Þjóðviljinn - 26.03.1960, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 26.03.1960, Blaðsíða 3
Laugardagur 26. marz 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Fjórða einvígisskák Botvinniks og Tais Þjóðviljanum hefur nú bor- izt fjórða skáfein í einvígi þeirra Botvinniks og Tals um heimsmeistaratitilinn og fylgja henni stuttur inngangur og skýringar eftir Stáhlberg. Botvinnik, sem lék hvítu að Jiessu sinni, valdi hvasst af- brigði, sem venjulega gefur hvítum sóknartækifæri á kóngsvæng en svörtum á drottningarvæng. Sú varð líka raunin á í þetta skiptið, en eftir fljótfærnislegan leik hjá heimsmeistaranum tókst Tal að skipta upp í endatafl, þar sem hann hafði ekki síðri tækifæri, en nú var fcomið að honum að leika veikt og stað- setja riddarann illa, þannig að Botvinnik fékk yfirhöndina. Botvinnik var nú kominn í mikla tímaþröng og lék fram- haldið ekki sem bezt, svo a?S Tal gafst tækifæri á að bæta svörtu stöðuna. Reyndi Tal að hagnýta sér t'ímaþröng Bot- vinniks og lék mjög hratt, en Botvinnik tókst að finna leið, er leiddi til jafnteflis. Hv'»tt: Botvinnik Svart: Tal Niemzo-indversk vörn 1. d4 Ef6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. a3 Svokallað Sámisch-afbrigði, sem er eitt skarpasta svarið gegn vörn svarts. 4. -----Bxc3f 5. bxc3 O—O 6. f3 d5 7. cxd5 exd5 8. e3 Bf5 Svartur reynir að koma í veg fyrir að hvítur leiki e3—e4. 9. Re2 Rb-d7 10. Rg3 Bg6 11. Bd3 Botvinnik lætur biskupaparið en leikur í stað þess með hraða liðsskipan fyrir augum. 11. — — c5 12. 0—0 He8 13. Hel Dc7 14. Bxg6 lixg6 15. e4 ■pijótfærnislegur leikur, er auð- veldar svörtum uppskipti. Hvít- ur hefði í stað hans átt að leika 17. e4 Rh7 18. f4, sem gefur góð tækifæri 15. — — cxd4 16. cxd4 Ha-c8 17. B.g5 Svartur skiptir nú yfir í enda- tafl, þar sem hann hefur sízt lakari færi. 17. ---- Dc2 18. Bxf6 Dxdl 19. Helxdl Rxf6 Fyrirframgreiðla liefet 1. maí Fjármálaráðuneytið tilkynnti i gær, að það hefði ákveðið að fajla frá fyrirframgreiðslu í apríl upp I skatta og önnur þinggjöld ársins 1960. Segir ráðuneytið að þetta sé gert vegna væntanlegra breytinga á tekjuskattsgreiðslum. Fyrir- fraroinnheimtan hefst 1. maí, segir ráðune\-tið. 20. e5 Rh5 Tal, sem stendur Botvinnik ekki ennþá á sporði í endataflstækni, leikur nú sóknarleik, sem reyn- ist miður góður, því á h5 er riddarinn illa staðsettur. Betra var sýnilega að leika 20. — Rd7. 21. Re2 22. Kfl 23. Hdl-cl 24. g3 Hc2 gó He8-c8 f6 Eftir mistökin í 20. leik teflir Tal mjög sterkt og tekst að treysta stöðu sína. 25. Hxc2 Hxc2 26. Hbl Hvítur reynir nú að vinna lið, en Tal finnur góða vörn. 26. b6 27. Hb5 fxe5 28. dxe5 Hc8 ar leikur, sem spil. veitir 29. Rd4 Kf7 30. Ke2 ft6 31. Kd3 Rg7 32. Hbl Ha5 „Snorri Sturluson“ framan við farþegaafgreiðslu Loftleiða á Reykjavíkurflugvelli. Strax og flug- vélin hafði lent var a‘thugun gerð á eintim lireyflanna. (Ljósm. Si.g. Guðm.). Loftleiúa ~ flugvélarnar geta ílutt 400 farþega samtímis Nýjasta vélin, Snorri, Sturluson, kom í gærmorgun Laust eftir klukkan hálf ellefu í gærmorgun sveif Snorri Sturluson, hin nýja flugvél Loftleiða, úr vesturátt inn yfir bæinn og lenti í fyrsta sinni á Reykjavíkurflug- velli. Botvinnik er nú í mikilli tíma- þröng og Tal hótar að taka frumkvæðið 33. Rc2 Re6 34. Hb4 Þrátt fyrir timaþröngina finn- ur Botvinnik bezta leikinn og leiðina til jafnteflis. 34. Hc5 35. h4 gxh4 36. Hxh4 d4 Síðasta tilraun Tals að notfæra sér tímahrak heimsmeistarans. 37. Rxd4 Hxe5 38. Rxe6 Botvinnik velur þá leið, sem liggur til jafnteflis. 