Þjóðviljinn - 07.01.1960, Qupperneq 9
Fimmtudagur 7. janúar 1960 — ÞJÖÐVILJINN — (9Í
RITSTJÖRÍ:1'
14
kortur á athalnasvæol ©g 'hús>
næli háir sterisemi Þróttar
Oskar Pétursson endurkjörism formaðnr félagsins
hófi félagsins.
Á árinu var Grétar Norð-
fjörð s'kipaður landsdómari í
knattspyrnu, er það annar
Þróttarfélagi sem skipaður hef-
ur verið landsdómari, sá fyrsti
var Magnús Pétursson. í þessu
sambandi má geta þess að
Þróttur áttj flesta starfandi
knattspyrnudómara á sl. sarfs-
ári, eða alls 13, og er Baldur
Þórðarson með flesta leiki, eða
alls 40, en Grétar Norðfjörð
er næstur með 30 leiki.
Á árinu var unnið að bygg-
ingarmálum félagsins, en for-
maður byggingarnefndar var
Ögmundur Stephensen. Lokið
var við teikningar af væntan-
legu félagsheimili, og hafa þær
hlotið samþykki íþróttafulltrúa
ríkisins. Gísli Halldórsson arki-
tekt gerði teikningarnar, en
hann hefur verið félaginu mjög
innan handar í þessu máli.
Hinsvegar hefur svæði því sem
félaginu hefur verið ætlað og
teikningarnar við miðaðar, e'kki
verið úthlutað enn þá.
Segja, má að félagslífið í
heild hafi verið allgott, hins-
vegar háir athafnasvæðisleysi
og húsnæðisskortur mjög.
1 lok ræðu sinnar þakkaði
formaður öllum þeim, sem stutt
hafa félagið, bæði félögum og
utanfélagsmönnum. Gat síðan
eins og kvað á engan hallað
með þvi, en það var Haraldur
Snorrason, sem alltaf hefði ver-
ið búinn og boðinn til starfa.
Að skýrslu formanns lokinni
skýrði gjaldkerinn Haraldur
Snorrason reikninga félagsins.
Umræður urðu síðan allmikl-
ar um skýrsluna og reikning-
ana, og tóku þessir til máls:
E.yjólfur Jónsson, Grétar Norð-
fjörð, Sigurður Guðmundsson,
Ögmundur Stephensen, Halldór
Sigurðsson o. fl.
Meðal tillagna sem sam-
þykktar voru, var að gefið
skyldi út á næsta starfsári fé-
lagsblað.
I stjórn voru kjörin:
Óskar Pétursson formaður,
Halldór Sigurðsson,
Magnús V. Pétursson,
Haraldur Snorrason,
Guðjón Oddsson,
Helga Emilsdóttir,
Jón Pétursson.
Til vara: Börge Jönsson og
Ki’istvin Kristvinsson.
Bjarni Bjarnason sem átt
hefur sæti í stjórninni undan-
farin ár baðst eindregið und-
an því að vera í kjöri að þessu
sinni.
venna
Nýft némskeið í Jiu gitsu
\ó
í dag, fimmtudaginn 7. þ. m., I bezta sjálfsvarnaraðferð, sem
Aðalfundur Knattspyrnufé-
lagsins Þróttar var haldinn 22.
nóv. sl. Var fundurinn fjölsótt-
ur. Fundarstjóri var Kristvin
Kristvinsson. Form. félagsins
Óskar Pétursson flutti ýtar-
lega skýrslu um starfsemina á
árinu. Á þessu ári varð Þrótt-
ur 10 ára. I tilefni þess kom
hingað í heimsókn í boði Þrótt-
ar, danskt unglingalið. Þá fór
fram afmælisleikur við Akurnes
inga. Plraðkenpnismót í knatt-
spyrnu og handknattleik -fór
fram að Hálogalandi. Hinsveg-
ar fórst fyrir heimsókn úrvals-
liðs knattspyrnumanna frá
Leipzig. 1 tilefni afmælisins
var einnig efnt til veglegs
hófs hinn 14. nóv. sl. í Fram-
sóknarhúsinu og út kom mynd-
arlegt afmælisrit.
