Þjóðviljinn - 12.07.1961, Síða 1

Þjóðviljinn - 12.07.1961, Síða 1
Miðvikudagiir 12. júlí 1961 — 26. árgangur — 155. tölublað Verkfall suðvestanlands í vega- og brúavinnu boðað frá 17. júlí Rikissfjórnin hindrar að samningar takisf um kjörin Ríkisstjórnin hefur hindr- að aö samningar næðust um kaup og kjör viö vega- og brúargerð, milli Alþyðu- sambands íslands annars- vegar og Vegagerðar ríkis- ins hins vegar. Hefur ASÍ neyðzt til að boöa vinnu- stöðvun viö vega- cg brúar- gerð ríkisins fyrir hönd verkalýösfélaga allt frá Mýrasýslu til Rangárvalla- sýslu. Hefst verkfallið nk. mánudag, 17. júlí verði ekki samið fyrir þann tíma. Stjórn Alþýðusambandsins sendi Vegagerð ríkisins tilkynn- ingu, dagsetta 10. júlí, á þessa leið: „Miðstjórn ASÍ lýsir hér með yfir vinnustöðvun við allar framkvæmdir Vegagerðar ríkis- ins sem meðlimir eftirtalinna fé- laga starfa að, frá og með kl. 24 þ. 17. þ.m., hafi samningar milli ASÍ og Vegagerðarinnar um kaup og kjör í vega- og brúargerð ekki tekizt fyrir þann tíma“. Hlutaðeigandi félög eru; Verkamannafélagið DagsBrún, Reykjavík. Verkamannafélagið Hlíf. Hafnaríirði. Verkamannafélag Akraness, Akranesi. Verkalýðsfélag Borgarness, ' Borgarnesi. Verkalýðsfélag Hveragerðis, Ilveragerði. VerkalýðsféJagið Esja, Kjós- arsýslu. Verkamannafélagið Báran, Eyrarbakka. Verkalýðsfélagið Bjarmi, Stokkseyri. Verkalýðsfélagið Egill, Mýrarsýslu. Verkalýðsfélag Austur-Eyja- fjallahrenDS. Ran«árv. Verkalýðsíélagið Þór. Selfossi. I Aðdragandi verkfa'.ls- boðunarinnar Alþýðusamband ísjands hefur staðið í samningum undanfarið við Vegágerð rikisins og hefur verið full ástæða til að ætla að Vegagerð ríkisins gengi til samn- inga við sambandið á sama grundvelli o“ vinnuveitendur hafa gert við verkalýðsfélögin, því svo hefur áður verið. En í vikunni sem leið kom það í ljós að svo mundi ekki verða að þessu sinni. Það sem á strandaði var að Vegagerðin taldi sig ekki haía heimild ráðu- neytisins tij að semja um frítt fæði fyrir verkamenn sem vinna hjá Vegagerðinni. Landsíminn semur um frítt fæði Þessi afstaða ríkisstjórnarinn- ar, en Vegagerðin heyrir undir Ingólf Jónsson, er þeim mun furðulegri sem önnur r kisstofn- un, Landssíminn, hefur nú sam- ið við Verkamannafélagið Dags- brún um frítt fæði handa verka- mönntun sínum þegar um við- legu er að ræða. Þykir mönnum um allt land hart að Ingólfur Jónsson og rík- isstjórnin skuli með þrjózku sinni tefja samninga og vera bannig völd að því að menn vinni víðsvegar um land í þess- ari vinnu á gamla kaupinu. enda þótt langflest verkalýðsfé- lögin sem í hlut eiga hafi þegar fengið 10—13% kauphækkun. Er það að siálfsögðu óviðunandi á- stand, og furðulegt að r.'kis- stjórnin skuli fremur vilja að vega- og brúargerð stöðvist um allt eða mestallt Suðvest- urland, en að ganga til samn- insa. — eanga að þvi sama sem atvinnurekendur almennt eru búnir að samþykkja. Sjórinn út af Austfjörð- um er morandi í síld, tugir skipa með tugþúsundir mála streyma á hafnirnar, ekki sízt til Seyðisfjarðar. Þessi sérkennilega síld- arsöltunarmynd var tekin á Seyðisfirði í síðustu viku þegar fyrsta síldin barst þangað. — Síldarsölturar- stúlkan er með allan hug- ann við verk sitt og gef- ur því engan gaum þó samstarfsmaður hennar sé að mestu horfinn niður í tunnu. — (Ljósm. Gísli Sigurðsson). i rn Ríkisstjórnin á enn í sömu vanclræðunum með verðlagsneíndina. Þar er ekki meirihluti íyrir verðbólgustefnu ríkis- stjórnarinnar og enn hef- ur ekki tekizt að skapa slíkan meirihluta. Milijónatugir í herkostnað gegn - Atvinnulíf bœjarins lamað HöfuSkrafa Þrótfar er vinnumiSlun, - vinnuhagrœSi, sem spara myndi atvinnurekendum stórfé L- Stjórnarklíka Vinnu- veitendasambandsins og bæjarstjórnarmeirihlut- inn eru með ofstæki og þrjózku að skapa ástand í Reykjavík, sem ekki er hægt að una við: Eftir | mánaðarverkfall við Dagsbrún er höfnin að fyllast af skipum og bæj- arvinnan látin ganga með hálfum afköstum, milljónatugum sóað í stríðskostnað gegn einu verkalýðsfélagi bæjarins. Á sama tíma heimta þess- ir aðilar, að öllum kostn- aði vegna nýgerðra samninga sé af þeim létt og hann settur út í verð- lagið til verðbólgumynd- unar. Framferði þessara að- i£a hefur vakið mikla reiði almennings, sem krefst þess að þeir séu Framhald á 5. síðu^.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.