Þjóðviljinn - 12.04.1960, Side 9
Þriðjudagur 12. apríl 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (D
Rifstjóri: Frímann Helgason
FH sigraði í 5 flokkum í
Hamlknattleiksmáti íslands
Handknattleiksmóti Islands
innanhúss lauk á sunnudags-
kvöld og fóru þá fram þrír
skemmtilegir leikir. Fóru þeir
þannig: Þriðji flokkur karla
B: Sigurvegari Haukar, unnu
Fram 9:8 eftir tvíframlengdan
leik. Ármann vann KR í meist-
araflokki kvenna 11:4 og FH
vann KR í meistaraflokki karla
22:20 eftir að hafa þó verið
í byrjun leiks yfir: 12:2. —
Verður nánar sagt frá þessari
Handknattleikurinn á laugardag:
Hafnfirðingar unnu fjóra
meistaratitla af sex
keppm a morgun.
S'gurvegarar í einstökum
flokkum urðu:.
Kvennaflokkar: Meistaraf lokk-
ur: Ármann, fyrsti flokkur
KR, annar flokkur A. FH og
annar flokkur Víkingur.
Karlaflokkur: Meistaraflokknr
FH, fyrsti flokkur FH, annar
flokkur A. FH, annar flokkur
B FH, þriðji flokkur Víkingur
þriðji flokkur B. Haukar.
Það væri synd að segja að
úrslitalei’kirnir, sem fram fóru
sl. laugardagskvöld hafi ekki
boðið upp á góða skemmtun,
þó voru það aðeins tveir leikj-
anna, sem voru jafnir og tvi-
eýnir; báðir 3. flokks lei'kirnir,
einkum þó leikur Hauks og
Fram í 3. flokki B.
KR meistari í 1. flokki kvenna.
KR-liðið með liina kunnu
sund'konu Ágústu Þorsteins-
dóttur í fremstu víglínu, var
þegar í byrjun mun sigur-
stranglegri en hinar smávöxnu
Víkingsstúlkur KR náði líka
að skora fyrstu 4 mörkin áður
en Víkingar skoruðu sitt fyrsta.
1 hálfleik var staðan 5:1 KR i
vil. í síðari hálfleik áttu Vík-
ingar mun betri leik og hálfleik-
urinn var mun jafnari en sá
fyrri, lauk með sigri KR 3:2.
KR sigraði því örugglega með
8:3. KR-liðið var skipað mun
eldri og þrekmeiri stúlkum en
Víkingsliðið og höfðu þær lítið
fyrir að sigra Víkingana.
Ágústa Þorsteinsdóttir átti góð-
an lei’k í miðherjastöðunni; hún
skoraði tvisvar langleiðina frá
miðju
Dómari var Gunnlaugur
Hjálmarsson og dæmdi all vel.
2. flokkur kvenna:
FH sigraði Fram auðveldlega.
iSigur FH varð mun auðveld-
ari en búizt var við í leik þeirra
við Fram. Fyrstu mínúturnar
var fast sótt að Fram-markinu
án þess að fá skorað. Sigurlína
fékk þó skorað mjög laglega
1:0 fyrir FH og þá var'ekki að
sökum að spyrja. Tvö næstu
möúk skoraði Sigurlína, bæði úr
vitaköstum. Silvía bætti því
fjórða við rétt fyrir hálfleiks-
lok
í síðari hálfleik léku FH-
stúlkurnar mjög skemmtilega og
tókst að skora 7 mörk gegn
engu marki Fram og sigruðu
því með 11 mörkum gegn engu.
FH er vel að sigrinum komið
í 2. flokki kvenna. og hafa þær
sigrað flesta keppinauta sína í
mótinu með yfirburðum. Sigur
flokksins mun jafnframt vera
fyrsti kvennasigur FH í hand-
knattleik, en líklega e!kki sá síð-
asti. Mjög góðan leik áttu þær
stöllurnar Silvía og Sigurlína,
sem skoruðu öll mörk liðsins,
og Kristín Pálsdóttir í mark-
inu.
3. flokkur karla (B-Iið):
Haukar unnu Fram í skemmti-
legum leik.
