Þjóðviljinn - 02.08.1961, Page 6
j$) — ÞJOÐVILJINN — Miðvikudagur 2. ágúst 1961
þlðÐVILJINN |
í&tgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar: =:
•dagnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. — p=s
FréttaritstJórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir =
Magnússon. - Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. rrr
aíml 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 45 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00. ==
Prentsmiðía Þjóðvilians h.f. =
t
Andstæður
'IZommúnistaílokkur Sovétríkjanna hefur birt drög §§j
v að nýrri stefnuskrá sem lögð verður fyrir flokks- g
þing í haust, og var skýrt frá nokkrum meginatriðum |s
hennar í blaðinu í gær. Stefnuskrá þessi er vafalaust §§§
ein hin merkasta stjórnmálaályktun sem samin hef- =
ur verið og sýnir glöggt bjartsýni og sigurvissu sov- Wz=
ézkra ráðamanna. Samkvæmt éætluninni er gert rá𠧧§
fyrir að á þessum áratug komist Sovétríkin fram úr §1
öllum öðrum ríkjum í framleiðslu og á íhinum næsta §jg
verði hafizt handa um framkvæmd kommúnismans: a𠧧§§
hver maður fái samkvæmt þörfum sínum, en leggi §§j
af mörkum samkvæmt getu sinni. Á þessu tímabili |||
er ætlunin að stytta vinnutímann allt niður í 30 j==
stundir á viku en margfalda jafnframt raunverulegar §§§
tekjur hvers íbúa, lækka verðlag, afnema skatta og m
stórauka lýðræði og frelsi hvers einstaklings, og er §§§
þá fátt eitt talið. Þær ihugsjónir sem birtust braut- g
ryðjendum sósíalismans í fjarska eru nú að verða að @
nærtækum veruleika; lokaorð stefnuskrárinnar eru §§§
þessi: „Flokkurinn lýsir því hátíðlega yfir.að sú kyn- m
slóð sem nú lifir í Sovétríkjunum mun búa við komm- j§§
únistískt þjóðfélag.“ £?
C*ízt er að efa að þessi stefnuskrá vekur mikinn fögn- p§
^ uð í Sovétríkjunum, en hún mun einnig hafa hin =
víðtækustu áhrif um heim allan. Einnig í Vestur- §§§
Evrópu hlýtur hún að vekja menn til umhugsunar um §§§
hag sinn og framtíðahhorfur. Hér á íslandi eru stjórn- |j|
arvöldin t.d. ekki að gera áætlanir um glæsilega fram- g
tíð á þessum og næsta áratug; þau eru önnum kafin ^
við áætlanir um skert kjör og erfiðari framtíð. Raun- s
verulegt kaupgjald hér er lægra en það var fyrir §§1
hálfum öðrum áratug og valdhafarnir eiga þá drauma g
nærtækasta að halda áfram að lækka það; framtíðar- §§§
horfur þeirra eru svartnætti og 'bölsýni. í Bretlandi
eru ráðamennirnir að framkvæma hliðstæða stefnu; §§§
boðskapur þeirra er sá að þjóðin verði að stíga skref |§§
afturábak. f Bandaríkjunum hefur Kennedy forseti §§§
hýlega boðað að þjóðin verði að taka á sig nýjar byrð- §§§
ar og aukna erfiðleika, eðki til þess að tryggja bjart- =
ari framtíð heldur til þess að auka vígbúnað og magna §§§
morðtól, í þágu dauðans en ekki lífsins. Aldrei hef- §§§
ur verið ljósara en nú að forustumenn auðvaldsríkj- §§í
anna eru komnir í sjálfheldu; kerfi þeirra getur ekki f§§§
leyst vandamál nútímaþjóðfélags; ríki þeirra standa §§§
í stað og hrörna á sama tíma og þróunin í ríkjum §§§
sósíalismans verður sífellt öruggari og rishærri. Ríki g
kapítalisma og sósíalisma eru að verða æ algerari §1
andstæður, eins og fortíð og framtíð.
