Þjóðviljinn - 07.01.1960, Blaðsíða 10
10) —- ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 7. janúar 1960
Fasistar svívirða minnismerki |
Framh. af 12. síðu
Bæjarpósturinn
Framhald af 4. síðu.
• Hjálpsamur lögreglu-
þjónn
Oft heyrist um það tal-
að, að götulögregluþjónarnir
okkar séu margir hverjir lítt
starfi sínu vaxnir, séu t.d.
fremur óliðlegir um fyrir-
greiðslu við menn í umferð-
inni o.s.frv. Vafalaust eru
sl'íkir lögregluþjónar til, en
sem betur fer eru margir
þeirra líka mjög hjálpsamir
við vegfarendur, enda er það
náttúrlega skylda þeirra. Sem
dæmi s'kal ég nefna það, að á
nýársnótt var ég staddur á
fjölförnum gatnamótum á-
samt öðrum manni og ætluð-
um við að reyna að ná í leigu-
bíl. Þetta var rétt eftir mið-
nættið, einmitt þegar umferð-
in var hvað mest. Um götuna
var tvöföld umferð bifreiða
og stóð lögregluþjónn á miðri
götu og stjórnað; umferðinni.
Um leið og við fórum yfir
götuna spurðum við lögreglu-
þjóninn, hvort ekki mundi
vera hægt að ná þarna í laus-
an bíl. Sagði hann að það
væri áreiðanlega hægt. Við
biðum síðan öðrum megin göt-
unnar góða stund og ekki kom
meinn laus bíll þeim megin í
umferðinni. Allt ’í einu stöðvar
lögregluþjónninn umferðina
og bendir okkur að koma til
sín. Hafði hann þá stöðvað
lausan bíl hinum megin á göt-
unnj og skildi ekki við okkur
fyrr en við vorum komnir
inn í hann, þá gaf hann aft-
ur merki um að umferðin
mætti halda áfram. Af þessu
varð ekkj nema andartaks töf
á umferðinni, en við okkur
var þetta mikill greiði. Svona
eiga lögreglumenn að vera.
Erlsnd tíðÍEii;
Framhald af 6. síðu
Hvar sem bollalagt er um at-
burði nýbyrjaðs árs er það
efst á b’aði, hvort líkur séu
á að fyrsti maðurinn eða
mennirnir hafi ferðazt út í
geiminn áður en 1960 er á
enda.
/>hugnanlegir atburðir sem
” eiga upptök sín í Vestur-
Þýzkalandi hafa varpað
skugga á sjálf áramótin. Á
jólanótt voru fram’n helgi-
spjöll á samkunduhúsi gyð-
inga í Köln, og síðan hafa
óhæfuverk af sama tagi
breiðst eins og faraldur út
um vesturhluta Evrópu. I
skjó’i náttmyrkurs eru haka-
krossar, nazistisk vígorð og
hryllilegar bölbæn’r máluð á
guðshús og íbúðarhús þeirra
gyðinga sem sluppu við gas-
klefana og fjöldagrafirnar
sem Hitlers-Þýzkaland bjó
mi'ljcnum af kynstofni þeirra.
Geigvænlegast við þetta er að
ungir V.-Þjóðverjar vinna
flest ódæðin. Þar í landi hef-
ur vaxið upp kynslóð sem er
sýkt af nýnazisma og kyn-
þáttahatri. Þjóð'r Evrópu
vita hvað til þeirra friðar
heyrir.
M. T. Ö.
13 manns dóu
vegna hita
13 manns hafa látið lífið af
völdum gífurlegra hita, sem nú
geisa í Suður-Ástralíu. Óvenju-
lega mikil hitabyigja hefur
gengið yfir á þessum slóðum
síðan um jól. Hefur hitinn kom-
ist upp í 49 gráður á celsíus.
Fagnaðarlæti
í Irak í gær
í gær voru mikil hátíðahöld
í Bagdad og annarstaðar í
írak. Voru landsbúar að fagna
afnámi banns við starfsemi
stjórnmálaffokka. Þetta bann
hefur g:lt síðan árið 1954.
I öðru lagi var verið að fagna
afmælisdegi þjóðhers landsins,
sem haldinn er hátiðlegur ár
hvert.
