Þjóðviljinn - 27.09.1959, Page 3
-— Sunnv.dagur 27. september 1959 — ÞJÓÐJVILJINN — (3
Spjallað við Elínu Ólafsdóttur sjötuga í dag
„Mikið er annars fallegt á Skarð-
ströndinni. Það er ekki langur vegur frá
Stakkabergi niður að sjónum. Þarna sat
ég stundum á lítilli sjávarklöpp við mjó-
an vog og hlustaði á úið í kollunum og
skoðaði fuglalífið. Hvítar þokur í sól-
skini.
Stóra Tunga á Fellsströnd
Mórauður heimalningur liggur jórtr-
andi við hliðina á mér. Þarna syndir
kannski ein kolla með tíu unga í hala-
.rófu. Litlir dökkir hnoðrar á sp.egluðum
fleti. Svei mér þá. Þessa kollumömmu sá
ég í gœr. Þá voru þeir aðeins átta. Tveir
eru komnir í fóstur. Það er ekki sama
hver kollumamman er. Svona er það í
mannheimi. Það sagði amma mín og
nafna mín mér einu sinni“
Er það ekki annars undarlegt, hvað
sumar konur geta hlaðið utan á sig
mörgum börnum. Þœr eru eins og segull
í umhverfinu. Eigin börn, barnabörn og
fósturbörn leita eftir yli og lilýju í kjölhi
ömmu sinnar. Stundum kostar það efna-
liaginn. En þessar konur eiga stórt og
prútt lijarta.
------"Þegar-------
þvottakonan stjórnar
ríkinu"
0
vVÆNT HEIMSOKN
Þegar ég leit inn á Njálsgölu
57 eitt kvöldið og spurði eftir
Elínu Óiafsdóttur, þá var mér
vísað inn í herbergi, þar sem
hún sat yfir rauðhærðum dótt-
ursyni sínum og þuldi honum
æfintýr kvöldsins.
Mér er ekki ljóst, hvernig ljós-
hærður telpukollur var líka
allt í einu kominn í kjöltu
ömmu sinnar og horfði á hiið
á þennan skrítna fugl, sem
gerði sig heimakominn.
Þá hrukku dyrnar upp á gátt
og ljóshærður drenghnokki
kom veltandi inn úr dyrunum
með einhverja flókna vél, sem
hann vildi sýna ömmu sinni.
En við vorum fljót að afg'reiða
vélamanninn.
Hann var þegar sendur til þess
að hita kaffi.
Þannig staldrar amma við í
önnum dagsins.
TT OG UPPRUNI
„Hvar sást þú fyrst Ijós þessa
heims, Elín mín?“
,;Ég er fædd að Kvennahóii á
Skarðsströnd.
Þar bjuggu foreldrar mínir í
þrjú ár eftir að ég fæddist —
áður en við fluttumst að
Stakkabergi.
Þau hétu Guðbjörg Jóhannes-
dóttir og Ólafur Pétursson.
Ég var látin heita í höfuðið á
móðurömmu minni, sem bjó að
Stakkabergi.
Það er svokölluð Svefneyjaætt.
Faðir minn var aftur á móti
þremenningur í móðurætt við
Jón Þorkelsson, þjóðskjalavörð,
sem gekk undir skáldanafninu
Fornólfur.
Óscar Clausen, rithöfundur hef-
ur sagt mér það á götu, hvað
þeir hafi verið merkilega líkir
í sjón.
í föðurlegg var faðir minn af
svokailaðri Skóganes- og Rauð-
kollsstaðaætt“
Og Elín heldur áfram að þylja
ættir sínar, þar sem skiptast á
prestar, sýslumenn, rektorar og
biskupar og hver fær sína sögu.
Það verður ekki skafið af Elínu
að hún er stórfróð og þekkir
margt í gömlum bókum, en
það verður ekki sagt um rauð-
hærða kútinn — frænda henn-
ar, sem geispar upp í opið geð-
ið á ömmu sinni — þegar hún
talar af mikilli hrifningu um
sira Sveinbjörn Þórðarson,
prest í Múla, sem uppi var á
fimmtándu öld og átti fimmtiu
böm og allir hálfrefir að auki.
^TÓRA TUNGA
Og nú bærir Ijóshærða hnátan
á sér í kjöltu ömmu sinnar.
Það er Tóta litla.
Og hún segir sem svo:
„Æ — i — amma — mikið er
maðurinn forvitinn"
„Þetta átt þú ekki að segja
Tóta litla.
Þegar ég var orðin sjö ára og
við vorum flutt í Stóru Tungu,
þá var mesta yndi mitt að elta
föður minn. í fjósið og láta
hann segja mér sögur.
Og þegar ég varð eldri að ár-
um, þá varð þetta skólaganga
min. Þarna fékk ég uppfræðslu
í mannkynssögu, stjörnufræði
og fornbókmenntum.
