Þjóðviljinn - 27.09.1959, Page 10
ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 27. september 1959 —
TIL'KYSINING frá yfirkjör-
Eftirtaldir listar verða í kjöri í Vesturlands-
kjördæmi við alþingiskosningar þær sem
fram eiga að fara. þann 25. og 26. okt. 1959.
A. Listi Alþýðuflokksins:
1. Benedilkt Gröndal, ritstjóri Reykjavik
2. Pétur Pétursson, forstjóri, Reykjavík
3. Hálfdán Sveinsson, kennari. Akranesi
4. Ottó Árnason, bókari, Ólafsvík
5. Sigurþór Halldórsson, skólastjóri, Borgarnesi
6. Magnús Rögnvaldsson, verkstjóri, Búðardal
7. Lárus Guðmundsson, skipstjóri, Stykkishólmi
8. Bjarni Andrésson, kennari, Varmalandi
9. Snæbjörn Einarsson, verkamaður, Sandi
10. Sveinbjörn Oddsson, bókavörður, Akranesi.
ÍT
B. Lisfi Framsóknarflokksins:
1. Ásgeir Bjarnason, bóndi, Ásgarði
2. Halldór Sigurðsson, sveitarstjóri, Borgarnesi
3. Daníel Ágústínusson, bæjarstjóri, Akranesi
4. Gunnar Guðbjartsson, foóndi. Hjarðarfelii
5. Alexander Stefánsson, kaupfélagsstjóri, Ólafsvík
6. Ingimundur Ásgeirsson, bóndi, Hæli
7. Kristinn B. Gíslason, verkamaður, Stykkishólmi
8. Geir Sigurðsson, bóndi, Skerðingsstöðum
9. Guðmundur Sverrisson, bóndi, Hvammi
10. Guðmundur Brynjólfsson, bóndi, Hrafnabjörgum.
D. Listi Sjálfstæðisflokksins:
1. Sigurður Ágústsson, útgerðarmaður, Stykkishólmi
2. Jón Árnason, framkvæmdastjóri, Akranesi
3. Friðjón Þórðarson, sýslumaður, Búðardal
4. Ásgeir Pétursson, deildarstjóri, Reykjavík
5. Eggert Einarsson, héraðslæknir, Bórgarnesi
6. Karl Magnússon, bóndi, Knerri Snæfellsnesi
7. Sigfíður Sigurjónsdóttir, húsfrú, Hurðarbaki,
Borgarfirði
8. Sigtryggur Jónsson, bóndi Hrappsstöðum, Dala-
sýslu
9. Vilhjálmur Ögmundsson, bóndi, Narfeyri, Snæ-
fellsnessýslu
10. Pétur Ottesen, bóndi, Ytra Hólmi, Borgarfirði.
G. Listi Alþýðuhandalagsins:
1. Ingi R. Helgason, héraðsdómslögmaður, Reykjavík
2. Jenni Ólason, verzlunarmaður, Stykkishólmi
3. Pétur Geirsson, mjólkurfræðingur, Borgarnesi
4. Jón Zóphónías Sigríksson, sjómaður, Akranesi
5. Ragnar Þorsteinsson, kennari, Reykjaskóla
6. á'kúli Alexandersson, oddviti, Hellissandi
7. JÓhann Ásmundsson, bóndi, Kverná, Grundarfirði
8. Þórður Oddsson, héraðslæknir, Kleppjárnsreykjum
9. Kristjón Jensson, verkamaður, Ólafsvík
10. Guðmundur Böðvarsson, skáld, Kifkjubóli,
Hvítársíðu.
Hinrik Jónsson, formaður yfirkjörstjórnar
Vesturlandskjördæmis.
Horft fram til ársins 2007
Framhald af 7. síðu.
nýtist fullkomlega.
Öllu rafmagni verður safn-
að saman í eina mikla leiðslu
frá Saxelfi til Japanshafs, til
afnota fyrir öll hin sósíalisku
lönd og ef til vill fleiri.
Þá mun ekki þurfa að losa
málma úr jörð með handafli.
