Þjóðviljinn - 02.08.1961, Side 12
í gær kom aldraður maður á afgreiðslu
Þjóðviljans og keypti eina blokk í afmælis-
happdrætti blaðsins. Er hann hafði rif-
ið upp númerin, sem dregið hefur verið um
fyrirfram, kom í ljós, að hann hafði fengið
500 kr. vinning. Þar með fór þriðji vinning-
urinn, en eftir eru 501.
Þessi maður heitir Þórður Jónsson, Hverf-
isgötu 86, og hann er 72 ára gamall. Hann
hefur alltaf keypt miða í happdrætti Þjóð-
viljans, en aldrei fengið vinning áður.
Spenningurinn er ekki úti enn því eftir er
að draga um fjórar Volkswagenbifreiðir og
þá á Þórður vinningsvon eins og aðrir.
•
Það er þegar komið í ljós að fólk hefur
mikinn áhuga á þessu happdrætti og þegar
er kominn allgóður skriður á sölu miðanna.
Búið er að senda miða í flest kauptún og
kaupstaði og verður bráðlega hægt að birta
skrá yfir umboðsmenn happdrættisins úti
á landi.
•
Það þykir rétt að brýna það enn einu
sinni fyrir fólki að í þetta sinn verða miðar
ekki sendir heim. Þeir, sem ætla að kaupa
miða, eða selja, þurfa að skrifa til happ-
drættisins, pósthólf 310, eða hringja í síma
22396 eða 17500 til þess að fá sendar blokk-
ir, sem hver og einn ætlar að kaupa eða
selja. Menn geta einnig gengið við í skrif-
stofu happdrættisins að Þórsgötu 1, sem
er opin daglega frá kl. 9—12 og 1—7 og
einnig eru miðar til sölu í afgreiðslu Þjóð-
■viljans.
Vinningsnúmerin voru birt i fimmtudags-
blaðinu. Þau verða birt aftur síðar og einn-
ig verða þau sérprentuð.
Myndin: Þórður Jónsson. (Ljósm. Þjóðv.
A.K.).
þlÓÐVILJINH
Miðvikudagur 2. ágúst 1961 — 26. árgangur — 173. tölublað.
Samninpr tókusf í far-
mannadeiiunni i gærdag
í fyrrinótt náðust samningar
í farmanmadeilunni og voru
þeir undirritaðir á ellefta tím-
anum í gærmorgun. Þar með
var aflýst vinnustöðvuninni
sem kom til framkvæmda á
miðnætti þá um nóttina þannig
að um verulega stöðvun varð
ekki að ræða.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Þjóðviljinn fékk í gær hjá Sjó-
mannaíélagi Reykjavíkur. eru
aðalbreytingarnar frá siðasta
samningi, er gerður var 1958.
þessar: Mánaðarkaup og yfir-
vinna hækka um 21% bæði í
innanlands o^ utanlandssigling-
um. Farmenn í utanlandssigling-
um fengu í fvrra 19 % hækkun
á kaup vegna skertra gjaldeyr-
isfríðinda af völdum g'engis-
lækkunarinnar og eru þau inni-
falin í þessum 27% nú. Þá
hækka fæðispeningar úr kr.
33,08 á dag í kr. 50,00. Enn-
fremur fá undirmenn í vél
aukaálag á kaup. Loks fá far-
menn nú 200 þúsund króna
króna slysatryggingu. er greið-
ist við dauðsfall eða fulla ör-
orku.
Samningarnir ná til undir-
manna á þilfari og í vél.
Samningur þessi gildir til 1.
júní 1962 oe eru ákvæði um
uppsögn og framlengingu hans
þau sömu og verið hafa í flest
öllum samningum annarra verk-
lýðsfé’aga í sumar.
Nýtt sovézkt frumkvæói
i afvopnunarmálysiyii
Washington 1/8 — Sovétríkin
hafa enn tekið nýtt frumkvæði
í afvopnunarinálunum og stjórn-
ir vesturveldarna fjalla nú um
hinar nýju tillögur þeirra.
Það er Reutersfréttastofan
sem hefur þetta eftir „góðum
heimildum" í Washington. Ekki
------------------------------«'
er enn vitað hverjar hinar nýju
sovézku tillögur eru, en ekki
er talið ósennilegt að þær fjalli
um á hvaða vettvangi afvopn-
unarmálin skuli rædd og hverj-
ir skuli mæta þar.
