Þjóðviljinn - 05.08.1960, Blaðsíða 12
WWMM
iii
Fjölbreytt blóinasýning opnuð
í Hveragerði á morgun
Á morgun, laugardag. verður garðyrkjusýning opnuð
i Hveragerði. Sýningin verður opin nokkra næstu daga.
Tvö ár eru nú senn liðin
eíðan landbúnaðarsýning var
Iialdin á Selfossi, en eitt helzta
aðdráttarafl hennar var blóma-
sýning garðyrkjubænda, sem
vakti óskipta athygli þeirra
sem sáu.
Mikið úrval.
iFyrir sýningunni í Hvera-
gerði standa flestir blómarækt-
armenn Hveragerðis, sem þátt
tóku í landbúnaðarsýningunni
á Selfossi sumarið 1958. Verða
jþar sýnd blóm, pottaplöntur og
afskorin blóm.
Hvergerðingar munu sýna
iflestallar þær tegundir skraut-
plantna, sem nú eru á boð-
stólum eða verða á næstunni.
'Úrval plantna verður mjög
mikið, því að fjölbreytni í
folómarækt hefur aukizt ört síð-
an síðasta sýning var hald-
in.
iSýningin verður haldin í
byggingu, sem skátar í Hvera-
gerði eru að reisa við þjóðveg-
inn. Þeir garðyrkjubændur og
aðrir aðilar, sem þátþ taka í
sýningunni eru: Alaska gróðr-
arstöðin, Gunnar Björnsson,
Hannes Ásgrímsson, Ingimar
Sigurðsson, Lauritz Christian-
sen og Páll Michelsen. Allir
verða þeir með sérsýningar, en
að auki verður Sölufélag garð-
yrkjumanna þátttakandi i sýn-
ingunni: sýnir fræ, lyf og
garðyrkjuáhöld.
Eins og skýrt hefur verið
frá í fréttum blaðsins, kom
nýr bátur til Rifs á Snæ-
Fellsnesi s.l. laugardag. Bát-
urinn heitir Arnkell SH 100,
1.15 brúttólesta, smíðaður úr
eik í Noregi. I>etta er liið
myndarle.gasta skip, búið
fullkomnum tækjum. Aflvél-
in 300 ha. Vickinann og
reyndist ganghraði í reynslu-
för 10,5 sjómílur. Arnkell
hélt þegar til síldveiða fyrir
Norður- og Austurlandi, en
skipstjóri er Leifur Jónsson.
— Myndin var tekin þegar
vb. Arnkell kom til landsins
um helgina. Ljósm. Jón Ing.
Ekkert frétfisf af bcnt'a-
rísku duimálsfrœðingunum
Ekkert fríCtist af þeim
tveimur starfsmönnum banda-
ríska landvarnar.áðuneytisins
sem komu ekki heim úr sumar
leyfi sínu.
Nóg af nýjum og feitum
fiski næstu tvo mánuði
Húmæður í Reykjaví'k fagna
því áreiðanlega að fá nýjan og
feitan fisk í soðið, en það hef-
ur verið furðulega erfitt að ná
i góðan fisk undanfarið.
Þjóðviljinn snéri sér í gær
til Steingr'ims Magnússonar,
forstjóra Fiskhallarinnar og
spurðist fyrir um hvort ekki
væri kominn góður og nægur
fiskur á markaðinn þar sem
■dragnótabátar öfluðu vel.
iSteingrímur sagði: Það ætti
að vera nógur fiskur á boðstól-
um í þessa tvo mánuði. Við
fengum ýsu og rauðsprettu
(skarkola) í gær og þetta er
feitur og góður fiskur, mun
feitari en sá sem tekur á færi.
Undanfarið hefur verið afskap-
lega lítið um fisk á þessum árs-
fíma. I fyrra byrjuðu netabát-
ar um 10. ágúst, en sá fiskur
var ekki eins góður og drag-
mótafiskurinn, því dragnótabát-
arnir fara út að kvöldi og koma
aftur inn að morgni með fisk-
inn. Þeir mega a.m.k. ekki vera
lengur úti en 30 tíma.
Verðið á kg. af rauðsprettu
er kr. 9,40 út úr búð og ýsan
er seld á hámarksverði sem er
kr. 2,90, slægð með haus og
3,40 hausuð.
Það er nú talið alveg víst
að Bandaríkjamennirnir, Bern-
on Mitchell, 31 árs, og Wiili-
am Martin, 29 ára, hafi farð
til Kúbu frá Mexíkó, en þang-
að hefur slóð þeirra verið rak-
in. Talsmaður bandaríska
landvarnaráðuneytisins sagði í
gær að vel mætti vera að þeir
væru ekki lengur í Vestur-
heimi, en vildi þó ekkert full-
yrða um það.
Mitchell og Martin, sem
nefndir eru „stærðfræðingar“,
störfuðu báðir í þerri deild
ráðuneytisins sem nefnist
Þjóðaröryggistofnun og er
haldið fram að þeir hafi unnið
i dulmálslykladeild hennar.
þiðmnuiNN
Föstudagur 5. ágúst 1960 — 25. árgangur — 171. tölublað.
Þjóðhátíðin s Vesfmanna-
eyjum hefst í kvöld
Þjóðhátíð Vestmannaeyja hefst í Herjólfsdal kl 13,30
á, morgun, föstudag. Er fjöldi kominn til Eyja til að vera
við hátíðahöldin.
