Þjóðviljinn - 13.09.1960, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 13. september 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Útisamkoma herstöðva-
andstæöinga á Þingvöllum
síðast liðinn laugardag
mun seint líða úr minni
þeirra þúsunda, sem hana
sóttu þrátt í'yrir.'hiö óhag-
stæða veður. Þúsundirnar
vom mættar á hinum
fornhelga sögustað til að
tjá stuöning sinn við bar-
áttu þá, sem nýstofnuð
landssamtök herstöðvaand-
stæðinga hafa nú hafið
fyrir brottför hins erlenda
herliðs og hlutleysi og frið-
lýsingu íslands — og sá
stuðningur var alger og
eindreginn.
Þó að þúsundir hafi ekki
látið regn og rok aítra sér ■ frá
Þingvallaför á laugardaginn;
er vitað að haustro :inn hefur
dregið ferðakjark úr fjölmörg-
um sem eila hefðu sótt útisam-
komuna. Aðíaranótt laugar-
dags var hið versta veður
sunnan rok og rigningarhryðj-
ur. og hélst sama veðurlag
íram eftir morgninum. Veður-
útlit var því langt frá því
glæsilegt.
Rigning — kaldi
En er leið að hádegi tók
heldur að lægja, þó enn væri
sunnanáttin snörp og regn-
skúrir öðru hvoru. Veður var
milt og gætti rigningar lítið
í upphafi útisamkomunnar, en
þegar seig á seinnihluta henn-
ar gerði nokkrar hellidembur
og uppúr því var að heita má
uppstyttulaus rigning til í'und-
arloka. Ekki létu fundarmenn
rigninguna þó á sig iá, enda
höfðu allir búið sig vel að
heiman, margir voru úlpu-
klæddir, aðrir búnir regn-
kápum og hlífðarfötum, marg-
ar konur með regnhl'íar.
Mikill bílaíjöldi
Framkvæmdaráð Þingvalla-
íundar hafði skipulagt ferðir
í langferðabíium frá Reykja-
vík til Þingvalla og heim aft-
ur á laugardaginn. Notfærðu
fjölmargir sér þessar ferðir. en
einnig' sóttu menn hundruðum
saman til fundarins á smærri
bílum.
Langferðabílarnir tóku að
streyma til Þingvalla uppúr kl.
eitt og síðan mátti heita að
b.lastraumurinn úr bænum
austur væri stanzlaus. Úr
Kópavogi og I-Iafnarfirði komu
einnig stórir hópferðabílar,
því að héraðsnefndir hernáms-
andstæðinga á þessum stöðum
höfðu undirbúið ferðir þaðan
til Þingvalla. Er útisamkoman
hófst' mátti sjá geysimikinn
fjölda bifreiða af öllum stærð-
um við þjóðveginn oían við
Almannagjá, austan við sam-
komusvæðið.
Samkomusvæðið
Samkomusvæðið var sem
fyrr segir á vesturbakka Al-
mannagjár, spölkorn frá veg-
inum. Var mjög skemmtilega
frá bví gengið. Ræðupalli hafði
verið komið fyrir á eystri
bakka stórrar hraunkvosar og
fánastöngum raðað sitt hvor-
um megin, en í hálfhring þar
út frá vöru upp sett öll sýslu-
merki landsins. Setti þetta eft-
irminnilegan svip á skeifu-
myndað samkomusvæðið jgfn-
framt því að afmarka það.
Þrír ungir myndlistarmenn
sáu um uppsetningu sýslu-
vnerkjanna og máluðu þau,
þeir Steindór Sigurðsson. Jó-
hannes Jóhannesson og Kjart-
an Guðjónsson. Vakti verk
þeirra og handbragð mikla at-
hygli samkomugestanna, að
verðleikum.
Almennur söngur
Auglýst hafði verið að úti-
samkoman á Þingvöllum yrði
■sett kl. 3 síðdegis, en vegna
þess að nokkuð dróst að full-
trúafundinum í Valhöll lyki,
hófst samkoman ekki fyrr en
um hálf fjögur leytið. Lúðra-
sveit verkalýðsins, ásamt
nokkrum blásurum úr Vest-
mannaeyjum og' írá Sigluíirði,
lék í upphafi þrjú ættjarðar-
lög undir stjórn Sigursveins D.
Kristinssonar, en síðan sungu
allir samkomugestir lagið „Öx-
ar við ána“ og var hraustiega
tekið undir sönginn.