Mikið var nú faðir minn ann-
ars fróður“.
„Hvað dvaldist þú lengi í föð-
urgarði, Elín?“
„Ég var orðin þrítug að árum.
Þegar ég var seytján ára, þá
missti ég móður mína.
Ég var elzt af tíu systkinum og
það féll í minn hlut að gegna
móðurhlutverki gagnvart þeim.
Mér féll þetta ekki illa, því að
við vorum mjög samrýmd og
mér þótti ákaflega vænt um
pabba.
Mér °r í minni, þegar Bjarni
frá Vogi kom stundum í heim-
sókn til okkar í Stóru Tungu,
en hann var mikill vinur föður
mins.
Hann sendi honum marga bók-
ina, blöð og tímarit.
Þeir sátu gjarnan í litlu stofu.
Alltaf man ég eftir þvi. hvað
Bjarni sagði okkur af mikiili
hrifningu aí þeim atburði, þeg-
ar bláhvíti fáninn var rifinn
niður í Reykjavíkurhöfn.
Þar var nú eldmóður og hrifn-
ing.
Enda • r ég heit út í bandaríska
herinn á Keflavíkurflugvelli.
Það er okkur mikil smán.
r
ULLBRÁRFOSS OG
FORSÆTISRÁÐ-
HERRANN
Þegar ég var í föðurgarði, þá
átti ég mér lítinn griðastað. Það
var við iítinn foss í skógivöxnu
gili eins og korters g'ang frá
bænum.
Þarna átti ég margar yndis-
stund.
Þetta var mér helgur reitur.
Eitt árið frétti ég hingað suð-
ur, að sjálfur forsætisráðherr-
ann hafði fundið sig knúðan
til þess að leggjast í fram-
kvæmdir á þessum litla griða-
stað mínum og búa þar til
laxastiga.
Þetta var Hermann Jónasson.
Ég var eitthvað að bauka \ið
eldavélina mína, þegar mér
komu þessar stökur í hug.
Ertu fagri fossinn minn
firrtur þinni prýði?
Þú hefur lagað ljóðin þín
lífs í aldar stríði.
I
Af þér brauztu ísatjöld,
ægðir sízt við stríði.
Við þau köldu kólguvöld
er krenktu þjakar lífi.
Þegar blessuð sumarsól
sýndi fegurð sína.
Ótal iitum geisla glóð
glóð um strauma þína.
Þú ert byggður, þvi er ver,
þinn er brotinn kraftur.
Þú færð aldrei þulur tér
þína hörpu aftur.
Oft ég hugsa heim til þín
lieilla vinur góði.
Ljúfu og sterku ijóðin þín
létta þungum móði“
„Þú býrð ennþá til stökur,
Elín?“
„Æ — i — jæja.
Ég er að gantast þetta við hann
Jón Rafnsson — stundum.
Þessa kvað ég til hans nýlega.
Blómin falla föl á grund
feigðar kanna sporið
Vetur sær er ógnar und
allt sem græddi vorið.
r
Þá hió Jón Rafnsson".
Haldið að HEIM-
AN ÚR FÖÐURGARÐI
Rauðkollur er sofnaður og nú
er mjög dregið af Tótu litlu.
Dyrnar opnast hægt og inn
kemur vélamaðurinn með kaifi
og fínlieit.
Og forvitni maðurinn heldur
áfram að spyrja ömmu úr
spjörunum.
„Hvert lá léið þín úr föðurgarði,
Elín?“
„Ég héit til Reykjavíkur.
Réði mig í Gróðrarstöð Reykia-
vikur og vann þar um þriggja
ára bil.
Mér féll vel að vinna þarna.
Þarna eignaðist ég líka ljúfa
og góða vini eins og Ein.ar
Bjarnason og konu hans Krist-
ínu.
Einnig hafði ég mikið dálæti
á Guðrúnu — systur Einars og
Ragnari Ásgeirssyni, ráðunaut.
Það var um þetta leyti, sem
Ragnar hvarf á braut úr Stöð-
inni.
Þá orti ég til hans stöku:
Vinum fækar, vantar skjól,
vart er gleði að finna.
Þar sem sól sér sumar ól
í sæti vina minna.
En það var ekki til setunnac
boðið á þessum árum.
Næst var það Noregur.
Ég var svo heppin að njóta
fyrirgreiðslu Sigurðar búnaðar-
málastjóra og réði mig á Ekhög
— planteskole í Söfteland —<
nálægt Björgvin 1 Hörðalands-
fylki.
Ég átti sérstaklega að kynna
mér skógrækt og garðrækt.
Þarna dvaldist ég í góðu gengi
í tvö ár.
Síðan kom ég heim og hélt
áfram að vinna í Gróðrarstöð-
inni.
En það var nú víst aldrei nema
einn vetur.
Kynntist skömmu siðar rnanni
Framhald á 11, síðu.