Á árinu tók Þróttur þátt í
öllum knattspyrnumótum sum-
arsins, að undanskildum nokkr-
um unglingamótum í B-liði. Að-
aðþjálfari félagsins var Hall-
dór Halldórsson og keppti hann
einnig með í meistaraflokki
þess.
Á árinu starfaði I fyrsta sinn
unglingaráð innan félagsins, en
samþykkt um það var gerð á
aðalfundinum 1958. Formaður
ráðsins var Halldór Sigurðsson,
en það er skipað fimm mönn-
um, starfaði ráðið ágætlega.
Fór með 4. og 5. fl. í ýmis ferða
lög og keppnisferðir m.a. til
Keflav'íkur, að Úlfliótsvatni,
upp að Jaðri og víðar, auk
þess sem haldnir voru 25
skemmtí og fræðslufundir. Með
III. og II. fl. voru einnig haldn-
ir allmargir fundir og farið í
keppnisferðalög, m.a. til Vest-
mannaeyja, a.uk þess var keupt
við II. fl. frá Akranesi hér í
Reykjavik.
Á árinu var einn af leik-
mönnum Þróttar, Þórður Ás-
geirsson, valinn í B-landsliðið
í knattspyrnu.
Eins og undanfarið var hand-
knattleikurinn \ miklum met-
um innan félagsins. Formaður
handknattleiksdeildarinnar var
Magnús Pétursson. Félagið tók
þátt í öllum innanhússmótum á
kepnnistímabilinu, bæði karla
og kvenna.
Þá gat formaður hinna miklu
sundafreka Eyjólfs Jónssonar,
en eins og áður hefur verið get-
ið var Evjólfur sæmdur sér-
stöku lieiðursmerki í afmælis-
Hastingsmótið
Alþjóðlega skákmótinu í Hast-
ings lauk í fyrrad. Efstir og jafn-
ir urðu Spánverjinn Pomar og
Júgóslavinn Gligoric. Fengu þeir
báðir 4 vinninga.
Þriðji varð sovézki stórmeist-
arinn Averbach með 3]/2 vinn-
ing, og síðan austurþýzki skák-
maðurinn Uhlmann með 3 vinn-
inga.
Fyrir stuttu síðan hefur Hand-
knattleikssamband íslands val-
ið hóp kvenna sem á að hefja
reglubundnar æfingar undir
Norðurlandameistaramótið í
surnar. Eru þær samtals 21 sem
að þessu sinni eru valdar, en á
því getur orðið breyting þannig
að ef á tímabilinu koma fram
konur sem nú góðum árangri
verða þær teknar í æfingarnar,
og aðrar sem ekki hafa sýnt
nægar framfarir þá látnar víkja.
Endanlega verður sjálft lands-
liðið ekki valið fyrr en nokkru
fyrir mótið. Eins og áður hefur
verið frá sagt fer það frarn í
Vesterás í Svíþjóð, síðast í
júní.
Þjálfarar að þessu sinni verða
Pétur Bjarnason sem kunnur er
fyrir þjálfun á flokkum Víkings
undanfarið, og er mikils af hon-
um að vænta í þessu starfi.
Hlutverk hans verður fyrst og
fremst það tæknilega og skipu-
lagslega. Benedikt Jakobsson
annast aftur á móti þjálfunaræf-
ingar og úthaldsæfingar, og
verður lögð mikil áherzla á það,
enda mun reyna á það þegar
til mótsins kemur, en það fer
fram heitasta tímann ef að
vanda lætur.
í nefndinni sem sér um undir-
búninginn og niðurröðun eru
þeir Valgeir Ársælsson, Axel
Sigurðsson og Pétur Bjarnason.
Ilandknattleiksstúlkurnar hafa
sýnt það á undanförnum árum
að þær hafa staðið sig mjög vel
í Norðurlandamótunum og þeim
vex stöðugt reynsla því tölu-
verður hluti liðsins hefur haldið
saman alllengi. Þær hafa líka
sýnt það að þær taka æfingar
sínar mjög alvarlega.
