Þjóðviljinn - 12.04.1960, Síða 10
r **
10) ■— ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 12. apríl 1960
'iiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiim
' ' =
Smávegís til mS létta störf |
hésméSurinsiar i
Það eru ekki nærri alltaf
stóru, dýru heimilistækin,
sem létta húsmóðurinni mest
störfin, þótt þau séu ágæt
út af fyrir sig. Margar
smábreytingar og lagfæring-
ar á eldhúsinu og innrétt-
ingu þess geta haft mjög
mikið að segja.
Er t.d. uppþvottagrindin
mátulega nálægt og í réttri
hæð við vaskinn ? Sú örv-
henta á að’hafa hana hægra
megin við vaskinn, annars
á uppþvottagrindin ávallt að
vera á vinstri hönd.
Athugið, hvort ekki er
hægt að geyma diskaþurrk-
ur, pottaleppa og horðklúta
í einhverri eldhússkúffunni.
Það er mikill tímasparnað-
ur og léttir að þurfa ekki =
að hlaupa endanna í milli =
í ibúðinni, þegar skipta =
þarf um eitthvert þessara E
stykkja. E
Að lokum myndi það létta E
störf húsmóðurinnar til E
mikilla muna, ef mögulegt =
væri að innrétta smá borð- =
krók í eldhúsinu. Borðið =
þarf ekki að vera annað en =
útdregin plata eða borð- E
plata, sem fella mætti nið- =
ur með veggnum milli mál- E
tíða. Lítill borðkrókur léttir E
mjög alla fyrirhöfn hús- E
móðurinnar, sérstaklega við E
máltíðir, þegar aðeins lítill =
hluti fjölskyldunnar er =
heima við og engin þörf á =|
að dúka stórt borð. =
Þær lagast sífelÞt tærnar, hvað finnst ykkur?
. 11 m 111 m; 11 im 1111 ii 111111: i: 11111111111111111111111111111 ii 111 ii ii 111111111111 ii 11111 ii 111 iii
Handknattleiksmót íslands
Framhald af 9 siöu
boltann 'í netið. Haukar skor-
uðu 4:1 en Framarar voru ekki
af baki dottnir og jöfn-
uðu leikana rétt fyrir hálfleik,
4:4. I seinni hálfleik leit út
fyrir mikia baráttu liðanna,
sem og varð. Fram tók þegar
í upphafi forystuna, en Haukar
jafna. Fram tekur enn foryst-
una 6:5, en allt fer á sömu
iund; Hafnfirðingar jafna, —
og komast yfir 7:6. Framarar
voru óheppnir í næsta upp-
hlaupi er þeir skutu í stöng.
'Sömuleiðis voru Hafnfirðingar
óheppnir að fá ekki nýtt víta-
kast á Fram. Framarar fengu
hú jafnað beint úr aukakasti,
og voru óheppnir að vinna ek'ki,
áttu t.d. 2 skot í stöng. Efir
venjulegan leiktíma stóðu leikar
því 7:7.
Körfuknattleikur
Framhald af 9. síðu.
steinsson, að ógleymdum Helga
Jóhannssyni, sem gerði hina
ötrúlegustu hluti. Hólmsteinn
Sigurðsson gerði margt mjög
iaglega.
KFR: Ingi Þorsteinsson, Ein-
ar Matthíasson, Ölafur Thorla-
cius. Gunnar Sigurðsson, Helgi
R. Traustason, Birgir Helgason,
Ásbjörn Egilsson, Sigurður
Helgason, Ágúst Óskarsson.
KFR-liðið sýndi að þessu
einni oft skemmtilegan leik,
enda þótt þeir stæðu ÍR ékki á
teporði. Beztur KFR-inga var
Einar MattHíasson, Gunnar
Sigurðsson, Ingi Þorsteins og
Ólafur Thorlacius gerðu margt
vel, sama er að segja um Ágúst
Óskarsson, sem er mjög vax-
andi leikmaður.
