Þjóðviljinn - 19.08.1961, Page 3
Mikil hitabylgja geltk yí'ir Bandaríkin fyrir skömmu og komst liitinn víða upp í 35—38 gráður á
sclsíus. I New York var hitinn svo óþolandi að skrúfað var frá slökkviliðshönum á götum úti til
jjess að krakkarnir gætu buslað.
56372 fiskar athugaðir í
fiskirannsóknarleiðangri
SI. fimmtudag ræddi Aðal-
steinn Sigurdsson fiskifræðingur
við fréttamenn um fiskiranusókn-
ai-Ieiðangur, seni farinn var um-
hyerfis landið á vegum Fiski-
deildar Atvirmudeildar Háskólans
dagana- 20. júlí tii 11. ágúst sl. á
vai'ðskipinu Maríu Júlíu, en Að-
alsteinn var forstöðumaður leið-
angursins.
Slíkir leiðangrar hafa nú ver-
ið farnir á hverju sumri sl. 6 á
Er tiigangur þeirra fyrst og
fremst að afla uppiýsinga um á-
Fangroppreisn
s Naskville
NashviUe 17/8 — Lögreglustjór-
inn í Nashville í Tennesseeríki
í USA sendi allt lið sitt til rík-
isfangelsins í borginni í dag með
vopn og táragassprengjur, til
þess að bæla niður uppreisn
fanganná.
Hópur fanga hafði tekið 21
gisl og skýldi sér bak við þá
í íangabústaðnum. Tveir upp-
reisnarmp.nnanna voru vopnaðir.
Meðal gisla voru þrír fangaverð-
ir, þrír embættismenn en hinir
voru fangar. Tveir uppþotsmenn
tóku einnig þátt í svipaðri að-
gcrð í þessu fangelsi í marzmán-
uði 19(50. Þá tóku þeir 10 fanga
og héldu þeim sem gislum í 24
stundir.
Sjúkisr brezkur
sjémaður settur
í Ecnd eystra
Nesitaupstað, 17. ágúst. — í
fyrrinótt kom hingað brezkur
toga.ri’ méð 'veikan skipstjóra.
Reyntiist hann vera með botn-
langabólgu : og var þegar fluttur
í sjúkrahús.og.skorinn upp. I dag
kom annar brezkur togari með
slasaðan mann. Hér hefur verið
leiðindaveður í dag, þoka og
'súlef;*"—
stand fiskistofnanna, svo sem
aflamagn á togtíma. aldurs- og
lengdardreifingu, vaxtarhraða,
styrkleika árganganna, göngur
o.s.frv. Einnig voru gerðar at-
huganir á áhrifum möskva-
stærðar á stærð fisks þess, er
veiðist.
Fiskurinn var veiddur í botn-
vörpu og v.ar togað á 25 stöð-
um víðsvegar umhverfis Jandið.
Sagði Aðalsteinn, að enn hefði
ekki unnizt tími til að reikna
út fjölda á togtíma en bráða-
birgðaathuganir virtust benda
til þess, að aílamagn væri víð-
ast svipað og undanfarið. Hann
lagði þó áherzlu á. að þetta
væru aðeins lauslegar áætlanir
og í annan stað gefi það engan
veginn örugga mynd af ástand-
inu, þótt togað væri einn dag
eða hluta úr degi á hverjum
stað.
Nokkrar breytingar voru þó
sums staðar á aflamagninu frá
því, sem verið hefur. í Eyja-
firði austán Hríseyjar var
næstum -enginn fiskur en þar
hefur venjulega verið talsverð-
ur þorskur. undanfarin ár. í
Skjálfanda virtist þorskurinn
vera nær sandinum en venju-
lega, enda voru þar stórar torf-
ur af seiðum, sem hann mun
hafa verið að eita. Þorskurinn j
mun einnig hafa verið með
minna móti. Minni afli en
venjujega virúst vera við Dyr-
hólaey Vestmannaeyjar og í
Faxaflóa einkum við Dyrhóla-
ey og í Garðssjó. Á Eiðisvík var
talsvert meiri þorskur1. en venju-
lega og var bað eini staður-
inn þar sem um verulega aukn-
ingu var að ræða.
