Þjóðviljinn - 12.04.1960, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN
Þriðjudagur 12. apríl 1960
Hvatningarorð
tii Genfar
Þjoðviijanum hefur ' 'borizt
eftirfarandi frétt frá Stór-
Stúku íslands:
Stórstúkan hefur sent ís-
lenzku sendinefndinni í Genf
árnaðar- og hvatningarorð í
J)eirri baráttu, er hún heyr nú
fyrir réttlætismáli þjóðar vorr-
ar.
Stórstúkan skorar á önnur
íslenzk félagasambönd og fé-
lagsheildir að fara að dæmi
hennar og staðfesta þannig
enn einu sinni þann þjóðarvilja
og einingu, sem að baki rétt-
lætiskröfum vorum stendur.
Fjórða bindi al-
fræðibókar Gyld-
endals komin át
Út er komið fjórða bindi hinn-
ar glæsilegu alfræðiorðabókar
Gyldendals', Gyldendals Opslags-
bog', sem- nær yfir stafina R—Á.
Hér hefur áður verið sagt frá
■þessu rití sem ber danskri bóka-
gerð fagurt vitni. Einsog fyrri
biridin er þetta skreytt fjölda
mynda, margar þeirra í litum,
prentún, pappír og band er fram-
úrskarandi sem fyrr.
Enn er eftir eitt bindi og verð-
ur: það heildarregistur yfir allt
verkið. Bókabúð Norðra hefur
umboð fyrir bókina hér á landi
og geta áskrifendur vitjað fj'órða
bindisins þar í þessum mánuði.
Allt verkið, fimm bindi, kostar
475 danskar króriur, hvert bindi
því 05. krónur. Eftir gengisfell-
inguna verður verðið bér 2.850
krónur, eða 570 krónur bindið.
Ásfcrifendur fá það þó á „gamla
verðinu".
Skólaskemmtun
í Ólafsvík,
Ólafsvík. — Frá fíétta-
ritara Þjóðviljans.
Hin árlega skólaskemmtun
fcarria- og unglingaskólans hér í
Ólafsvík var haldinn nýlega.
Voru skemmtanirnar tvær.
Hörður Zóphoníasson skóla-
stjóri setti skemmtunina með á-
varpi og kynnti skemmtiatriði.
Nemendur lásu upp, sýndu leik-
þætti,' sungu, og fl. var til
skemmtunar. Var hinn bezti róm-
úr gerður að skemmtuninni, sem
var nemendum og kennurum til
Baðker
,,, -'CM-/■ •
Stærð 167 cm og 155 cm
íyrirliggjandi.
Sighvator Einarsson & Co.
Skipholti 15 — Símar: 24133 — 24137.
sumarkjólaefni
Haínarstræti 11
Ný sending
TVT'.j. ' í’ 1 1 hei'tir myndin sem Kópavogsbíó sýnir
llOtl 1 iVaKaíOT llJn þessar mnndir. Þetta er þýzk
dftns- og dægurlagamynd, skrautleg og skemmtileg. Að. ofan
s.éf-t eitt atriði úr myndinni.
Gengisbundin lán deiluefni
vegna yfirfærslubóta
Þjóðviljinn skýröi í vetur frá búsifjum þeim sem geng-
islækkunin bakar fólki sem á undanförnum árum hefur
tekið gengisbundin lán til að koma upp yfir sig húsnæði.
Vorkjólar
Vordraatir
E I Ægi, 6. hefti þessa ár- =
E gangs, er birt skrá yfir E
E skip sem hættust við í E
— skipastóllinn 1959. Á ár- S
E inu voru keypt 4 farþega- E
= og flutningaskip: Drang- E
E ur, Herjólfur, Langjök- E
E ull og Laxá. 1 togari. =
E Keilir,og 31 fiskislip. Af =
E fiskiskipunum voru 5 =
E smíðuð hér, en 26 erlend- E
E is, þar af 13 í, Austur- E
E Þýzkalandi. E
~ Á árinu 1958 voru E
= keypfc 1 farþega- og flutn =
E ingaskip, 2 togarar. og 21 E
E fiskiskip. Af fiskisk'p- =
E unum voru 10 smíðuð hér. E
E Það er athyglisvert að =
= innflutningur fiskibáta úr =
= stáli fer hraðvaxandi, en E
= eikarbátum fækkar. Inn- E
E flutningur stálbáta hófst E
E á öndverðu ári 1955. E
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiii)
iimiimmmmiiiiiiimimiimmimuiiiiiimmimiimrimiimm .........................................................................................
MARKADURINN
Laugavegi 89. Sími 1-23-15.
1 Frjálsri þjóð var því haldið
fram í síðustu viku að grunur
léki á að ekki væri allt með
felldu um þessi lánaviðskipti,
svo sem hvort raunverulega
væri um erlenda skuld að ræða.
