Þjóðviljinn - 23.08.1959, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 23.08.1959, Blaðsíða 12
/ Þriðjungi kolanáma Breta verður lokað á næstis árum Þverrandi eftirspurn og tæming náma valda Stjórn brezku kolanámanna hefur ákveðið að loka þriðj- ungi þeirra á næstu sex árum, ef kolaneyzla eykst ekki að mun. Alls á að loka 346 námum. Flest eru þetta litlar námur, þar sem kolalögin eru að verða uppurin, segir í tilkynningu námustjórnarinnar. Einnig er þó um að ræða 35 70 stcrar námur í rekstrarhæfu ástandi, sem verður lokað til að reyna að grynna á óseldum kolabirgðum, sem safnazt hafa fyrir í vaxandi mæli síðustu ár- in. Það fer eftir eftirspurninni næstu sex ár, hve margar þess- ara náma verða lagðar niður. AJtáli ©g Nelirii ræia§f vIH Ajúb Khan, herforinginn sem stjórnar Pakistan, og Nehru, forsætisráðh. Indlands, munu hittast 'í næsta mánuði og ræða samskipti ríkja sinna. Ajúb kemur við í Nýju Delhi á leið til Dacca, höfuðborgar Austur- Pakistan. Nehru og Ajúb hafa ekki fundizt síðan hershöfðing- inn tók sér einræðisvald í Pakistan fyrir ári síðan. Sam- búð Indlands og Pakistans er nú betri en nokkru sinni fyrr síðan landinu var skipt. Styrkur til náms í Þýzkalandi 0» Sendiráð Sambandslýðveldisins Þýzkalands hefur tjáð íslenzkum stjórnarvöldum, að Alexander von Humbolt-stofnunin muni veita styrki til rannsóknarstarfa við vísindastofnanir eða til há- skólanáms í Þýzkalandi skólaárið 1960—61. Styrkirnir eru ætlaðir háskólakandídötum innan 35 ára aldurs og nema þeir 600 þýzkum mörkum á mánuði um 10 mán- aða skeið (frá 1. október 1960 til 31. júlí 1961). Nægileg þýzku- kunnátta er áskilin. Forustumenn brezkra námu- manna komu saman á fund í gær til að ræða tilkynningu kolanámustjórnarinnar. Frá þessu skýrir fréttaritari Reuters á fundi Heimskirkju- ráðsins á grísku eynni Rhodos. Dulbúnir sendimenn. Rómverskkaþólska kirkjan og ýmsar bókstafstrúaðar kirkju- deildir mótmælenda hafa aldrei viljað taka neinn þátt í störf- um Heimskirkjuráðsins, en rómverskkaþólskir klerkar eru staddir á Rhodos og fylgjast með störfum ráðsins sem frétta- ritarar fyrir blöð og tímarit kirkju sinnar. • Fréttaritari Reuters segir, að tveir í þessum hópi séu 1 raun og veru sendimenn Jó- hannesar páfa, korpnir til Rhodos til að hefja fyrir hans hönd viðræður við forustumenn Bifreið stolið f fyrrinótt var bifreiðinni R- 7336 stolið frá húsinu Suður- götu 14 hér í bænum. Bíllinn fannst óskemmdur í gærdag suð- ur í Hafnarfirði. Kemur ekki viB i Kanada Krústjoff, forsætisráðherra Sovétríkjanna, hefur tilkynnt Kanadastjórn, að hann sjái sér ekki fært að heimsækja Kan- ada í næsta mánuði, en þá kemur hann til Bandaríkjanna í boði Eisenhowers forseta. Diefenbaker, forsætisráðherra hafði boðið Krústjoff að koma við í Kanada á heimleiðinni frá Bandaríkjunum grískkaþólsku kirkjunnar. Fyrr á þ'essu ári gaf Jó- hannes út páfabréf um nauðsyn einingar kristinna kirkna og boðaði til kirkjuþings um það mál. Á eitt sáttir. Fréttaritari Reuters segir, að sendimenn páfa hafi átt leyni- fund með grískkaþólskum kirkjuhöfðingjum sem sækja fund Heimskirkjuráðsin-s á Rhodos. Þar hafi orðið sam- komulag um að kölluð verði saman ráðstefna guðfræðinga til að athuga möguleika á sam- einingh kirknanna. Fréttamaðurinn segir, að annar fulltrúi páfa, franskur klerkur, hafi staðfest að hann hafi rætt horfur á sameiningu kirknanna við grískkaþólsku fulltrúana á Rhodos. Annar áheyrnarfulltrúi rússnesku rétt- trúnaðarkirkjunnar sagði að sögn Reuters, að kirkja sín myndi einskis láta ófreistað til að sameina kristnu kirkjudeild- irnar. Varð heimsfræffur 13 ára. Fulltrúar páfa á leynifundi með grískkaþólskum á Rhodos Ráðstefna sögð afráðin um möguleika á sameiningu kirknanna Viöræðui’ eru hafnar um möguleika á að sameina grískkaþólsku kirkjuna þeirri rómverskkaþólsku eftir níu alda aðskilnað. Eyðublöð undir umsóknir um styrki þessa fást í menntamála- ráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu vlð Lækjartorg. Umsóknir þurfa að vera í þríriti og hafa borizt ráðuney^inu fyrir 1. nóvember 1959. (Frá menntamálaráðuneytinu)’ Tvö þúsund tunn- ur saltaðar á Reyðarfirði Reyðarfirði <—i Frá Fréttaritara Þjóðvilj’ans. Söltunarstöð Reyðarfjarðar hefur þegar saltað um 2 þúsund tunnur. Snæfugl lagði upp 900 tunnur