Þjóðviljinn - 04.11.1959, Blaðsíða 9
FIDELA
sækir a um
allan heim
Miðvikudagur 4. nóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Ungmeimcif. Keflovikur 30 ára
Stjórn UMFK. Frá vinstri: Guðfinnur Sigurvinsson meðstj.,
Gunnar' Sveinsson varaforniaður, Þórliallur Guðjónsson for-
maður, Steinþór Júlíusson gjaUlkeri og Hörður Guðmundsson
ritari.
Um þetta leyti árs fyrir 30
árum var Ungmennafélag Kefla-
víkur að stíga fyrstu skrefin.
Það virðist eins og það hafi
verið nokkuð síðbúið, því að
flest voru þau stofnuð á fyrstu
tveim áratugum þessarar aldar.
En það virðist sem glóð sú, er
undir kynti, þegar ungmennafé-
iagshreyfingin heillaði hugi
ungra manna víða um land,
hafi ekkert verið farin að kulna,
þegar þessi félagsstofnun átti sér
stað. í vaxandi bæ, eins og
Keflavík, var einmitt þörf þessa
nýja anda, og saga Ungmenna-
félags Keflavíkur staðfestir ein-
mitt, að æskufólk staðarins
þekkti vitjunartíma sinn, tók
upp merki hugsjónar ungmenna-
félaganna og bar það fram til
sigurs í mörgum greinum.
Sjálf félagsstofnunin átti sér
stað 29. september 1929. Var
stofnfundurinn haldinn í sam-
komuhúsi því, sem Skjöldur var
kallað. Stofnendur voru 28 sam-
tals, og 'fyrsta stjórn félagsins
var kjörin á þeim sama fundi
og skipuðu hana: Björn Bjarna-
son formaður, Þorgrímur Eyj-
ólfssön ritari og Þórey Þor-
steinsdóttir gjaldkeri.
Þegar eftir stofnunina var tek-
ið til óspilltra málanna að
vinna að stefnumálum félags-
ins og var það fátt sem því
var óviðkomandi, er benti til
framfara- og menningarmála
staðarins.
Ungverjar unmi
Svísslendínga
í síðustu viku fór fram iands-
ieikur í knattspyrnu á miili Ung-
verjalands og Sviss, og fór hann
’fram í Eudapest, á Nep-Ieikvang-
inum. Leikurinn var frá upphafi
ójafn og nánast leikur kattar
að mús.
Ungverjarnir unnu með 8
mörkum gegn engu. f hálfleik
stóðu leikar 6:0. Leikur þessi
var þáttur í keppni um svokall-
aðan Josef Gerö-bikar, sem sex
lönd taka þátt í.
Með sigri þessum eru Ung-
verjar efstir, en þó með sömu
stigatölu og Tékkar en marka-
staðan er betri. Næsti leikur í
keppni þessari er eftir viku og
þá keppa Ungverjar og Vestur-
Þjóðverjar, og er talið að sá
leikur geti orðið nokkur mæli-
Mun stundum hafa svo að
kveðið, að ung'mennafélagið hafi
verið nefnt , hreppsnefndin“!
Víst er það, að félagið var í
mörgum málum góður ráðg'jafi
fyrir hreppsnefndina, og veitti
henni á vissan hátt aðhaid. Það
sem félagið þó helzt beitti sér
fyrir voru menningar- og íþrótta-
mál.
Bygg'ing sundlaugarinnar
Á fyrstu árum félagsins létu
menn sér nægja að synda og
busla í sjó á stað sem kallaður
er Gróf, og þar fóru líka fram
fyrstu sundmótin. Þetta sam-
rýmdist ekki kröfum tímans og
þá hófst félagið handa um að
byggja sundlaugina, og var það
eitt af fyrstu stórverkefnum
þess. Á verki þessu var byrjað
1937. Engir voru þar gildir sjóð-
ir, en hins vegar trú á gott
málefni, vilji og vinnuáhugi. Þeg-
ar sundlaugin var siðar afhent
Keflavíkurhreppi, eftir að ung-
mennafélagið hafði starfrækt
hana lengi, voru mannvirkin
talin vera að verðmæti á þriðja
hundrað þúsund krónur.
Árangur af þessu starfi hefur
mátt sjá á sundmótum í mörg
undanfarin ár, þvi að sundfólk
frá Keflavík hefur oft sett svip
á þau, auk þess sem sundlaugin
er glæsilegt menningartæki á
staðnum.
i
Ungmennafélagsliúsið
eða „Ungó“
Félagið sat ekki auðum hönd-
um áður en hafizt var handa
um sundlaugarbygginguna. Árið
áður en það gerðist, var ung-
mennafélagshúsið eða ,,Ungó“
eins og það er kallað daglega.
vígt með mikilli viðhöfn. Hefur
það allt frá þeirri stund verið
heimili félagsins og raunar fé-
lagsheimili og samkomuhús allra
Keflvíkinga.
