Þjóðviljinn - 30.08.1959, Side 3
Sunnudagur 30. ágúst 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Töðufallið hefur aukizt úr því að vera helmingur heymagnsins upp í þrjá fjórðu liluta.
Eitthvert albezta grasár, sem kmii
hefurf en nýtlng heyjanna erfiari
segir Steingrímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri
Fundur fulltrúaráðs Alþýðubanda-
Eagsins í Suðtirlandskjördæmi
Fulltrúaráð Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi
(Vestur-Skaftafellssýsla, Rangárvallasýsla, Vestmanna-
eyjar og Árnessýsla) heldur fund í Iðnaðarmannahúsinu
á Selfossi, sunnudaginn 30. ágúst n.k., kl. 2 e.li.
Á fundinum verður rætt um skipan l'ramboðslista Al-
þýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi við Alþingis-
kosningarnar 25. október næstkomandi og annan undir-
búning kosninganna
Áríðandi er að sem allra fíestir fulltrúaráðsmenn
inæti á íundinum.
Fundur fulltrúaráðs Alþýðubanda-
lagsins í Norðausfurisndskjördæmi
Fundur verður lialdinn í Fulltrúaráði Alþýðubanda-
lagsins í Norðausturlandskjördæmi sunnudaginn 30.
ágúst n.k. í Hafnarstræti 88 (Ásgarði) Akureyri. Fund-
urinn hefst kl. 1.30 e.h.
Rætt verðúr um kosningaundirbúninginn og skipan
framboðslista Alþýðubandalagsins í kjördæminu við Al-
þingiskosningarnar 25. október n.k. Fulltrúaráðsmenn
eru beðnir að fjölmenna á fundinn og mæta stund-
víslega.
Fyrir helgina sneri Þjóöviljinn sér til Steingríms Stein-
jþórssonar búnaöarmálastjóra og spurðist fyrir um þaö,
hvernig heyskapuirinn heföi gengiö í sumar. Búnaðar-
málastjóri leysti fúslega úr þeim spurningum, sem fyrir
hann voru lagðar og fara upplýsingar hans hér á eftir.
Islenzku þingmennirnir skoða skrifstofu Leníns í Kreml. — Á myndinni sjást frá vinstri:
Karl Kristjánsson, Sigurvin Einarsson, AlfreðGíslason, Emil Jónsson og Karl Guðjónsson.
Myndir um geimfarir og j)ing-
mannaferð til Sovétríkjanna
Tvær sovézkar kvikmyndir bráðlega sýndar
í Tjarnarbíói — á sömu sýningu
Einhvern næstu daga byrjar Tjarnarbíó aö sýna kunna
sovézka kvikmynd um geimferöir, en sem aukamynd meö
henni veröur sýnd mynd um för íslenzku þingmanna-
sendinefndarinnar til Sovétríkjanna á sl. ári.
— Hvernig hefur heyskapur-
inn gengið í sumar?
— Ja, að undanförnu hafa ver-
ið óþurrkar um land allt og eru
ennþá mikil hey úti. Fyrripart-
inn í sumar var hins vegar ágætt
á Norður- og Austurlandi og
jafnvel Vesturlandi líka, en lak-
ara hér sunnanlands. Síðastliðn-
ar þrjár vikur hefur verið norð-
an átt og þá þurrkleysi fyrir
norðan. Hvergi er hægt að tala
um verulegt neyðarástand, þó að
mjög slæmt ástand sé á stöku
stað, t.d. í Mýrdal, en það er
hvergi á stórum svæðum.
— Hvernig var sprettan í sum-
ar?
— Þetta er afburða grasár,
með þeim allra beztu, en það
hefur verið erfiðara um nýting-
una.
— Byrjaði sláttur ekki
snemma í ár þar sem sprettan
var svona góð?
— Jú, það var byrjað í fyrra
lagi. Gróður kom ótrúlega fljótt
vegna þess hve gott var í vor,
en svo kom mikið kuldakast i
júní og tafði nokkuð sláttarbyrj-
un, en það drap hvergi gróður
og þá var alls staðar komið mik-
ið gras,
— Hve mikill hefur heyfengur
landsmanná verið undahfarin
sumur?
—■ Hann hefur verið um 2,5
milljónir hesta (100 kg.) af töðu
og 7—800 þúsund hestar af út-
heyi. Töðufallið fer stöðugt vax-
andi en útheyið síminnkandi.
Útheyið er nú aðeins um það
bil 14 af heildarmagninu en fyr-
ir aldarfjórðungi var það álíka
mikið og taðan.
Hefur ekki heyfengurinn auk-
izt mikið á þessu tímabili?