38. ------------ Kxe6 39. a4 Hg5 40. He4f Kf6 Nú var tímaþrcnginni lokið og Botvinnik bauð jafntefli, sem Tal þáði þegar. Förin austur yfir hafið hafði gengið mjög vel; Snorri var lentur á flugvellinum 8 klukku- stundum og 55 mínútum eftir brottför frá New York. Flugstjóri í þessari fyrstu ferð var Jóhannes Magnússon, en farþegar fáir; nokkrir flugliðar Loftleiða sem verið höíðu við þjálfun í meðferð Cloudmaster- flugvéla vestra. Farkosturinn reyndur Siðdégis í gær buðu Loftleiðir alimörgum gestum í flugferð með Snorra Sturlusyni, þ.á.m. blaðamönnum. Var flogið í til- tölulega lítilli hæð inn yfir iand- ið og austur á bóginn. sneitt rétt hjá Heklu, yfir afréttir Rangæinga, framhjá Tindaíjalla- jökfli, austur fyrir Mýrdalsjökul. Síðaq var stefnan tekin vestur á þóginn til Reykjavíkur og í leið- inni hnitaðir hringir yfir Vest- mannaeyjum. Var þetta hin þægilegasta ferð, og luku menn lofsorði á farkostinn. 400 farþegar samtimis í eigu Loftleiða eru nú fjórar flugvélar, tvær af gerðinni Douglas DC6B (Cloudmaster) og tvær DC4 (Skymaster). Auk þess hefur félagið í förum tvær leigu- flugvélar af Skymaster-gerð. Hinar nýju flugvélar, Snorri og Leifur Eiríksson. geta flutt hvor um sig 80 farþega, en skymasterflugvélarnar gömlu bera 60 farþega, þannig að Loftleiðir hafa nú yfir að ráða flugkosti sem flutt get- ur i einu 400 farþega. Gert er ráð fyrir að Loftleiðir selji í íramtiðinni aðra af eldri vélum sínum og segi upp leigu- samningi annarrar aí leiguvélun- um. Finnlandsferðir hefjast í lok apríl Snorri Sturluson og Leifur Ei- r'ksson, hinar nýju flugvélar Loftleiða, munu koma smám saman inn í flugáætlun félagsins. Sumaráætlun félagsins tekur gildi 1. apríl n.k. og 29. þess mánaðar mun félagið væntan- lega hefja reglubundið áætlunar- flug til Finnlands. Verður flogið um Osló til Helsinki einu sinni í viku hverri. Landhelgisgæzlan hófst fyrir 40 árum með komu Þórs 1. í dag eru liðin 40 ár síðan inn 1929. Þór var 205 tonna fyrsta varðskip íslendinga Þór skip og' g'ekk 8—9 sjómílur. kom hingað tii lands. í tilefni [úHHIHIHIHIIinHllllinilIIHHHHIIIIIl þessa atburðar mun Landhelg- 5 isg'æzlan bjóða í dag nokkrum S mönnum, sem stóðu að kaupum , 2 á skipinu, með Þór III., til 5 Vestmannaeyja, en þangað kom E skipið fyrst. 2 Fjérðusigs á raf- I Áhöfn „Snorra Sturlusonar“ við komuna >:il Reykjavíkur í gær- niorgun. Jóhannes Markússon flugstjóri heklur á blótnvendinum. (Ljósm. Sig. Guðm.) Pétur Sig'urðsson. forstöðu. maður Landhelgisgæzlunnar1 hafði boð inni í gær, fyrir nokkra þeirra sém áttu hlut að máli. og var líkanið þar til sýnis. Sig'urður Jónsson. mótor- smiður hjá Landssmiðjunni gerði líkanið eftir Ijósmynd. Skipstjóri á Þór I., Jóhann P. Jónsson, Karl Einarsson, fyrrv. bæjarfógeti í Vestmannaeyjum. Jóhann Þ. Jósepsson fyrrv. al- þingismaður, Þórarinn Björns- son skipherra og Gunnar Gísla- son. skytta á Óðni voru þarna viðstaddir, en tveir þeir síð- astnefndu voru hásétar á Þór I. Þór I. var upphaflega smíð- aður sem togari, síðan notuðu Danir hann sem hafrannsókna- skip, en hingað kom hann 26. matz 1920. Þór I. strandaði hjá Ytri-éy ‘við Skagaströnd vetur- • lilll I lllllli Þegar geng'slækkunarlögin voru sett gerðu sumir sér í hugarlund að hátollavörur, til dæmis rafmagnstæki, myndu lækka í verði, og vildu ekki trúa þegar þeim var bent á að tolarnir sem stóðu ur.dir bóta- kerfinu yrðu framlengdir jafn- framt gengislækkumnni. Nú eru komin í verzlanir raf- magnstæki með gengislækkun- arverði, cg þar er síður en svo um verð'ækkun að ræða, þati hafa hækkað í verði um fimmt- ung til fjórðung. Rafmagnskatlar sem kostuðu fyrir gengislækkun kr. 371.00 kosta nú til dæmis kr. 464.00. Hækkunin er 93 krónur eða 25%. Brauðristar sem kostuðu kr. 772.00 kosta 943.50, hafa hækk- að i verði um kr. 171.50 eða 22,15%. •

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.