í gær. Skattfrjálsir í um 399 ár Ibúar eyjarinr^ar Sein við Signuósa hafa loks eftir 300 ár fallizt á að borga skatta. Þeim var veitt s'kattfrelsi af Colbert fjárhirði frönsku krún- unnar á 17. öld í þakkarskyni við aðstoð sem þeir veittu mönnum í sjávarháska. syngur hér í Eftir nokkra daga er væntan- Iegur hingað til lands ameríski söngvarinn Frankie Lymon og mun hann koma fram á hljóm- Ieikum í Austurbæjarbíói með aðstoð íslenzkrar hljómsveitar. Frankie Lymon er aðeins fimmtán ára gamall, en samt orð- inn heipiskunnur -söngvari, því að 'bæði hefur hann vakið at- hygli fyrir söng sinn í kvikmynd- um og fl hljómplötum. Hafa kvikmyndir með honum verið sýndar hér og hljómplötur hans verið leiknar í útvarpinu. Það var hrein tilviljun að Frankie Lymon fór að syngja inn á hljómplötur. Hann var að syngja lag með félögum sínum á götuhorni í Harlem, svertingja- hverfi New York borgaf, þegar forráðamaður hljómpiötufyrir- tækis nokkurs átti leíð þar fram hjá og heyrði í þeim. Frankie Lymon syngur nú ekki lengur með félögum sínum, held- ur kemur hann fram sem sjálf- stæður skemmtikraftur og hefur komið fram á kunnustu skemmti- stöðum í Ameríku og ennfrem- næstu viku ur í nokkrum löndum Evrópu, en þar var hann á ferð í hitt- eðfyrra. FRANKIE LYMON Hér mun Frankie syngja rokk- lög og dægurlög, því hann hefur jafnframt lagt sig eftir að syngja gamalkunn lög, Fyrstu hljómleikar hans verða 1. september. Hér sést þegar verið var að koma klukkunum á sinn stað í kirkju Óháða safnaðarins. Nýr klukknaliljémur í Reykjavík Við útvarpsguðsþjónustu kl. 11 árdegis 1 dag, verður kiikjuklukkunum í kirkju Óháða safnaðarins hringt í fyrsta sinn með nýjum rafmagnsútbúnaði. Þeim hefur verið handhringt síðan kirkjan var vígð í vor, en hljómurinn hefur ekki verið neitt svipaður því sem nú er. Klukkurnar eru tvær og er önnur þeirra hin stærsta hér á landi að undanskildum klukk- unum í kaþólsku kirkjunni f. Reykjavík. Stærri klukkan í kirkju Óháða safnaðarins er 580 kílógrömm og er 1,30 m. í þvermál. Hún hefur tón G. Minni klukkan er 330 kíló- grömm að þyngd og hefur tón B. Klukkurnar eru frá fyrir- tækinu Glockengiesserei Engel- bert Gebhard í Vestur-Þýzka- landi, en það er eitt hið fremsta í þessari grein í Evrópu. For- stjóri fyrirtækisins var hér í sumar og gerði tillögur um samhljóm klukknanna í kirkju Óháða safnaðarins. Hljómur þeirra er undurfagur, hreinn og voldugur, og mun ná eyr- um allflestra Reykvíkinga á logndögum. Hljómurinn berst miklu lengra en ella sökum þess að turn kirkjunnar er opinn til austurs og vesturs. Það er nýlunda hér á landi og tignarlég sjón að sjá þessar stóru kirkjuklukkur sveiflast í 50 sfjörnur b íénmmm í annað skipti á þessu ári hefur orðið að breyta gerð þjóðfána Bandaríkjanna. I gær ákvað Eisenliower forseti að stjörríurnar í fánanum skyldu I vera 50 í rííu röðum, fimm og sex til skiptis í hverri röð, eftir að Sandvíkureyjar hafa verið gerðar 50. fylki Banda'- ríkjanna undir nafninu Hawaii. Fyrr á árinu varð Alaska 49. fylkið. Mikill fögnuður rikir á Hawaii, þar sem menn hafa barizt í rúma hálfa öld fyrir að fá full fylkisróttindi í Bandaríkjunum. opnum turni meðan hringt er. Þegar samhringt er sveiflast báðar klukkurnar, hvor með sinni tíðni, sem fer eftir þunga hvorrar um sig og verður hring- ingin þyí ekki regluleg. Einnig er sérstakur útbúnaður til lík- hringingar. Engínn rekneta- afll í Ólafsvík Ólafsvík. Frá frétta- ritara Þjóðviljans. Reknetaveiðin hefur verið treg alllengi undanfarið o^ engin síld borizt hingað síðustu dagana. Einn bátur hefur þeg- ar farið á fjarlæg mið. Öll sú síld er hingað hefur komið hefur verið brædd. í fyrrinótt var brotizt inn í söluturninn við sundlaugarnar og þaðan stolið 30 kr. í smámynt, nokkrum teiknimyndablöðum, 2 —3 eintökum af bókinni „í leit að launmorðingja" og svoiitlu af sælgæti. Sömu nótt var þjófnaður fram- inn í lúkar vélbátsins Runólfs SH 135, sem liggur við bryggju við Grandagarð. Stolið var út- varpsviðtæki, ferðatæki af gerð- inni Radinette. Lézt d YftláHia aÉferðaíÉyss' Þorbergur Gíslason, sem varð fyrir bifreið á Laugarnesvegi aðfaranótt s.l. sunnudags, lézt í sjúkrahúsi liér í Reykjavík í fyrrakvÖId. Komst hann aldrci til meðvitundar eftir slysið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.