Cósíalistísku ríkin hafa fyrir löngu skorað auðvalds- §§§
ríkin á hólm í friðsamlegri samkeppni um aukna §§§
velmegun og fegurra mannlíf. Maður skyldi ætla að m
slík áskorun hefði verið auðvaldssinnum fagnaðarefni, §§§
ef þeir tryðu á málstað sinn. En það verður sífellt fji
ljósara að ráðamenn kapítalistísku ríkjanna trúa ekki Hl
lengur á kerfi sitt, heldur gagntekur vanmetakennd- j§§
in þá í æ ríkara mæli. í Bandaríkjunum verða þær =
raddir t.d. stöðugt háværari að auðvaldsheimurinn ^
múni líða undir lok í friðsamlegri sambúð og friðsam- |§i
legri ikeppni við sósíalistísku ríkin og því sé styrjöld §j|
eina leiðin til að Ikoma í veg fyrir sigur sósíalisma §§§
og kommúnisma. Tortíming og dauði er sú framtíðar- jjj
sýn sem auðvald Bandaríkjanna bregður á loft á sama §§§
tíma og ráðamenn Sovétríkjanna leggja á ráðin um 11
fullkomnara og auðugra mannlíf en áður hefur veri𠧧j
Jifáð á jörðu hér. — m. ^
BJÖRN FRANZSON:
Málverkagjöf Ragnars Jónssonar
r\
til Alþýðnsambands Islands
I
Sýningin á verkum þeim,
sem Ragnar Jónsson gaf Al-
þýðusambandi Islands, hefur
nú staðið um hríð og mönn-
um gefizt gott tóm til að
skoða hana og hugleiða.
Hefur sýningin vakið verð-
skuldaða athygli og hennar
verið getið allítarlega bæði í
ræðu og riti. Að vísu hafa
þær umsagnir aðallega verið
fólgnar í almennum lofsemd-
arorðum^ en hins vegar verð-
ur naumast sagt, að nokkur
tilraun hafi verið gerð í þá
átt að leggja hlutlægt mat
á safn það, sem um er að
ræða, og gagnrýni þeirrar
tegundar sem venja er að
birta um málverkasýningar
hefur víst engin komið fram,
þó að slíks væri einmitt sér-
stök ástæða í þessu tilfeHi,
vegna þess hvernig sýningin
er til komin og hver til-
gangur henni liggur til
grundvallar. Hér er sem sé
að ræða um sýningu á mál-
verkum, sem ætlað er að
verða stofn að listasafni
verkalýðssamtakanna. ®n sú
staðreynd vekur þá spurn-
ingu, hversu góður sá stofn
sé eða i hverju honum kunni
að vera áfátt, og svo hina,
hvernig bezt verði fyrir því
séð að upp af honum megi
ná að vaxa fullgilt íslenzkt
listasafn. Án efa er þetta
það sem meginmáli skiptir og
nauðsynlegt er að gera sér
sem gleggsta grein fyrir, ef
unnt á að verða að gera.
skynsamlegar áætlanir um
framtíðarþróun safnsins. Skal
því leitazt við í þessari grein
að svara að nokkru spurning-
um þeim, sem nú voru nefnd-
ar, með því að enginn hef-
ur ennþá vakið máls á þessu.
Umsögn þessi tekur vitan-
lega aðeins til sýningarinn-
ar sjálfrar, en ekki þeirra 43
mynda,sem eru að vísu í
safninu, en koma ekki fyrir
almenningssjónir að þessu
sinni.
n
Sé nú sýningin gaumgæfð,
þá reynist þar vera nokkur
kjarni myncla, sem teljast
mega ágæt listaverk- Þessi
kjarni er að visu ekki stór,
en aljgóður þó. Ber þar fyrst
að nefna „Hellisheiði" (37)
eftir Jóhannes Kjarval og
mynd þá, er hann nefnir
„Fjallamjólk“ (33), tvímæla-
laust verðmætustu verk
safnsins. Kjarval á þarna
fjórar aðra'r myndir, og eru
tvær þeirra ágætar, „Dyr-
fjöll“ (36) og „Sólarlag á
hafi“ (38), hin þriðja góð,
,,Blóm“ (34), hin fjórða sízt,
sú er nefnist „Það er gaman
að lifa“ (35)- Enn fremur ber
að nefna tvær verðmætar
myndir eftir Þórarin Þorláks-
son, „Frá Snæfellsnesi" (51)
og „Viðeyjarsund“ (52), og
eina eftir Júlíönu Sveinsdótt-
ur, „Vífilsfell" (53)- Snilld
Ásgríms Jónssonar nýtur sín
ekki til fulls í þeim fimm
myndum, sem þama eru eftir
hann, en þeirra bezt er mynd-
in „Keilir" (22) og þar næst
„B)óm“ (1) og „Úr Borgar-
firði“ (19). Ekki þykir mér
mikið koma til myndanna níu
eftir Jón Stefánsson, þennan
málara, sem stundtim hefur
betur gert, þó að fráleitt sé
að telja hann jafnoka þeirra
Ásgríms og Kjarvals, eins og
ýmsum þykir hlýða. Af fimm
myndum Gunnlaugs Schev-
ings er ein býsna góð og ef-
laust með því bezta ,sem hann
hefur gert. Það er myndin
,,Á stöðli" (27), þar sem mál-
arinn beitir að vanda 'hinum
stirðlega stíl sínum, en nær
eigi að síður talsverðri mýkt
og mikilli hygð („stemn-
ingu“). Einnig má nefna
smámynd hans „Bátur“ (63).
