Þjóðviljinn - 02.08.1961, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 2. ágúst 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Yfírlýsing Casfros i lok þ}ó&háti($ar
Einingarflokkur sósíalskrar
byltingar stofnaður á Kúbu
Havana 28/7 — Fidel Cast-
ro, forsætisráðherra Kúbu,
lýsti yfir því í ræðu á mikl-
um fjöldafundi í Havana,
aö öll byltingaröfl á Kúbu
ingunni um nýja flokksstofnun
um nokkurt skeið. Fyrir nokkru
höfðu borizt tilkynningar um að
í ráði væri að sameina .-26.
júlí-hreyfinguna“, sem Castro
hefðu nú sameinazt í ein-
um stjórnmálaflokki sem
nefnist „Einingarflokkur
hinnar sósíalísku byltingar
á Kúbu“.
hefur ætíð veitt forystu, og Sós-
íal'ska alf)ýðuflokkinn (ko.mmún-
istar).
1 hinum nýju stjórnmálasam-
tökum eru sameinuð öll bylt-
Fidel Castro og Júrí Ga.garín höfðu skipti á höfuðfötum þegar
geimfarinu var í heimsókn á Kúbu fyrir skemmstu.
Castro hélt ræðu sína í lok
hátíðahaldanna í tilefni af 8.
afmælisdegi fyrstu uppreisnar-
tiiraunarinnar gegn Batista ein-
ræðisherra. Áður hafði Júrí
Gagarín, fyrsti geimfari verald-
arsögunnar, flutt kúbönsku Jþjóð-
inni kveðju á fundinum frá
þjóðum Sovétríkjanna með full-
vissu um að Sovétríkin myndu
veita Kúbu alla aðstoð við að
framkvæma byltingarstefnu-
skrá sína.
Sanitök byltingaraflanna
Búizt hafði verið við tilkynn-
ingaröfl á Kúbu. Auk áður-
nefndra tvegga hreyfinga eru
Samtökin til varnar byltingunni,
verkalýðshreyfingin og önnur
lýðræðissamtök aðilar að ein-
ingarflokknum.
Nýtt þjóðfélag
Ræða Castros stóð í 4 stund-
ir, og var tilkynningunni um
einingarflokkinn tekið með mikl-
um fögnuði af mannfjöldanum.
Castro ræddi einnig um hlut-
verk millistéttarinnar í hinu
nýja þjóðfélagi, sem væri að
vaxa upp á Kúbu. Hann sagði
að sum öfl meðal millistéttanna
hefðu rangt fyrir sér, er þau
litu með tortryggni á uppbygg-
ingu hinna nýju þjóðfélagshátta.
Það væri nauðsynlegt að forða
því að millistéttin félli í iaðm
afturhaldsaíla og heimsvalda-
sinna. Hún ætti miklu fremur
leið með verkalýðnum.
í hinu nýja þjóðfélagi á
Kúbu verða að gilda einir hags-
munir, sagði Castro, en ekki
sérhagsmunir einstakra stétta
eða hópa. Hagsmunir heildarinn-
ar verða að sitja í fyrirrúmi og
ná til allra Kúbubúa. Verkalýð-
urinn er ekki lengur arðrænd
stétt án mannréttinda. Hún finn-
ur til máttar síns og réttar á
borð við aðrar þjóðfélagsstétt-
ir og hennar er valdið.
Weisskepf for-
rczðnr CERN
Genf — Prófessor V.F. Weiss-
kopf hefur verið ráðinn næsti
formaður CERN, evrópsku
kjarnarannsóknarstöðvarinnar í
Genf. Weisskopf sem er 63 ára
gamall flúði til Sovétríkjanna
þegar nazistar komu til valda.
Síðan fór hann til Bandaríkj-
anna og var prófessor við MIT
árin 1945—’60.
Nkrumab sfaddur
í Ausfur-Berlín
Berlín 1/8 — Forseti Ghana,
Kwame Nkrumah, kqm í dag til
Austur-Berlínar. Varaforsætis—
herra austurþýzku stjórnarinn-
Bruno Leuschner tók á móti
honum á flugvellinum. Nkrumah
kom frá Prag, en hann hefur
ferðazt um ýms lönd Austur-
Evrópu að undanförnu.
Nœsti sovézki geimfarinn
af stað í þessum mánuði?