— Jú, fyrir 25 árum var hann
alls um 2 milljónir hesta, en er
nú á milli 3 og 4 milljónir.
— Ætli heyfengurinn verði
mikill í sumar?
— Útlit er fyrir að heymagnið
verði mikið í haust, ef sæmi-
lega gengur að hirða það sem
eftir er.
— Lýkur ekki heyskapnum nú
fyrr á haustin heldur en áður
var?
— Jú, í góðri tíð er honum
lokið um mánaðamótin ágúst-
september, a.m.k. er þá víðast-
hvar hætt að slá, þótt það kunni
að dragast að ná heyinu inn.
— Fer ekki votheysgerð stöð-
ugt vakandi?
— Jú, en það er nokkuð breyti-
legt frá ári til árs, hve menn
láta mikið í vothey, það fer eft-
ir þurrkunum, annars er vot-
heysgerð enn ekki nægilega al-
menn hér á landi.
— En súgþurrkun?
— Þeim fer stöðugt fjölgandi,
sem fá sér súgþurrkunartæki. Þá
standa menn betur að vígi, þótt
lítið sé um þurrka. Það er hins
vegar margreynt, að heyið þarf
að vera vatnslaust til þess að
súgþurrkunin komi að notum,
svo að hún hjálpar lítið í veru-
legri óþurrkatíð.
— Nokkrar nýjar aðferðir við
heyverkun?
—■ Það hafa verið gerðar
nokkrar tilraunir með heymjöl.
Hefur Klemenz Kristjánsson á
Sámsstöðum heymjölsverksmiðju.
f því er áreiðanlega framtíð.
Heymjölið má bæði nota sem fóð-
urbæti handa nautgripum
eins handa alifuglum.
- — Hvað er að segja um bú-
stofn landsmanna, er búfé ekki
stöðugt að fjölga?
— Sauðfé sr nú orðið fleira
en nokkru sinni fyrr. Síðast lið-
inn vetur var það um 800 þús.
Það komst nálægt þeirri tölu
fyrir pestirnar en náði henni
þó aldrei. Vegna þess hve mik-
ið "er tvílembt núna er óhætt að
tvöfalda þá tölu og rösklega bað
Framhald á 5. síðu.
Geimferðamyndin var gerð í
fræðslumyndastofnuninni í Len-
ingrad á síðasta ári; þetta er
litmynd, í senn fræðandi og
skemmtileg.
skýrð á einkar ljósan hátt þau
lögmál, sem gilda um ferðir eld-
flauga. út í geiminn, og langur
kafli er helgaður rússneska vís-
indamanninum Konstantin Tsi-
olkovslri. Hann var eðlisfræði-
kennari, sem, starfaði í bænum
Kaluga í, Rússlandi og fór fyrir
rösklega hálfri öld eða árið
1903 að vinna að fræðikenn-
ingunni um blástursknúin geim-
för eða tundurflaugar. Á þ'ess-
ari kenningu Tsilokovskís hafa
síðan hvílt allar síðari tíma
rannsóknir og Vtæknilegir út-
reikningar á þessu sviði, og
flugskeyti nútímans, margra
þrepa, eru í samræmi við hug-
myndir hans. Skemm'ti’egt er
að fylgjast með frumstæðum
rannsóknum Tsiolkovskís, ekki
hvað sízt þegar hann kemur
kyrrstæðum vatnabátnum á
hreyfingu með því einu að
varpa fyrir borð öllu lauslegu
í honum, árum, viðlegufæri
o.s.frv.
Framtíðarsýn
Þegar lokið er kafla kvik-
myndarinnar um rannsóknir
Tsiolkovskís er brugðið upp
svipmyndum af tilraunum sem
gerðar voru fyrr á árum til að
skjóta eldflaugum á loft, til-
raunum sem margar hverjar
mistókust og kostuðu mörg
mannslíf. 1 lolcakaflanum er svo
skyggnzt inn í framtíðina og
Framhald á 11. síðu
Fulltrúaráðs-
fundur í Norð-
| vesfurlands-
kjördæmi
■
■
■ Fulltrúaráð Alþýðubamla-
■ Iagsins í Norðvesturlancls-
• kjördæmi lieldur fund í sam-
: komuhúsinu Bifröst á Sauð-
: árkrókj sunnudaginn 30.
: ágúst kl. 4 síðdegis.
j Á fundinum verður rætt
j um undirbúning Alþingis-
j kosninganna 25. október og
j skipan framboðslista Alþýðu-
j bandalagsms í Norðvestur-
j landskjördiemi. Æsliilegt ér,
• að sem allra flestir fulltrúa-
■
• réðsinenn sælii fuiídinn.
og
Fræðikenning Tsiolkovskís
1 kvikmyndinni eru fyrst