Þessar stúlkur hafa verið
valdar:
Rut Guðmundsdóttir Ármanni
Sigríður Lúthersdóttir, Árm.
Sigríður Kjartansd. Ármanni
Jóna Bárðardóttir, Ármanni
Kristín Jóhannsd. Ármanni
Ólína Jónsdóttir Fram
Ingibjörg Hauksdóttir Fram
Erla Isaksen KR
Gerða Jónsdóttir KR
Guðlaug Kristinsdóttir KR
María Guðmundsdóttir KR
Perla Guðmundsdóttir KR
Inga Magnúsdóttir KR
Sigríður Sigurðardóttir Val
Krist.ín Nielsdóttir Val
Bergljót Hermannsdóttir Val
Katrín Hermannsdóttir Val
Rannveig Laxdal Víking
Rannveig' Pétursdóttir Víking
Brynhildur Pálsdóttir Víking
Katrín Gústafsdóttir Þrótti.
hefst nýtt námskeið í Jiu jitsu,
á vegum \ Glímufélag'sins Ár-
mann. Verða æfingar einu sinni
í viku í leikfimisal Miðbæjar-
barnaskólans, á fimmtudögum
kl. 9.30' e. h.
Á námskeiði þessu verða
kennd ýmis auðlærð en all-
áhrifamikil sjálfsvarnarbrögð.
Það getur hent hvern sem er að
verða fyrir árás ofbeldismanns,
eins' og mörg dæmi sanna, og er
enginn vafi á þvi, að Jiu jitsu er
upp hefur verið fundin. Einkan-
lega er það gott fyrir þá, sem
ekki geta treyst likamlegum yf-
irburðum, að hafa nokkra þekk-
ingu á Jiu jitsu.
Á þegsu námskeiði verður
kennt bragðakerfi, sem er sam-
sett af reyndasta Jiu-jitsu-kenn-
ara á Norðurlöndum, Ole Kring-
elbach, Kaupmannahöfn.
Kennari verður Sigurður H.
Jóhannsson.
Símanímerið er 33 - 222
Af marggefnu tilefni vil ég geta þess að
símanúmer mitt er
33 ~ 222
HERMAHN RAGNARS, danskennari
Hinn 31. desember, 1959, hætti ég rekstri Hótel
Borgar, sem ég hefi nú rekið um 30 ára skeið, en
við starfrækslu hótelsins hefur nú tekið hlutafélag-
ið Hótel Borg. Um leið og ég þakka hinum mörgtt
starfsmönnum mínum fyrr og síðar gott og ánægju-
legt samstarf, vil ég einnig þakka viðskiptamönnum
mínum ánægjuleg samskipti á undanförnum árum
og óska þess, að þeir ’hinir nýju aðilar, sem við
rekstri hótelsins hafa’ nú tekið, fái að njóta hinnar
sömu vinsemdar og viðskipta, sem ég hefi notið.
Reykjavík, 2. jan. 1960.
Jóhannes Jóscfsson,
* 7
Samkvæmt framanrituðu hefur hlutafélagið Hótel
Borg tekið við öllum rekstri hótelsins frá og með 1.
jan. 1960. Framkvæmdastjóri hótelsins hefur veriT
ráðinn Hr. Pétur Daníelsson hótelstjóri. Það er ósk
og von félagsstjórnarinnar og hins nýja fram-
kvæmdastjóra félagsins, að liótelið megi njóta þeirra
vinsælda, sem það hefur notið frá fyrstu tíð undir
traustri stjórn hinna dugmiklu stofnenda þess.
Hótel Borg h.f. óskar öllum viðskiptavinum simmr
góðs! og gleðilegs árs og býður þá alla hjartanlega
velkomna til viðskiptanna á nýja árinu.
Búið á Borg. — Borðið á Boi’g.
Reykjavík, 2. jan. 1960.
Hótel Borg h.f.
Aroii Giiðbrandsson, 1:
Jón J. Fannberg,
Ragnar Guðlaugsson, !
Pétur Daníelsson. |