Þjóðviljinn - 16.09.1960, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 16. september 1960
Gamla bíó
FORBOÐNA PLÁNETAN
(The Forbidden Pianet)
Amerísk mynd frá M.G.M.
Walter Pidgeon,
Anne Francis
Lesiie Nieisen,
Warren Stevens.
Special Effects: Gillespie,
Newcombe, Irving G. Ries
og Joshua Meador.
Kvikmyndun; G. J. Folsey.
Leikítj.: Fred McLeod
Wilcox.
Undanfarin ár hafa nokkuð
margar af þessum nútíma-
fantasíum kvikmyndafélaganna
verið sýndar hér heima og
ailflestar við frekar lélegar
undirtektir. Er það að mörgu
leyti svolítið furðulegt, því vel
mætti halda að við fylgdumst
sæmilega vel með tækni nú-
tímans, að minnsta kosti virð-
umst við haía haft nokkurn á-
huga f.yrir þeim máium og eru
b=ð þá ekki nema eðlileg við-
brögð nútíma þjóðar.
Margir af þeim sem þessar
myndir sjá, fussa og sveia og
telja sig langt yfir það hafna
að sjá svona ,,endemis vit-
leysu“, eins og þeir kalla það.
Monn virðast gieyma því nokk-
uð fliótt, að það var einnig
fussað og sveiað hér áður fyrr,
þegar sú tækni sem okkur
finn t sjálfsögð nú til dags, var
fyrst að þróast svo nokkru
næmi. Menn virðast einnig
gleyma því, að þetta eru ein-^
ungis fantasíur, svolitlar hug-
dettur um ókomna framtíð,
sem einungis heimskingjar
}jora að andmæla. Við erum
komin ó það stig tækninnar,
að það er eins gott fyrir okk-
ur að segja sem minnst þegar
að einhverjum tilgátum er
skeilt framan í okkur. hvað vit-
lausar sem okkur finnst þær
vera.
Svo er enn ein vitleysan, sem
við gerum varðandi þessar
myndir, mörg okkar einblína
eins og fáráðlingar á efni
myndanna og dæma myndina
VIÐTÆKJASALA
BUÐIN
VELTUSUNDI 1.
Sími 19800
I) A M A S K —
Sængurveraefni
Lakaléreft
Flauel
Léreft
Ilvít og mislit
ULLAK-VATTTEPPI
eítir því, en hlaupa gersam-
lega fram hjá þeirri tækni sem
þessar myndir hafa upp á að
bjóða og sýna okkur um leið
hvað menn eru þó komnir á
því sviði. Þessi mynd t.d. er
eitt það vandaðasta og bezt
gerða á því sviði sem sézt
hefur. Það er allt svo fágað og
vandað að furðu vekur. Litirn-
ir, hljómarnir, þó maður tali
nú ekki um Special Effects,
eða tæknilega effekta, sem eru
framúrskarandi, svo ekki sé
meira sagt. Getið þið í raun-
inni ímyndað ykkur hvernig
þetta er alltsaman gert? Vafa-
laust ekki, en ef þið eruð eft-
irtektarsöm þá getið þið séð
einungis einu sinni eítt af
brögðum þeirra sem er ekki
nægilega gott, miðað við annað
í myndinni. Þetta tæknilega at-
riði er senan með Francis og
tígrLdýrinu, þegar að hún
klappar því. Eitt augnablik má
sjá að Fráncis klappar aldrei
neinu tígrisdýri (hefur eins
líklega aldrei séð þetta tígris-
dýr og þá ekki það hana held-
ur) heldur eru tvær tökur
skeyttar sáman, bragð sem nú
orðið þykir ekkert sérstakt og
er í rauninni lítilfjörlegt mið-
að við margt annað í myndinni.
Það er óþarfi að ræða
meira um þessa mynd, en allir
þeir sem hafa áhuga fyrir
kvikmyndum og. tækniþróun
þeirra ættu að sjá hana, því
hún er vissulega þess virði.
