Þjóðviljinn - 11.02.1961, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 11.02.1961, Blaðsíða 6
jfC) '— ÞJÓÐVILJTNN'— Laugðrdagur .11. febrúar 1961 Laugardaírur 11. ít'brúai- 1961 W ÞJÖÐVILJINN *— (T ^^áæ:Sjffi53Si5SM!SSasiS5i!Snil TT 1 ÞlðÐVIUINN! •Síl ÚtKeíandl: SamelnlngarflokKur aiþýðu - SÓBlallstaflokkurlnn, — Rltstjórar: Magnús KJartansson (áb.), Magnús Torfi ólafsson. Slg- uröur Quömundsson. — Fréttaritstjórar: ívar H. Jónsson, Jón BJarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir Magrússon. — Rltstjórn. afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiÖJa Skólavörðustíg 19. Síml 17-500 (5 linur). - Askriftarverð kr. 45 á mán. - Lausasöluv. kr 3.00. Prentsmiðja Þjóðvil.iane. Vaxtaokur viðreisnar- innar er staðreynd llerðbólgubraskarar Sjálfstæðisfltíkksins láta nú " öllum látum í Morgunblaðinu nema góðum, ýegna þess að Þjóðviljinn hefur undanfarna daga bent á hverjir það eru sem vilja verðbólgrma og hafa hag af henni og hafa valdið henni á undan- förnum áratugum. Þjóðsagan og blekkingin að kauphækkanir verkafólks séu orsök verðbólgunn- ar á íslandi er ekki tekin alvarlega lengur. Þá blekkingu og staðleysu hefur Morgunblaðið tugg ið ntíkkur hundruð ef ekki þúsund sinnum, og getur nú senn hætt alveg að prenta hana upp, því áhrif hennar eru að verða nákvæmlega engin. Hvað eftir annað hefur verið sannað, að kaup- hækkanir verkamanna hafa komið eftir að dýrtíð- arflóðinu hafði verið veitt vfir, þær eru því afleið- ing verðbólgunnar en'ekki orsök hennar. Þetta er staðreynd sem ekki breytist þó Morgunblaðið birti áróðurstugguna eitt þúsund sinnum enn. f^érstaklega virðist það þó hafa komið við hjart- ^ að í verðbólgubröskurum stjórnarflokkanna þegar á það hefur verið bent, hve viðreisnarróð- stafanirnar hafa velt dýrtíð og erfiðleikum yfir þjóðina. Fyrir nokkrum dögum var Gylfi Þ. Gíslason sendur í umræður á Alþingi til að „sanna“ að vaxtaokur Sjáifstæðisflokksins og Al- þýðuflokksins hefði varla komið neitt við út- gerðarfyrirtæki eða fiskiðnaðarfyrirtæki. Hver þingmaðurinn eftir annan — menn sem gerþékkja atvinnulífið á íslandi — kom á eftir og sannaði ráðherranum það með skýrum tölum, hve stór- kostleg áhrif einmitt vaxtahækkunin hefur haft á rekstur fyrirtækja útvegs og fiskiðnaðar. Lúð- vík Jósepsson ,bauð ráðherranum að útvega hon- um reilkninga tiltekins fiskvinnslufyrirtækis, til að sannreyna áhrif okurvaxtanna á rekstur slíks fyrirtækis, og var ekki revnt að hrekja þær upp- lýsingar sem hann gaf um þetta efni. T því tiltekna fyrirtæki voru allar vinnulauna- greiðslur árið 1959 3.3 milljónir króna. moldviðrið. — s. ují ur Vaxtagreiðslurnar í þessu fvrirtæki voru árið 1959 rétt innan við eina milljón kr. Reiknaðir voru út vextir sem yrðu hiá fyrirtækinu við sams konar rekstur árið 1980 eftir nýja vaxta- kerfinu, og var vaxta-hækkunin um 720 þúsund krónur. Vaxtahaékkunin nam því 22% af öllum vinnulaunagreiðslum þessa frvstihúss. Frá því hefur einnig verið skýrt á Alþingi að ú aðal- fundi Landssambands íslenzkra útvegsmanna hafi tveir alkunnir útvegsmenn og jafnþekktir Sjálfstæðismenn, Ólafur Jónsson í Sandgerði og Finnbogi Guðmundsson úr Gerðum gert ná- kvæma grein fyrir áhrifum vaxtahækkunarinn- ar á tiltekinn rekstur í þeirra fiskiðnaði. Töldu þeir að vaxtahækkunin hefði numið heldur hærri upphæð en tilgreind var í dæminu hér að framan. Á