Lofsverðar eru myndirnar
„Frá Stóra Núpi“ (23) og
„Hestar“ (24) eftir Jóhann
Briem.
Hér hefur þá verið nefnt
flest hið bezta og markverð-
asta á sýningunni. Ef reynt
væri að skipa þessum 77
myndum í flokka eftir list-
gildi, þá væri varla fjarrí
lagi að segja, að i flokki
ágætra myrda eða góðra væri
tæpur fjórði hluti. 1 annan
flokk kæmu þá myndir á
ýmsum stigum þess, sem
kalla má í meðallagi, en þær
myndir mætti áætla nærfellt
helming sýningarinnar. í
þessu á þó ekki að felast
neinn allsherjardómur um
hlutaðeigandi málara, því að
ýmsir þeirra gjalda þess, að
miður vel hefur til tekizt um
val mynda eftir þá í safnið.
— Afganginum, rúmlega
þriðjungi sýningarinnar, yrði
loks að skipa í sérflokk, sem
ekki er unnt að gefa hærri
einkunn en þá að tákna hann
sem hálfgert rusl. Til þess
flokks yrði eigi aðeins að
telja megnið af svonefndum
afstraktmálverkum eýningar-
innar, heldur líka „figúra-
tífar" myndir slíkar sem
myndina af Nínu (50) eftir
Louise Matthíasdóttur og
mynd Kristjáns Davíðssonar
af Þórbergi Þórðarsyni (39),
þetta dárlega afskræmi nýrr-
ar íslenzkrar málaralistar.
Vera kann, að einhverjum
þyki þetta harður dómur um
sýninguna- Hann gelur þó
með engu móti órðið vægari.
Viðtakendur gjafarinnar hafa
þegar gert. sína sky>iu, að
þakka fyrir sig með til-
hlýðilegri kurteisi. Þess er
varla að vænta, að þeir takist
á hendur það óþægilega og
sjálfsagt að sumu leyti ó-
vinsæla verkefni að bera fram
nauðsynlega gagnrýni, og
mun því verða að teljast eðli-
legast, að þetta komi í
hlut annarra, sem ekki hafa
neitt sérstakt t.illit að taka í
þessu efni né skyldur að
rækja aðrar en skyldurnar
gagnvart listmenningu þjóð-
arinnar og verkalýðshreyf-
ingunni. En því aðeins get-
ur málverkagjöf eins og þessi
orðið til góðs og náð þeim
tilgangi að verða alþýðunni
menningarauki, að menn
skirrist ekki við að leggja á
hana rétt mat eða gera sér
Ijóst, hvað af henni er raun-
verulega verðmætt og hvað
minna virði.
m
Af hálfu þeirra fulltrúa
verkalýðshreyfingarinnar, sem
til máls hafa tekið um mál-
verkagjöf Ragnars, hefur ver-
ið bent á nauðsyn þess að
koma upp viðhlítandi hús-
næði handa safninu. Þetta er
auðvitað mikilvægt atriði. En
auk þess eru svo aðrir hlutir,
sem enn siður má gleyma.
Safnið verður sem sé að
þróast. á heilbrigðan hátt, eigi
það að geta orðið sá menn-
ingarþáttur, sem vér hljótum
að vilja, að það verði. Það
hlýtur að eiga fyrir sér að
vaxa, og þá er vandamálið að
gera sér þess grein, hvernig
vexti þess og þróun verði
heillavænlegast. háttað.
