Þjóðviljinn - 07.01.1960, Blaðsíða 11
iFimmtudagur 7. janúar 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (13.
H. E. BATES:
■ !!■■■———r— ii rnn——b
RALÐA
SLÉTTAN
Þegar þeir voru búnir að leggja Carrington frá sér þar
sem skugginn var þéttastur, sá Forrester sér til undr-
unar að Blore hafði einnig haft pokann með sér- Forrester
lét fallast niður á jörðina, hálförmagna, beygði höfuðið
niður yfir hnén og svitinn rann af því eins og dropar úr
þakrennu og hann sá útundan sér hvernig Blore opnaði
pokann og lagði innihaldið á sandinn. Og svo tók hann
hendurnar upp úr pokanum. Og hann bandaði þeim í átt-
ina til sólarinnar. Ilann tók af sér hjálminn, Andartaki
síðar var Forrester sjálfur kominn með hjálminn á höf-
uðið, Blore hafði troðið honum á höfuð hans með næst-
um skipandi látbragði.
Hann reikaði aftur út í sólskinið. Undan hjálminum
sýndist honum reykmökkurinn og dótið sem Blore hafði
skilið eftir, vera mjög langt í burtu. Birtan og þreytan
virtust eyðileggja fjarlægðarskyn hans. Sem snöggvast
íannst honum sem framundan væri ekki þröngi dalurinn
milli lágra ása og kjarrgróðurs, heldur sléttan öll, glamp-
andi í síðdegishitanum, jöðruð rauðri móðu fjallanna.
Eftir andartak áttaði hann sig betur. Á göngunni þurrk-
aði hann svitann úr augum sér. Hendur hans voru ryk-
ugar og rykið breyttist samstundis í þunna leðju, sem
þornaði á augabragði á andliti hans og blotnaði síðan aft-
ur þegar hann svitnaði á ný. Þegar hann var búinn að
endurtaka þetta nokkrum sinnum, vissi hann að það var
til einskis og leyfði svitanum að renna og streyma eins og
verkast vildi. Og þá var hann líka búinn að fá yfirsýn yfir
dalinn. Ilann var svo sem hundrað og fimmtíu metrar '
á breidd. Flugvélin hafði rekizt á í skógarjaðrinum og það
hafði kviknað í fáeinum skrælnuðum trjám. Þau brunnu
með hreinum loga og vörpuðu gullnum bjarma á skuggana
undir trjánum. Og hann fann hitann frá eldinum leika um
sig eins og hann stæði hjá bræðsluofni og svart sót og
neistaflug lék um andlit hans eins og heitt, þurrt regn.
Hann komst að föggum Blores og fór að tína þær saman.e^
Hann spennti byssubeltið um mittið á sér. Handtaskan
hafði orðið eftir í vélinni. Nú var ekki annað eftir en
gasgríman og vatnsflaskan- Hann hristi flöskuna nokkrum
sinnum og gizkaði á að hún væri axlafull. Hann tók upp
gasgrímuna. Hylkið hafði opnazt. Honum til undrunar var
engin gríma í því heldur hrúga af alls konar smádóti:
skæri, vasaklútar, naglaþjöl, hárvatn, aspirínflaska,
fáein bréf. Hann tróð þessu aftur inn í hylkið í flýti,
lokaði því og axlaði það.
Á leiðinni til baka fann hann til skynailegs ótta. í ofsa-
birtunni kom hann hvorki auga á Carrington né Blore.
Það var eins og þeir hefðu horfið, gufað upp. Hann leit
allt í kringum sig og honum fannst hann vera einn í
þessum örfoka dal. Sár einmanakend lagðist að honum
eins og mara. Hann langaði mest til að taka á rás. En
uppúr þessari skelfingu sá hann höfuðið á Blore. Hann var
alveg nauðasköllóttur og höfuðið virtist hanga í lausu
lofti í fimmtíu metra fjarlægð. Það bar við grágrænan
frumskóginn eins og feitur, fullþroska ávöxtur á tré.
Þegar hann kom til þeirra andartaki síðar, var hann bú-
inn að gleyma skelfingunni, einmanakenndinni og níst-
andi birtunni. Blore var kominn úr jakkanum og hafði
Elsku bróðir okkar
UNNSTEINN LÁRUSSON
er andaðist 1. janúar að heimili systur sinnar, Miklu-
braut 50, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
föstudaginn 8. þ.m. kl. 10.30 fyrir hádegi.
Athöfninni verður útvarpað.