Til þess m.a. að athuga aldur
fiskanna. var safnað kvörnuni
og voru teknár kvarnir úr 7806
fiskum aðallega þorski, ýsu og
skarkola. Þá voru merktir 1068
þorskar, 1892 ýsur og' 3377 skar-
kohrr eða samtals 6337 fiskar.
Sú nýbreytni var viðhöíð í
Faxaflóa, að 300 skarkolar voru
tvímerktir. Gefur það möguleika
á að leiðrétta skekkiur vegna
þess, að merki.. losna . úr . íiski
eða hann drepst vegna merk-
ingar. Einnig getur það sýnt,
hvort ein merkjategund er
betri en önnur.
Smáriðið net var haft yfir
poka vörpunnarf ti) þess að sýna
gi’.di möskvastærðarinnar. Voru
notaðir pokar með mismunandi
riðli. Eru þessi gögm mikils1
virði, þegar ákveða skal
möskvastærð á botnvörpu eða
dragnót.
Þá voru teknar í Skjálfanda
og Faxaflóa blóðprufur úr
þorski. Er það gert með því að
gera hjartaskurð á fiskinum.
Blóðprufur þessar voru teknar
fyrir danskan erfðafræðing, er
síðan ætlar að vinna úr þeim.
Notar hann blóðvökvann til
þess að greina á milli þorsk-
stofnanna. SJíkar tilraunir hafa
aldrei verið gerðar fyrr hér við
land.
Alls voru meðhöndlaðir 56372
fiskar í leiðangrinum og er það
um þriðjungi minna en í sams-
konar leiðangri sl. sumar.
Á fundi bæjarstjórnar Reykja-
víkur í fyrradag bar verkfall
verkfræðinga, scm cnn stendur,
á góma. Felldu fulltrúar meiri-
lilutans þá tillögu um að bærinn
tæki upp sjálfstæðar samninga-
viðræður við verkfræðingana.
Það var Guömundur Vigfússon,
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins, sem hreyfði máli þessu og
bar fram svofellda tillögu:
, Bæjarstjórnin telur nauðsyn
til bera að bundinn verði endi
á vinnudeilu þá milli Stéttarfé-
lags verkfræðinga og Reykjavík-
urbæjar sem yfir stendur. Felur
því bæiarstjórn bæjarráði og
borgarstjóra að hefja þegar sjálf-
stæðar samningaviðræður við
Stéttarfélag verkfræðinga í þvi
augnamiði að ná santkomulagi
scm fyrst.“
Geir Hallgrímmsson borgar-
stióri sagði að það væri „tómt
mál að flyt.ia þessa tillögu“ og
gerði þá breytingartillögu við til-
lögu Guðmundar að síðari máls-
greinin orðaðist svo: „Felur bæj-
amtiórnin því bæjarráði og
borearstjóra að stuðla að lausn
deilunnai’.“
Breylingartillaga borgarstjóra
va.r sambykkt að loknum um-
ræðum með 11 atkvæðum íhalds
Floti USA
stækkaður
17/8 — Bandaríski flotinn til-
kynnti í dag, að bætt yrði víð
43 bardagafærum orustuskipum í
ílotann, þannig að bandaríski
flotinn telji 861 skip, sem reiðu-
búin eiu til atlögu.
Talsmaður flotans segir að
þetta sé einn liðurinn í auknum
vígbúnaði Bandaríkjanna, sem
leggja nú áherzlu á að auka
vopnabúnað af venjulegum
vopnum auk atómvopna.
og krata gegn 3 og tillaga Guð-
mundar svo breytt samþykkt
samhljóða.
Fyígzt vcr
sjó og landi
Moskva 17/8 — Blaðið Pravda
skýrir frá því í dag, að sovézk
I skip á Atlanzhafi og Kyrrahafi
I hafi fylgzt með geimfarinu Vo-
| stok II, sem geimfarinn Titoff
fór með 17 sinnum umhverfis
jörðu úti í geimnum. Einnig var
tylgzt með geimfarinu frá stöðv-
um á jörðu niðri í Sovétríkjun-
um.