Það er þá í fyrsta lagi aug-
Ijóst, að val mynda í safn-
ið verður framvegis að fara
að nokkru eftir öðrum sjón-
armiðum en þeim, sem vakað
hafa fyrir gefandanum, er
hann var að koma því upp.
Þar verður til dæmis að
gera öllu strangari kröfur um
list gildi en hann hefur stund-
um gert, en hliðhylli við á-
kveðnar stefnur, er í tízku
kunna að vera þessa eða hina
stundina, má aldrei verða til
þess, að slakað sé á þeim
kröfum. Það má til að mynda
ekki geta átt sér stað, þegar
safnið er orðið helmingi
stærra en nú, að unnt verði
að segja um það, að ekki sé
nema fjórði hluti myndanna
raunverulega góð listaverk,
en hitt geri ekki betur en
vera í meðallagi eða þar fyr-
ir neðan.
1 öðru lagi er nauðsynlegt
að bæta úr þeirri takmörk-
un safnsins, að í það vantar
með öllu verk eftir nærfellt
helming betri hlutans af mál-
urum vorum, og á það ekki
síður við um þann hluta þess,
sem ekki er á sýningunni. Ég
skal nefna flesta þessara mál-
ara í stafrófsröð: Ásgeir
Bjarnþórsson, Barbara Áma-
son, Brynjólfur Þórðarson,
Eggert Guðmundsson, Eyjólf-
ur Eyfells, Finnur Jónsson,
Gréta Bjömsson, Guðmundur
Einarsson, Guðmundur Thor-
steinsson, Gunnlaugur Blön-
dal, Höskuldur Björnsson,
Kristín Jónsdóttir, Magnús
Árnason og Sveinn Þórarins-
son. Hjá því verður ekki
komizt að afla safninu smám
saman nokkurra af beztu
verkum hvers eins þessara
málara, sem allir hafa vissu-
lega meiri verðleika en sum-
ir þeirra, sem vel er fyrir séð
á eýningunni. Eins þarf að
bæta hlut sumra þeirra mál-
ara, sem eiga að vísu myndir
í safninu, en fá ekki notið
s'n, vegna þess að val mynda
eftir þá er ekki sem heppi-
legast.
í þriðia lagi er svo það, að
mjög lítill hluti mvndanna í
þessu safni er úr lífi alþýð-
unnar, hinna vinnandi stétta-
Eh slíkar myndir eiga að
sjálfsögðu sérstaklega heima
í málverkasafni verkalýðsfé-
laganna. Þess ber að vænta,
að þeir. sem til verða settir
að veita safninu forstöðu,
geri sér far um að afla því
þess konar verka og láti þau
jafnvel sitja í fvrirrúmi að
öðru jöfnu. Ég segi „að
Framhald á 11. síðu.
Erlenður í Unuhúsi, málverk efíir Kristján Ðavíðsson.
Miðvikudagur 2. ágúst 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (7
„Dæmið ckki, til pess að pér
verðið ekki dænídir
Hann séra Árelíus Níelsson
flulti tvö meiri hátfar erindi
í útvarpið fyrir skemmslu.
Hann talaði um æsku nú-
tímans af mælskugnótt, við-
urkennandi glæsimennsku
liennar og þrótt, en minntist
með nokkrum ugg á viðhorf
hennar gagnvart lífinu og
hvernig þess skyldi notið.
Hann talaði um það af mikl-
um sársauka, hve skemmtan-
ir ungs fólks virtust fátæk-
ar af andans auði, Jive þær
væru tómar af innra lífi og
þeirrar alltumstreymandi lífs-
hamingju, sem við og aðrir
fulltrúar eldri kynslóðar
þykjumst muna frá okkar
æsku. Okkur séra Árelíusi er
það báðum ljóst, að áhyggj-
ur okkar eru að nokkru leyti
af sama toga og áhyggjur
hverrar einustu kynslóðar
hafa alltaf verið gagnvart
næstu kynslóðinni í aldurs-
stiganum, ástæðan einfald-
lega sú, að við erum farnir
að verða svolítið gamlir. En
jafnframt erum við sammála
um, að áhyggjur okkar eiga
að öðru leyti við raunveruleg
rök að styðjast. Tilhlökkun
æskunnar til fullorðinsáranna
er ekki eins djúp og hrein og
hún var í okkar ungdæmi,
henni er ekki eins Ijúft að
leggja mikið á sig til að ná
settu marki, liún er fátækari
að hugsjónum til að keppa að,
hún kennir tómleika, sem við
þekktum ekki, gleði hennar
er ekki eins djúpstæð og
hrein, skemmtanir hennar
ekki eins gleðiríkar, svo að
nú þykir meiri þörf eiturefna
til að hækka fagnaðarspdnnu
lijartans. Svona kemur þetta
okkur fyrir sjónir- Og orsök-
ina teljum við skort á hug-
ejónaverkefnum, sem beina
lífinu inn á bjartari vegu.