Fyrir hönd okkar systkinanna
Ásta) Lárusdóttir.
gert úr honum kodda handa Carrington. Pilturinn lá graf-
kyrr með lokuð augu. Forrester tók af sér axlartöskuna,
byssubeltið og vatnsflöskuna og fór síðan úr skyrtunni.
Hún var rennvot af svita og hann fleygði henni hirðuleys-
islega frá sér.
„Brjóttu hana saman,“ sagði Blore. „Þú þarft að nota
hana seinna.“
Eins og vélrænt tók hann uppp skyrtuna, braut hana
saman með hægð, of undrandi til að koma upp orði-
„Maður verður að hafa hugsun á öllu,“ sagði Blore.
Hann kinkaði kolli.
„Þetta var stórkosfleg lending hjá þér,“ sagði Blore.
Forrester varð undrandi. Hann hafði engar hugmynd-
ir gert sér um lendinguna, vissi varla hvernig hann
hafði framkvæmt hana.
„Hvernig líður Carrington?" sagði hann.
„Við verðum að reyna að ná honum úr sokkunum,“
sagði Blore. „Fáðu mér töskuna. Það eiga að vera í henni
skæri.“
Forrester var að því kominn að opna gasgrímuhylkið
og taka upp skærin, þegar Blore náði sjálfur í töskuna
og fór að rótá í henni. „Nokkrar asoir’'ntöI]ur ættu ekki
að saka hann. Fjórar töflur. Ég hef mík1" tr.i á aspiríni.
Það ættu að vera þarna tvær flöskur. Komdu með vatnið.“
Hann laut yfir Carrington sem opnaði au«”n.
„Allt í lagi. Vertu ekki hræddur. Bara dál'.tið aspirín.
Geturðu sezt upp?“
„Ég skal halda honum uppi,“ sagði Forrester.
Hann hélt utanum Carrington með hægri handleggn-
um. Blore tók við vatnsflöskunni og tók tapnann úr
henni og Carrington vætti varirnar- „Jæja,“ sagði Blore.
„Kyngdu nú.“ Hann fékk piltinum fjórar aspiríntöflur
og hann bar þær veiklulega upp að muninum og saug
þær upp ,í sig. „Kyngdu eins og þú getur,“ sagði Blore.
„Hér er vatnið.“
Töflurnar molnuðu eins og kalk uppi í piltinum og
vatnið skolaði þeim til. Hann tók á öllu sem hann átti til
og kyngdi og brosti dauflega um leið. „Vertu rólegur,"
sagði Blore. „Liggðu bara kyrr.“
Forrester lét Carrington síga hægt niður á koddann sem
Blore hafði gert honum úr jakkanum.
Nazistadraugur
Framhald af 4. síðu.
Fólk í öllum löndum hrekkur
upp við það að mannhaturs-
stefna nazismans er enn lifandi
og í hávegum höfð í Vestur-
Þýzkalandi, •—- og það er tekið
undir í flestum löndum Vestur-
Evrópu. Það vekur ekki hvað
sízt athygli, að það er ungt
fólk sem framkvæmir óhæfu-
verkin. Kynslóð Hitlers-nazism-
ans er enn ekki liðin undir lok
og henni hefur ekki aðeins
mistekizt uppeldi æskulýðsins
heldur hafa hinir gömlu hern-
aðarsinnar laumað sínum á-
róðri til æskunnar með sýnileg-
um árangri.
Gegn s'íkum ófögnuði hlýtur
sérhver frjá'sborinn og heil-
brigður æskumaður að snúast.
Kvikmyndin Unternelimen Teu-
tonenschwert er góð hugvekja
og ábend’ng um það, að meðan
morðing.jarnir eru enn á meðal
okkar, getum við aldrei verið
örugg fyrir mannhatri þeirra.
Heimilisdag-
békin
íæst í næstu
bókabúð.
Útgeíandi.
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstrætj 18
Trúlofunarhringir, Stein-
hringir, Ilálsmen, 14 og
18 kt. gull.
liggja til okkar
BlLASALAN
Klapparstig 37
Simi 1-90-32
SanmavéSa-
viðgerðir
Fljót afgreiðsla
SYLGJA, Laufásvegi 19.
Sími 1-26-56.
Heimasími 33-988
Rósir allt árið
Mynstruö kjólaefni eru
aijög í tízku, ekki aöeins
á sumrin, heldur allt áriö um kring. Kjóllinn á mynd-
inni er einn þeirra sem hentar á öllum tímum árs. Efniö
er bómullarefni meö satínvend sem krypplast ekki, grænt
cg brúnt mynstur á hvítum gmnni.
Allar tegundir trygginga.
Höfum hús og íbúðir til
sölu viðsvegar um bæirn.
Höfum kaupendur að
íbúðum.