Þjóðviljinn - 19.08.1961, Qupperneq 6
þlÚÐVILJINN
ÍJtgefandi: Sameinlngarflokkur alþýðu - ^Sósíalistaflokkurinn. - Ritstjórar:
láagnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Olafsson, Sigurður Guðmundsson. -
FréttarltstJórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir
Uagnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Ckólavörðust. 19.
líml 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 45 á mán. - Lausasöluverð kr. 3.00.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Kauphækkun stolið fyrirfram
Qpinberir starfsmenn hafa nú um langt skeið gert
kröfur um mjög verulegar kjarabætur. Hafa 'þeir
fært röik að því hvernig afkoma þeirra hefur rýrnað á
undanförnum árum og það svo alvarlega að það er
ek-ki aðeins stórfellt vandamál fyrir starfsmennina
sjálfa heldur og þjóðarheildina; nægir í því sambandi
að minna á sívaxandi kennaraskort. Þessi vandamál
hafa mjög verið rædd á fundum opinberra starfsmanna
og mótuðu algerlega síðasta bandalagsþing, þar sem
samþykktar voru mjög eindregnar ályktanir með kröf-
um um kjarabætur. Á því þingi gerðust einnig þau
tíðindi að stjórnarflokkarnir glötuðu þeim, algeru yfir-
burðum sem þeir höfðu haft á bandalagsþingum um
langt skeið; mátti segja að fylkingar stæðu jafnar og
var kosin blönduð forusta fyrir bandalagið, og eru þó
fulltrúar stjórnarflokkanna fleiri. Hin nýja stjórn tók
síðan til óspilltra málanna að móta kröfur opinberra
starfsmanna, og náðist að lokum algert samkomulag
um það að starfsmenn þyrftu að fá 33,8% kauphækkun
til þess að vega upp þá skerðingu sem þeir hefðu sætt
af völdum viðreisnar og fyrrá misréttis. Um þessa nið-
urstöðu var stjórn OB.S.R.B. algerlega sammála, Sjálf-
stæðisflokksmenn og Alþýðuflokksmenn ekki síður en
sósíalistar og Framsóknarmenn.
■yiðbrögð ríkisstjórnarinnar við þessum kröfum hafa
verið lærdómsrík. iHún dró málið á langin, þumb-
aðist við og -fékkst ekki til neinna raunverulegra
samninga. Og nú er öllum ljóst hvers vegna ríkisstjórn-
in dró málin á langinn. Hún þurjti aö jramkvæma nýja
gengislækkun jyrst; hún þurjti aö stela jyrirjram þeim
kjarabótum sem hún ætlaöi að sletta í opinbera starjs-
menn á pappírnum. Og nú er þetta allt komið í kring;
fyrst er framkvæmd rúmlega 13% gengislækkun og
síðan er starfsmönnunum sagt að þeir geti látið sér
nægja rúmlega 13% kauphækkun! Og vert er að minna
á að í þeim hópi sem ákvað þessi vinnubrögð á leyni-
fundum um síðustu mánaðamót eru 'býsna margir op-
inberir starfsmenn, meira að segja menn sem hafa
látið mjög mikið að sér kveða í samtökunum, eins og
Sigurður Ingimundarson og Ólafur Bjömsson.
fjegar ríkisstjórnin hafði skammtað starfsmönnunum
kaupið eftir gengislækkunina lagði hún ofurkapp
á það að fá stjórn bandalagsins til þess að sætta sig
við skammtinn og þakka fyrir. Gerði hún sér vonir
«m að sá merihluti bandalagsstjórnarinnar sem fylgt
hefur stjórnarflokkunum að málum myndi láta sér
lynda þessar niðurstöður. En því fór víðs fjarri, í allri
bandalagsstjórninni fannst ekki einn einasti maður
sem vildi sætta sig við skammtinn. Menn kunna að
vísu að efast um heilindi sumra þeirra eftir það sem
á undan er gengið, en þeir voru þá svo hræddir við af-
stöðu stéttarbræðra sinna að þeir dirfðust ekki að veita
•ríkisstjórninni lið. Þess vegna hefur stjórn BSRB fellt
það einróma að sætta sig við tilboð ríkisstjórnarinnar
og mun hún nú vera að undirbúa mótaðgerðir.
