Þjóðviljinn - 20.04.1960, Side 10
ÍO) _ ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 20. apríl 1960
+C-
Tím ár í töluin
Frainhald af 7. síðu.
í 10 ár. Samanburður á ein-
stökum verkefnum er ekki
alltaf mögulegur þar sem
sýningarfjöldi leikrita og
söngleikja dreifist á mislang-
an tíma, sum leikrit eru sýnd
tvö leikár í röð, sýningar á
öðrum hafa verið teknar upp
margsinnis o.s.frv. Hér verða
þó nefndar fáeinar tölur sem
dæmi um aðsókn að einstök-
um leiksýningum.
Það leikrit, sem Þjóðleik-
húsið hefur sýnt oftast, er
gamanleikurinn ,,Topaze“.
Hann var sýndur alls 102
sinnum á tveimur leikárum,
bæði hér í Reykjavík og úti á
landi. ,,íslandsklukkan“ eftir
Halldór Kiljan Laxness hefur
verið sýnd alls 83 sinnum;
leikritið hefur verið tekið
þrisvar til sýninga. Af öðrum
Skíðalandsmótið
Framhald af 9. síðu.
arson Reykjavík á 103,8 sek.
í Alpakeppni (stigakeppni fyr-
ir brun, svig og stórsvig) varð
íslandsmeistari Eysteinn Þórðar-
son Reykjavík með 0,09 st. 2.
Svanþerg Þórðarson Reykjavík
14,79 st., 3. ÓJafur Nilsson Rvík
19,02 st.. 4. Árni Sigurðsson
ísafirði 20,54 st. og 5. Jóhann
Vilbergsson Sigluf. 23,24 stig.
Aí 15 fyr.stu mönnum áttu
Siglíirðingar 6. Reykvíkingar 6
og Ísíirðingar 3.
í þríkeppni kvenna varð
Kristín Þorgeirsdóttir fslands-
meistari með 0,0 st. 2. Karólína
Guðmundsdóttir Reykjavík með
25,44 stig.
Síðasta keppnisgrein mótsins
var 30 km ganga, en þar varð
íslandsmeistari Sigurjón Hall-
grímsson Fljótum á 2 klst. 02
mín 32 sek., 2. varð Matthías
Sveinsson ísafirði á 2.04,24 klst.
og 3. Sigurður Jónsson fsaí'irði
á 2.05,53 klst.
Framkvæmd mótsins góð
Framkvæmd mótsins gekk
prýðilega þrátt fyrir að oft virt-
ist sem veður ætlaði að hamla
keppni, en alltaf rættist úr á
síðustu stundu.
Mun óhætt að fullyrða að
þátttakendur og gestir mótsins
hafi kynnzt öllum tegúndum af
siglíírzku veðurfari.
Allar brautir í Alpagreinum
voru lagðar af Stefáni Kristjáns-
syni íþróttakennara frá Reykja-
vik. Göngubrautir lagði Baldur
Ólafsson frá Siglufirði og voru
þær mjög skemmtilega lagðar,
því að áhorfendur gátu fylgzt
með keppninni svo _til allan tím-
ann. Jón Þorsteinsson frá Siglu-
firði sá um undirbúning stökk-
brautarinnar.
Skíðafélag Siglufjarðar —
Skíðaborg sá um allar fram-
kvæmd mótsins og mun óhætt að
fullyrða að þetta mót haíi verið
félaginu til sóma.
í gærkvöld fór fram verð-
launaafhending að Ilótel Höfn.
Skiptust íslandsmeistararnir
þannig að Siglfirðingar hlutu 7,
Reykvíkingar 4, ísfirðingar 2 og
Fljótamenn 1. Hermann Stefáns-
son fráfarandi formaður Skíða-
sambands íslands afhenti við
þetta tækifæri bikar þann sem
um var keppt í landsgöngunni,
en Siglfirðingar unnu hann.
leikritum Þjóðleikhússins,
sem oftast hafa verið sýnd,
má nefna ,,Pilt og stúlku“,
sem sýnt var 50 sinnum á
sama leikárinu; þá var ,,Te-
hús ágústmánans" sýnt 52
sinnum á einu leikári.
„Rakarinn frá Sevilla" eft-
ir Rossini er sú ópera, sem
leikhúsið hefur oftast sýnt
eða 31 sinni alls. Óperettan
,,Leðurblakan“ var sýnd oft-
ar, 35 sinnum á tveim leik-
árum. Mesti ,,skotgangur“
var þó, er óperettan „Káta
ekkjan“ var sýnd í leikhús-
inu 28 sinnum á cinum mán-
uði.
Ekki verður svo lokið þess-
ari frásögn, að get:ð sé ekki
hinnar miklu aðsóknar að
barnaleikritinu sem nú er
sýnt í Þjóðleikhúsinu, „Karde-
mommubænum" eftir norska
skáldið Torbjörn Egner. Leik-
ritið hefur verið sýnt 39
sinnum, jafnan fyrir fullu
húsi, aðgöngumiðar að hverri
sýningu hafa aUtaf selzt
löngu fyrirfram. Á morgun,
sumardaginn fyrsta, verður
fertugasta sýning Þjóðleik-
hússins á þessum vinsæla
leik.
Sú leiksýning, sem minnsta
aðsókn hlaut, var sýning
Þjóðleikhússms í fyrra á
tveim einþáttungum: „Kvöld-
verði kardinálanna" og „Fjár-
hættuspilurunum“. Sýningarn-
ar urðu aðeins fjórar og
þunnskipaðir áhorfendabekk-
irnir þau kvöldin.
