Þjóðviljinn - 22.11.1958, Síða 1

Þjóðviljinn - 22.11.1958, Síða 1
I INNI í BLAÐINU: Kosningar í Frakklamli — 7. síða. Brýn nauðsyn breytinga á stjórn heiibrigðismála — 5. síða. Óskaistundin — 9. síða. Ijaugardagnr 22. nóvember 1958 — 23. árgangur — 267. tbl. GagaráSsiaíaEiir gegu sameiginlega mark- aðinum umræðuelni í Gení Stjórn Svisslands hefur boöið stjórnum sex Vestur- Evrópui'íkja á fund í Genf til að ræða væntanlegt við- skiptastríö viö önnur sex ríki í sama hluta álfunnar. Þetta er' fyrsta mynd sem hingað berst af bruzka togaramun „Hackness", sem Þór stöðvaði í dögunum með ólöglegan útbúilað veiðarfæra hálfa þriðju mílu undan landi við Látrabjarg. Eins og kunnugt er hótaði skipstjórinn á brezka varðskipinu „Russell“ að skjóta Þór í kaf, ef reynt yrðj að takjt togarann. Togari þessi, sem er frá Fleetwood, var enn að veiðum við ísland í þessari viku að sögn brezkra biaða, sem skýra frá að hann liafi verið nýkominn á miðinn þegjar Þór kom að Iionum. Vesturveldin eru l standandi vandrœúum Rœtt um aS œSstu menn þeirra haldi fund Taliö var víst * gærkvöldi, að sovétstjórnin myndi í dag leggja fram tillögur sínar um að endi skuli bundinn á hernámi Berlínar og Þjóðverjum sjálfum afhent æðsta stjóm borgarinnar. Fréttaritarar í Moskva skýra frá því að sendiherrar ýmissa ríkja hafi verið boðaðir í sov- ézka utanríkisráðuneytisins til að taka við greinargerð frá sovétstjórninni. Talið er víst að hún fjalli um stöðu J3er- línar. irmenn hernámsliða Vestur- veldanna. Flugvél hans varð að snúa við vegna þoku. Allt undirbúið Smimoff, sendiherra Sovétríkj ^ aima.í Yestur-Þýzkalandi, sagði fréttamönnum í gær við mót- töku í indónesíska sendiráðinu, að sovétstjórnin vildi að Þjóð- verjum yrði skilað Berlín. Öll- um undirbúningi í Moskva er lokið, sagði Smirnoff. Adenauer, forsætisráðherra Vestur-Þýzkalands, sagði í Múnchen í gær, að Smirnoff hefði sagt sér í fyrradag, að greinargerð sovétstjórnarinnar um tillögur hennar um að bundinn skuli endi á hernám Berlínar verði afhent sendi- herrum allra ríkja sem börð- ust gegn Þýzkalandi í síðustu styrjöld. Adenauer kvaðst hafa sagt Smirnoff, að vesturþýzka stjórnin teldi það skipta miklu máli að hernámsliðin yrðu kyrr í Berlín. Ástandið er alvarlegt sagði Adenauer. Komst ekki áleiðis Von Brentano, utanríkisráð- herra Vestur-Þýzkalands, ætl- aði að fljúga til Berlínar í gær til viðræðna við Brandt, borg- arstjóra í Vestur-Berlín, og yf- Vesturþýzka stjórnin hefur kallað sendiherra sína í Mosk- va, Washington, London, París og Róm heim til fundar í Bonn á þriðjudaginn. Telja fréftamenn þar í borg að von Brentano muni ræða við sendi- herrana tillögu sem vestur- þýzka stjórnin hyggst bera fram um að stjórnir Vestur- veldanna efni til fundar, helzt fundar æðstu manna, til að koma sér saman um sameigin- lega afstöðu til væntanlegra að- gerða Sovétrí'kjanna í Berlín. Búizt er við að sovétstjórn- in leggi til að hernámi Berlín- ar skuli ljúka og hernámslið- in yfirgefa borgina. Þegar Vesturveldin hafna þessu, muni sovétstjórnin lýsa hernáminu lokið fyrir sitt leyti og fá öll völd sem sovézka hernáms- stjórnin hefur haft í hendur austurþýzku stjórninni. Ríkin sem boðið er að sitja ráðstefnuna eru