Þjóðviljinn - 26.09.1959, Page 7

Þjóðviljinn - 26.09.1959, Page 7
Laugardagur 26. september 1959 ■— ÞJÓÐjVIUINN —- (7 1 1) Tékkóslóvakía er ungt nafn á gömlu landi, nafnið jafn mikil nýsköpun og ríkið sjálft. Lönd. þau, er ríkið geymdi innan marka sinna, hétu aldr- ei sameiginlegu nafni fyrr i sögu sinni. En á þessum slóð- um varð þó þegar til á 7. öld eitt fyrsta slavneska ríki, sem um getur í sögum, „Mærska ríkið“. Tékkóslóvakía er að nokkru leyti arftaki þess. Hér lauk vesturför hinna miklu slavnesku þjóðflutninga á 6. og 7. ölid, Tékkar urðu oddaliðar hins slavneska kyn- stofns andspænis Germönum, og hér reis upp á miðöldum glæsilegt konungsríki, Bæ- heimur, ásamt Mæri og Sles- íu; konungur Bæheims var einn hinna sjö kjörfursta, er kusu keisara Þýzkalands. Um stund var Prag keisarasetur Þýzkalands og hlaut þá hinn fræga háskóla sinn árið 1348, fyrstur sinnar tegundar i Miðevrópu. Allt frá því um miðja 12. öld höfðu þýzkir landnemar leitað inn í Bæheim. Þýzkir bændur settust að í dölum Bæheims, ruiddu mörkina og byggðu þar þorp, þýzkir kaup- FYRIR 20 ÁRUM menn settust að í bæjunum, þýzkir munkar fylltu klaustr- in, þýzkir hirðmeiin l.eituðu sér firama .við hirð-‘ éæheims- konungs. Þýzk menningaráhrif virtust um stund ætla að verða allsráðandi í Bæheimi. Á 14. öld tók þó einnig að gæta þar mjög franskra á- hrifa í bókmenntum og list- um, og í byrjun 15. aldar komu nokkrir Englendingar til Prag og höfðu í mal sín- um villutrúarrit hins enska guðfræðings Wycliffs, fyrsta siðbótarmanns Évrópu. Brátt logaði háskólinn í Prag stafna á milli í trúmálastælum, ung- ur tékkneskur prófessor, Jó- hann Húss, reis upp gegn hinni rómversk-kaþólsku kirkju og tók að boða fagnaðarer- indið á tékkneska tungu. Heilli öld á undan Lúter hóf Jóhann Húss upp merki sið- bótarinnar og varð að þola píslarvættisdauða á bálkestin- um í Konstanz árið 1415. Eft- ir dauða hanS hófst eitt furðu- legasta fyrirbrigði sem um getur á mörkum miðalída og nýrri sögu, Hússítahreyfing- in, fyrsta þjóðernishreyfing álfu vorrar. Tékkar kenndu þjóðernis síns einna fyrstir Frá höfuðborg Tékkóslóvakíu, Prag. þjóða í Evrópu. Þjóðverjar voru flæmdir úr landi eða sviptir sérréttindum sínum og þýzkum áhrifum eytt í há- skólanum í Prag. Rómversk- kaþólska kirkjan varð að ganga að kröfum Hússíta í trúarefnum, og um hundrað ára skeið stóð hagur ríkis- ins með miklum blóma í fullu sjálfstæði. En árið 1526 hreppti hin fiskisæla Habs- borgaraætt konungstign í Bæ- heimi og laut landið síðan þeirri ætt um fjögurra alda skeið. 1 fyrstu héldu Tékkar þó fornum landsréttindum og Prag varð aftur aðsetur æðstu keisaralegra embætta, en brátt tóku Habsborgarar að ganga á pólitisk og trúarleg sérrétt- indi Tékka, unz þeim leiddist þófið og þeir hófu uppreisn gegn konungi sínum og heri'a árið 1618. Það var upphaf þrjátíuára stríðsins. En her Tékka var sigraður l>já Hvíta- fjalli nálægt Prag, 8. nóvem- ber 1620. Sá dagur var mesti harmadagur í sögu þeirra, því að þá var lagt á þá það ok er þeir máttu bera í þrjár aldir. Þess munu fá dæmi, að reynt hafi verið að slíta upp þjóðerni manna svo rækilega Sverrir Kristjánsson. og raun varð