Albinei trevstu hvorki ráðherrar né aðrir þingmenn stjórnarliðsins sér til að vefengja þessar tölur um áhrif vaxtaokursins. Hins vegar eru þeir sem skrifa í Morgunblaðið látnir halda því fram dag eftir dag að það sé fjarstæða að vaxtaokur ríkisstjórnarinnar valdi slíkum trufl- unum og tilkostnaði, og • Mog^a er trúandi til að endurtaka þetta þrjú hundruð sinnum eða svo. í þeirri von að einhver taki mark á því að lokum. En staðreyndir eru harðar að stangast við, það mu.n ríkisstjórnin finna gegnum allt áróðurs- Á s.l. sumri heyrði ég menn vera að gamna sér við lýsingar á útgerð eins síld- arbátsins. Það hvarflaði ekki að mér annað en sögur þess- ar væru verk mikiís meist- ara í lygasagnagerð, slíkt gæti ekki gerzt árið 1960. Svo var það eitt. sinn í janú- ar s.l. að ég átti góðar stundir með sjómönnum n'ðri í bát þeirra. Stýrimað- urinn Reynharð Sigurðsson, sem er ungur maður, rabbaði við mig um ferðir sínar, en hann er einn þeirra er flakk- að hefur um öll heimsins ihöf. Þar kom að ég spurði hann um s.l. sumar. ,,Á síld“.. „Og græddirðu mik- ið?“ „Nei, við fiskuðum ekkert.“ „Hvernig stóð á þvi ?“ Og þá sagði hann mér frá úthaldinu — og ég stóð frammi fyrir því að sög- umar er ég heyrði s.l. sum- ar höfðu alls ekki verið lvgi, — Það er víst betra að rengia ekki fregnir af út- gerð á islandi f'rrr en sann- revnt er að þær séu stað- leysa. 'Fvrri hlutinn af frá- sögn stýrimannsins af æfin- týri sumarsins fbr hér á eft- ir Vonandi er að lesendur Þjóðviljans sjái einhvem- tima síðar örlitið um heims- flakk Reyn'hards Sigurðs- sonar. J. B. Seint um kvöld kom kost- urinri um borð. Fullhlaðinn stór sendiferðabíll. r Mér leizt ekki á blikuna og spurði btt'- stjórann hvort hann væri ekki að villast, þetta hlass hlyti að eiga að fara sem flutningr.r um borð í Skjaldbreið. — Nei, nei“, sagði 'bíl- etjórinn, ég er með nóturnar, og þær eru allar stilaðar á Stel’.u.“ — Okkur reiknaðist þetta eitthvað á milli 12 og 14 þúsund kr. í matvörum. Lítið var um matargeymslur í Stellu, en við reyndum að hola þessu hingað og þangað um skipið, þar á meðal í fataskápana. Kokkurinn kom um borð kvöldið sem við fór- um af stað norður. Kokkurinn reyndist. vera tengdamóðir skipstjórans; gömul kona sem búin var að vera veik í þrjá mánuði og var ekki orðin heilbrigð þegar ‘hún kom um borð. Hún hvarf í land þeg- ar við komum til Siglufjarð- ar. kennilegt; en hugsaði svo- ekki frekar um það. Þannig gekk þetta alla leið til Siglufjarð- ar: þegar skipstjórinn breytti ■ um stefnu munaði alltaf miklu við þá stefnu sem ég :; fékk út, úr kortinu — og far- ið var eftir. Þegar við komum til Siglu- fjarðar cg ætluðum að leggj- ast að bryggju, kom bak- borðskinnungur skipsins að bryggjunni, en afturendinn var eina fimm m. frá henni. 35g setti „spring" upp að framan og reyndi skipstjórinn að keyra í springinn til að koma skipinu að, — en allt- af breikkaði bttið að aftan, milli skips og bryggju, vegna þess að skipstjórinn hafði stýrið í bakborða. Þegar ég sá að hann ætlaði ekki að koma skipinu að bryggjunni, kallaði ég til hans að snúa stýrinu í stjórnborða. Hann gerði það, og loksins komst afturendi bátsins að bryggjunni. Frá Siglufirði fórum við t . ■.,, ■ ■., . .. , ■ ... ■ yU.-w'- y; é týps:' VW vj ***■ •* myndir kasta á hana!