Þjóðviljinn - 26.03.1960, Page 9

Þjóðviljinn - 26.03.1960, Page 9
Rifstjóri: Frimann Helgason Laugardagur 26. marz 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (9 •tT — ÓSKASTUNDIN Skriftarsam- keppnin Anna S. Sigurðárdóttir '13 ára, Andakílsárvirkj- un, Borgarfirði; María Birna Þórarinsdóttir, 12 'ára, Fellskoti. Biskups- tungum; Kristján. Er- lendsson, Kársnesbraut 137, Kópavogi. (Vantar aldur); Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 9 ára, Narfastöðum, Melasveit. Það eru komin alls 40 bréf í samkeppnina. Um skriftina Kristrún í. 9 ára. Skriftin þín er mjög góð, og þú skrifar ágaet- lega með bleki. Gættu þess að halda áfram að skrifa svona stóra og skíra stafi. Hulda Björk, 8 ára. Þú skrifar sérstaklega vel, en gættu þess eins og Kristrún að minnka ekki skriftina. Lilja Guðrún Þér hefur farið mjög vel fram í skrift. Fyrst þegar þú skrifaðir okk- ur, skrifaðir þú alls ekki vel, nú eru æfðir drættir I skriftinni, hallinn mjög góður og hún er svipfal- leg. Þú þarft að æfa suma upphafsstafina t.d. H. Haltu áfram að vanda Skriftina. Jóna Sigríður, 9 ára. Fyrir þinn aldur er Byggingarfélag alþýðu Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn 29. marz kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu við Ilverfisgötu, Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. STJÓRNIN. skriftin gallalaus, þú verður listaskrifari. Fjóla R. 10 ára. Þú skrifar sæmilega, en lykkjan á lengdustöf- unum er of stór. Lítið ð á að vera jafn hátt öðr- um hástöfum. Vigdís H., 8 ára. Skriftin þín er ágæt, sérlega góð hlutföil. Æfðu stóru stafina. Ensk knattspyrnubylting Á síðari árum hefur mikið verið rætt og ritað um enska knattspyrnu, og þá helzt vegna þess að knattspyrnu þar hefur þótt hraka. Er svo komið að því er hald- ið fram af ýmsum í fullri al- vöru, að í loftinu þar liggi bylting í knattspyrnunni. Flest- ir munu þó þeirrar skoðunar, eða vilja ekki trúa því, að breytingar verði gerðar á deildafyrirkomulaginu. En á það er bent að þegar snjókúla er farin að velta, er því ekki að leyna, að hún getur tekið með sér margar breytingar. Hinn kunni Iandsliðsmaður Breta, Billy Wrigth hefur haft forustu fj'rir þeim sem vilja gjörbreyta hinu enska fyrir- komulagi. Eftir að hafa leikið 105 landsleiki á uppgangstím- um enskrar knattspyrnu, kveðst hann vera leiður að sjá knatt- spyrnuna síðustu árin stöðugt vera á niðurleið, og það í sjálfu heimalandi knattspyrnunnar. OBilly Wrigth hefur ákveðnar tillögur fram að færa: 1. Komið verði á stofn einni deild með aðeins 16 liðum, þar sem leiki aðeins bezfcu knattspyrnumenn landsins. 2. Fella niður hámarkslaun leikmanna, og láta hina ungn efnilegu leikmenn koma með í leikina. 3. Ekki verði leikið á hinum slæmu völlum í desember og janúar. Keppnin skal eigi að síður stánda frá ágúst og þar til í maí. Spurningin um breytingar á þjálfunaraðferðum, launa- greiðslum og leikskipulagi héf- ur orðið allherjar vandamál i brezkri knattspyrnu. Siðan. England tapaði fyrir Ungverja- laridi 1953 hefur stjórnin að- eins setið og horft á að þetta er allt niður á við. Blöðin styðja kröfuna ura breytingar. „Tíminn er ein- mitt nú til igjörbreytingar á öllu fyrirkomulaginu," segja þau. Eitthvað verður að gera, því þetta má ekki enda með hneyksli, er ennfremur sagt. Knattspyrnuáhugamenn víðs- vegar um England skrifa bréf til blaðanna 'í þúsundatali, og einnig til stjórna félaganna með áskoranir um breytingar. Það varð Bretum líka mikill þyrnir í augum, þegar Wolver- hamton tapaði 5:2 fj'rir Barce- lona 2. þ.m. í Evrópu-bikar- keppninni, og hinum leiknum töpuðu þeir líka og þá með 4:0. Á þetta minnir Daily Telegraph: „Gleymið ekki því Sem skeði í flóðljósunum á Molineaux." BRÚNN OG BLAKKUR Pósthólfið Handknattleiksmótið iiHiimiimimiiimmiimmmiiiiiimiiiiiiiiimiiiimimiiiimuiiiiiiniimimi Fyrsti leikurinn í kvöld er á' milli Hauka og Fram í 3. fl. og getur hann haft nokkra þýðingu fyrir úrslitin í (B-riðl- 5num. Ef Fram vinnur Hauka ■hafa Víkingar unnið riðilinn, ®n ef Haukar vinna eru Vík- ingar og Haukar jafnir. Hins- Vegar hafa ÍR-ingar unnið A- riðilinn Leikur Vals og KR í þriðja flokki hefur ekki nein áhrif á stöðuna í efstu sætunum. Leikurinn í öðrum flokki karla milli ÍR og Ármanns get- lir orðið úrslitaleikur í riðlin- um og verður það vafalaust skemmtilegur leikur_ Svipað er að segja um leik Fram og Þróttar, sem fer fram á eftir. Þróttur hefur sýnt góða leiki í öðrum flokki og Fram líka. 1 fyrsta flokki ei*u það Fram Dg Þróttur, sem keppa, en leik- lir þeirra hefur ekki þýðingu fyrir efstu sætin í þeim riðli. F.H. hefur tryggt sér að vera í úrslitum við ÍR, sem vann hinn riðilinn. Á morgun verða tveir meist- araflokksleikir og keppa þá Valur og KR. Eftir öllum sól- armerkjum að dæma er líklegt að KR verði ekki í vandræðum að ná sér í bæði stigin. Vals- menn munu þó reyna að gera þeim lífið erfitt og berjast. Hinn leikurinn er á milli ÍR ng Aftureldingar og munu ÍR- ingar hafa fullan hug á að sigra og verða sennilega ekki í vandræðum með það. Liðs- menn Aftureldingar hafa sýnt það að þegar mikið liggur við geta þeir veitt þeim „stóru“ harða mótspyrnu og má minn- ast leiks þeirra við KR á sín- um tíma, þar sem lengi vel munaði mjög litlu. Það veikir að öllum líkindum lið Aftureld- ingar að Ásbjörn verður ekki með vegna tognunar. Ekki Ilarry Fyrir nokkru var það ákveð- ið að taka skyldi kvikmynd af ævi og íþróttaferli spretthlaup- arans og langstökkvarans Jesse Owens, en það hefur gengið illa að fá eða finna mann í aðalhlutverkið. Loks fann kvikmyndafélagið rétta mánninn í hlutverkið, og var það enginn annar en Harry Belafonte, en þessu mótmælti Owens ákveðið. Hann vildi alls ekki hafa kalipso-kónginn í að- alhlutverkinu í myndinni, og nú verður félagið að leita að öðr- um. Sidney Portier hefur kom- 5ð til greina, og er talið að Ov/ens muni samþykkja hann. 1. Finn, tveir, þrír — þú ert á bak við heysátuna. 2. Þú ert náður. Ritstjóri Vilbory Dagbjartsdóttir — Útgefandi Þjóðviljinn sem vindurinn feykir yfir jörðina þegar illa liggur á honanv En í hlýju rúniinu sofa litlu börnin á hvítu svæflunum. með rjóða vanga.' Þau dreymir um sólina og vorið. (Dísa, 7 ára) Ráðningar Stóri Indíáninn var móðir litla Indíánans. ■Gesturinn var sonur fangans. MJg langar að komast í bréfasamband við stelp- ur á aldrinum 11—13 ára. Unnur Jónsdóttir Núps- hjáleigu pr. Djúpavog, S-Múl, Ég óska að komast í bréfaskipti við stráka á aldrinum 10—12 ára. Hilmar Jónsson, Núps- hjáleigu, pr. Djúpavog, S-Múl. s!u Laugard. 26. marz 1960 — 6. árg\ — 11. -*tbt U.NGU SKÁLDIN YRKJA ÖRÍMAÐ Dísa litla er ekki nema s.iö ára, því er ekki nema eðn’egt að fkkka hana með „ur.gu skáldunum". Kún sendir okkur órímað ljóð, sern húr. sjálf hef- ur r.iynuskreytt. Iðuiaus rigning lemur utan grænar rúð- urnar það eru tár skýjanna

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.