Þjóðviljinn - 12.04.1960, Síða 12
Nýjar ofbeldisaðgerðir eftir
banatilræðið við Verwoerd
Verwoerd á batavegi. — Lögreglan heldur áfram
að fangelsa og misþyrma blökkufólki
Verwoerd forsætisráðherra Suður-Afríku, sem sýnt var
banatilræði á laugardag, er nú á batavegi. Þegar á laug-
ardag var hert á ofsóknum gegn blökkumönnum í land-
inu, og hefur lögreglan síðan haldið áfram látlausum
handtökum og misþyrmingum á blökkufólki.
Verwoerd hefur verið flutt-
ur í sjúkrahús. í gær höfðu
byssukúlurnar enn ekki verið
fjarlægðar úr höfði hans, en
hann var sagður úr allri lífs-
hættu.
Lögreglan í Jóhannesarborg
hefur ákveðið að tilræðismað-
urinn, David Pratt, skuli
hafður í gæzluvarðhaldi um
óákveðinn tíma, og ekki stefnt
fyrir rétt fyrr en síðar.
Á laugardag eftir tilræðið
við Vervvoerd réðust löreglu-
sveitir inn 1 blökkumanna-
hverfi í Durban, drógu fólk út
úr húsum og misþyrmdu því.
Margir karlmenn voru hand-
teknir og fluttir í fangelsi. I
gær fóru lögreglumenn víða um
landið í brynvörðum vögnum,
handtóku blökkumenn og yfir-
heyrðu þá, en fluttu suma í
fangabúðir.
Louw utanríkisráðherra
sagði á blaðamannafundi í gær,
að kanadíski blaðamaðurinn
Norman Philips, frá blaðinu
„Toronto Star“, yrði ekki lát-
inn laus fyrr en lögreglan
hefði lokið við að yfirheyra
hann. Yrði honum þá vísað úr
landi tafarlaust.
I gær var sýninginn, sem
40123:100.000 kr.
f 'gær var dregið í 4. flokki
Happdrættis Háskóla íslancls.
Dregnir voru 1.004 vinningar að
upphæð 1.295.000 krónur.
Haesti vinningurinn 100.000 kr.
kom á númer 40.123, heilmiða,
sem var seldur. í umboði Arndís-
ar Þorvaldsdóttur, Vesturgötu 10.
50.000 krónur kom einnig á
heilmiða númer 46.657, seldan í
umboði Helga Siverlsen L Vest-
urveri.
10.000 krónur:
19413, 19562, 26140, 26302. 28468,
35551, 54675.
5.000 krónur:
6823, 10399, 11468, 12512, 15265,
21548, 27609, 28779, 30310, 325S5,
36411, 37283, SÖ813, 40665, 41467,
49480, 51192. 53369.
(Birt án ábyrgðar).
Verwoerd var að opna, þegar
honum var sýnt banatilræðið,
opnuð á ný, en henni var lok-
að þégar eftir tilræðið.
illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli
(Allt í óvissu uml
láæilunarflug FÍ|
| til Grænlands (
E Þjóðviljinn fékk þær upp- =
E lýsingar lijá Flugfélagi E
E íslands í gær, að svar E
E hafi ekki enn borizt við E
E umsókn félagsins um leyfi =
E til áæ'tlunarflugs milli ís- =
= lands og Grænlands. Af =
= þeim sökum sé ekki unnt =
= að segja fyrir um livernig =
= þessum málum verður =
E liáttað á næstunni. E
ti 111111111111111 m 1111111111111111111111111111~
þlÓÐVIUINN
= Þriðjudagur 12. apríl 1960 — 25. árgangur 86. tölublað.
Stjóm hægrimanna Italíu
gef st upp eftir tvær vikur
Öngþveiti ríkir í stjórnmálum landsins
Tambroni forsætisráðlierra
Ítalíu gekk á fund Gronchi for-
seta í gær og baðst lausnar fyr-
ir stjórn sína, samkvæmt fyrir-
mælum miðstjórnar flokks síns,
Kristilega demókratáflokksins.
Áður höfðu þrír ráðherrar beð-
izt lausnar. Stjórnin hafði að-
eins verið við völd í þrjár vikur.
Stjórn þessi var mynduð með
miklum harmkvælum af Kristi-
lega demókrataflokknum, og var
hún studd af nýfasistum á þingi.
Hægri flokkarnir á Ítalíu hafa
barizt hatramlega gegn því, að
mynduð værí stjórn, sem vinstri
flokkarnir ættu aðild að, og var
myndun stjórnar Tambronis einn
liður í þeirri baráttu. S.l. fðstu-
dag var í fyrsta sinn atkvæða-
greiðsla í þinginu um traust á
stjórnina. Hlaut stjórnin traust
með aðeins 8 atkvæða meiri-
hluta. og réðu atkvæði fasista
þar úrslitum.
Kristilegi demókrataflokkurinn
sér nú sitt óvænna, er hann á
líf stjórnar sinnar komið undir
Glœpamenn
fyrir rétti
I gær hófust í Rabat í Mar-
okkó réttarhöld yfir 24 kaup-
mönnum. Eru þeir sakaðir um,
að hafa eítrað ólívuolíu, sem
þeir seldu s.l. haust með þeim
afleiðingum að 10000 manns,
karlar, konur og börn, fengu
langvarandi lömun.
Kaupmennirnir keyptu
hreinsunarolíu í flugstöðvum
bandaríska hersins í Marokkó
og blönduðu hami samán vio
ólívuo'Ácma til að drýgja söl-
una. Um 10000 manns urðu
fyrir þessari eitrun og lömuð-
ust, sumir ólæknanlega.