“ Ég fór í kringum torfuna og var alitaf 50-—60 m frá lienni. Þegar ég hafði farið kringum torfuna kom skipstjórinn nið- ur í stýrishúsið og tók við stýrinu. Kallaði hann til strákanna í bátnum að láta KJOTVINNSLUMAÐUR GERIST SKIPSTJÓRI H’ð fyrsta sem mér fannst einkennilegt um borð í Stettu GK 350 var áhöfnin. Áðal- umræðuefni hennar var kjöt- vinnsla: pylsugerð, kjötfars o.fl. þ.h.. Skipstjórinn hældi sér mik- ið af því að hafa unnið þriggja manna verk hjá „Tómasi“ (þ.e. kjötverzlun Tómasar). Hann hafði flutt kiðtvörur um öll Si'.ðumes og séð um pökkun á öllum vör- nm út á land. Þegar hann hætti varð að ráða þrjá Dani, til bess að anna'st starf hans meðan hann var á síldveiðun- um. (Duglegur maður það). Skipstjóri, annar vélstjóri og fimm hásetar voru búnir að vinna í há’fan mánuð þeg- ar ég kom um borð, við að undirbúa bátinn fyrir kom- andi síldarvertíð Flest sem búið var að vinna varð að vinna að nýiu. Þar kom fyrst í ljós vankunnátta skipstjóra um skip og útbúnað fyrir s/’darvertíð. Þnð þurfti að „sróæsa augu“ á nokkra víra. Skipstjórinn fór að splæsa, en þegar einn þátturinn var eft- ir gaf hann mér splæsið. Að minnsta kosti sagði hann': „Þetta mátt þú eiga“. Þar sem ég var með einn vanan mann á mínum veg- um,. spurði ég skipstjórann hvort búið væri að ráða alla áhöfnina. Hann svaraði því til að bróðir sinn yrði með, ef 'ha.nn kæmjzt. Bróðirinn gat ekki komizt, svo skipstjórinn •spurði mig hvort þessi mað- ur sem ég væri með væri al- vanur, það væru 10 um hvert plá.ss hjá sér. Ég svaraði að maðurinn hefði verið 10 sum- ur á síldveiðum, svo ég teldi hann alvanan. Maður þessi var svo ráðinn. — Hann revndist vera eini vani mað- urinn nm borð. Við fórum frá Reykjavík til Hafnarfjarðar til þess að sækja nótina og nótabátinn. Þegar við vorum að leggja þar að bryggju, setti skip- stjórinn á fulla ferð áfram — skyndilega. Hásetinn sem van- ur var tók eftir því og gat kallað til skipstjórans að bakka. Nýsmíðuð fjögurra tonna trilla var aðeins 5—6 metra fyrir framan skipið. Þegar ég minntist á þetta við skipstjórann, sagðist liann 'hafa séð trilluna, en hefði aðeins verið að prófa hvort Stella stanzaði ekki á punkt- inum. Það hefði orðið „dýr prufa“ ef hún hefði ekki stanzað. norður að Kolbeinsey. Þaðan höfðum við fréttir af sttd á stóru svæði. Skipstjórinn svaf þegar við sáum þrjár sæmi- legar síldartorfur. Það var strax kallað klárir, og skip- stjórimi kom strax upp. Við Uppúr miðnætti. var lagt af slað frá Hafnarfirði. Skip- stjórinn gaf upp stefnuna sem stýra átti. Ég leit aðeins á kortið og sá að pennaslrik var 'iregið frá Hafnarfirði að Malarrifi og skrifað hver stefnan væri. Þegar komið var að Öndverðarnesi gaf skip- stjóri upp strikið yfir Breiða- fjörð, en sagði við mig áður að hann væri búinn að vera svo lengi í strandsiglingum að hann myndi allar stefnur kringum landið, en bað mig að athuga á kortinu hvort stefnan væri ekki rétt hjá sér. Eftir að ég var búinn að setja stefnuna í kortið, sá ég að það munaði 3/4 úr striki og sagði skipstjóranum frá því. Hann sagði þá við „rórmann- inn“ að fara stefnuna sem ég gaf upp, en sagði við mig að auðvitað. gæti hann verið far- inn að g’eyma einhverju, en sér fyndist það samt ein- kennilegt; hann hefði verið búinn að læra stefnumar ut- anað. Mér þótti þetta ein- Eg mófmœli Rakari þarf fjögra ára nám til þess að mega raka skeggið af útgerðarmanni. En hvað þarf maður langt nám til þess að fara út á sjó með 10 