Litlir málmhólkar með kjarna-
vetnis- eða öðrum sprengiefn-
um munu vinna á örstuttum
tíma það verk sem nú tekur
mánuði eða ár með ærinni
fyrirhöfn. í Kína hafa kín-
verskir sérfræðingar nú þeg-
ar unnið saman að því að
sprengja fjall með slíkum að-
ferðum, og setja það niður í
dalinn, og þeir hafa gert járn-
brautarundirstöður svo skipt-
ir mörgum kílómetrum á ör-
fáum sekúndum. Árið 2007
munu járnbrautir í Asíu ekki
einungis liggja frá austri til
vesturs heldur um Himalaya-
og Pamírfjöll frá suðri til
norðurs milli Síberíu og Kína,
og til hinna suðlægu og suð-
austlægu landa álfunnar sem
hafa stöðugt aukna þýðingu
fyrir efnahagskerfi Asíu.
★
Hafskip knúin atómorku
munu geta flutt 100—200.000
tonn og farið með 120—150
km hraða á klukkustund. Far-
þegar verða fluttir í kafskip-
um, svo þeir séu lausir við
alla sjóveiki og hafi margt
nýstárlegt og skemmtilegt að
skoða í hafinu á leiðinni.
Járnbrautir verða þá jafn-
vel meira notaðar en nú ger-
ist, og verða 40—50.000 hest-
afla, og 3—5 m milli tein-
anna í stað 1,5 m sem nú er
venjulegast. Þær munu- fara
með 250—350 km hraða á
klukkustund. Járnbrautarlest-
ir sem annast flutninga milli
heimsálfa munu hafa enn
breiðari brautir og geta flutt
óhemjulegt magn.
Bílar verða bannaðir í stór-
borgum, en á bílvegum utan
borganna verður ekið með 250
—350 km hraða á klst. 1 stór-
borgum verður aðallega ferð-
azt á rennibrautum gangstétt-
anna og í þyrilvængjum. Á
gangstéttum verða þrjár
rennibrautir samsíða, ein fer
með 20 km hraða, önnur með
40, þriðja með 100 km hraða,
og á þeim verða hægindastól-
ar, bekkir og sjálfsalar með
evaladrykkjum, ís, súkkulaði,
ávöxtum, en ekki sígarettum.
Því þá hafa allir fyrir löngu
lagt niður þann afleita sið að
draga andann gegnum eitur-
hylki. Svo segir Zvonkoff,
einn af greinarhöfunídunum.
Fiugvélar munu fara með
5—6000 km hraða á klst. í
15—20 km hæð.
Sjálf borgin Moskva hefur
ekki stækkað neitt, ef til vill
hefur hún minnkað dálítið, en
umhverfis hana verða fjölda-
margar smáborgir handan við
50 km breitt skógarbelti, sem
umlykur hana. 1 því verða
sumarbústaðir, barnagarðar
o.fl. Bílagerðirnar verða all-
frábrugðnar því sem nú ger-
ist, og verða bílamir knúðir
af hátíðnisstraum í sjálfri ak-
brautinni, en enginn þarf að
gæta stýrissveifar. Þegar þú
ert kominn þangað sem þú
ætlar þér, skilurðu bílinn eft-
ir, og sá sem þar ber að næst
og þarfnast hans, tekur við.
Ætíð og allstaðar verður nóg
til af bílum til taks. Hátíðn-
isleiðslurnar munu sjá um
ræstingu veganna, og bræða
af þeim snjó, jafnóðum og
hann fellur.
Árið 2000 er kveikt á hinni
fyrstu gervisól yfir Moskvu.
4 hátíðnisrafstöðvar munu
senda geisla sem skerast í
20r—30 km hæð yfir-staðnum,
og við þetta kviknar á köfn-
unarefnismólikúlum, og verð-
ur af því svo bjart ljós sem
á degi væri og jafnbjart alls-
staðar í borginni. ,,Askan“
frá hinu útbrunna köfnunar-
efni fellur til jarðar og verð-
ur að ágætum áburði fyrir allt
landið umhverfis og borgina
sjálfa, og þarf ekkert fyrir
þessu að hafa.