I
Drengur slasast
Á annan páskadag klukkan að
ganga 5 varð drengur, Sumar-
liði Guðbjartur Bogason, fyrir
bifreið á Suðurlandsbraut á móts
við Þvottalaugaveg. Slasaðist
drengurinn mikið á höfði og var
fluttur á slysavarðstofuna og
síðan Landakotsspítala, þar sem
hann liggur nú. Drengurinn mun
þó ekki vera lífshættúlega meidd-
ur.
Krana
og klósett-kassa
viðgerðir
Vatnsveita
Reykjavíkur
Símar 13134 og 35122
# <. í \ 'k 'wtÆ -fmt 3 &&
Barnaræningjar
Framhald af 4. síðu.
Voru í Peugeot-bil
Lögreglan hefur ' samt koniizt
að ýmsu. Ilún telur sennilegast
að ræningjarnir haldi enn kyrru
fyrir í París, jafnvel ekki langt
frá heimili Peugeot.
Fingraför hafa fundizt á bréf-
sneplinum sem ræningjarnir
skildu eftir á leikvellinum, en
þau koma ekki heim við nein
slík sem lögreglan á í safni sínu.
Lögreglan þykist viss um að
kvenmaður hafi verið í vitorði
með ræningjunum tveim og
grunar þar konu sem vann til
fkamms tíma í veiting'askála ein-
um á golfvellinum sem leikvöll-
urinn tilheyrir.
Ræningjarnir voru í b’l af
Peugeot-gerð. Slíkur bíll sást aka
með ofsahraða um götur í ná-
grenni við golfvöllinn rétt eftir
að barninu var rænt. Bíllinn var
með einkennisstöfum frá París
og númer hans endaði á 75.
Fundizt hafa íör eftjr hjólbarða
bílsins.
Þau tvö bréf sem Peugeot-
fjölskyldan fékk voru bæði skrif-
uð á sömu ritvélina. Finnist hún
myndi hún vera öruggt sönnun-
argagn.
Eric var haldið föngnum í
tveggja hæða húsi, eða a.m.k.
litlu húsi, í París eða’umhverfi.
Sjónvarpstæki var á íyrstu hæð.
Ófriður í S-Afríku
Framhald af 4. síðu.
um að finna þegar hann stóð
frammi fyrir dómara sínum.
„Við erum staðráðnir að koll-
varpa veldi hvítra manna í Suð-
ur-Afríku og í allri álfunni“,
sagði hann.
Verwoerd forsætisráðherra hef-
ur nú náð sér svo eítir banatil-
ræðið á dögunum að hann er
aftur farinn að stunda stjórnar-
störfin. Hann er þó enn rúm-
fastur, en talinn úr allri hættu.
Eins og kunnugt er hafa marg-
ir af klerkum ensku biskupa-
kirkjunnar í Suður-Afríku tek-
ið eindregna afstöðu gegn kyn-
þáttakúguninni, og einn þeirra,
Reeves biskup, hefur orðið að
flýja land. Klerkar Búakirkjunn-
ar, sem er afsprengi kalvíns-
kirkjunnar hollenzku, eru þó á
öðru mali. Þeir notuðu páskahá-
tíðina til að lýsa yfir að þeir
gætu ekki fordæmt aðgerðir
stjórnarvaldanna í landinu, því
að stefna þeirra væri rétt.
í páskaboðskap sínum sagði
Jóhannes páfi að kaþólska kirkj-
an væri andvíg allri kynþátta-
mismunun, allir menn væru
bræður í Kristi, hver svo sem
hörundslitur þeirra væri.
ElPSPÝTOR
ERU EKKI
BARNALEIKFÖNG!
Húseigendafélag
Reykjavíkur
Sumarfagnaður
sfúdenfa
verður haldinn að Hótel Borg í dag, miðvikudaginn
20. apríl og hefst kl. 8.30 e.h.
DAGSKRÁ:
1. Háskólakórinn syngur.
2. Akrobatic: Kristín Einarsdóttir
3. Skemmtiþátöur: Steiminn Bjarnadóttir.
Aðgöngumiðar verða seldir í dag kl. 9 til 12 f.h. í
skrifstofu Stúdentaráðs og kl. 3 til 7 að Hótel Borg-
Stúdentafélag Keykjavíkur
StúderJíaráð Háskólans
Átthagafélag Strandamanna
heldur
SUMARFAGNAÐ
í Skátaheimilinu föstudaginn 22. april kl. 9 e.h.
SkemnVtiatriði
Dans.
STJÓRNIN
Árnesin,gafélagið í Reykjavík
SUMARFAGNAÐUR
Árnesingafélagið í Reykjavík gengst fyrir sumar-
fagnaði í Tjarnarcafé (niðri) í kvöld 'kl. 21, síðasta
vetrardag.
Skemmtiatriði.
Dans.
Árnesingar. Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Stjórn og skemmtinefnd.
Öllurn peim mörgu, einstaklhigum og fyrir-
tœkjum nœr og fjær, sem með ýmsum hœtti
sýndu mér vinsemd og sóma á fimmtugs-
afmæli mínu 9. p.m. — pakka ég lijartanlega.
BALDVIN Þ. KRISTJÁNSSON.
Svefnsófar
1 og 2 manna
með spring dýnum
ATH. Spring dýnan er bezta svefn-
dýnan.
Húsgagnáverzhm
Austurbæjar h.f.
Skólavörðustíg 16
Sími 24-620