Nú er fjarri því, að ég hafi
að ráði kynnzt skemmtunum
yngstu kynslóðarinnar af eig-
in sjón og raun, en dreg ekki
í efa sannindi ýmissa lýs-
inga, sem ég hef hlotið frá
greinargóðum sjónarvottum.
'Hitt dreg ég ekki heldur !
efa, að viða kemur ungt fólk
saman til skemmtana á landi
hér, þar sem við með gömlu
minningarnar megum vel
við una, kvöldvökur, ferða-
lög og dans af gleði hins ó-
spillta hja'rta. Það fer færri
sögum af þeim félagsskap og
þeim skemmtunum, við gömlu
mennirnir erum þar uian-
garðs, en gleðjumst, er okk-
ur berast fregnir af slíku.
En eina góða endurminn-
ingu á ég frá síðari árum.
Þar var æskufólk saman kom-
ið hundruðum saman ásamt
álitlegum hópi eldri kyn-
slóðar og dansaði á stein-
palli í miðri stórborg suður
við Svartahaf. Þar var eng-
inn söluskúr með tyggigúm,
kók og sígarettur. Þar var
bara hljómsveit, sem lék
danslög, og þar var ákaflega
mikil gleði, sem leiftraði af
hverri hreyfingu og Ijómaði
af hverju andliti. Þar var
enginn með glas upp á vas-
ann eða áfengi í kollinum.
Það var eins fjarslætt að
hugsa sér það og að sjá
stjörnuhrap um hábjartan
dag. Og eldri kynslóðin, allt
upp að sjölugu, féll eins og
undirrödd inn í hljómkviðu
gleðinnar og urðu þannig eitt
með æskufólkinu. Mér datt í
hug hann pabbi minn, sem fór
að læra að dansa á sextugs-
aldri og gekk þá í ungmenna-
félagið til að geta verið eitt
með ungu kynslóðinni í leik
hennar. Eg hef ekki í ann-
an tíma minnzt eins ljóslif-
andi skemmtananna á Mýrun-
um á fyrstu árum ungmenna-
félaganna. Svo heilbrigð var
lífsgléði þessa unga mann-
fjölda, sem steig dansinn á
steinpalli suður við Svaríahaf
á ágústkvöldi 1956. Enda var
þetta alveg eins og heima hjá
mér í mínu ungdæmi: til
skemmtunarinnar var efnt, af
því að fólk langaði til að
skemmta sér, en ekki í fjár-
öflunarskyni, þar sem tak-
markið er að ná sem mestu
fé af ungu fólki, sem lang-
ar til að skemmta sér.
Ekki hef ég hugsað mér að
gera þessa dansandi kvöld-
stund að sérstöku umræðu-
efni, en nú get ég ekki stillt
mig um það vegna hans séra
Árelíusar- í erindum sínum
minntist hann á ýmsar stefn-
ur, sem hefðu verið
mesti bölvaldur í andlegu lífi
æskunnar, og nefndi þar til
fasisma, nazisma og komm-
únisma. En það er mín skoð-
un, að það hefði verið rétt-
ara af honum að sleppa
kommúnismanum í þessari
upptalningu, og það álit mitt
er stutt fastlega af minning-
unni frá umræddu kvöldi á
steinpallinum suður við
Svartahaf. Það var sósíölsk
æska, sem þar var að
skemmta sér, prúðmannleg,,
svo sem bezt verður á kosið,
þar var ekki tómleika að sjá
á nokkru andliti, en mikið af
kyrrlátri gleði. Ég held, að
uppspretta þeirrar gleði hafi
verið tilfinning fyrir miklu
lifsöryggi og háleit markmið,
sem biðu í skauti framtíðar.
