Sigurð Hall-
dórsson um heimsókn þessa
og það helzta sem i henni
hefur gerzt, lét hann þá von
eindregið í Ijós að sú sam-
vinna sem tekizt hefði við
hið ágæta félag Bagsværd I.F.
héldi áfram, og gefur það til
kynna að samvinnan hefur
verið góð.
Síðasti leikurinn á KR-
vellinum í kvöld klukkan 7
Þessir ungu drengir hafa
verið hér síðan 1. júli og fara
héðan á laugardag 12. júlí.
Þeir hafa leikið hér fjóra
leiki til þessa og hafa leik-
irnir farið þannig:
B.I.F. — KR 1:0. B.I.F. —
Fram 1:0. B.I.F. — Þróttur
1:3. B.I.F. — Akranes 0:3.
Leikurinn við Akranes fór
fram á Akranesi, og fóru þeir
fvrir Hvalfjörð þangað upp-
eftir. Þótti þeim mikið til
koma að fara þá leið sem
vissulega stingur nokkuð í
stúf við venjulega bílvegi 1
Danmörku.
Á Akranesi var þeim tekið
hið bezta og er þeim förin
þangað mjög minnisstæð.
Þeir hafa ferðazt mikið um
nágrenni bæjarins og í gær
fóru þeir til Gullfoss og
Geysis. Til Þingvalla fóru þeir
einnig og við það tækifæri
reyndu þeir silungsveiði í
Þingvallavatni og þótti gam-
an að, og vel urðu þeir varir.
Þeir hafa einnig farið til
Krísuvíkur, og skoðað gufu-
gosið þar. -— Gestirnir hafa
svefnstað í Melaskólanum, en
-L borða á heimilum KR-inga.