mannslíf og verðmæti sem talið er í milljónum króna? Hann þarf aðeins und- anþágu, leyfi frá skip- stjórafélagi, og sam- þykkt frá félagsmála- ráðuneytinu. Sumarið 1960 voru um 20 skipstjórar cg stýri- menn ekráðir atvinnu- lausir hjá Lj.U., en samt var kjötiðnaðar- manni veitt leyfi til þess að vera skipst.jóri á 65 tonna síldveiðiskipi á veiðum fyrir Norður- landi. Hver ber ábyrgð á gjörðum þessa manns R. W. Sigurðsson. gerðum bátinn kláran á síð- unni. Strax þegar því var lok- ið fór skipstjórinn upp í bassaskýlið og kaillaði til mín að taka stýrið og keyra að fyrstu torfunni. Þegar við, vorum rétt komnir að torf- unni kallar hann til mín: „Farðu að henni eins og þú .Ævintvrin gerasf ennþá með þessari þ|éÓ Síldarskip að veiðum á miðunum fyrir Norðurlan.di. ■ I pokann fara. Var nú byrjað að. kasta með hægustu ferð. Síldin virtist vaða í sömu átt og við stýrðum. Virtist hún halda sömu ferð og við. Kallaði ég þá til skipatjórans að setja á meiri ferð, annars næðum við a'drei fyrir torf- una. Skipstjórinii setti þá á fulla ferð og var kominn þvert af torfunni þegar strák- arnir í nótabátnum kölluðu til hans að hann yrði að beygja strax því nótin væri að verða húin í bátnum. Skip- stjóri lagði strax hart í borðið. Þegar við áttum eftir um sextíu faðma í baujuna náði nótin ekki lengra, en brjóstlínumar voru sextíu faðma langar svo við náðum hringnum án þess að þurfa að teygja á nótinni. Snurp- að var af krafti og dróst Sfella inn i nótina. iLét ég þá hætfa að snurpa á annarri trommunni, kallaði svo á strákana á dekkinu að koma, alla nema einn en hann varð að stýra vírnum inn á tromm- una niður-í bálimi, til þess að ná inn brjóstlínunum, því síldin var enn að vaða í vængnum. Þegar búið var að snurpa kom skipstiórinn nið- ur í bátinn og sagði að nót- in væri föst á hælnum, en við getum atliugað það þegar við eru búnir að kafa inn nótina. Nú spurði ég hann hreint út hvort hann væri brjálaður, við næðum nótinni ekki af hæln- um þegar við værum búnir að strekkja á henni. Stökk ég svo upp i Stellu og sagði 1. vélstjóra að hjálpa mér. Eftir allmikið streð tókst okkur að losa nótina án þess að rifa nema nckkra möskva. Tvo líma vorum við að kafa nót- ina inn, en einhver síld var eftir í henni. Við tókum sjö liáfa svo það hafa verið 20—30 mál í nótinni. Um leið og búið var að háfa var bát.urinn tekinn á síðuna og gert klárt fyrir næsta kast, Ekki þurftum við lengi að keyra þar t.il við lentum aftur í vaðandi síld. Þegar við voru að ná'gast torfuna kom skipstjórinn niður úr skýlinu og inn í stýrishúsið. Ég var að athuga torfuna á asdiktækið og segi strax að torfan komi fínt inn á mælinn. Segir hann þá: Kastaðu á hana. Ég fór að stýrinu og sagði strákunum í bátnum að setja baujuna út. Strax á eflir létum við nótina fara. Þegar ég var að nálgast baujuna aftur sagði ég við skipstjór- ann að taka við stýrinu en sjálfur hljóp ég fram á hval- bak, og um leið og ég náði með hakanum í baujuna kall- aði ég til skipstjórans að bakka. Hann setti þá fulla ferð afturábak og hélt áfram að bakka þannig þar til ég kallaði til hans að hætta þessu helv... því hann sliti poka brjóstlínunnar ef við reynd- um meira á hana. Hætti hann þá að bakka, við náðum paka- brjóstinu upp á stefnið, fór- um niður í bátinn, var þá langt komið að snurpa. Þegar hring- arnir komu upp heyri ég að vélstjórinn kallar: „Ásbjörn, nótin er að fara aftur fyrir!