Bæði skipin og aðrar stöðvar
voru í stöðugu sambandi við
höfuðstöðvar geimrannsókna Sov-
étmanna, sem einnig höfðu
beint samband við geimfarið
með sjónvarpi og útvarpi, og frá
höfuðstöðvunum var einnig hægt
a.ð stjórna geimfarinu. Sérfræð-
ingarnir sáu m.a. þegar Titoff
greip myndavél, sem sveimaði
þyngdarlaus í stjórnklefa geim-
farsins. Þeir sáu geimfarann
brosa og hlægja, borða mat sinn
og framkvæma þær athuganir og
stjórnanir sem honum voru ætl-
aðar.
Séríræðingarnir í höfuðstöðv-
unum fylgdust með geimfarinu
hverja einu.stu mínútu í þær 25
stundir sem það var á lofti. Þeir
tóku við skýrslum frá Titoff um
flugið og fylgdust með öllum
hræringum með tækjum sínum.
Sérhver hreyfing geimfa.rsins var
teiknuð jaínóðum á kort og upp-
drætti þannig að fylgzt var með
hverju smáatriði. Ef eitthvað
óvænt hefði komið fyrir, hefði
verið hægt að láta geimfarið
lenda hvenær sem var meðan á
ferðinni stóð.
Leitið
og þér munið finna
Það hefur vakið athygli £^ð
Gunnar Thoroddsen, hinn
biblíufasti, birti enga gi-ein í
Vísi á miðvikudaginn var, og
hafði þó verið tilkynnt að
greinar eftir hann myndu
koma þar vikulega. Ástæðan
er eflaust sú að hann er enn
að leita að heppilegri tilvitn-
Verður
gengið hækkað?
Fyrsta verkfallið eftir geng-
„islækkun er nú hafið. Kjöt-
kaupmenn hafa bundizt sam-
tökum um það að neita að
selja nýslátrað dilkakjöt nema
þeir fái greitt stórhækkað
kaup fyrir viðvikið. Nema
kauphækkunarkröfur þeiri'a
hvorki meira né minna en
67" o, og rnyndi verða kveðið
og sungið ef Dagsbrúnarmenn
ættu. í hlut.
Almenningi mun þó finnast
kjötið nægilega dýrt þótt ekki
bætist enn ofaná. Þegar fyrsta
kjötið kom á markað í fyrra
kostaði kílóið kr. 27.47 en
tímakaup Dagsbrúnarmanna
var kr. 20,67 það hrökk þanii-
ig fyrir hálfu öðru pundi af
súpukjöti. Nú átti kílóið af
kjöti að kosta kr. 45.10 en
Dagsbrúnarkaupið er kr. 22.74;
það hrekkur ekki nema fyrir
pundi í ár. Kaupmáttur
verkamannskaups hefur þann-
ig rýrnað um þriðjung á einu
ári, ef ætlunin er að nota
það til að kaupa nýslátrað
dilkakjöt. Og verði þóknun
kjötkaupmanna hækkuð um
67" o fer kílóið upp í kr. 47.50,
og skammturinn sem fæst fyr-
ir tímakaupið rýrnar enn.
í fyrra neituðu ka.upmenn
um skeið að selja kartöflur
og fengu álagningu sína
hækkaða til muna. Því mun
verða veitt athygli hvort þeir
fá nú 67" u kauphækkun fyi'ir
að selja kjöt, ekki sízt af þeim
sem taldir eru hafa steypt
þjóð sinni í glötun með 10%
kauphækkun. Og eins mun
verða tekið eftir því hvað
ráðheri-ar, hagfræðingar og
bankastjórar gera til þess að
stela hækkuninni af kaup-
mönnum þegar búið er að
semja um hana. Ráðið til þess
er að hækka gengið! Austri
Laugardagur 19. ágúst 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (3