Þjóðviljinn - 29.04.1960, Qupperneq 10
10) — ÞJÓEWILJINN — Föstudagur 29. apríl 1960
<
X-
Athugar þarfir ISnaðarlns
fyrir rannsóknarstarfsemi
3. apríl sJ. kom hingað' til
lands sænskur verkfræðinfnjr. G.
E. Ljungberg, í boði Félags ísl.
iðnrekenda og Iðnaðarmálastofn-
unar fslands, í þeim tilgangi að
hann gerði athuganir á þörfum
iðnaðarins fyrir rannsóknar-
starfsemi. Félagsmenn ræddu við
• Ljungberg nýlega, en hann hefur
undanfarið kynnt sér opinberar
rannsóknastofnanir og rannsókn-
arstörf ýmissa fyrirtækja og að-
stæður iðnaðarins almennt.
1 sambandi við þörf iðnfyr-
irtækja fyrir sérmenntaðan
vinnukraft og rannsóknarstarf-
semi segir hr. Ljungberg m.a.
þetta:
„Rannsóknir eru starfsemi,
sem hefur mikinn kostnað í för
með sér, og með tilliti til þess,
hve þjóðin er fámenn og nátt-
úruauðæfi af skornum skammti
álít ég, að íslendingar geti ver-
ið ánægðir í þessu efni.
Það er erfðavenja á íslandi,
að veita æskunni mikla al-
menna menntun þrátt fyrir
mikinn kostnað. En á sviði
tækni. og verkfræðimenntunar
eru greinilega of fáir með sér-
þe'kkingu, sem krefst styttri
námstíma, en venjan er um is-
lenzka veAfræðinga.
Sú tilraunastarfsemi, sem ég
hefi séð virðist mér lofa góðu.
Eg álít, að hin íslenzku
fyrirtæki þarfnist fyrst og
fremst þekkingar á hinni skipu-
lagslegu hlið rekstursins, þ.e.a.
s verkskipulagningu, meðferð
hráefna og almennra athug-
ana á vinnuaðferðum.
Hinsvegar þarfnast fyrirtæk-
in almennt séð ekki rannsókn-
arstarfsemi í þessa orðs eigin-
legu merkingu.
Samvinnu við erlendar stofn-
anir eða erlend fyrirtæ'ki álít
ég mikilvæga fyrir mörg 'ís-
lenzk fyrirtæki".
Tilkynning
um lóðahreinsun í Hafnarfirði
Samkvæmt 2. kafla hei]brigðissamþykktar fyrir
Hafnarfjarðarkaupstað er lóðareigendum skylt að
halda lóðum sínum hreinum og þrifalegum.
Eigendur og umráðamenn lóða eru hér með áminntir
um að flytja burt af lóðum sínum allt er veldur
óþrifnaði og óprýði og hafa lokið því fyrir 20. maí n.k.
Hreinsunin verður þá að öðrum kosti framkvæmd
á kostnað lóðareiganda.
Af gefnu tilefni skal það tekið fram að óheimilt er
að fleygja í lækinn, höfnina innan hafnargarða,
í fjörur eða annars staðar í land bæjarins neinum
úrgangi eða rusli og er aðeins heimilt að losa slíkt
rusl þar sem sorp bæjarins er látið í sjóinn
fyrir sunnan Hellnahraun.
Hafnarfirði, 28. apríl 1960.
Heilbrigðisnefndin.
Tilkynning
um atvinnuleysisskráitingu
Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvörðun laga nr.
52 frá 9. apríl 1956, fer fram í Ráðningarstofu
Reykjavíkurbæjar, Hafnarstræti 20, dagana 2., 3. og
4. maí þ.á., og eiga hlutaðeigendur, er óska að skrá
sig samkvæmt lögunum að gefa sig fram kl. 10—12
f.h. og kl. 1—5 e.h. hina tilteknu daga,
Óskað er eftir að þeir, sem skrá sig séu viðbúnir
að svara meðal annars spurningunum:
1. Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá mánuði.
2. Um eignir og skuidir.
Reykjavík, 29. apríl 1960.