Uppspretta gleðinnar var
uppeldi sósialismans og verk-
efni sósíalismans.. Yngri kyn-
slóðin átti eldri kynslóðina að
félaga, og það var ekkert ó-
brúað gímald þar í milli. Ég
er viss um, að hefði hann
séra Árelíus verið með mér
þetta kvöld og dansað við
sósiölsku æskuna suður við
Svartahaf, þá hefði hann ekki
séð neina ástæðu til að leita
í sósialismanum að uppsprettu
þeirrar spillingar, sem við
þvkjumst varir í skemmtana-
lífi æskunnar í okkar landi.
Séra Árelíus er einn þeirra
manna, sem ég get trúað að
gjarnan vilji hafa það, er
sannara reynist í hverjum
hlut. Nú ætlast ég alls ekki
til þess, að hann fari að
brevta um skoðun á uppeldis-
áhrifum sósialismans fyrir
það eitt, að ég segi honum
frá reynslu minni í fjarlægu
99
landi. Þó ætti hann ekki me5
öllu eþ skella skoViaeyrum
við, en ætti að kynna sér
umsagnir annarra, er af
reynslu geta talað, til saman-
burðar. Ég vildi til dæmis.
mega benda honum á danska
blaðið ALT for damerne frá
11. júlí í sumar. Ég rekst
einmitt, á það rétt í þessu,
þégar ég er að skrifa þessar
línur. Fréttakona blaðsins
hefur viðtal við unga stúlku,
sem alin er upp í Sovétríkj-
unum, en flutti til Danmerk-
ur fyrir þrem árum ásamt
fjölskyldu sinni. Móðir henn-
ar er fædd í Danmörku- í'
því viðtali er komið inn á
svið þeirra mála, sem við séra.
Árelíus erúm að ræða um.
Þessi unga stúlka átti einn.
vetur eftir til stúdentsprófs,
þegar fjölskyldan flutti frá
Sovétríkjunum, en þegar til
Danmerkur koöi, varð hún að
hætta námi og fara að vinna,
þá var ekki hægt að kosta
öll börnin til náms, en bræð-
ur hennar tveir sátu fyrir og
hún fór í atvinnu. Hún segir,
að í Sovétríkjunum gangi all-
ir æskumenn í æðri skóla, að
minnsta kosti nokkur ár, og
þar séu þeir gagnteknir af
áhuga fyrir bókmenntum,
hljómlist og leikhússtarfi og
kappræðum. Þess vegna kom
henni það á óvart, þegar húit
kynntist dönskum æskulýð,
-hve hann var gagntekbm af
ökuferðum, fötum, skrauti og
mat. Hún sá ekki þetta
danska bros, eem mammá
hennar hafði sagt henni frá,.
unglingarnir hlæja að vísu,
„en þeir brosa of lítið“. Hún-
talar um að dan&ki æskulýð-
urinn umgangist heimili sím
eins og gististað. Hún fell-
dr enga dóma um þetta á-
stand, en saknar þeirrar virð-
ingar, sem æskan í Sovét ber
fyrir hinum eldri. Hún held-
ur enn þeim sið, að fara ekkr
út, af heimilinu án leyfis
mömmu og verður svo fyrir
aðkasti af félögum sínumt
fyrir að vera gama’dags.
Ég held við séra Árelíus-
munum í hjörtum okkar vera.
sammála mn, að þessi stúlka.
hafi fengið þannig uppeldi í
ríki sósíalismans, að í ýms-
um atriðum sé meir að okk-
ar skapi en það uppeldi, senn
við höfum getað veitt bömunv.
okkar í hinum „frjálsa-
heimi“. Presturinn ætti að at-
huga þessi mál nánar, áður ert
hann fellir harða dóma um
stefnur, sem hann þekkir ekki
nægilega. Hann ætti líka a5
kynna sér þá hópa ungs fólks'
hér í okkar landi, sem tekið-
hafa sig saman um að leita.
skemmtana á þann hátt, sem.
við munum telja heilbrigðan.
Meðal annars væri vel við>
eigandi að vera nokkur kvöld'
með Æskulýðsf.ylkingunni f
Reykjavík út í bláinn. Þá gæti\
hann næst talað um þessi mál*
af nokkurri reynslu, og hann:
gæti frekar komizt hjá áð>
fara með fleipur.
Guniiar Benediktsson. *
Nokkur orð til séro Árelíusar Níelssonor