Fiskiðjuverið
Framh. af 1. síðu
fiskframleiðslunni allri. Sé
reiknað með hliðstæðum ágóða í
öðrum frystihúsum — og stjórn-
arliðið þreytist ekki á því að
haltla því fram að rekstur einka-
aðila sé mun betri en opinberra
— bendir þetta til þess að heild-
argróðinn af rekstri frystihús-
anna hafi það ár numið um
eða yfir 200 millj. króna. Þetta
eru atriði sem Einar ríki og aðr-
ir slíkir vilja umfram allt fela,
og nú á að fela þau vendilega
með innlimun Fiskiðjuversins í
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
Þvzkalandi taki málið föstum
tökum.
Stjórnin neydd til aðgerða
Vesturþýzka stjórnin hefur
undanfarið sætt geysiharðri og
vaxandi gagnrýni fyrir aðgerð-
arleysi varðandi hatursherferð
nazista og gyðingahatara. í gær
kom stjórnin loks saman til að
ræða málið. Var þar samþykkt
að hraða afgreiðslu lagafrum-
varps um viðurlög við því að
aesa fólk til andúðar gegn kyn-
þáttum eða trúarflokkum. Sam-
kvæmt frumvarpinu á slíkt at-
hæfi að varða minnst þriggja
mánaða fangelsi og sektum að
auki.
Hér er þó ekki um að ræða
frumvarp sem fram sé komið
fyrir frumkvæði stjórnarinnar.
Frumvarp þetta var lagt fyrir
Sambandsþingið í Bonn fyrir
nær einu ári, eftir að grafreitir
gyðinga höfðu verið vanhelgaðir
á nokkrum stöðum í Vestur-
Þýzkalandi í ársbyrjun í fyrra.
Kristilegi demókrataflokkurinn
sá þá fyrir því að málið var
svæft og fékkst það ekki af-
greitt á þinginu.
Miðstjórn Sósíaldemókratáa-
•flokksins í V.-Þýzkalandi sam«-
þykkti í gær yfirlýsingu þarr
sem segir að ekki nægi lög-
regluaðgerðir einar til að refsái
ofsækjendum gyðinga og nazist-
um í landinu. Það sé staðreyndj.
að í þýzkum skólum sé ekki:
minnst á fjöldamorð Þjóðverja:
á gyðingum.
Alþjóða-kirkjuráðið. sem he'f--
ur 170 mótmælenda- og grísk-
kaþólskar kirkjur í 50 löndumi
innan sinna vébanda, hefur,
krafizt tafarlausra aðgerða gegtíi
gyðingahöturunum.
Fálkaorðuiiddaiar
Framhald af 3. síðu.
i'iddarakross, fyrir störf í þáglí
íþróttamála. Kristján Krisfc-
jánsson, borgarfógeta, Reykja-
vík, riddarakross, fyrir emb-
ættisstörf. Kristján Jólianm
Kristjánsson, forstj., Reykja-
vík, fyrrv. formann Félags ís-
lenzkra iðnrekenda, riddara-
kross, fyrir störf í þágu ís-
lenzks iðnreksturs. Þorstein
Jónsson, kaupfélagsstj., Reyð-
arfirði, riddarakross, fyrir fé-
lagsmálastörf.
Ný sending
peysur ull og mohair
Hattabúð Reykjavíkur
Laugaveg 10.
......................................................................... ...............mmmmii.......mimmmmimi
PDRÆTTI
1960
Vinningum fjölgar
stórlega
Heildarf járhæð vinninga
nær tvöfölduð
Áður 5000 vinningar
Nú 12000 vinningar
Áður kr. 7.800.000,00 í vinninga
Nú kr. 14.040.000,00
Tala útgefinna miða sú sama og áður.
Síðustu forvöð að kaupa miða
Dregið á mánudag
Umboðsmenn í Reykjavík og Hafnarfirði:
Austurstræti 9, sími 22150. ’
Grettisgata 26, Halldóra Ólafsdóttir, sími 13665.
Verzl. Roði, Laugavegi 74, sími 15455.
Benzínsalan Hlemmtorgi, símj 19632.
Vallargerði 34, Kópavogi, Ól. Jóhannsson.
Strandg. 3, Hafnarfirði, Böðvar Sigurðsson, sími 50515.
Endurnýjunarverð miðans kr. 30,00. Ársmiði kr. 380,00.
mimiiiiimmiimmimiimmiiiimiimimmmimimmiimiimiiiiiiiiiiiiiiimmmmimiiimmmmiiiiiiiiiiimmiiiMiiiiiiiiiimi'iiiimiiimmmmiiiiiiiiiimimimmmmmmmmmmiiimiim