Þórarinn bóndi Haraldsson í
. Laufási setti útisamkomuna
þessu næ:.t með stuttu ávarpi,
,en. síðan kynnti hann einstök
'Sf-. fl ' ,V-'
'dagskráratriði. Bað hann menn
í upphafi að syngja lagið „ís-
land ögrum skorið“, en síðan
gaf hann Sverri Kristjánssyni
sagnfræðingi orðið. Er ræða
Sverris birt á öðrum stað í
blaðinu í dag'.
Ávarp í ljóðum
Að ræðu Sverris Kristjáns-
sonar lokinni söng Alþýðukór-
inn „Hver á sér fegra föður-
land?“ lag Emils Thoroddsens
við ljóð Huldu, undir stjórn
Sigursveins, og Þorsteinn Ö.
Stephensen leikari las kvæði
Einars Benediktssonar „Á Þing-
völlum 1895“.
Ávörp voru flutt. Guðmund-
ur Ingi Kristjánsson bóndi og
skáld á Kirkjubóli flutti ávarp
í bundnu máli frá Vesturlandi,
og' Sigurður Blöndal skógarvörð-
ur á Hallormsstað flutti ávarp
frá Austfjörðum.
Kvæðalestur
Nú söng Alþýðukórinn lag'
söngstjórans við kvæðið
,,Fylgd“ eftir Guðmund Böðy-
arsson. Einsöng söng Einar
Sturluson. Þá. las Kristín Anna
Þórarinsdóttir leikkona kvæðið
„Hvað teíur þig bróðir?“ eftir
Jakobínu Sigurðardóttur.
Enn voru tvö ávörp flutt.
Hjörtur Eldjárn Þórarinsson,
bóndi á Tjörn í Svarfaðardal,
í'lutti ávarp frá Norðurlandi, og
Sigríður Árnadóttir húsfreyja
í Arnarbæli. Grímsnesi, flutti
ávarp frá Suðurlandi.
Skeyti til íundarins
Að loknum flutningi ávarp-
anna söng Alþýðukórinn enn
eitt lag og Björn Th. Björns-
son listfræðingur las upp
skeyti, sem borizt höfðu Þing-
vallafundi. Voru þetta hvatn-
ingarskeyti og baráttukveðjur
írá ýmsurn félagasamtökum, m.
a. Sameiningarilokki alþýðu —
Sósíalistaflokknum og Æsku-
lýðsfylkingunni, sambandi
ungra sósíalista, starfshópum
og einstaklingum.
Ávarpi íagnað
Gils Guðmundsson rithöfund-
ur flutti þessu n.æst. ræðu, en
síðan las Guðni Jónsson próí-
essor upp ávarp fulltrúafund-
arins i Valhöll til íslendinga
og tóku fundarmenn kröítug-
lega undir með lóíataki.
Enn var almennur söngur
við undirleik iúðrasveitarinn-
ar og nú sungið lag Þórarins
Guðmundssonar við ljóð Jó-
hannesar úr Kötlum: „Land
míns föður landið mitt“.
Samkomulok
Á3ur en Þcrarinn Haralds-
son i Laufási sleit útisamkom-
unni um klukkan hálí sex
skýrði Guðgeir jónsson bók-
bindari frá ákvörðun fram-
kvæmdaráðs Þingvallafundar
um útifund í Reykjavík kvöld-
ið eftir.
Þórarinn þakkaði mönnum
síðan kornuna og sleit útisam-
komunni með nokkrum hvatn-
ingarorðum. Kvað hann það
von fundarmanna að sá bjarti
dagur. er fullur sigur fengist
í baráttumáli samtaka her-
stöðvaandstæðinga, væri ekki
langt undan. Lauk svo útisam-
komunni.
Myndirnar
Efri myndin liér á síð-
unni er tekin frá ræðu-
palli á samkomusvæðinu
og' sir yfir lítinn hluta
fundarmanna, þeirra sem
’.ægst stóðu í hraunkvos-
inni og sjást því ekki á
forsíðumyndinni. — Neðri
myndin: Hluti sainkomu-
gesta, sem stóðu norðvest-
ur frá ræðupalli. í baksýn
mynda sýslumerkin um-
gjörð samkomur.væðisins.
Ljósmyndirnar tók Ari
Káráson, ljósm. Þjcðvilj-
ans.