Þjóðviljanum hefur borizt af
þessu tilefni athugasemd frá
Fasteignalánafélagi samvinnu-
manna, sem veitt hefur hin
gengisbundnu lán. Þar segir,
að tilefni skrifanna í Frjálsri
þijóð muni vera ágreiningur um
skiptingu yfirfærslubóta, hálfr-
ar annarrar milljónar króna,
sem komu til vegna þess að E
hluti af láni vegna III. lána-
floklcs félagsins var ekki flutt-
ur heim fyrr en á síðasta ári.
Félágsst-jórn telur að þeir eigi
að njóta bótanna sem fengu
þennan hluta hins erlenda láns,
en sumir lántakendur telja að
þær eigi að skiptast á alla
lántakendur í flokknum. Hefur
félagsstjórnin lagt til að máli
þessu verði skotið til gerðai~
dóms sem Hæstiréttur skipi, og
skrifað lántakendum III. flokks
bréf um það.
Auk þess ber stjórn Fast-
eignalánafélagsins á móti ýms-
um öðrum atriðum í fregn
Frjálsrar þjóðar, svo sem að,
líftryggingarfélagið Andvaka
eigi hér hlut að máli, að lán-
takan erlendis hafi verið gerð
í heimildarleysi og að skilmál-
ar sem lánunum *fvlgja séu
óeðlilegir.
uiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiir
If
Hef
pússningasand
til sölu.
Sími 23-220
Gunnar Guðmundsson
1 fisldski;
BÆJARPÖSTURÍN
® Dymbilvikan og
skemmtanabannið
Vikan, sem nú er hafin,
bar til forna nafnið dymbil-
vika. Voru þá trékólfar hengd-
ir í kirkjuklukkur til þess að
hljómur þeirra yrði ekki eins
skær og ella, því að annað
þótti ekki hæfa þeim sorgar-
dögum, er í hönd fóru en
deyifður klukknahljómur cg
döpur andakt. Sá siour er nú
löngu aflagður hér á lálidi
að binda trékólfa í kirkju-
klukkur á páskunum, en þrátt
fyrir það ber páskavikan enn
mikinn deyfðar- og drunga-
hlæ. Frá miðvikudegi fyrir
skírdag og fram á annan í
páskum má segja, að allar
skemmtanir séu bannfærðar.
Engar kvikmyndasýningar
eru leyfðar, bannað er að
stíga dans á opinberum
skemmtistöðum, dagskrá út-
varpsins er undirlögð þraut-
leiðinlegri kirkjumúsik, ogsvo
mætti lengi telja. Ég held
mér sé óhætt að fullyrða, að
öll þessi boð og bönn beri
meir vitni sýndarmennsku og
yfirdrepsskap en einlægni
trú, a.m.k. þekki ég fáa sem
verja þessum dögum til guð-
rækilegra iðkana. Eins og
kunnugt er, er páskafríið
lengsta samfellda fríið, er
flest vinnandi fólk fær að
undanskildu sumarfriinu. Og
flestir reyna eftir föngum að
nota það sér til hressingar
og skemmtunar. Allir, sem
vettlingi geta valdið reyna
auðvitað að komast eitthvað
út úr bænum, því að hér er
ekkert við að vera, engar leik-
sýningar, engin bíó, engar
samkomur, ekkert, sem hægt
væri að gera sér dægramun
við að sjá eða heyra. Ekk-
ert nema andlausar messur
og kirkjutónlist í útvarpinu.
Eg held að við ættum að
fara að hætta þessum leik-
araskap, alveg eins og það
var lagt niður á sínum tíma
að binda trékólfa á kirkju-
klukkurnar, og taka upp eðli-
lega lifnaðarhættr í páskavik-
unni eins og aðra daga árs-
ins. Þeir, sem eru þannig
sinnaðir, að þeir telja það
helgispöil, að fara t.d. í bíó
á skírdag eða páskadag, geta
auðvitað setið heimá, en mér
finnst það ranglátt, að allir
aðrir skuli skyldaðir til að
gera eins, hvort sem þeir vilja
það eða ekki. Það ber tví-
mælalaust að afnema þetta al-
gera skemmtanabann, a.m.k.
á skírdag 'og laíigárdagínn
fyrir páska. Þá daga á fólk
einmitt að fá að nota fríið
sitt til þess að fara eitthvað
út að skemmta sér, ég held
að sálarheill þess yrði ekk-
ert stefnt í voða með því.
Eða skyldi það t.d. vera eitt-
hvað syndamlegra að dansa á
laugardaginn fyrir páska
he’dur en á annan í páskum?
Nei, þetta er bara gömul
venja, sem er orðin löngu úr-
elt. Og hvers vegna í ósköp-
unum reynir útvarpið ekld að
hressa eitthvað upp á dag-
skrána þessa daga í stað þess
að láta allt koðna niður í ein-
hverri helg:slepju? Menn
kunna hvort sem er ekki að
meta hana betur en það, að
allir eru sammála um það,
að um páskana sé ekki hlust-
anidi á útvarpið.