“ Heyrist þá svarað úr brúnni: „Ég veit það, hún er föst á hælnum!“ Rauk ég þá bölv- andi upp úr bátnum og aftur náðum við nótinni af hælnum, en nú var komið kul og rifn- uðu því um 3 faðmar, en sttdinni náðum við. Voru um 200 mál í kastinu. Farið var með eíldina til Siglufjarðar. Jafnerfiðlega og fyrr gekk skipstjóranum að leggja að bryggju, en það tókst. samt þegar búið var að sýna honum hvernig stýri á bát verkaði. Skipst jórinn gekk á undan mér upp bryggjnna. Sá ég að hann tók mann tali er hann mætti, töluðust þeir eitthvað lítið við en svo héit skipstjórinn áfram og maður- inn kom móti mér. Við hei's- uðumst því þetta var kumi- ingi minn frá Siglufirði. Spyr hann strax að því hvort sá sem hann mætti ofar á bryggjunni sé með mér á skipinu. Ég kvað já við því og sagði að þetta væri skip- stjórinn. „Ha?.... Skipstjór- inn??... Hann hlýtur að vera í meira lagi skrítinn! Hann spurði mig að því hve marg- ar tunnur væru í einu máli, en hann trúði mér vist ekki því hann sagðist. ltafa heyrt að þær væru þrjár!“. Þegar lokið var við að landa og gera við nótina var 'ha’iiið út á miðin aftur. Leit- að var að síld um kvöldið og nóttina, en enga síld sáum við né fengum neinar fréttir um síld frá hinum bátunum Um kl. 11 cíaginn eftir vorum við staddir 5 sjómílur út af Kolbeinsey. Heyrum við þá í talstöðinni ttt báts sem sagð- ist. vera í mikilli síld 12 sjó- mílur NA af cyjlinni. Viö settum strax á fulla ferð- Þegar við höfðum keyrt í fimm til tíu mínútur kemur fyrsti vélstjóri upp í stýris- hús og segir: „Skipstjóri! Viffi verðum að fara strax til Siglufjarðar, — það er engiit olía í skipinu.“ Við snérum strax við til Siglufjarðar. Þá var liðinn rúmur ‘•ólarhring- ur frá því \ið fórum frá Siglufirði. Skipstjórinn sagði ekki orð út af þessu við vél- stjórann, en ég hellti mér yfir hann og hótaði honum því að láta liann synda í land, ef þetta kæmi fyrir aftur. Hann spurði þá skipstjórann hvort þetta væri uppsögn. „Nei, nei“, sagði skipstjór- inn. .„Þetta er taara ykkar á milli.“ Næsta dag, þegar við vor.- um komnir út á miðin aftu'r sáum við torfu. Sagði ég skipstjóra að við ættum að kasta á hana. Hann jánkaði þvi. Þegar ég sá að hann gerði sig ekki líkleg- an. að framkvæma það, kast- aði ég en lét hann stýra síð- asta spottann að baujunni. Þegar við vorum hálfnaðir að snurpa var nótin orðin föst á stýrinu, — ætlaði maður- inn aldrei að læra! Nótin var þrælföst. á stýrinu og loks þegar við náðum henni af því var hún orðin talsvert rifin. Við fengum rúm sjötíu mál í kastinu — og urðum að fara með það til Siglufjarðar til að láta gera við nótina. Þegar ég var að kjaga suð- ur í Kennaraskóla á morgnana fyrir fjörutíu árum mætti ég venjulega einhverstaðar á Laufásveginum tveim vaskleg- um piltum sem voru á leið niður í Menntaskóla. Þetta voru tveir frændur séra Magn- úsar Helgasonar: Jóhanr.es, sonur séra Kjartans í Hruna, og Magnús, sonur Ágústs í Birtingaholti, en þeir dvöldust ■báðir á heimili föðurbróður s'íns á námsárunum. Jóharmes, sem talinn var hið mesta mannsefni, varð hryggilega skammlífur. Hinsvegar varð Magnúsi bræðrungi hans góðu' heilli lenyra lífs auðið, því hann verður sextugur í dag. Af gildum ástæðum urðu kunnleikar okkar Magnúsar engir næstu þrjátíu árin — þar s'kildu fiarlægðir á milli. En spurnir hafði ég af því að bann hefAi að loknu