Þjóðviljinn - 27.09.1959, Blaðsíða 1
Sósíalistar
Reykjavík
Fundir i öllum deildum
annað kvöld.
Sósíalistafélag
Reykjavíkur
Álvktu miðstjórnar Sósíalistaílokksins um verðlagsmál landbúnaðarins
Ný löggjjöi verdi seti er tryggi sent
bezt hagsmimi bæöi xteytenda og bænda
Miðstjórn Sósíalistaflokks-
ins hefur gert svofellda á-
lyktun um verðlagsmál land-
búnaðarafurða:
„í tilefni af bráðabirgða-
lögum ríkisstjórnarinnar um
verðlag landbúnaðaral'urða
vill miðstjórn Sósíalista-
flokksins taka fram eftirfar-
andi:
Á síðastliðnum vetri sögðu
fulltrúar bænda upp sam-
komulagi því sem síðast var
lagt til grundlvallar Við verð-
lagningu landbúnaðarvara,
og þurfti því að gera sam-
komulag um nýjan grund-
völl nú í haust.
I>ar sem Framleiðsluráð
landbúnaðarins hafði tekið
sér sjálfdæmi til að ákveða
vinnslu- og dreifingarkostn-
að á búvörum og auk þess
lagt á verðjöfnunargjald
vegna útfluttra afurða á
kostnað neytenda, og að því
er varðar síðartalda atriðið
hafðj undirréttardómur fall-
ið Framleiðsluráði í vil,
töldu fulltrúar neytenda að
grundvöllur fyrir starfi sex-
mannanefndarinnar væri
brott fallinn. Lagagrundvöll-
ur fyrir verðlagningu búvara
var því ekki lengur fyrir
hendi. Af þeirri ástæðu er ó-
hjákvæmilegt að setja nýja
löggjöf. Nú hefur komið í
Ijós, að ekki er tryggður
meirihluti á Alþingi fyrir
bráðabirgðalögum ríkisstjórn-
arinnar, og þegar svo er á-
statt telur miðstjórnin að
nauðsynlegt sé að kalla sam-
an Alþingi til þess að ganga
frá löggjöf um þetta efni.
Miðstjórnin telur brýna
nauðsyn til bera að fram-
hald geti orðið á samstarfi
verkamanna og bænda í
þessu efni og mun vinna að
því að svo geti orðið. Mið-
stjórnin mun vinna að því
að ný löggjöf verði sett er
tryggi sem be/t hagsmuni
bæði neytenda og bænda og
telur að það verði be/.t gert
á eftirfarandi grundvelli:
Verð það. sem bænd-
ur fá greitt við af-
liendingu varanna skal mið-
að við það að tekjur þeirra
séu sambærilegar við tekjur
annarra vinnandi stétta fyr-
ir sambæriíega vinnu.
I>eim sem annast
dreifingu og vinnslu
Varanna verði greidd ákveð-
in upphæð á einingu í
vinnslu- og dreifingarkostn-
að, á svipaðan hátt og í öðr-
um atvinnugreinum. Þarf þá
að koma til verðlagseftiriit
er tryggi sem bezt að milli-
liðakostnaður fari ekki fram
úr því sem hæfCegt er.
•J Þótt greiddar verði
verðlagsuppbætur á
útfluttar Iandbúnaðarvörur,
verði kostnaður af þeim ekki
lagður ofan á yerð þeirra
landbúnaðar.vara sem seldar
eru á innanlandsmarkaði“.
Keres efstur
eftir 12 umf.
í 12. umferð á skákmótinu í
Bled var.n Keres Benkö í 21 leik.
Tal og Petrosjan, sömdu jafn-
tefJi eftir 23. leiki, en biðskákir
urðu hiá Smisloff og Gligoric,
þar sem Smisloff á betri stöðu,
og ^Friðrik og Fischer. Er staðan
í þeirri skák talin mjög flókin.
Biðskákirnar 5 úr 11. og 12. um-
ferð voru tefldar í gær, en ekki
var kunnugt um úrslit þeirra -r
blaðið iór í prentun. Staðan eftir
12. umferð var þessi:
1. Keres 8V2
2. Petrosjan 7
3. Tal 1 bið. 6 >/2
4. Gligoric 2 bið. 5>/2
5.—G. Smisloff 2 bið. 4
/ Fischer 2 bið. 4
Benkö 1 bið. 4
8. Friðrik 2 bið. 3>/2
í dag eiga keppendur frí, en á
morgun er 13. umferð tefld. Þá
leikur Fischer hvítu gegn Tal,
Friðrik gegn Smisloff. Gligoric
gegn Keresi og Benkö gegn Petr-
osjan.