MOSKVA 1/8 (NTB-AFP) —
Nýr orðrómur liefur breiðzt
út í Moskvu urn það að sov-
ézkir vísindamenn séu nú að
ganga frá undirbúningi fyrir
geimferð manns síðar í þess-
um mánuði. Orðrómurinn er
talinn minna mjög á sögurn-
ar sem voru á ferðinni áður
en Júrí Gagarín fór í fyrstu
geimferðina, enda talinn
koma frá sömu heiinildum,
segir í fréttuin blaðamanna í
Moskvu.
Samkvæmt orðróminum er
ætlunin að næsti geimfari
fari a.m.k. fimm sinnum
kringum jörðu á braut í
geimfarinu sem síðan verð-
ur látið lenda á jörðu. Talið
er að næsta geimfar verði
allmiklu fullkomnara en
,,Vostok“, sem Gagarín fór
ferð sína í, en einstaka heim-
ildir telja að ,,Vostok“ verði
einnig notað í næstu geim-
ferð.
Sagt er að tilgangurinn
með nýju geimferðinni eigi
m.a. að vera sá, að rann-
saka áhrif þyngdarleysisins
á mannlegan líkama um lang-
an tíma. Auk þess vilja vís-
indamennirnir ganga úr
skugga um að geimfarið boli
geisjunaráhrif í lengri tíma.
Þá er sagt að nýja geim-
farið verði í svipaðri hæð og
„Vostok“ var á braut sinni
umhverfis jörðu.
Orðrómurinn um nýja
mannaða geimferð fékk byr
undir báða vængi á kvik-
myndahátíðinni i Moskvu
fyrir skemmstu. Þá var sýnd
kvikmynd um væntanlega
geimfara Sovétríkjanna, um
æfingar þeirra og líf al-
mennt. Sýndi myndin að þeir
voru. í mjög góðri líkams-
þjáifun og höfðu geysimikla
þekkingu á tæknilegum at-
riðum varðandi géimferðir.
Þeir sem eru tortryggnir á
þennan orðróm minna á, að
fyrir nokkrum mánuðum var
orðrómur á kreiki um að
Sovétmenn væru í þann veg-
inn að senda þrjá menn á
loft í geimfari umhverfis
jörðu, en þær sögur reyndust
ekki á rökum reistar.
Sovétmeim eiga fulllíoninustu
MOSKVÁ 30/7 — Vfirmaður
alls herafla Varsjárbandalags-
ríkjanna, sovézki marskálkurinn
André Gretsjko, sagði í ræðu á
hátíðardegi sovézka flotans í
dag, að kjarnorkuknúnir kafbát-
ar væini kjarninn í sovézka flot-
anum.
Ekki er þó vitað með vissu
hvort það voru slíkir kafbátar,
sem tóku þátt i flo.tasýningunni
á Neca-fljóti í Leningrad í dag.
Áhorfendur gátu ekki séð hvort
kafbátarnir á sýningunni væru
kjarnorkuknúnir eða ekki, en
sumir þeirra minntu á banda-
rísku kjarnorkukafbátana Naut-
ilius og Skate.
Gretsjko hélt ræðu á þilfari
orustuskipsins Kirov. Hann sagði
að Sovétmenn væru farnir að
framleiða algjörlega nýja teg-
und af kjarnorkukafbátum. Þeir
væru miklu fullkomnari en þeir
kaíbátar sem öll önnur ríki
hefðu yfir oð ráða, og gætu skot-
ið eldfjaugum miklu lengra en
aðrir kafbátar.
í ræðu sinni lagði Gretsjko
áherzlu á að Sovétrikin óskuðu
eftir friði umfram allt. Árásar-
stefna og vaxandi hervæðing
vesturveldanna gerðu það hins-
vegar óhjákvæmilegt fyrir So.v-
étríkin að búast góðum vopnum,
enda væru allar greinar sovézks
herafla reiðubúnar að mæta
hvaða árás sem væri.
Eins og venja er til var beiti-
skipið Aurora fremst í flota-
siglingunni í Leningrad í dag.
Þáð var éihmitt-þefta skip. "sem
hleypti af fyrsta skotinu á vetr-
arhöll keisarans 1917 og um leið
hófst byltingin í Rússlandi.
Öflugar varnir
Búizt hafði verið við því að ’
Sovétmenn myndu tilkynna það
einmitt í dag að þeir heiðu.
kjarnorkukafbáta til að sýna ,
fram á vaxandi styrk sovézka
flotans.