Borgarstjórinn í Keykjayik.
Útboð
Tilboð óskast í að byggja hluta aí barna-
skóla við Hamrahlíð.
Uppdrátta og skilmála má vitja í skrifstofu
vora, Traðarkotssund 6, gegn 500 kr.
skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurbæjar
Æskufólk Akraness spurði lang
mest eftir sjávarútveginum
Frá fréttaritara Þjóðviljans Akranesi.
Rotarýklúbbur Akraness gekkst fyrir starfsfræösludegi
í barnaskólanum Akranesi annan páskadag kl. 2 e.h.
undir stjórn Ólafs Gunnarssonar sálfræðings.
Ólafur Haukur Árnason
skólastjóri innleiddi starfs-
fræðsluna með ræðu og höfð-
aði til þessara vísuorða Guð-
mundar Böðvarssonar skálds
úr kvæðinu Við Hverfisteininn:
Enginn spurði hvort ég ekki
ætti aðra starfaþrá.
Þetta er í fyrsta sinn er slík-
ur starfsfræðsludagur er hald-
spurðu 67, flugmál 90, hái-
greiðslu 44, hjúkrun 57, kven-
lögreglu 34, húsgagnasmíði 40,
bifvélavirkjun 36, prentiðn 35
o.s. frv.
Að athuguðum þessum nið-
urstöðum kemur í ljós sú
glæsilega staðreynd, að æskan
virðist ekkert fráhverf okkar
aðalatvinnuvegi, sjávarútvegin-
um, ef hún fær eitthvað um
hann að vita og henni eru
gefnar leiðbeiningar þar um.
Það er hið mikla hlutverk skól-
anna og æskulýðsleiðtoganna
að glæða þennan áhuga hinnar
uppvaxandi æsku.
Að lokinni hinni eiginlegu
starfsfræðslu voru sýndar kvik-
myndir úr atvinnulífinu, síðan
voru fjögur atvinnufyrirtæki
auk Sementsverksmiðjunnar
opin almenningi og upplýsing-
ar veittar um störf þeirra.
Starfsþjónustunefnd Rótarý-
klúbbs Akraness sá um tilhög-
un alla, en formaður hennar er
Adam Þorgeirsson múrara-
meistari.
inn hér á Akranesi og mun það
almannarómur, að öll tilhögun
og fyrirgre'ðsla hafi tekizt
með ágætum. Skemmtilegur
blær hvíldi yfir allri kynning-
unni og unglingar í skólunum
sýndu háttvísi og prúðmennsku
í allri sinni framkomu.
Kynntar voru um 80 starfs-
greinar, 8 þeirra voru kynntar
af leiðbeinendum úr Reykjavik
og ein af skólastjóranum á
Hvanneyri en aðrar af Akur-
nesingum. Áhugi og aðsókn
var geysimikil og spurzt var
fyrir um allar starfsgreinarnar
en æði misjafnt. Langmestur
var áhuginn fyrir sjávarútveg-
inum, 155 leituðu upplýsinga
varðandi þá starfsgrein af 230
er sóttu starfsfræðsludaginn.
Um vélskólann og vélstjórn
Kvennadeild
SVFÍ 30 óra
í kvöld verður þess minnzt
með hófi í Sjálfstæðishúsinu að
liðin eru um þessar niundir 30 ár
frá stofnun Kvennadeildar SVFÍ
í Reykjavík, fyrstu kvennadeild-
arinnar innan samtaka Slysa-
varnafélagsins.
Kvennadeildin var stofnuð að
frumkvæði Jóns Bergsveinssonar
erindreka Slysavarnaíélagsins 28.
apríl 1930. Stoí'nendur voru 100
en nú munu félagskonur vera
um 1500 og fer alltaf fjöigandi.
Félagskonur hafa unnið ötullega
að söfnun fjár til margskonar
framkvæmda á sviði slysavarna-
mála. t.d. byggingu Sæbjargar
og skipbrottsmannaskýla, öflun-
ar björgunartækja o.fl.