Bretland, Dan- mörk, Noregur, Svíþjóð og Aust- urríki. Þau eru ásamt Svisslaiidi helztu iðnaðarríkin, sem standá að Efnahagssamvinnustofnuninni í París, en taka ekki þátt í stofnun sameiginlega markaðar- ins, sem ganga á í gildi um ára- mótin, Að honum standa Frakk- land, Vestur-Þýzkaland, Ítalía og Beneluxlöndin. í fundarboði svissnesku stjórn- arinnar segir, að fundarefnið eigi að vera ástandið sem skap- azt hefur við að slitnað er upp úr samningum um stofnun frí- verzlunarsvæðis, sem hugmyndin var að náð gæti til allra ríkja aem standa að Efinahagssam- vinnustofnuninni. Eins og nú horfir er ekki ann- að sýnna en að til viðskiptastríðs komi milli landanna í sameigin- lega marltaðinum og Vestur-iEv- rópuríkjanna sem utan hans standa. Svíþjóð hefur þegar til kynnt markaðsríkjunum, að hún hafi undirbúið viðeigandi gagn- ráðstafanir til að varðveita sænska hagsmuni eftir að sarn- eiginlegi markaðurinn kemst á. Sænska utanríkisráðuneytið tilkynnti í gær, að Svíar 'myndu með ánægju sækja fundinn, sem Svisslendingar leggja tii að hald- inn verðí í Genf 1. og 2. desem- ber. Stjórnir Noregs og Dan- merkur hafa einnig þegið boðið. Amster- Hollandi Þá komast Vesturveldin í klípu. Allar samgöngur milli Vestur-Berlínar og Vestur- Þýzkalands eru um Austur- Þýzkaland, en Vesturveldin harðneita að viðurkenna tilveru þess sem ríkis. Ekki verður lengur stætt á þeirri afstöðu, að minnsta kosti ekki í verki, eftir að austurþýzk stjórnar- völd hafa tekið við æðsta valdi yfir Austur-Berlín og öllum samgönguleiðum við borgina. NATO lang- spútnik ar r 1 Theodor von Karman, for- maður ráðgjafarnefndar A- bandalagsins um geimsiglingar, sagði í gær að stefnt yrdi að því að koma rannsóknaspútnik á loft á vegum bandalagsins á árinu 1960, Kveðst hann hafa kallað 200 vísindamenn frá ýmsum ba.ndalagsríkjum til fundar um málið í París. Á fundi þingmanna frá Á- bandalagsríkjum var nýlega samþykkt að æskilegt væri að bandalagið eignaðist gervi- tungl HafnarstjóAiirhar dam og Rotterdam hafa höfðað mál gegn verkalýðs- félögum, sem lýst hafa yfir að þau muni framfylgja afgreiðslu- banni Alþjóðasambands flutn- ingaverkamanna á skip sem skrá- sett eru i Panama, Líberíu, Hon- duras og Costa Rica, Bannið á fyrst um sinn að standa fjóra fyrstu daga desember. Markmið- ið með því er að knýja eigendur þessara skipa til samninga um kjör og aðbúð sjómanna í skip- um sínum. Útgerðarmenn skrá skip sín í áðurgreindum ríkjum til • að hafa sjálfdæmi um kaup og kjör skipverja, til að losna við skattgreiðslur og til þess að þurfa ekki að fylgja neinum reglum um sjóhæfni og annað sem að öryggi lýtur. fe Brezka flutningaverkamanna- sambandið hefur lýst yfir að hafnarverkamenn í Bretlandi muni framfylgja afgreiðslubann- inu. 23 ára þingmaður Tuttugu og þriggja ára Ox- fordstúdent var í fyrradag 'kosinn til að sitja á brezka Framhald á 12. síðu. Á myndinni sjáum við biíreið- ina, sem vhr aðalvinningurinn Happdrætti Þjóðviljans í fyrra, og systkinin þrjú, senv voru svo heppin að fá liana í jólagjöf. Hver skyldi standa þeirra spornm eftir rúman mánuð? Það kostar ívðeins 10 krónur að l'reista gæfunnar. Kauptu miða strax í dag.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.