Borg á tunglinu
orðnar algengar, og verður
búið að reisa þar borg undir
gleri, með sérstöku andrúms-
lofti, aflstöðvum, sem vinna
orku frá sólinni, og verksmiðj-
um, sem vinna hráefni tungls-
ins. Þar verður jarðrækt og
gróðurhús og súrefnisverk-
smiðjur. Loftþéttir tunglbílar
hæfilega; upphitaðir, munu aka
aðkómumönnum frá jörðinni,
frá flugvellinum yfir til
borgarinnar.
1 brauðgerðarhúsi tunglsins
verða bökuð brauð handa
tunglbúum. Ef brauðin væru
flutt bökuð frá jörðinni yfir
á tungl, mundu þau verða dýr-
ari en jafnstórir bútar úr
gulli. I eldflaugaverksmiðjum
verða gerðar eldflaugar og
eldsneyti handa þeim til flugs
út í geim, þangað sem búið
verður að koma fyrir lending-
arpöllum til flugs út til reiki-
stjarnanna. En þetta verður
varla komið fyllilega í kring
árið 2007.
Árið 2007 verða tunglferðir
---------------------
AUGLVSING
um skoðun reiðhjóla með hjálparvél í lög-
sagnarumdæmi Reykjavíkur
Aðalskoðun reiðhjóla með hjálparvél fer fram í bif-
reiðaeftirliti ríkisins, Borgartúni 7, sem hér segir:
Miðvikudaginn 30. sept.......... R-1 til 100
Fimmtudaginn 1. okt............. R-101 til 200
Föstudaginn 2. okt.............. R-201 til 300
Mánudaginn 5 okt................ R-301 til 400
Þriðjudaginn 6. okt. ........... R-401 til 500
Miðvikudaginn 7, okt............ R-501 til 600
Fimmtudaginn 8. okt............. R-601 til 700
Föstudaginn 9. okt.............. R-701 til 800
Skoðun á reiðhjólum með hjálparvél, sem eru í notk-
un hér í bænum, en skrásett annars staðar, fer fram
5. til 8 okt
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging
fyrir hvert reiðhjól sé í gildi. Athygli skal vakin á
því, að vátryggingariðgjald ökumanna ber að greiða
við skoðun.
Vanræki einhver að koma reiðhjóli sínu til skoðunar
á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferðarlögum og reiðhjólið tekið úr umferð,
hvar sem til þess næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 26. septemfoer 1959.
SIGURJÓN SIGURÐSSON.
0RÐSENDING
til meistara og iðnfyrirtækja
Athygli meistara og iðnfyrirtækja, sem taka unglinga
til iðnnáms, skal hér með vakin á 3. gr. Reglugerðar
um breyting á reglugerð um iðnfræðslu, nr. 130 12.
júní 1952, útgefinni af Iðnaðarmálaráðuneytinu 22.
júlí 1959, svohljóðandi:
„Óheimilt er að láta ungling hef ja iðnnám, nema hann
hafi lókið miðskólaprófi. Iðnfræðsluráð getur þó, þeg-
ar sérstaklega stendur á, veitt undanþágu frá þessu á-
kvæði, hafi unglingurinn lokið skyldunámi og sýni
við inntökupróf í iðnskóla, að hann hafi nægilega und-
irstöðuþekkingu i íslenzku og reikningi til þess' að
fylgjast með kennslu 'í 1. foekk iðnskólans".
Samkvæmt framansögðu þurfa meistarar og iðnfyrir-
tælki eftirleiðis, að láta vottorð um miðskólapróf fylgja
námssamningum sem óskað er staðfestingar á. Sé slíkt
próf ekki fyrir hendi, ber að sækja um undanþágu
samkv. 2. mgr., áður en námssamningur er gerður.
Reykjavík, 23 septemiber 1959.
Iðnfræðsluráð.