Þjóðviljinn - 25.11.1958, Blaðsíða 10
10) — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagur 25. nóvember 1958 -«=
Þjéðviljann vantar
barn til blaðburðar á Seltjarnarnes og
Miklubraut.
TaliS við afgreiðsluna, sími 17500.
VESTURVER
Úr — klukkur — og úrabönd í fjölbreyttu úrvali.
tíraviðgerðir framkvæmdar fljótt.
Sent gegn póstkröfu.
Helgi Sigurðsson úrsmiður
Vesturveri. Sími 24773.
Sérleyfisferðir
Stykkishólnur — Reykjavík
Frá Stykkishólmi sunnudaga og fimmtudaga kl. 10
fyrir hádegi. — Frá Reykjavík þriðjudaga og föstu-
daga klukkan 10 fyrir hádegi.
Komið við í báðum leiðum í Borgarnesi.
Bifreiðastöð Stykkishólms
Nauðungarupphoð
verður haldið í Baldursstöðinni við Sörlas'kjól, hér í
bænum, miðvikudaginn 3. desember n.k. kl. 3 e.h.,
eftir kröfu Georgs Gunnarssonar, Baldursgötu 17.
Seldur verður 1 /4 hluti naglagerðarvélar tilheyr-
andi Ingva Guðmundssyni, Eskihlíð 20, hér í bænum.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Skípulag samgangna
Framhald af 12. síðu.
minnki. Kemur þetta m.a. bæði
fram í orðalagi þingsályktunar-
innar frá 15. marz 1956 og
einnig í greinargerð þingsálykt-
unartillögunnar. 1 þingsálykt-
untillögunni er nefndinni falið
að gera tillögur um „skipu-
lag samgangna þessara," þ.e.
innanlands, á landi, á sjó og
í lofti, „þannig að þær verði
í heild sem hagkvæmastar fyrir
allar byggðir landsins, en
kostnaði þó í hóf stillt svo sem
tauðið er.“ í greinargerð þings-
ályktunartillögunnar segir m.a.
að fyrir fjárveitinganefnd, sem
flutti tillöguna, vaki, að ,,fund-
inn yrði grunvöllur fyrir heppi-
legu og hagkvæmu samstarfi
allra þeirra laðila, sem að
rekstri samgangna standa.“
Þörf betra skipulags
Nefndin hefur kynnt sér
samgöngumál innanlands ræki-
lega, og virðist að þörf sé
bætts og aukins skipulags á
þeim. Bæði er nauðsynlegt að
tryggja betri þjónustu. með
auknu eftirliti og samræmi í
far- og flutningagjaldi og auk
þess veita þeim, sem rekstur
samgangna lannast, aukna
tryggingu fyrir að njóta þeirra
viðskipta, sem til falla á sér-
leyfissvæðinu.
Fólksflutningar með bifreið-
um, þ. e. samgöngur á landi,
eru nú að heita má sá eini hinna
þriggja þátta samgangnanna,
sem skipulagður er. Sú skipu-
lagning komst á með lögum
nr. 62, 28. janúar 1935, um
skipulag á fólksflutningum með
bifreiðum, og hafa þau lög
haldizt lítið breytt til þessa
dags, þótt þau hafi tvisvar
verið gefin út lað nýju með
smávægilegum breytingum, nú
síðast sem lög nr. 42, 4. apr-
íl 1956. Munu flestir, sem til
þekkja, vera sammála um, að
skipulagning sú, sem komst á
1935 með framangreindri lög-
gjöf, hafi orðið til þess að
þoka þessum málum í betra
horf. Þá eru einnig í gildi önn-
ur lög, er varða samgöngur
innanlands, en það eru lög
um leigubifreiðar í kaupstöð-
um og kauptúnum, nr. 40,
1957.
Um strandferðir og flutninga
á sjó, eru engin slík ákvæði
í lögum.
Flugsamgöngur
1 lögum nr. 119, 28. desember
1950, um stjórn flugmála, seg-
ir svo í 3. gr.:
„Heimilt er ráðherra að
setja reglur um flugferðir inn-
lendra flugfélaga og, ef nauð-
syn krefur, að veita einu eða
fleiri félögum sérleyfi til fastra
áætlunarferða á ákveðnum leið-
um innanlands og utan“.