\
fasistum, og hefur gefizt upp við
ríkisstjórnarstarfið. Flokksforusta
kaþólskra hefur ekki viljað leita
samstarfs Sósialistaí'lokks Nenn-
is til stjórnarmyndunar, en sá
flokkur hefur haft samstarf við
Kommúnistaflokkinn. Ekki er ó-
bklegt að efnt verði til kosninga
á Ítalíu á næstunni.
Frímerk j asaf narar
Þessir ungu menn, sem em
áhu.gasamir frímerkjasafnar-
ai, eru liér að kaupa fyrsta dags merki við opnun sýningar
á frímerkjum og ljósmyndnm að Lindargötu 50. Sýningin,
sem hefur verið vel sótt, verður opin fram að öðrum í páskuni
frá klukkan 2—10 daglega.
Meirl heildarafli Akranesbóta
en í fyrra vegna betri gæfta
Akranesi. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
Um síðustu mánaðamót voru
komin á land á Akranesi 8280
tonn af fiski. Á sama tíma í
fyrra var aflinn 5830. Alls voru
sjóferðirnar um mánaðamótiii
orðnar 927, en voru 650 á sama
tíma í fyrra.
Láta mun nærri að meðalaíli
báta í sjóferð sé hinn sami nú
og í fyrra, 9 lestir. Góðar gæl't-
ir eiga því sinn þátt í auknu
aflamagni nú, ekki aukin fisk-
gengd.
Skólaferð
Ferðir í skála Æskulýðsfylk-
ingarinnar um páskana verða á
miðvikudag fyrir skirdag kl. 9
e.h. og á laugardag fyrir páska
kl. 2 e.h., aftur í bæinn á annan
í páskum. Öllum er frjáls þátt-
taka þótt þeir séu ekki félagar
í ÆFR.
Félagar eru h';atu'r U1 ag fjöl-
hiénna. 'Vmislegt til skemmtun-
ar. Öllum frjálst að koma í skál-
ann hvenær sem er yfir pásk-
ana. Tilkynnið þátttöku og leit-
ið upplýsinga í síma 17513.
Sjö aflahæstu Akranesbátarnir
um síðustu mánaðamót voru
þessir:
tonn róðrar
Sigrún 678 58
Siguríari 585 61
Sigurður 530 45
Sveinn Guðm. 523 56
Sæfari 512 59
Heimaskagi 510 50
Böðvar 500 61
Baðmullarefni hefur nœr
tvöfaldazt í verði
Á engum vöruflokki hefur
orðið jafn gííurieg verðhækk-
un við gengislækkunina og
vefnaðarvöru úr baðmull,
jafnt álnavöru og tiibúnum,
innfluttum baðmullarfatnaði.
Þetta stafar af því að þessi
vara var áður ásamt korn-
vöru, kaffi og sykri í lægsta
innflutningsgjaldaílokki. Mat-
vælin eru nú greidd niður aí
opinberu Je, éri gengislækkun-
ín kemur af fullum þunga
fram i verði þeirrar veínað-
árvöru sem mest er notuð.
Til dæmis um það hversu
verðhækkunin er mikil má
taka baðmullarefni sem er ný-
komið í verzlanir. Metrinn af
þvi kostaði fyrir gengislækk-
un 52 krónur. Geiigislækkun-
in og nýju álögurnar, sölu-
skattur í tolli og siiluskattur
í smásölu, hækka verðið um
hvorki meira né minna en
kr. 47.10, svo að metrinn af
þessu efni kostar nú út úr
búð kr. 99.10. Hækkunin
nemur 90.58%, það munar
minnstu að verðið hafi tvö-
faldazt.
IfiokkuntmS
Deildarfundnr í I.augarnes-
deild verður í kvöld klnkkan 8,3(1
á venjulegum stað.
Sparnaður 25.000 krónur
Gylfi i
,,gildrunni"
Einn þeirra manna sem
hagnzt vel á . tekjuskatts-
lækkuninni er Gylfi Þ. Gísla-
son viðskiptamálaráðherra. í
fyrra borgaði hann kr. 33.037
í tekjuskatt, en það jafngilti
því að skattskyldar tekjur
hans hefðu verið kr. 186.800
— Samkvæmt hinum nýju
ákvæðum sem hann hefur
haft forustu fyrir, lækkar
tekjuskattur hans, miðað við
óbreyttar tekjur, í kr. 14.200.
Hreinn sparnaður hans í
tekjuskatti nemur því krón-
um 18.837.
Hin nýju ákvæði um að
skattana megi draga frá áð-
ur en útsvar er reiknað
lækkar einnig útsvar Gylfa
Þ. Gíslasonar verulega. í
fyrra borgaði hann krónur
20.600, og fékk þá ívilnun
sem nam kr. 10.000—20.000
fram yfir þær reglur sem all-
ur almenningur vdrð að hlíta.
En þó útsvar Gylfa í fyrra
sé tekið gilt, myndu hin nýju
ákvæði lækka útsvar hans í
ár í kr. 14.420. Lækkun þar
er því kr. 6.180. Alls færa
hin nýju skattalög Gylfa því
kr. 25.017 í sparnað, fram
yfir þær ívilnanir sem hann
fékk í fyrra. Og auðvitað fær
hann sömu f jölskyldubætur
og lágtekjumenn.
Alþýðublaðið hefur skýrt
svo frá að með þessum lækk-
unum á hátekjumönnum sé
verið að veiða þá í gildru. Það
sé verið að lokka þá til að
kaupa meira af lúxusvörumi.
og öðrum hátollavörum, og'
þannig verði þeir að greiða.
Gylfi getur veitt sér telsverð-
an munað fyrir 25.000 kr.
aukalega.