SÁ
Réttarhöldin á Sey ðisfirði
Framhald af 1. síðu.
vörzlu bæjarfógetans og lög-
regluvörður settur um börð.
Rétfur settur
Klukkan 4 síðd. í dag var
réttur settur í skrifstofu bæj-
arfógeta. Mættir voru í réttin-
um Guðmundur Kjærnesteð
skipstjóri á gæzluflugvélinni
Rán sem ákærandi, auk
Ásgeirs Þorsteinssonar flug-
stjóra og Erlings Magnús-
sonar stýrim. Perey Allen Bed-
ford skipstjóri á Wire Mariner
og verjendur ihans Gísli G.
Isleifsson héraðsdómslögmaður
og Brian Holt frá brezka sendi-
ráðinu. Einnig fulltrúi eigenda
togarans, Geir Zoega yngri.
■Lesin var kæra frá gæzlu-
flugvélinni Rán um brot á 12
mílna landhelginni og lögð fram
skjöl og mælingar þess efnis
að toaarinn hefði verið að veið-
um á t'imabilinu kl. 13,17—13,45
frá 8—10.6 sjómílur suður af
Hvalbak Þann tíma hefði flug-
vélin marggefið togaranum
stöðvunarmerki.
Lýsti vantrausti á mæl-
ingar flugvéla
Skipstjóri togarans var þvi-
næst tekinn til yfirheyrslu.
Aðspurður um réttmæti kær-
unnar vildi hann ekkert seg.ia,
kvaðst bera ótakmarkaða virð-
ingu fyrir mælingum varðskipa,
en lýsti vantrausti sínu á mæl-
ingum flugvéla, Lagði hann
fram dagbók skipsins og sið-
asta færsla í henni 7. júlí s.l.
er kl. 1.50 (13.50) og var tog-
arinn þá staðsettur á 100
faðma dýpi, sem er ca. 10—12
mílur fyrir utan landhelgi á
ÖLL
RAFVERK
Vigfús Einarsson
SÍMI 18393.
Nýlendugötu 19. B.
WUÍWJIÐ RAFþRAÞl-
FARIP miLEÓ'A MED
RAFIÆK!!
Húseigendafélag
Reykjavíkur
Hvalbaksmiðum. Var hann þá
að koma að heiman og h.efja
veiðar. Síðan er dagbókin ékki
færð fyrr en á heimleið. Segir
skipstjórinn að enskum sjó-
mönnum iberi ekki að færa dag-
bók nema á stími. Aðspurður
neitaði hann að hafa nokkurn-
tíma s.l. 3 mánuði verið inn-
an 12 miílna og taldi sig viss-
an um þetta, þar eð hann hefði
bæði amerískan lóran og decea-
radar með 45 milna sjónsviði.
Til að undirstrika traust sitt
sem skipstjóra kvaðst hann
hafa farmannapróf og vera
yfirskipstjóri útgerðarinnar.
Hann kvaðst hafa verið skip-
stjóri hér við land i 27 ár, að-
allega á svæðinu frá Vest-
mannaeyjum til Langaness.
Heldur láíið togar-
ann sökkva-
Togaraskipstjórinn kvaðst
ekkert muna frá þessum á-
kveðna degi(!) segist oft hafa
séð landhelgisflugvélina, en hún
aldrei gefið ihonum merki,
hvorki fyrr né s'iðar. Skipstjór-
inn kvaðst hafa lagt af stað
með Lord Lloyds í togi til
Færeyja en séð eftir klst. stím
að hann yrði sokkinn áður en
hann kæmist alla leið. Hafði
hann samband við lierskipið
Saints er ráðlagði honum að
fara hingað til Seyðisfjarðar.
Gat hann iþess, að ef hann
hofði haft nokkurn grun um að
■fyrir lægi kæra á sig hér hefði
hann aldrei komið hingað held-
ur látið togarann sökkva.