Slí'kar reglur voru settar
þegar árið 1947, nr. 13, 28.
janúar, og byggðar á loftferða-
lögunum, nr. 32, 14. júní 1929.
I framkvæmd hefur þessum
málum verið þannig háttað síð-
ustu árin, að Flugfélag íslands
h.f. hefur eitt haldið uppi
reglubundnum áætlunarferðum
innanlands. Flugfélag íslands
h.f. fékk sérleyfi til flugferða
innanlands árið 1952, á sautj-
án tilteknum flugleiðum. Sér-
leyfi þetta er nú runnið út, en
hefur ekki verið endurnýjað,
og starfrækir því Flugfélag Is-
lands h.f. innanlandsflugferðir
sínar án sérleyfis.
Wauðsyn sameiginlegrar
stjórnar
Þiað er ljóst, að sérleyfi á
ákveðinni flutningaleið tiltek-
inn tíma er mikilsverð atvinnu-
trygging hverjum þeim aðila,
sem samgöngur annast. Með
slíka tryggingu að bakhjarli
um meiri og stöðugri viðskipti
eru vaxandi líkur til, lað sér-
leyfishafi sjá sér fært að bæta
þjónustu sína fremur en elia,
um leið og komið er á fót
opinberu eftirliti með þjón-
ustunni, verði og ferðafjölda.
Nefndin telur, að nauðsynlegt
sé, að samgöngumálin í heild
verði skipulogð undir sameigin-
legri stjórn, á svipaðan hátt
og ferðir sérleyfisbifreiða nú
eru. Telur nefndin, að á þennan
hátt megi koma í veg fyrir
árekstra og kostnaðarsama
samkeppni milli samgöngu-
greinanna.
Nefndin hefur því samið
frumvarp til laga um skipu-
lagningu samgangna. Frum-
varpið miðar að því að koma
á fót sameiginlegri stjórn allra
samgöngumála, skipulagsnefnd
samgangna, undir yfirstjórn
samgöngumálaráðuneytisins.
Myndi slík skipulagsnefnd
samgangna ná til samgangna á
landi og í lofti með sérleyfir-
ákvæði frumv., sem lagt er til
að nái til fólksflutningsbifreiða,
yfir tiltekinni stærð, og einn-
ig til flugsamgangna. Til sam-
gangna á sjó myndi skipulags-
nefnd ná með íhlutunarrétti
um áætlanir strandferðaskipa
og ríkisstyrktra flóabáta. Ek'ki
er lagt til, að Skipaútgerð rík-
isins né flóabátum verði veitt
almennt sérleyfi, en ráðherra
heimilað að veita Skipaútgerð-
inni slíkt sérleyfi, ef samþykki
hlutaðeigandi sýslunefndar eða
bæjarstjórnar liggur fyrir.
GOLFTEPPI
Nýkomið glæsilegt úrval af þýzkum ullarteppum
af mörgum stærðum og gerðum. —
Einnig ullarhampsteppin margeftirspurðu.
Wiitoei ísíenzk
Komið og kynnið ykkur íslenzku W IL T 0 N teppaíramleiðsluna. — Tví-
mælalaust þéttasta og bezta teppaefni af ísl. gerð er sézt hefur hérlendis.
Klæðum horna á milli. Athygli er vakin á því fyrir fólk, sem er að byggja, að algjör óþarfi er að
dúkleggja undir teppin. — ATH.: íslenzku Wilton teppin lóast mjög lítið, Fljót og góð afgreiðsla.
Spatið tíma, etíiði og fytirhöín og láfið okkur teppaleggja fyrir yð-
ur. — Þeir, sem ætla að fá afgreiSshi íyrir jól, eru viusamlega
beðrJr að panta strax.
Einnig tökum við að okkur stærri verk svo sem stóra samkomusali,
hótelherbergi, híósali og opinberar byggingar.
TEPPI HF
Aðalstræti 9 — Sími 14190.
;•* n f V v"* r 1 i