Þjóðviljinn - 27.09.1959, Blaðsíða 5
Sunnudagur 27. september 1959 — ÞJÓÐK/ILJINN — (5
lt/ff r i 1 „ Ein stærsta herstöð Bandaríkjamanna í Japan er í
_. 10tIíl9Bl8. Iicrsloo sveitahéraði vestarlega í eyríidnu. Nýlega liéldu b
Iwakuni,
vestarlega í eyríldnu. Nýlega liéldu bændur á
þessum slóðuni fund og kröfðust þess af ríkisstjcrn Japans að hún losaði þá við lierstöðina
og vísaði Bandaríkjaher úr landi fyrir fullt og allt. Fundarmenn liéldu síðan að girðingunni
um herstöðina, og hér sjást nokkrir þeirra horía á hernaðarmannvirkin..
Yfsrlýssiig fliigmálðstióra
• Framhald af .1. . siðu.
Logaði allt í slagsmálum
Er ég hafði lokið afgreiðslu
þessa máls þar syðra, bárust
mér þæv fréttir frá vaktstjóra
flugvélaafgreiðslu flugmálastjórn-
arinnar, að starfsmenn hennar
hefðu verið beittir ofbeldi af
amerískum herlögreglumönnum,
að viðbættum þeim upplýsing-
um, að allt hefði logað í slags-
málum í flugstöðinni milli drukk-
inna hermanna þá um nóttina
og hefði það að sjálfsögðu verið
t.il mikilla óþæginda fyrir hinn
mikla fjölda farþega hinnar
J)ýzku f’ugvélar, sem þar voru
að reyna að sofa í stólum og á
bekkjum.
Bókun íslenzku lögreglunnar
Ég spurði strax, hvort íslenzka
Iögreglan hefði haft afskipti af
ináliim þessum og var mér tjáð
að svo hefði verið, enda taldi ég
það staðf. í bókun þeirri, et ég
las þá um morguninn, og sem ég
leyfi mér að birta hér orðrétta
„Sá atburður skeði hér um
-miðnætti, er aðstoðarmaður og
ílugþjónustumaður fóru áleiðis
að flugvél CDL, sem var inni í
flugskýli (B36) ásamt flugstjór-
um vélarinnar, og voru þeir
komnir langleiðina að skýlinu,
er varðmaður (AF) skipaði þeim
írá farartækjum sinum með
byssu, sem mifjað var á þá og
þvínæst að leggjast á magann á
llugvélastæðið með hendur út og
sundurglennta fingur og að þegja.
Þannig urðu þeir að Jiggja góð-
an tíma eða þangað til einhver
Sergeant frá AP frelsaði þá. Það
skal tekid fram, að alian timann
var otað að þeim byssu. Svipað
atvik kom fyrir flug'drkja flug-
málastjórnarinnar og kærði hann
atvikið fyrir lögreglunni. Nauð-
synlegt er, að tekin sé nákvæm-
ari skýrsla um atburð þennan og
hann kærður til ráðuneytisins.“
: u- Boð gerð f^Vir^ yfirinann
*’ - ’ !flugliðsins’ '***
Ég vil taka það fram, að enda
þótt ég hafi um tveggja ára bil
haft lítil sem engin afskipti af
daglegum rekstri Keílavíkurflug-
vallar af ástæðum, sem ég tel
ekki ástæðu til að greina að
sinni, taldi ég atvik þéssi þó svo
alvarlegs eðlis, að ég hlaut að
láta þau tafarlaust til mín taka,
þar eð þau vörðuðu ' öryggi
starfsmanna íslenzku flugmála-
stjórnarinnar auk þess sem ein-
kennisbúningur íslenzka ríkisins
hafði verið svívirtur. Ég gerði
því samstundis boð fyrir yfir-
mann bandaríska flughersins hér
á landi og bað hann að koma
strax til fundar við mig í skrif-
stofu llugmálastjórnarinnar á
Keflavíkurflugvelli og það enda
þótt sunnudagur væri og fyrir
venjulegan fótaferðatíma.