Keyndu að ná sam-
bandi í 3 tíma
Næstur var kvaddur í rétt-
inn Guðmundur Kærnested
skipstjóri. Lýsti hann meintu
landhelgisbroti í samræmi við
iþað sem fram hafði komið i
ákærunni, sagði mælingarnar
gerðar með segulgíró og rad-
ar og framkvæmdar af sér
sjálfum, Erlingi Magnússyni 1.
stýrimanni, Garðari Jónssyni
loftskeytamanni og Ásgeiri
Góð prjónavél
Til sölu góð prjónavél. — Upplýsingar
í síma 36422..
Þorleifssyni flugstjóra. Þeir
réyndu að bafa samband við
tögarahn eftir mælinguriá með
rakettum og ljóskúlum af og
til í 3 tírna, svo og með alþjóða
mors-ljósmerkjum og talstöð.
Sem dæmi um merkjagjöf má
nefna að skotið var á tímaibil-
inu kl. 13,43—13,55 sjö Ijós-
kúlum, og tók hann það fram
1 að það væri dauður maður sem
ékki yrði slíkra merkja var og
nafndi sem dæmi að sjómenn-
irnir brygðu oft fískkörfum yf-
ir ihöfuð sér þegar slíkjum
merkjum væri skotið, svo harla
ólíklegt væri að þeir tækju ekki
eftir þeim!
Kvað ihann áhöfn skipsins
liafa verið að veiðum umrædd-
an tíma, bæði tekið inn troll
og kastað.
Lengra var réttarlialdinu
ekki komið þegar því var frest-
að. Aðspurður kvaðst skipstjóri
landhelgisbrjótsins ekki óska
eftir að réttarhöldunum væri
hraðað.
Dóminn skipa Erlendur
Björnssoo bæjarfógeti og sýslu-
maður og meðdómendur eru
’ Sveinlaugur iHelgason og Guð-
[lausrur Jónsson. Réttartúlkur
jer Már Ingólfsson.
| Verðhækkanir
' Framhald af 1. síðu.
Hækkunin er kr. 7,40 eða
15,4%.
Súpukjöt liækkar úr kr. 18,90
kílóið í kr. 22,00. Hækkunin er
kr. 3.20 eða 16,5%.
Heil læri liækka úr kr. 22,25
kílóið i kr. 25,30. Hækkunin er
kr. 3,05 eða 13,7%.
Iíótelettur hækka úr kr. 24,90
k'ílóið í kr. 27,95. Hækkunin er
kr. 3,05 eða 12,2%.
Lifur hækkar úr kr. 30,08
kílóið í kr. 33,80. Hækkunin er
kr. 3,72 eða 12,4%. Á móti
þessum lið kemur að verð á
nýrum og hjörtum er lækkað,
til þess að auka eftirspum, úr
kr. 28,94 kílóið í kr. 26,20.
Lækkunin á þeim vörum nemur
þannig kr. 2,74 á kíló eða
9,5%.
Slátur með sviðnum haus
hækkar úr kr. 32,29 stykkið í
kr. 34,30. Hækkunin nemur
kr. 2,01 eða um 6,2%.
Svjðnir liausar liækka úr kr.
19,88 kílóið í kr. 21,10. Hækk-
unin er kr. 1,22 eða 6,2%.
Kartöfluverð helzt óbreytt
vegna aukinna niðurgreiðslna.
T ft©fl ~t/ÍMM44fÖt (tezt
Þórður
sjóari
Hvaðan kom þessi rödd? Nei, það gat þó aldrei
verið. .. . Þórður leit á tækið, sem hann hafði sett
upp í bátnum .... þaðan kom röddin. Röddin kom
aiftur: „Þórður skipstjóri, ég er í mikiili hættu. Fisk-
amir sækja að ókkur. Bjargið okkur, en svikið okk-
ur ekki. Við erum á eyjunni Pampus, hér rétt hjá“.
„Nú fer ég að skilja ýmislegt", sagði Þórður. „Þetta
er Lupardi. Hann hefur heyrt allt sem við höfum
sagt hér um borð!“ Þau stóðu bæði furðu lostin og
ringluð. Ofan á allt annað sáu þau hvar lögreglu-
bátur kom þjótandi í áttina til þeirra.