Haukar úr Hafnarfirði eru
sannarlega á réttri leið í hand-
linattleiknum. Það er ekki langt
siðan að félagið var vart annað
en nafnið tómt, en nú unnu
þeir sinn fyrsta mótsigur í
langan tíma, í 3. flokki B.
Haukarnir áttu góða byrjun,
skoruðu 3 fyrstu mörkin.
Fyrsta mark Fram var fremur
laust, en markmaðurinn missti
Framhald á 10. síðu.
FJI-in,gar eiga í liöggi við Ileinz Steinmann KR. — Ljósm.:
Sveinn Þormóðsson.
!R varð islandsmeistari, vann KFR í
úrslitum meistaraflokks karla ,
Það vantaði ekki fjþrið í leik-
ina á Körfuknattleiksmóti ís-
lands á miðvikudagskvöldið, er
fram fóru tveir úrslitaleikir
mótsins.
KR (b) vann KR (a) 20:12.
í 2. flokki kvenna lentu í úr-
slitum 2 lið frá KR. 4 lið tóku
þátt í mótinu, 2 frá ÍR og 2 frá
KR..
Bæði liðin sýndu bráð-
skemmtilegan leik, enda þótt
taugaóstyrkur væri áberandi
meðal beggja. Fyrstu mínút-
urnar færðu báðum liðum mörg
stig, en er leið á leikinn var
sem varnirnar þéttust og færri
körfur voru skoraðar. I hálf-
leik stóðu leikar 14:6 fyrir b-
liðið, en síðarí hálfleik lauk
með jafntefli 6:6, og leiknum í
heild því 20:12. Það er sannar-
arlega ástæða til að óska KR-
stúlkunum til hamingju með
fyrsta sigurinn, sem KR hefur
náð í körfuknattleik. Það er
engum vafa bundið að KR muu
hér eignast góðan kvennaflokk,
haldi stúlkurnar vel saman.
ÍR sigraði KFR örugglega.
Leikur ÍR og KFR var
hreinn úrslitaleikur og mikill
spenningur í kringum leikinn.
Leikurinn var allur hinn
skemmtilegasti enda þótt of
mikilli hörku hafi stundum
brugðið fyrir í lei'knum.
Fyrstu mínúturnar voru liðin
hnífjöfn, Gunnar Sigurðsson
skoraði strax í byrjun fyrir
I KFR, en Hólmsteinn skorar úr
vítakasti 2:1. Helgi Jóhannsson
náði forystunni fyrir ÍR, og
henni héldu ÍR-ingar út leikinu.
KFR ihélt lengi vel 'í ÍR-ingana,
og var á því tímabili hvað mest •
spenna í leiknum, t.d. urðu
dómararnir að stöðva leikinn
þar til hinir háværu kallkóraf',
þögnuðu.
í hálfleik var ÍR búið að ná
14 stiga forskoti, 31:17.
Þegar í síðari hálfleik náðu
ÍR-ingar enn að auka á yfir-
burðina með því að skora, 3
körfur í röð og leikar stóðu því
37:17 ÍR í vil. Næstu mínút-
urnar ná KFR-menn góðum
sóknarlotum og minnka mis-
muninn í 15 stig, og þá standa
leikar 41:26. Skömmu síðar
varð Helgi Jóhannsson að yfir-
gefa völlinn, þar eð hann hafði
fengið 5 villur, og varamaður
kom í lians stað. iR-ingar skor.
uðu þá 10 af 12 næstu stig'um
og leikar standa þá 57:31. Síð-
ustu mínúturnar vann KFR
nokkuð á, en _sigur IR 69:48
var staðreynd.
ÍR: Helgi Jóhannsson, Hólm-
steinn Sigurðsson, Þorsteinn
Hallgrímsson, Guðmundur Þor-
steinsson, Ragnar Jónsson,
Einar Ólafsson, Haukur Hann-
esson, Ingi Þór Stefánsson.
Lið IR er vel að sigrinura
komið. Liðið hefur sýnt lang-
bezta leiki á mótinu, og úrslita-
leikinn unnu þeir mjög örugg-
lega. Margir ÍR-ingar sýndu af-
bragðs leik, t.d. Þorsteinn Hall-
grímsson og Guðmundur Þor-
Framhald á 10. siðu.