námi gerzt héraðslæknir uppi í Borgarfirði og dvalizt þar við mikinn orðstí nær tvo tugi ára. Líður nú og b'iður, unz ég er búinn að vera búsettur austur i Hveragerði heilan áratug. Þá gerist það eitt vetrarkvöld fvrir ellefu árum að ég rekst á Maignúg Ágústs- sorv þar niðri í þorpinu og var í för með honum frú hans, Magnea Jé-hannesdóttir leik- kona, sem ég hafði ekki áður augum litið, en virtist yfrið björ't, iafnvel þótt nokkuð væri tekið að rötkkva Trúa •þau mér nú fyrir því þamá í húminu að hau séu í þam veginn að flytja þangað í þcrpið, með því Magnús Lítil aimœliskveðja Magnús Ágústsson héreðslœknir sextugur ilxafi fengið veitingu fyrir læknishéraðinu. Þóttu mér þetta góð tíðindi, iþví enn var drengilegur svipur Magnúsar hinn sami og fyrir þrjátíu ámm — og ekki spillti kon- an sú hin bjarta fyrir eftir- væntingunni. Það fór líka svo að á milli heimila okkar urðu skjótt gangvegir góðir. Tilkoma þeirra hjóna reynd- ist mikill fergur hinu fábrotna menningarlífi þorpsbúa: frúin brennandi af leiklistaráhuga og læ'knirinn stoð herinar og stytia í aliri slíkri viðleitni, auk þess sem hann var sjálf- ur boðinn og búinn til að skemmta með sörig og hljóð- færaslætti, þegar hann mátti því við koma. Eru ótaldar þær stundir sem þau hión hafa fórnað til að gleðja fólk- ið þar austanfjalls undanfar- inn áratug. Magrrís Ágústsson er 'ítur- vaxið glæsimennit enda hefur manni stundum virzt sem fleiri en ein frú hafi rennt til ham fránum sjónum þegar svo hefur borið nndir. Hann er hrókur alls fagnaðar á gc.ðra vina fundi og — svo sem fleiri í þeirri ætt — gæddur riku tónlistarskyni, hefur ákaflega þýða og að- laðandi rödd og býr yfir því- ÍÍkri söngvagleði að það er sem ham forklárist ailur þegar hann sezt við slaghörp- una og tekur lagið. í dag rifjast upp mörg stundin á 'heimili þeirra læ'kn- ishjónanna, eni þar er höfð- ingsskapurinn og ljúfmennsk- an af því tagi að maður Magnús Ágústsson steingleymir að um gestaboð sé að ræða —- svo fullkom- lega er maður heima hjá sér. Þar mætti kannski helzt út á eitt setja: ástrikið og ein- drægnin milli þeirra lista- konunrar og læknisins er slik að hin breyzkustu skáldmenni telja varla viðeigandi að gjóa geislandi auga til frúarinnar, hversu heitt sem þeim kam að vera í hamsi, Þetta veit Magnús vel og er náttúr- lega rogginn af. Og þettá gerir það að verkum að svo ungleg sem konan hans er finnst manni endilega að húm hljóti 1‘ika að vera sextug í dag. Nú þori ég ekki að hafa) þessar línur fleiri — fæst orðí hafa minnsta á-byrgð. Þetta er liripað í flaustri, ekki tit þess að rekja neina ævisögut æskuteits manns, heldur til 'þess að árna afmælisbamimi og fjölskyldu hans heilla og langlífis í tilefni af deginumt og færa þak'kir okkar hjóna fyrir óglejananlegar ánægju- stundir á liðnum árum. En nú meður því að Magn- ús læknir er alla daga á! hnotskógi eftir nýjum kviðl- ingum finnst mér aldeilis ó- fært að rota ekki tækifæriði til þess að punda á hanni einni x-vísu svona í lokin: Sextuigur ljósin settu á vax% sextugur greiddu vel þitt fax, sextugur farðu að syngja strax, sextugur dragðu stóran lax. Þetta má raula undir lagijní Víst ertu, Jesús, kóngur klár — en varla þó fyrr en heilag- ur andi er kominn yfir post- ■ulana. Kærar 'kveðjur. Biðjum aðt heilsa öllum. Jóliannes úr Kötlunu LJb

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.