Þjóðhátíðin hefst með leik
Lúðrasveitar Vestmannaeyja
undir stjórn Oddgeirs Krist-
jánssonar. Sveinn Ársælsson
setur hátíðina, en auk þess er
á dagskrá fyrsta mótsdaginn
guðsþjónusta, söngur kirkju-
kórs Vestmannaeyja undir
stjórn Guðjóns Pálssonar, fim-
leikasýning, akróbatík, ræða
Guðlaugs Gíslasonar alþingis-
manns, einsöngur, barnaball,
handboltakappleikur, bjargsig
og ýmsir skemmtiþættir. Einnig
verður dans, flugeldasýning og
brenna.
Á laugardag er svipuð dag-
skrá. Ræðumenn verða þá
Stefán Árnason ýfirlögreglu-
þjónn og Riohard Beck prófess-
or.
Eins og fyrr var sagt er kom
inn til Vestmannaeyja mikill
fjöldi manna til að vera við
hátíðahöldin. Veðurútlit er
gott.
Fullf samkomulag m
Fullt samkomulag tókst á ráð-
stefnunni sem staðið liefur untl-
anfarna tíu daga í London um
nýja stjórnarskrá handa Njasa-
lenclingum.
Stjórnarskráruppkastið hafði
ekki verið birt í heild i gær-
kvöld, en kunnugt var þó um
eitt meginatriði þess: Hin nýja
lög'g'jai'arsamkun'da landsins
verður nú skipuð 33 fulitrúum
og ai þeim verða 20 Afríkumenn.
Hingað til haia aðeins 7 Af-
rikumenn átt rétt á sæti á sam-
kundunni sem skipuð hefur ver-
ið 27 fulltrúum, en Afrikumenn
í landinu eru um 300 sinnum
fleiri en Evrópumenn.
Kína viðurkennir
Nígerlýðveldið
Stjórn Kína hefur viðurkennt
stjórn hins nýstofnaða Afríku-
lýðveldis Níger, sem áður var
nýlenda Frakka..
X gær kom fil Accra, höfuð-
borgar Ghana, hópur starfs-
manna utanríkisráðuneytis
Kína, en kínverskur sendi-
herra er væntanlegur þangað
um mánaðamótin. Ghana er
annað Afríkulýðveldið sem
tekur upp stjórnmálasamband
við Kína. Hitt er Gínea.
Fjölsóttur, einhuga
andstæðinga á Ólafsfir
Fundur herstöövaandstæðinga á Ólafsfiröi í fyrrákvöld
var fjölmennur og sótti hann fólk úr öllum stjórnmála-
flokkum.
hersföðva
Dr. Hastings Banda, leiðtogi
Njasaiendinga, sagði í gær að
enda þótt hann hefði ekki komið
fram öllum kröfum sínum væri
hann ángegður með niðurstöðuna
og sannfærður um að þjóð hans
myndi fallast á hana.
X-15 setti nýtt
hraðamet í gær
Bandarísk flugvél af gerð-
inni X-15 setti í gær nýtt hraða-
met, komst upp í 3,450 km.
á klst., en það er meira en
þrisvar sinnum hraði hljóðs-
Fundarstjóri var Björn Stef-
ánsson kennari, en málshef jend.
ur Magnús Kjartansson rit-
stjóri, Valborg Bentsdóttir
skrifstofustjóri og Hlöðver Sig-
urðsson skólastjóri, sem talaði
í forföllum Hjalta Haraldsson-
ar. Auk frummælenda tóku til
máls Magnús Magnússon og
Björn Stefánsson.Var máli
ræðumenna ágætlega tekið.
Á fundinum var kosin nefnd
til að undirbúa .stofnun hér-
aðsnefndar herstöðvaandstæð-
inga í Ólafsfirði. I nefndina
voru kjörin: Halldór Kristins-
son, Björn Stefánsson, Sigur-
steinn Magnússon, Ingvi Guð-
mundsson, Kristinn Sigurðsson,
Sumarrós Helgadóttir og Sig-
riður Kristinsdóttir.
Fleiri fnndir norðan
lands og austan.
f gærkvöld voru haldnir
ifundir á Akureyri og Egilsstöð-
um. Frummælendur á Egils-
stöðum voru, auk þeirra sem
áður hefur verið getið í frétt-
um blaðsins, þeir séra Björn
Ó. Björnsson og Sævar Sig-
bjarnarson.
f kyöld verður fundur á
HúsaVik og frummælendur þar
þau Valborg Bentsdóttir, Magn-
ús Kjartansson og Ingvi
Tryggvason.
Krústjoff svarar
bréfi Macmillans
Sendiherra Sovétríkjanna í
London aflienti I gær svar
Krústjoffs við orðsendingu
Macmillans. Svarið hefur ekki
verið birt, en það er langt, 15
síður.
Þriðja kreppan
að skella á?
Walter Reuther, varaforseti
bandaríska alþýðusambands-
ins, ræddi í gær við Kennedy,
frambjóðanda' demókrata í
forsetakosningunum. Hann Ihét
honum fullum stuðningi, ^enda
væri nú svo ‘komið að þriðja
kreppan í stjórnartíð Eisen-
howers væri í uppsiglingu.
Benti hann í því sambandi á
að óvenjumikið atvinnuleysi
hefði verið i Bandaríkjunum í
júlí.
Leiðrétting
Orð féllu niður úr upphafi
forsíðugreinar Þjóðviljans í gær.
Rétt er setningin þannig:
„Meginstoðir i viðreisn rikis-
stjórnarinnar voru lán þau sem
hún tók hjá Evrópusjóðnum í
Paris og Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
uni í Washington.“