Flest stig skoruðu: Þorsteinn
'(ÍR) 23; Guðmundur (ÍR) 16;
Hólmsteinn (ÍR) 15; Einar
(KFR) 14; Ingi (KFR) 12;
Helgi (IR) 12.
Dómarar voru þeir Þórir
Árinbjarnar og Viðar Hjartar-
son og dæmdu allvel fremur
erfiðan leik.
Áhorfendur voru allmargir.
I framlengingu náðu Haukar
forystu 9:7. I síðari hálfleik
framlengingarinnar jöfnuðu
Framarar þó 9:9. Haukar skor-
uðu 10. markið úr víti, sem
markvörðurinn var næstum bú-
inn að verja. Fram jafnaði 10:
10 eftir að miðherjinn greip inu
í spil Hau'kanna. Úrslitamarkið
var skorað úr vítakasti og unnu
Haukar leikinn því með 11:10,
og færðu Hafnarfirði annan sig-
urinn það kvöldið.
Bæði liðin áttu góðan leik að
þessu sinni og margt góðra
efna er í liðunum.
Daniel Benjam'ínsson dæmdi
þennan erfiða leik vel.
3. flokkur karía:
Víkingur vann IR 11:7.
Leikur ÍR og Víkings var
mjög jafn lengi framan af.
Víkingur leiddi lengi framan af.
í hálfleik stóðu leikar 4:3 fyr-
ir Víking. 1 síðari hálfleik i
jöfnuðu ÍR-ingar leikinn á 5:5, |
en Víkingur fór úr því að ná
yfirráðum á vellinum og skor-
aði næstu 4 mörk og tryggði
nokkum veginn sigur sinn,
enda sigruðu Víkingar með 11:7
sem er verðskuldað.
Lið Víkings hefur sýnt mjög
góða leiki í mótinu og er vel
að Islandsmeistaratigninni kom-
ið.
Óskar Einarsson dæmdi leik-
inn.
FH vann Ármann í 2. fl. karla.
Margir höfðu búizt við mikl-
um hörkuleik milli FH og Ár-
manns. Raunin varð þó önnur,
því FH-ingar höfðu leikinn i
hendi sér allan tímann. Þeir
skoruðu 5 fyrstu mörkin og I
hálfleik ihöfðu þeir yfir 13:7,
Síðari hálfleikur var jafnari, en
þó kom aldrei til að sigur FH
væri í neinni hættu.
■ FH vann leikinn með 19:13.
Leikur FH var allan leikinn
mjög góður, fullur af hraða,
fjöri og tilbrigðum. Beztir FH-
ingana voru þeir Örn, sem
sjaldan hefur átt jafn góðan
leik sem nú, og Kristján, sem
ar Sigurðsson gerði einnig
margt skemmtilega. Galli á lið-
inu er hve seinir leikmennirnir
eru í vörnina, en það kostaði
liðið nokkur mörk. Ármenning-
arnir börðust vel allan tímann.
Bezti leikkafli liðsins var fyrst
í seinni hálfleik, og raunar var
seinni hálfleikur vel leikinn í
heild sinni.
Karl Jóhannsson dæmdi leik-
inn og virtist sem ekkert færi
framhjá honum.
FH vann 3. meistaratignina í
1. flokki karla.
Margir höfðu búizt við hörð-
um leik í 1. flo'kki karla, þar
eð FH gat ekki stillt' upp sínu
sterkasta Iiði. Raunin varð þó
önnur. ÍR réði ekkert við lið
Hafnfirðinganna, sem færðu FH
3. íslandsmeistaratignina þetta
kvöld. FH vann leikinn með
19:8 (8:3 í hálfleik).
Beztur FH-inganna var Ás-
geir Þorsteinsson; ungur mað-
ur maður, sem án efa getur
orðið mjög góður ’í handknatt-
leik rAnnars voru mörg stór
nöfn 'í þessu 1. flo'kks-liði FH,
t.d. Sverrir Sigurður Júlíusson
og Ásgeir Magnússon (áður í
Víking).
I liði ÍR var Ólafur Jónsson
beztur.