Bandaranaike
dó af sárum
Solomon Bandaranaike, for-
sæt'sráðherra Ceylon, dó í
fyrrinótt af skotsárum er mað-
ur í munkakufli veitti honum í
fyrradag. Bandaranaike var
fæddur 1S99 og varð forsætis-
ráðherra 1956.
Við embætti forsætisráð-
lierra hefur tekið Dahanayake,
sem verið hefur menntamála-
ráðherra í stjórn Bandaranaike.
Búizt er við að hann rjúfi þing
og efni til nýrra kosninga hið
fyrsta.
Skriðdrckar hernámsliðsins á sýningu á Keflavikurflug-
velli. Myndin var tekin í sumar, er Pritchard hershöfðingi
tók við yfirstjórn hersins. (Ljósm. Sig. Guðm.)
ffirlýsing flugmálastjóra um atburðina á Keflavikurflugvelli 6. þ.m.:
Islenzka lögreglan iékk forar-
pollsmálið þegar til meðferðar
í flugstöBinni logaSi allf i slagsmálum
milli bandariskra hermanna þá nóff
,,Eg var .. . aldrei í neinum vafa um, að íslenzka lög-
reglan hefði þá þegar (þ.e. að morgni 6. september sl.)
fengið málið til meðferðar og hafið í því rannsókn“, segir
m.a. í yfirlýsingu, sem Þjóðviljanum hefur borizt frá
Agnari Kofoed-Hansen flugmálastjóra vegna blaöaskrifa
uin ofbeldi það, sem bandarískir hernámsliðar beittu
starfsmenn íslenzku flugmálastjórnarinnar á Kefiavíkur-
fiugvelli seint að kvöldi 5. sept.
Yfirlýsing flugmálastjóra er
dagselt 24. þ.m. Fer hún í heild
hér á eftir, en inn í hana hefur
verið skotið nokkrum millifyrir-
sögnum blaðsins:
..Vegna mikilla blaðaskrifa,
sem spunnizt hafa út af atburði
þeim, ci gerðist á Keflavíkur-
flugvelli hinn (j. september s.l.,
er einkennisklæddir starfsmenn
flugmálastjórnarinnar voru beift-
ir oíbeldi. er beir voru að g'egna
skyldustörfum, þykir mér rett
að taka íiam eftirfarandi:
Afskipti af þýzkri
flugvél
Sunnudagsmorguninn hinn 6.
séptember var ég staddur á
Keflavíkurflugvelli vegna nanð-
synlegra afskipta minna af
þýzkri Skymasterflugvél, sem
hafði laskazt allmikið í lendingu
þar á vellmum aðfaranótt föstu-
dagsins 4. september. Hafði flug-
stjórinn krafizt flugtaksheimild-
ar að aflokinni viðgerð og til-
tölulega takmarkaðri skoðun, en
ég hafði synjað um slikt leyfi
fyrr en fyrir Jægi skýlaus yfir-
Jýsing þýzkra flugmáJayfirvalia
um, að þau tækju á sig alla á-
b.vrgð á flugi hinnar þýzku flug-
vélar vestur um hafið þar eð ég
taldi skoðun þá, sem fram hafði
farið á flugveliinum, ófullnæej-
andi. Var flugvélin auk þess
mjög hlaðin, hafði innanborðs
82 farþega, nær eingöngu konur
og börn
. Hafði þýzki flugmálastjórihn
fengið símsenda skýrslu um
málið og beið ég því umsagnar
hans.
Framhald á 5. síðu.
Neitar tíS
kalla sam-
an þing
í gærdag, skömmu
áður en blaðið fór í
prentun, barst Einari
Olgeirssyni, formanni
þingflokks Alþýðu-
bandalagsins, svar
frá Emil Jónssyni for-
sætisráðherra við
bréfi þingflokksins,
þar sem krafizt var
að Alþingi yrði kvatt
saman til að marka
afstöðu sína til lausn-
ar á þeim vandamál-
um er skapazt hafa í
sambandi við verð-
lagsmál landbúnaðar-
ins. Neitaði forsætis-
ráðherra algerlega að
verða við kröfunni.
Nánar verðiir skýrt frá
svarinu í næsta blaði..
G-listi er listi Alþýðubandcdagsins í öllum kfördæmum