Þessar nýju sovézku tillögur
voru lagðar fyrir ráðgjafa
Kennedys forseta í afvopnunar-
Landhelgissamningurínn vid
r *,«niiminm —at- fiir" "Tw r m t*® °
Dani kominn til íramkvæmda
málum, McCloy, þegar hann var
nýlega í Moskvu. og þar mun
fundin . skýringin á því hversu
skyndilega hann fór aftur heim.
Geimstöðvarskoti
frestað í USA
Landhelgissamningur sá sem
i íkisstjórnin hefur gert við
Dani um rétt Færeyinga til
■veiða í íslenzkri landhelgi er nú
Ikominn til fiamkvæmda. Eins
og Þjóðviljinn hefur áður skýrt
frá hafa fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í utanríkismálanefnd,
Finnbogi Rútur Valdimarsson
og fulltrúar Framsðknar i
nefndinni krafizt þess að
hvorki þessi samningur r.é nein-
ir aðrir verði gerðir um land-
lielgina án þess að þeir hafi áð-
iur verið samþykktir af alþingi,
en stjórnarflokkarnir hafa far-
ið sínu fram og áður samið við
Vestur-Þjóðverja eins og kunn-
lugt er.
Þjóðviljanum barst 'í gær svo-
liljóðandi fréttatilkynning fiá
útamríkisráðuneytinu um samn-
inginn við Dani:
Datt í stiga
Um kl. 10 í fyrrakvöld varð
það slys um borð í togaranum
ÍPétri Halldórssyni þar sem
hann lá við Faxagarð, að mað-
'ur að nafni Ólafur Guðmunds-
son datt, niður stiga í skipinu
og skarst talsvert á höfði-
'Hann var fluttur í slysavarð-
■ötofuna.
,,I dag hefur erindaskiptum
milli utanríkisráðherra og
sendiherra Danmerkur í Reykja
vik verið gengið frá samkomu-
lagi um aðstöðu Færeyinga til
handfæraveiða við ísland.
Er skipum, sem skrásett eru
í Færeyjum heimilt að stunda
handfæraveiðar innan fiskveiði-
lögsögu Islands á svæðum þeim
og ártíma, sem ísler.Ekum skip-
um er heimilt að veiða með
botnvörpu eða flotvörpu sam-
kvæmt 1. gr reglugerðar nr.
87 frá 29. ágúst 1958 og 1. gr.
reglugerðar nr 4 frá 11. marz
1961.
Auk þess er skipum, sem
skrásett eru í Færeyjum heimilt
að stunda handfæraveiðar á
svæðinu milli 4 og 8 mllna, inn-
an fiskveiðilögsögu Islands við
Kolbeinsey.
Samkomulagið gildir um óá-
kveðinn tíma en hvor aðili um
sig getur sagt því upp með sex
mánaða fyrirvara.
Samkomulag þetta kemur til
framkvæmda strax, en er þó
háð samþykkj alþingis, er það
kemur saman í haust á sama
hátt og samkomulagið við
Vestur-Þjóðverja frá 19. júlí
1961.“
Canavéralhöfðá 1^8 — Geim-
rannsóknarnefnd Bandaríkjanna,
NASA tilkynnti í dag að enn
hefði verið frestað að skjóta á
loft geimrannsóknastöðinni
Ranger I. en það er fyrsta
bandariska geimstöðin sem ætl-
að er að gera athuganir langt
frá jörðu. Til stóð að skjóta
geimstöðinni á loft í siðustu
viku, en úr því hefur ekki orðið
.af tækniástæðum“ eins og það
er orðað.
SILDÁRLÖNDUN
Þessi mynd var tekin sl. miðvikudag í Krossa-
nesi \4ð Eyjafjörð er verið var að land.a, þar
lijá síldarverksmiðjunni úr Sigurði Bjarnasyni
frá Akureyri og norska síldarflutnin.gaskipinu
Aska. Krossanesverksmiðjan hafði þá tekið á
móti 30 þúsund málum síldar í sumar þar af 3
]msund niáliim af smásíld. Hefur verið unnið
nótt o,g dag í verksmiðjunni að undanförnu.
I KROSSANESI