á í Bæheimi eft- ir ósigurinn hjá Hvítafjalli. Þjóðverjar flykktust nú aftur inn í landið í slóð hinna sig- ursælu herja keisarans og skiptu á milli sín jörðum, sem voru teknar eignarnámi að þrem fjórðu hlutum. Þjóðin var kúguð til að taka aftur rómversk-kaþólska trú, en um þirjátíu þúsund fjölskyldur kusu heldur að flýja land en hverfa aftur í faðm heilagrar kirkju. Mikill hluti hins tékkneska aðals var sviptur jörðum sínum og fór land- flótta eða reynidi að friðmæl- ast við valdhafana, borgar- ar bæjanna og bændur sveit- anna urðu að reyta af sér blóðfjaðrirnar til að borga styrjaldir Habsborgarættar- innar. Að lokum varð þýzk menning og þýzk tunga alls- ráðandi í borgum Bæheims og víða um sveitabyggðirnar, það var aðeins meðal lág- stétta að tékknesk tunga og menning lifðu af og urðu þó að fara huldu höfði. Þótt Habsborgarar á 19. öld hertu enn á böndunum, sem þeir höfðu reyrt tékk- nesku þjóðina í, þá var það þó á þeirri öld, að ný þjóð- ernisalda reis í Bæheimi. Þessi þjóðernishreyfing var í nán- um tengslum við rísandi tékk- neska borgarastétt, sem fékk náð allmiklum þroska þrátt fyrir ofurveldi hinnar þýzku- mælandi borgarastéttar lands- ins. Þjóðernisleg vakning fór eldi um landið. Tékkar skapa á örfáum árum mikinn inn- lendan blaða- og bókakost, stofna tékkneskan háskóla í Prag árið 1882, tékkneskar bókmenntir og tékknesk tón- list rísa við himin. Árið 1879 eru fyrstu fulltrúar Tékka kosnir á ríkisþingið í Vínar- borg, tíu árum síðar vinnur- flokkur Ungtékka mikinn kosningasigur á landsþingi Bæheims. Það var auðsætt á öllu að Tékkar voru búnir til að heimta aftur pólitískt sjálf- stæði, er tækifæri byðist. Og heimsstyrjöldin fyrri færði þeim tækifærið í hendur. 2) Það var æði sundurleit hjörð, herinn, sem barðist undir merkjum Austurríkis- keisara í heimsstyrjöldinni 1914—18. En hermenn hans, þeir sem ekki voru af þýzku kyni, voru samt á einu máli sagnfræðingur: um það að vilja ekki berjast. Heilar herdeildir gerðust lið- hlaupar eða létu taka sig til fanga af fúsum og frjálsum vilja. Talið er, að um tvær milljónir hermanna hafi með þessum hætti hlaupið yfir til fjandmannanna. Þessir flótta- hermenn stofnuðu síðan her- deildir og börðust gegn herj- um Austurríkismánna og Þjóðverja. Tékkar einir stofn- uðu sex herfylki, sem öll börð- ust í liði Bandamanna undir lok styrjaldarinnar. En meðan þessu fór fram höfðu pólitískir leiðtogar Tékka ekki setið auðum hönd- um. I fyrstu báru þeir fram þá .kröfu, að keisaradæminu austurríska yrði breytt í bandalagsríki, þar sem Bæ- lieimur og Slóvakía hlytu sjálfsforræði með sömu rétt- indum og Austurríki og Ung- verjaland. Austurríska keis- arastjórnin evaraði þessum kröfum með ofbeldisaðgerðum gegn leiðtogum Tékka og Slóv- aka, og tóku Tékkar að krefj- ast fulls sjálfstæðis. Tveir helztu leiðtogar Tékka, Thomas Masaryk, nafntogað- ur sagnfræðingur, og Edou- and Benesch, ungur háskóla- kennari, höfðu flúið land í byrjun heimsstyrjaldarinnar, og stofnað pólitísk samtök með löndum sínum hjá Banda- mönnum. Árið 1916 skipu- lögðu þeir „Þjóðarráð Bæ- heimslanda“, er hafði aðsetur í París. Masaryk tókst að fá áheyrn hjá