Fyrir þrem vikum hafði sov*
ézki flugherinn mikla sýningu
yfir Moskvu og voru þá sýnd- ;
ar í fyrsta sinn algjörlega nýj.ar
tegundir af orustuþqtum og
sprengjuþotum, sem munu vera
fullkomnari en áður heiur
þekkzt,
í grein sem Gorsjkov aðmír-
áll skriíaði í Pravda fyrir
skömmu segir m.a.:
„Sovézki flotinn er búinn full-
komnustu nýtízku tækjum, og
getur framkvæmt hvaða aðgsrð
sem er á sviði sjóhernaðar.
Bandarískir heimsvaldasinnar
reyna að telja sjálfum sér og
öðrum trú um að þeir geti gert
skyndiárás á Sovétríkin og önn-
ur sósíalísk lönd með Polaris-
eldflaugum sínum. Sovétþjóðirn-
ar þekkja vel þá hættu sem
þeim er búin af þeim vigbúnaði.
sem Bandaríkjamenn hafa
hleypt af stokkunum. Það er
vegna þess, að Sovétríkin hafa
gert sínar nauðsynlegu. öflugu
ráðstafanir til að efla hern-
'aðartækni sína nú þannig að
ekki sé nokkur leið að ógna ör-
yggi Sovétþjóðanna.
Fulltruar Afriku gengu á
fund Krustjoffs í gær
Moskvu 1/8 — Krústjoff, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
veitti í dag móttöku fulltrúum
nítján Afríkuríkja sem hafa
sendimenn í Sovétríkjunum.
Fyrstur til að fara á fund
Krústjoffs var sendiherra Túnis
í Moskvu. Ekkert hafði áður
verið látið uppi um þennan
fund, og ekki hefur verið skýrt.
frá því um hvað var rætt á
honum, en hér er talið víst að
erindi hins túniska sendimanns
hafi verið að fara þess á leit
við sovétstjórnina að hún sfyddi
kröíuna um að allsherjarþingið
verði kvatt samán til að ræða
Bizerte-málið. Það er Afríku-
ríkið Líbería sem borið hefur
fram þá kröfu eftir að í Ijós
hafði komið að Öryggisráðið gat
enga ákvörðun tekið í málinu.
Eftir að Krústjoff hafði rætt
við sendimann Túnis gengu full-
trúar annarra átján Afrikuríkja
á hans fund. Það hefur vakio
athygli að Krústjoff forsætisráð-
herra skyldi taka á nióti hinum
afrísku sendimönnum, en slíkt
er venjulega í verkahring utan-
ríkisráðhérrans.
Fulltrúar Afríku- og Asíu-
ríkja hjá SÞ sem styðja tillögu
Líberíu eru ekki alveg nægilega
margir til að knýja fram að
allsherjarþingið ve’rði kvatt
saman, en fil þess þarf stuðning
helmings aðildarr'kja. Styðji
^vétríkin og bandamenn þeirra
kröfuna má hins vegar telja
víst að hún hljóti nægilegari
stuðning.
Talsmaður Bandaríkjastjómar
var spurðúr álits á þessari frétt
frá Moskvu og svaraði bvt til
að hún væri þvi mótfallin að
allsherjarþingið kæmi saman til
að ræða Bizerte-málið. Hún
hefði enn ekki tekið neina af-
stöðu til Bizerte-málsins.
í Washington
Wasliington 1/8 — Fjárveit-
inganefnd öldungadeildar-
Bandarikjaþings mælti í dag
einróma með því að fjáihæð
sú sem Kennedy forseti hefur
fiirið fram á til að auka stríðs-
mátt Bandaríkjanna skuli
hækkuð um einn milljarð doll-
ara. Kennedy forseti hafði upp-
haflega farið fram á 3.5 millj-
.arða dollara aukafjárveitingu
til vígbúnaðar, en þingið veitir
honum 4.5 milljarðii dollara.
í Moskvu 1
Moskvu 1/8 — Krústjoff for--
sætisráðherra veitti í dag þeim
sem hyggja á striðsævintýri
þessa aðvörun: „Gætið yðar —
þér skuluð vita að v:ð eigum
ráð sem sefa munu jiifnvel þá
sem æstastir eru.“ Þessi orð
voru mælt yfir borðum í Kremi
þegar tekið var á móti rúm-
enskri stjórnarnefnd sem ný-
komin er til Moskvu til sann-
inga.