Þjóðviljinn - 02.08.1961, Blaðsíða 1
Hflfl'l
Wl wJlNR
Ksfffi stolið
í fyrrinótt var brotizt inn í
a .
Gildaskálann við Aðalstræti og
i stolið þaðan dálitlu af kaffi og
um 35 kr. í peningum.
Miðvikudagur 2. ágúst 1961 — 26. árgangur — 173. tölublað.
NÝ
LÆKKUN ÁKVEÐIN
Vald til gengisskráningar tekiS af Alþingi meS bráSabirgSalögum og
afhent seSlabankanum - Stjórnarklíkan undirbýr ofbeldisverk
gegn launþegum i þágu skuldakónga og verðbólgubraskara
Ríkissíjórnarklíkan hefur ákveðið að framkvæma
nýja gengislækkun fil hess að hefna sín á launþeg-
um eftii ósigra sína í verkföllunum í sumar. í gær-
kvöldi lét hún forseta fslands gefa út bráðabirgða-
lög þar sem Seðlabankanum er heimilað að ákveða
gengi íslenzkrar krónu að fengnu samþykki ríkis-
stjórnarinnar, en til þessa hefur það verið talinn
léttur cg skylda alþingis að taka ákvörðun um
gengið cg bera ábyrgð á verkum sínum frammi
íyrir þjcðinni. Með þessum bráðabirgðalögum er
þannig verið að skerða þingræði og lýðræði en
gefa stjórnarklíkunni og peningastofnunum henn-
ar alræðisva'íd til bess að skammta almenningi
kaup og kjör og mannréttindi í þágu verðbólgu-
braskara og skuldakónga stjórnarflokkanna.
1} riíOiibin/ihilö i\
Ákvörðunin um að afhenda
seðlabanka og ríkisstjórn al-
ræðísvald til gengisáLrráningar
óg þannig til ákvörðunar um
kaup og kiör almennings var
tekin í gærkvöld á leynifundum
þingmanna stjórnarflokkanna.
Höfðu þingmenn íhalds og krata
verið kvaddir í kyrrþey til
bæjarins, og hófust fundir
þeirra í fyrradag. Mátti vita að
mikil óhæfuverk væru fyrir-
huguð þegar þessir leynifundir
hófust; þannig hefur áður ver-
ið farið að þegar landið var
hernumið 1951 og þegar ákveð-
ið var að gera landráðasainn-
ingana við Breta um landhelg-
ira.
Eiris o.g kunnugt er krafðist
þingflokkur Alþýðubandaiagsins
þess í síðustu viku að þing yrði
kallað saman til þess að fjalla
um ástandið í efnahagsmálum.
"Þeirri kröfu var hafnað, en
stjórnarþingmennirnir einir kall-
aðir í staðinn. Ríkisstjórnin
þorði ekki að ræða málin
frammi fyrir alþjóð; málstaður-
inn var betur talinn samsvara
myrkraverkum.
Pingræði og lýðræði skert.
Afturhaldið íslenzka hefur oft
áður haft hug á að taka valdið
til gengisskráningar af Alþingi
— kjörnum fulltrúum þjóðar-
innar. Þær fyrirætlanir hafa þó
mistekizt til þessa; einnig innan
afturhaldsflokkanna haí'a alltaf
verð til menn sem báru þá
virðingu fyrir heiðri og réttind-
um Alþingis að þeir töldu sér
ekki heimilt að skerða þingræð-
ið á svo afdrifaríkan hátt. Einn-
ig nú má telja fullvíst að ekki
hefði teícizt að taka þennan rétt
af Alþingi á opnum þingfundi;
þessvegna var sá kostur valinn
að þrúga þingmenn á lokuðum
leynifundum og binda þannig
hendur þeirra.
En aumur er hlutur þeirra
þingmanna sem láta hafa sig
til þess að skerða þannig
vald og heiður þeirrar stofn-
unar sein þcir eru kosnir til
að vernda.
Svívirðileg ofbeldisráðstiifun.
Engum dylst að tilgangurinn
með þessum bráðabirgðalögum
er að framkvæma nýja gengis-
lækkun án tafar. R.kisstjórn og
atvinnurekendur hafa beðið ó-
sigur í átökunum við verklýðs-
samtökin í sumar, o.g í stað
þess að taka afleiðingunum ai'
þeim ósigri með nýju og skyn-
samjegra stjórnarfari, grípur
valdaklíkan til einræðis til þess
að hefna sín á launbegum. til
þess að stela ai'tur þeim litla
hlut sem verkafólk hefur
áunnið sér með harðri baráttu.