Bretum, Frökkum og Bandaríkjamönnum um að stofna sjálfstætt ríki Tékkó- slóvakíu. Hinn 9. ágúst 1918 viðurkenndi Bretland Tékkó- slóvakíu bandalagsþjóð og rík- isstjórnir annarra banda- manna gerðu slíkt hið sama. I október sama ár lýsti Þjóð- arráð Tékka því yfir, að það hefði gerzt bráðabirgðastjórn Tékkóslóvaka, og hinn 28. sama mánaðar fór fram frið- samleg bylting í Prag: aust- urríska stjórnvarzlan vék úr sessi og við tóku stjórnmála- menn og embættismenn af tékknesku og slóvakísku kyni. Hinn 14. nóvember 1918 var Þjóðfundur settur í Prag og því lýst yfir, að Tékkóslóv- akía væri frjálst og lýðræðis- sinnað lýðveldi. Masaryk var kjörinn forseti. Á friðarfundinum í Versöl- um voru landamæri hins nýja lýðveldis ákveðin: hin gömlu lönd Bæheimskrúnunnar sem verið höfðu í eigu Habsborg- ara, voru sameinuð Slóvakíu og Rúþeníu í Karpatafjöllum en bæði hin síðarnefndu lönd höfðu lotið Ungverjalandi um 1000 ára skeið. Ríkið var um 54.000 fermílur að stærð, dá- lítið ólánlegt í laginu, ekki ólíkt flugdreka, og íbúatalan um 15 milljónir. 3) Þróun hins unga tékkneska lýðveldis varð furðu ólík þró- un nágrannaríkja þess í Mið- evrópu og Súðausturevrópu. Þar lá leiðin víðasthvar til faeisma og nazisma, en yfir sögu Tékkóslóvakíu hvílir borgaraleg kyrrð og ró, eng- jn stórátök milli stéttá, engin pólitísk gjörningaveður. Hin frjálslynda stjórnarskrá ríkis- ins frá 1920 hélzt óbreytt allt til enda og þess gerðist ekki þörf að rjúfa hana né naga úr henni lýðræðið, svo sem títt var um öll þau lönd er Tékkóslóvakía hafði að ná- grönnum. Og þó vofði mikill háski yfir þessu ríki. Það hafði frá hinu austurríska keisaradæmi tekið að erföum framandi þjóðerni. 692.000 Ungverja, 549.000 Rúþena. 82.000 Pólverja og 3.231.000 Þjóðverja. Um þriðjungur þegnanna voru af öðru þjóð- erni en Tékkar og Slóvakar, en þó stafaði ríkinu ekki hætta af öðrum en Þjóðverj- um, þessum vandræðamönn- um, enda voru þeir fjölmenn- astir og voldugastir og sátu flestir í Bæheimi í útjaðrahér- uðum ríkisins, á landamærum Þýzkalands og Tékkóslóvakíu. Þó var byggð Tékka og Þjóð- verja svo blönduð í þessum héruðum, að ógerningur var að veita Þjöðverjum stað- bundið sjálfsforræði, án þess að stofna einingu ríkisins í hættu. * Þessar tvær þjóðir, Tékkar og Þjóðverjar, höfðu búið í sama landi síðan á 12. öld, og oftast nær með fullum fjand-skap. í þrjár aldir höfðu Þjóðverjar setið yfir hlut Tékka, kúgað þá efnahags- lega og andlega, látið þá kenna á þýzku' höfðingjasið- gæði svo sem Þjóðverja er og hefur jafnan verið s;ður til þess að ná sér niðri á lítil- magnanum. Nú hafði hlut- verkum verið skipt að nýjum hætti: hin gamla hefraþjóð átti nú að sýna þegnskap því ríki, sem lrnir fyrri kotungar hennar höfðu skapað. Þjóð- verjar nutu að jöfnu við aðrá þegna allra frelsisréttii da stjórnarskrárinnar, höfðu kosningarétt og kjörgengi, höfðu meirihluta í mörgum' sveita- og bæjarfélögum Bæ- heims, nutu fuhs frels''s'jí kennslumálum og höfðu jafn- vel fleiri þýzka skóla en þeirn bar að tiltölu við mannfjöida. Framhald á 10. síðu. MINNISBLÖÐ ÚR SÖGU ALDARINNAR TÉKKÓSLÓVAKIA I.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.