Þjóðviljinn - 07.01.1960, Blaðsíða 12
Talið er að um íkveikju hafi
verið að ræða að Laugavegi 1
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar eru nú
taldar miklar líkur á því, að
foruninn á Laugavegi 1 á gaml-
árskvöld og nýársnótt hafi
stafað af 'íkveikju. Komið hef-
ur 1 ljós, að brotizt hefur ver-
>ð inn í húsið, og hefur lík-
lega verið farið inn um hurð
á kjallara, en þaðan er hægt
að komast inn í húsakynni
Nýja bókbandsins í gegn um
miðstöðvarherbergi. t skrifstofu
Nýja bókbandsins höfðu skúff-
ur verið teknar úr skrifborði
og lágu þær eins og hráviði
um gólfið. Þá hefur verið gerð
tilraun til þess að brjóta upp
forstofuhurð Nýja bókbands-
ins og hefur það verið gert
innanfrá.
Það, sem bendir til, að um
íkveikju hafi verið að ræða,
er, að eldur var mestur á þrem
stöðum í húsinu, og virðist
helzt, sem kviknað hafi í á
öllum stöðunum nálega sam-
t’ímis. .
Skiptimyntar-
þjófar á ferð
S fyrrinótt voru framin tvö
innbrot hér í bænum. Brot-
izt var inn í veitingastofuna,
Adlon á Laugavegi 126 og var
stolið þaðan peningakassa með
um 1000 krónum. Þá var einn-
ig brotizt inn hjá Bifreiða-
stöð íslands. Þar var stolið um
3—4 þúsund krónum í pening-
um og auk þess sælgæti og
tóbaki. — Á báðum stöðun-
um var mest af peningunum
skiptimynt.
Talið er nú sannað, að af
neðri hæð hússins hafi eld-
urinn komizt upp í húsakynni
Prentmynda meðfram niður-
failsröri, er liggur í gegn um
steingólfið á milli hæðanna
og hafi hann leynzt þar, þeg-
ar talið var, að búið værj að
slökkva í fyrra skiptið.
Riddari í
Austurstrϒi
Um kl. 1 í gærdag renndi
gljásvartur Fólksvagn að
horni Útvegsbankans í Aust-
urstræti.
Út úr bifreiðinni steig al-
brynjaður riddari, vopnaður
löngu spjóti. Hér var á ferð
einn félagi úr U.M.F. Aftur-
eldingu í Mosfellssveit, ásamt
tveim félögum öðrum og voru
þeir komnir til bæjarins í
þeim tilgangi að selja miða á
álfabrennu þá er fram fór á
íþróttavelli Aftureldingar i
gærkvöld.
í viðtali við riddarann
kvaðst hann vera óvanur að
bera búning sem þennan, en
að stíga á hestbak, því
væri hann vanur og það
myndi hann gera þá um
kvöldið, ásamt fleiri riddur-
um.
,,Þó Fólksvagninn sé góður,
þá er tilbreyting að stiga á
hestbak“, sagði riddarinn.
Vér spurðum hvort þetta
væri í auglýsingaskyni gert.
„Ekki eingöngu“, var svar-
ið. „þetta er einnig þjónusta
.við fólkið, til að forðast
þrengsli og biðraðir, því við
búumst við fjölmenni uppeft-
ir“.
Félagslíf stendur, með mikl-
um blóma í Aftureldingu um
þessar mundir og er þessi
þrettándahátíð félagsins til
fyrirmyndar, enda var miklu
til kostað og unnu félagar vel
að því að gera hana sem há-
tíðlegasta og skemmtilegasta.
Nánar verður sagt frá þessu
í blaðinu á morgun. — r.
Myndin var tekin í gærdag
utanvið Útvegsbankann. —
Ljósm. Sig Guðm.
þlÓÐVIUINN
Fimmtudagur 7 janúar 1960 — 25. árgangur — 4. tölublað
Fasistar svivirða minnis-
merki Roosevelts í Oslo
Hatursheríerðin gegn gyðingum heldur áíram
í Vestur-Þýzkalandi og víðar um heim
Hakakrossfaraldurinn í Vestur-Þýzkalandi magnast
enn. í gær var meira um svíviröingar í garö gyðinga og
uppivöðslu nazista en nokkru sinni áður, síðan gyð-
ingahatarar hófu ódæðisverk sín þar í landi um jólin.
Faraldurinn heldur áfram að breiðast út um önnur
lönd.
í gær voru óhæfuverkin gegn
gyðingum í Vestur-Þýzkalandi
orðin svo mörg, að þau verða
ekki talin lengur. Nazistar héldu
áfram hatursherferð sinni um
allt landið og í Vestur-Berlín.
Sami ófögnuðurinn heldur
áfram víða um heim. í gær bár-
ust t.d. fregnir um gyðingaof-
sóknir og nazistaupphrópanir í
Brússel, Mexíkó og í Saloniki í
Grikklandi. í fyrrinótt var eitt-
hvert ógeðslegasta verkið af
þessu tagi unnið í Osló. Þar
voru orðin „Gyðinga-verzlunar-
þraskarinn í Potstam" máluð á
styttu Franklins Roosevelts
Bandarikj aforseta.
Nazistar verða að hverfa
Gyðingahatrið er aðalefni
blaða um allan heim. Brezka
blaðið Guardian segir að aðal-
hættan stafi ekki af fávísum
unglingum með málningadollur.
Hættulegastir séu hinir harð-
sviruðu nazistar, sem enn séu
í valdamiklum stöðum í Vestur-
Þýzkalandi. Eina ráðið til þess
að fá rotturnar til að skríða aft-
ur inn í holur sinar væri að
reka alla nazistaforingja úr hin-
um háu embættum.
Néw Chronicle segir að það
sé skylda vesturþýzku stjórnar-
innar að þæta fyrir þá van-
rækslu sem hún hefur sýnt í því
að kenna skólaæskunni sann-
leikann um Hitler og ódæðis-
verk nazista.
Sami tónninn er í flest öllum
stórblöðum heims. Þau krefj.ast
þess, að stjórnarvöldin í Vestur-
Framhald á 10. síðu.
Breyttur lokunar-
tími sölubúða
Um næstu helgi breytist
lokunartími sölubúða hér í
Reykjavík. Verða þá söluþúð-
ir opnar til klukkan 7 á föstu-
dögum en lokað kl. 13 (kl. 1)
á laugardögum.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinm
= Þannig liafa fasistar á =
E Spáni komið gyðingaha*iri =
E sínu á framfæri. Þeir liafa =
= klínt hakakrossi á kvik- E
E myndaauglýsingu kvik- E
E myndarinnar „Dagbók E
E Önnu Frank“ í Barcelona. E
E Það er bandarísk kvik- E
E mynd sem hér er um að E
E ræða og leikur Millie E
E Perkins aðallilutverkið. E