Daníel Beniamínsson dæmdi
leikinn (3. leikurinn það kvöla-
ið). *
Áhorfendur voru margir að
Hálogalandi þetta kvöld. Mikili
hluti þeirra mun hafa komið
frá Hafnarfirði til að hvetja
lið sín, en ölj Hafnarfjarðarlið-
in unnu leiki sína þetta kvöld
og færa Hafnarfirði 4 meistara.
titla.
— bip —
m
liggur leiðin, - •;
y" /'j / J * 9 •'. / / .* / » ’ 4 ■/ r ir J
bip lék einnig afbragðs leik. Gunn-
Vandlát húsmóðir
notar R 0 Y A L
lyítiduft í hátíða-
baksturinn.
SAMÚÐAR-
KORT
Slysavarnafélags fslands
kaupa flestir. Fást hjá slysa-
varnadeildum um land allt
í Reykjavík í hannyrðaverzl-
uninni Bankastræti 6. Verzl-
un Gunnþórönnar Halldórs-
dottur, Bókaverzluninni
Sögu, Langholtvegi og í
skrifstofu félagsins, Grófin 1
Afgreidd í síma 1-48-97.
Heitið á . Slysavarnafélagið
Járniðnaðar m enn
Framhald af 7. síðu.
að enginn þurfi að villast á
járnsmið og forsætisráðherra
og auðmannasynirnir þurfi
ekki að 'laka Verkamannsdóttur
í misgripum fyrir hina einu
sönnu heildsaladótfrur. — En
járnsmiðirnir munu áreiðan-
lega ekki liggja á liði sínu tii
þess að knýja hjól þróunarinn-
ar áíram en ekki afturábak.
— Fjódviljinn
iðnaðarmönnum
f, . S f .
-roeð afmæiið.",
’ : ■./ l -v’
óskar járn-
til hamingju
' / ■■ . f •'
J.B.
Knattspyrnuskór
Handknattleiksskór
Gaddaskór (hlaup, köst)
Fótknettir( nr, 3, 4, 5)
Handknettir (karla,
kvenna)
Útiæíingaföt
Knattspyrnubuxur
Knattspyrnusokkar
Iþróttatöskur
Skeiðklukkur (1/10 sek.)
Stálmálbönd (20 og 30 m)
Spjót
Kringlur
Itúlur
Stangarstökksstengu r
Sundbolir
Sundskýlur
Sundhettur
Sundhringir
Badmintonspaðar
Badmintonboltar
Úti-badmintonsett
Sippubönd
Bakpokar
Svefnpokar
Vindsængur
Ferðaprímusar
Sjónaukar
Skíði
Skautar
ALLT TIL ÍÞRÓTTA
H E L L A S
Skólavörðustíg 17 sfhii
1-51-96.
SKIPAÚTGCRi)
RIKISINS I
Herjólfur
fer til Vestmannaeyja og
Hornafjarðar hinn 13, þ.m.
Vörumóttaka í dag. Farseðlar
seldir sama dag.
SkjaliM
fer til Ólafsvíkur, Grundar-
fjarðar, Stykkishólms og Flat-
eyjar 19. þ.m. Tekið á móti
flutningi á morgun og árdegis
á laugardag. Farseðlar seldír
árdegis á laugardag.
HEKLA
austur um land í hringferð
hinn 20. þ.m. Tekið á móti
flutningi til áætlunarhafna milli
Djúpavogs og Húsavíkur á
morgun og árdegis á laugardag.
Farseðlar seldir á mánudag.
MINNINGAR-
SPJÖLD DAS
Minningarspjöldin fást hjá
Happdrætti DAS, Vestur-
veri, sími 1-77-57 — Veiðar-
færav. Verðandi, sími 1-3787
— Sjómannafél. Reykjavík-
ur. sími 1-19-15 — Guð-
mundi Andréssyni gullsm.,
Laugavegi 50, sími 1-37-69
Hafnarfirði: Á pósthúsinu,
. sími 5-02-67.