Vestmannaevjar
Skógrækt ríkisins
Verð á trjáplöntum vorið 1960
SKÓGAKPLÖNTUR
Birki 3/0 pr. 1000 stk. kr. 500,00
Birki 2/2 — — — 1,000,00
S'kógarfura' 3/0 — — — — 500,00
Skógarfura 2/2 — — — — 800,00
Rauðgreni 2/2 — — — — 1.500,00
Blágreni 2/2 — — — 1.500,00
Hvítgreni 2/2 — — — — 2.000,00
Sitkagreni 2/2 — — — — 2.000,00
Sitkabastarð. 2/2 — — — — 2.000,00
GAKÐPLÖNTUR
Birki, 50—75 cm pr. stk. kr. 15,00
Birki, undir 50 cm — — — 10,00
Birki, í limgerði — — — 3,00
Reynir, yfir 75 cm — — — 25,00
Reynir, 50—75 cm — — — 15,00
Reynir, undir 50 cm — — — 10,00
Alaskaösp, 50—75 em — — — 10,00
Alaskaösp, yfir 75 cm — — — '15,00
Sitkagreni % 15,00
Sitkagreni 2/2 — — — 10,00
Sitkabastarður 2/2 — — — 10,00
Hvítgreni 2/2 — — — 10,00
'Blágreni % — — — 15,00
RUNNAR
Þingvíðir pr. stk. kr. 5,00
Gulvíðir — — — 4,00
Sólber — — — 10,00
Ribs — — — 20,00
Ýmsir runnar pr. stk. kr. 10,00—20,00
Skriflegar pantanir sendist fyrir 15. maí 1960,
Skógrækt ríkisins, Grettisgötu 8, eða skógarvörð-
unum, Daníel Kristjánssyni, Hreðavatni, Borgar-
firði; Sig. Jónassyni, Laugabrekku, Skagafirði;
Ármanni Dalmannssyni, Akureyri, ísleifi Sumar-
liðasyni, Vöglum, Fnjóskadal; Sigurði Blöndal,
Hallormsstað og Garðari Jónssyni, Tumastöðum,
Fljótshlíð. Skógræktarfélögin taka einnig á móti
pöntunum og sjá flest fyrir dreifingu þeirra til
einstaklinga á félagssvæðum sínum.
Framhald af 7. siðu.
byggja hús eins og ekkert
hefði í skorizt og hafa hald-
ið því áfram síðan. Og þvi
eiga þe;r þessa glæsilegu
byggð í dag.
Náttúrulœkingafélag
íslands tiikvnnir:
★
Bátum fjölgar því meir í
höfninni því lengra sem liður
á kvöldið. Þessi sprettur
heldur ós’.itið áfram til mið-
N
nættis. Fiskurinn hrúgast
upp á bryggjunum, hleðst
upp í viunslustöðvunum, —
fólksins þar bíður löng vinnu-
lota. Það er keppzt við að
hafa lok'ð við fiskhrúgurnar
áður en næsti afli berst á
land.
Sjómennirnir fá nú nokkurt
hlé, þar til aftur lieyrast mót-
orskellir í höfninni og stefni
er enn snúið út í myrka nótt-
ina — til hafs. Nýr vinnu-
dagur er hafinn. — J.B.
Happdrætti félagsins er í fullum gangi.
Sala happdrættismiða hafin um allt land; umboðs-
menn í bæjum og þorpum og sveitum.
Miðmn kostar kr. 25.00.
Happdrættisvinningar:
Vojkswagenbíll modei 1960 Flugfar til Ameriku og
Þýzíkalands, Ferð til Kaupmannahafnar, Ferð með
Ríkisskip kringum land, Dvöl á Heilsuhælinu í
Hveragerði.
Vinningar alls 10, að verðmæti 185.000,0.0 krónur.
Dregið verður 1. júlí n.k.
Góðir landsmenn, kaupið miðana, Styrkið Náttúru-
lækningafélagið.
Allar nánari upplýsingar hjá aðalumboðinu Austur-
stræti 12. Reykjavík. Sími 16371.
Stjórnin.