Hermönnum bannaður að-
gangur að hótelinu
Yfirmaðurinn kom að vörmu
spori og þó ég vilji ekki þreyta
almenning á því að skýra frá
því, sem okkur fór á milli, vil
ég geta þess, að yfirmaður flug-
hersins lét strax að afloknu
þessu samtali okkar gera ýmsar
ráðstafanir, er til þess voru
fallnar að auka starfsöryggi ís-
lenzku flugþjónustunnar auk
þess, sem hann lofaði að láta
tafarlaust fara fram hina ná-
kvæmustu rannsókn á atburðum
næturinnar og skyldi hinum seku
eins þunglega refsað og tilefni
gæfist frekast til. Þá um kvöldið
lét yfirmaðurinn banna öllum
hermönnum aðgang að hótelinu
og flugstöðvarbyggingunni og
var að J)ví hin mesta bót. Er
þetta bann enn í Jullu gildi.
Að loknu samtali okkar skýrði
ég flugvallarstjóranuni á KefJa-
víkurflugvelli, Pétri Guðmunds-
syni, þá samstundis nákvæmlega
frá því, sem ég' hafði aðhafzt í
málinu og sýndi honum bók'in
þá, sem gerð hafði verið um mál
þetta þá um nóttina. Taldi ég
þar með lokið afskiptum mír.um
af máli Jæssu. í'-bili tða þkr til
fyrir lægi tæmandi skýrsla um
málið, en ég hef ekki orðið þess
var á tveggja áratuga embætt-
isferli mínum, þar af nær átta
ár sem lögreglustjóri í Reykja-
vík, að mál væru kærð til ráð-
herra eða ráðuneytis án þess. að
nauðsynleg rannsókn færi fra.n
áður.
Hins vegar hefði með réttu
mátt saka mig um frumhlaup
og embættisafglöp, ef ég hefði
kært málið til ráðuneytisins eða
utanríkisráðherra, án þess að
það lægi ljóst fyrir í heild og
öll atvik væru kunn, en ég var
eins og að framan getur og af
augljósum ástæðum aldrei í
neinum vafa um, að íslenzka
lögreglan hefði þá þegar fengið
málið til meðferðar og hafið í
því rannsókn.
Ég tel mig því fyllilega hafa
gert sk'.ddu mína í umræddu
máli og myndi fara eins að, ef
svipað mál kæmi fyrit aftur.
Mér bykir leitt að hafa ekki
átt þess kost að gera grein fyr-
ir atviki þessu fyrr. en ég var
staddur erlendis á fundi flug-
málastjóra Evrópu, er blaðaskrif
hófust út af málinu.
Með bökk fyrir birtínguna.
Agnar Kofoed-Hansen.“
Flugvallarstjórinn á Keflavík-
urflugvelh hefur beðið Þjóðvilj-
ann fyrir eftirfarandi athuga-
semd við ofanritað:
„Hvað snertir það sem fór
milli mín og flugmálastjóra í
sambandi við atburðina á Kefia-
víkurflugvelli þann 6. þ.m. vil
ég taka það fram að það éina
sem flugmálastjóri fór fram á
að ég aðhefðist í máli þessu
var það að ég kæmi á fund með
honum og yfirmanni flughersins
daginn eftir, en á fundi þessum
átti að fjalla um framangreinda
atburði. Af orsökum sem mér
eru ókunnar var fundur þessi
aldrei haldinn.
Pétur Guðmundsson“.
boðar til íundar með meálimum
Sósíalistaíélags Reykjavíkur
Málíundaíélags jaínaðarmanna
Kveníélags sósíalista
Æskulýðsíylkingarinnar
í Iðnó miðvikudaginn 30. september
klukkan 8 3 Ó e.h.
MálsHeljendur 'á lundinum veiða 4 eístu
menn G-listans:
EINAR OLEIRSSON
ALFREÐ GÍSLASON
EÐVAR® SIGURÐSSON
MARGRÉT SIGURÐARÐÓTTIR
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Mmsílokkar
Reykjavíkur
Innritun í dag (sunnudag) og næstu daga
í Miðbæjarskólanum (gengið inn um norð-
urdyr) kl. 5 til 7 og 8 til 9 síðdegis. Inn-
ritunargjald er kr. 40,00 fyrir bóklegar
greinar og kr. 80,00 fyrir verklegar grein-
ar og greiðist við innritun.
Allar frekari upplýsingar á innritunarstað.
■ m
MELAVOLLUR
Haustmót meistaraflokks — 1 dag klukkan 2 leika
VALUR - VtKLNGUR
Dómari: Baldur Þórðarson
Línuverðir: Magnús Pétursson og Baldvin Ársælsson
Strax á eftir leika:
FRAM-KR
Dómari: Einar Hjartarson
Línuverðir: Ingi Eyvinds og Sigurður Ölafsson.
MÓTSNEFNDIN