Hús þetta hefur því verið ó-
metanlegt fyrir alla starfsemi fé-
Ársþingi FRl hef-
ur verið frestað
Af sérstökum ástæðum hefur
reynzt nauðsynlegt að fresta
ársþingi Frjálsíþróttasambands
íslands, sem ákveðið var 7.—8.
nóvember n.k. til 21.—22. nóv-
ember næst komandi.
Frestur til að skila tillögum
til ársþingsins framlengist til
10. r.óvember.
lagsins og þar hefur farið fram
leiklistarstarfsemi, sem um ára-
bil stóð með 'miklum blóma. Var
það alltítt að leikflokkar félags-
ins færu í ' sýningarferðir til
Hafnarfjarðar, Reykjavíkur og
Akraness.
Tvívegis hefur húsið verið
stækkað, og hefur það því fylgt,
ef svo mætti segja, þörfum og
stækkun staðarins.
Miirg' málefni á dagskrá
Hér hefur aðeins verið minnzt
á tvö verkefni sem ungmennafé-
lagið hefur beitt sér fyrir með
miklum ágætum auk leiklistar-
innar. Þáttur félagsins í Bóka-!
safni Keflavíkurhrepps er merki-
legur. Félagið hefur haft for-
göngu um B.yggðasafn Keflavík-
ur og hefur þar margt merkilegt
komið fram. og draumur félags-
ins mun vera að komið verði
upp myndarlegu safnhúsi. Þá
hefur félagið haft afskipti af
mörg'um öðrum málum m.a. raf-
lýsingu gatna. löggæzlu, barna-
leikvöilum, íþróttasvæði, skrúð-
garði, stofnun íþróttabandalags
Keflavíkur, félagsheimilabygg-
ingu og ýmsu fleiru.
íþróttir í vaxandi
mæli
Þótt íþróttir hafi veri iðkaðar
í félaginu frá upphafi, hefur þró-
unin orðið sú að upp á síðkast-
ið hafa þær orðið meira ráð-
andi þáttur í fé'laginu. Er það
að sumu leyti eðlileg't. Baráttu-
málin: Sundlaugin, félagsheimil-
ið og íþróttavtellirnir, eru orðin
staðreynd, svo og; íþróttasalur,
sem Keflvikingar munu þó hafa
kosið að væri allmiklu stærri.
Framfaramál hreppsins eru meir
komin í fastar skorður, svo að nú
er það meira hlutverk félagsins
að safna æsku staðarins saman
til að nota þessi mannvirki, og
þeir sem hafa fylgzt með íþrótta-
afrekum Keflvíkinga munu sam-
mála um það, að þar hefur náðst
mikill árangur. Er þar skemmst
að minnast sundfólksins, og það-
an hafa einnig komið ágætir
frjálsíþróttamenn. Knattspyrnan
er líka að vinna þar land, og
talar síðasta sumar þar skýru
máli.
Það verður því ekki annað sagt
en að ungmennafélagið hafi unn-
ið merkilegt brautryðjendastarf
í ýmsum félagsmálum í Keflavik
í þessi 30 ár, starf sem seint
mun fullþakkað. Er þyí árnað
hér heilla.
Þeir sem nú skipa stjórn fé-
lagsins eru: Þórhallur Guðjóns-
son formaður, Gunnar Sveinsson
varaformaður, Steinþór Júlíusson
gjaldkeri, Hprður Guðmundsson
ritari og Guðfinnur Sigurvinsson
meðstjórnandi.
Framhald á 11. síðu.
Danmörk vann
keppninni í
Fyrir stuttu háðu danskir og
norskir sundmenn landskeppni,
og fór keppnin fram í Kaup-
mannahöfn. Var það síðari
keppnin af tveimur í sumar, þar
sem keppt er um sérstakan bik-
ar, er það land hlýtur sem fær
betri stigatölu úr báðum keppn-
unum. Keppnina í vor vann Nor-
egur með 63 stigum gegn 40,
en siðari keppnina vann Dan-
mörk með 54,5 stigum gegn 43,5
Noregur hefur því unnið bikar-
inn að þessu sinni. i,ur.
Noreg í lands-
54,5:48,5
Úrslit í nokkruin greinuin:
100 m skriðsund karla
Sven Larsen N. 1,00,8
Lar,s Larsson D. 1,01,0
100 m baksund: - /
Lars Kraus Jensen D 1,11,8
Rolf Bagle N 1,12,9
100 m flugsund;
Christer Bjarne N. 1,08,0
Jan Johansen D 1,10,7
4x100 m skriðsund; vann Noreg-
FIDEIjA
. -*
V_ 5
FÍDELA garnið er framleitt úr beztu tegund ullar og eina útlenda
garnið á‘ markaðnum, sem hægt er að prjóna á vél.
FÍDELA garnið er þekkt urn larid allt og fæst í öllum betri
verzlunum og kaupfólögum iandsins.
Framleiðendur: Centrotex, Dept. 6707, Prag. Umboðsmaður: Jón Heiðberg, Laufásvegi 2A, Rvík,
JÓNAS ÓLAFSSON, Vonarstræti 8. Símar 17-294 og 13-585.