Þeir menn sem þannig hegða
sér eru ekki stjórnmálamenn í
neinni venjulegri merkingu þess
orðs; viðbrögð af þessu tagi
væru óhugsanleg í nokkru ná-
tægu landi. Þetta eru gerræöis-
Framhald á 2. siðu
Fréttatilkynningin, sem Þjóð-
viljsnum barst seint í gær-
kvö’.cl frá viðskiptamálaráðu-
neytinu um bráðabirgðalögin,
er svohljóðandi:
„Forseti íslands hefur í dag
samkvæmt tillögu viðskipta-
málaráðherra sett bráðabirgða-
lög þau, sem hér fara á eftir
um breytingu á lögum nr. 10
29- marz 1961, um Seðlabanka
Islands:
Forsetj íslands gerir kunn-
ugt:
Viðskiptamálaráðherra hef-
ur tjáð mér, að vegna hinna
miklu kauphækkana, sem átt
hafa sér stað að undanförnu,
séu fyrirsjáanlegir miklir erf-
iðleikar í efnahagsmálum, ef
ekkert sé að gert. Áhrif kaup-
hækkananna muni á skömmum
tíma breiðast um allt hagkerfið
og va’da almennri hækkun
framleiðslukoslnaðar og auk-
inni eftirspurn eftir gjaldeyri,
en þetta muni svo á hinn bóg-
inn hafa í för með sér versn-
ar.di afkomu útflutningsat- j
vinnuveganna og alvarlegan
greiðsluhalla þjóðarbúsins út á
við. Til þess að koma í veg
fyrir þessa þróun cg atvinnu-
leysi og gjaldeyrisskort, sem
henni mundi fylgja, beri nauð-
syn til að endurskoða gengis-
skráninguna í samræmi við
breytt viðhorf, og þyki eðlileg-
ast að Seðlabanki Islands, sem
komið hafi verið á fót nú á
þessu ári, skrái gengi íslenzkr-
ar krónu, að fengnu samþvkki
ríkisstjórnarinnar, enda sé sú
skipan algengust í nálægum
löndum.
Fyrir því eru hér með sett
bi'áðabirgðalög samkvæmt 28.
gr, stjcrnarsk rárinna i•, á þessa
leið:
1. gr.
1. málsgr. 18. gr. laganna
orð'st 'svo:
Seðlabankinn ákveður, að
fengra samþykki ríkisstjórnar-
innar, stofngengi (pari) ís-
lenzku krónunnar gagnvart er-
lendum gjaldeyri og gulli.
Kaup- og sölugengi má ekki
vera meira en 1% undireða 1%
yf'r stofngengi. Innan þessara
marka skráir Seðlabankinn dag-
lega kaup- og sölugengi þeirra
Framhald á 2. síðu.
Kenysttc verður
loks látinn lcns
SS
Sennilega myndu 50
milljónir bíða bana11
Washington 1/8 — Fimmtíu milljónir manna
munu sennilega bíð'a bana og tuttugu milljónir
særast hættulega ef meiriháttar vetnissprengju-
árás yröi gerð á Bandaríkin, sagði McNamara
landvarnaráðhemi fyrir bandarískri þingnefnd í
dag. Ráðherrann bætti því við að þótt öllu því
fé yrði variö til loftvarna sem ráð væri á myndi
það ekki draga neitt úr þessum manndauða.
21 félag í verkfallinu
við Megagerð ríkisins
í gær kom til framkvæmda
verkfall 10 verkalýðsfélaga
hjá Vegagerð ríkisins og eru
félögin, sem í verkfallinu
eiga þá oröin 21 aö tölu.
Vegir eru nú mjög teknir
að spillast víða vegna við-
haldsleysis, t.d. eru Keflavík
urvegurinn og fleiri vegir á
Suðvesturlandi að veröa nær
ófærir af þeim sökum. Þá
eru margir þeir, sem stund-
að hafa vegavinnu, nú farn-
ir að huga sér aö annarri
vinnu og má búast viö því,
aö þeir ráði sig annars
slaöar, ef verkfalliö leysist
ekki fljótlega.
í gær höföu samninga-
fundir legiö niöri um hríö
vegna samninganna í far-
mannadeilunni, en fundur
var boöaöur með deiluaöil-
um kl. 8.30 í gærkvöld.
Jomo Kenyatta
LONDON 1/8 — Jomo Keny-
atta, leiðtoga þjóðfrelsislireyf-
ingar Kenyamanna, sem Bretar
liaf.a lialdið í fangelsi í átta ár,
verður nú loks látinn laus.
Kenyatta var handtekinn
1953 og dæmdur í sjö ára
fangelsi eftir framburði Ijúg-
vitna fyrir að hafa stjórnað
mau-mau lireyfingunni. Þegar
fangelsisdómurinn var litrunn-
inn var hann fluttur nauðugur
án laga og réttar í afskekkt
hérað og lokaður þar inni, Nú
segir brezki landstjórinn í
Kenya að hafi ástandið í land-
inu ekki versnað um miðjan
mánuðinn frá því sem nú er
muni Kenyatta leyft að fara
til bæjarins Kiambu og hánn
látinm laus nokkrum dögum síð-
ar. i