Oú staðreynd að ríkisstjórnin skuli ekki eiga einn
^ einasta opinberan liðsmann í kjaramálum í hópi
meirilhluta síns í forustu BSRB er ótvírætt tákn þess
hversu einangruð ríkisstjórnarklíkan er meðal þjóðar-
innar. Engum getur dulizt að yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar telur stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahags-
málum ósæmilegt glapræði, og nú skiptir meginmáli
að finna sem fyrst réttar leiðir til þess að hnekkja
þessari stefnu. Allir þeir sem eiga í vaxandi mæli um
sárt að binda af völdum hennar, verklýðssamtök,
bændur, opinberir starfsmenn, þurfa að hefja sameig-
inlega baráttu til að rétta hlut sinn. Gegn slíkri sam-
stöðu fær ekkert staðizt. — m.
EFTIR
Hvítir reykjarbólstrarnir úr
verksmiðjustrompinum hrann-
ast ón afláts, blandast þokunni,
falla niður og fylla vitin þeim
ilmi er nefnist peningalykt. Við
höfum staðnæmzt við Rauðu
mylluna, þar -sem unglingarnir
lepja kók og japla á einhverju
því sæta gumsi sem framleitt
er í ótrúlegustu holum á furðu-
legustu stöðum — og nefnt
„þjónusta“ við almenning. 1
Rauðu myllunni hangir ein-
mana fáklædd paopírskona á
rimlum uppi á vegg — ó-
keypt enn. Nokkrum metrum
fiær stendur gluggalausa gráa
húsið. Við dyr bess mikil þyrp-
ing fólks er bíður utan dyra,
maret snariklæt.t. Hónurinn
stækka.r jafnt og bétt og leng-
ist út á götuna. Fólkið stendur
þa.rna. margt yfirhafnarlaust,
og bíður þolinmótt; úrsvalur
þokusuddi kvöldsins sezt jafnt
hægt f föt bess.
Eftir hverju er fólkið að bíða?
Handan götunnar halda krí-
umar glaða veizlu í vilpunni
miklu ofan síldarbræðslunnar.
Milljónunum sem hér hafa ár-
lega verið lagðar á land á und-
anförnum árum st.ungu að-
knmnir gróðafuglar í vasann
þeear beir fóru, en vilpan varð
eftir. Nú hefur þessi ríkisvilpa
loks orðið að láta töluvert und-
an síga, það hefur verið rutt
niður í hana mold og allskonar
rusli. Hálf gluggagrind lítur
þar dagsljósið hinzta sinni,
helmingur hennar sokkinn í
vott myrkur vilounnar. Rétt
áða.n var bíll að losa þar möl
í vfirla.g næst verksmið.iunni.
Rigndur maður með yfirskegg
gengur hægt framh.iá og horf-
ir íhugandi kringum sig. „Gátt-
ir allar áður gangi fram um
skvegnast skvli. . . .“ Þa.ð renn-
ur mórauður rakki á hæla hon-
um.
Leikararnir í „Kiljanskvöldi". Frá vinstri: Lárus Pálsson, Helga VaUýsdóitir, Rúrik Haraldsson og
Ilaraldur Björnsson. (Ljósm. Þjóðv.).
gluggalausa húsið hefur nú
stækkað um helming; úrsval-
ur þokusuddinn heldur áfram
að setjast í föt þess.
Eftir hverju er fólkið að bíða?
Við nennum ekki að bíða
kyrrir þarna lengur en förum
bæinn á enda í átt að höfða
er einhvern tíma var nefndur
í sambandi við óstina. Við
þræðum þetta milli húsa og
tunnuhlaða, endum við kirkju
staðarir.s, þar sem útihús
prestsins stendur, en prestur
sést hvergi; vafalaust er hann
nú að lesa kvöldbænina, ell-
ekar hann selur annarra sókna
börnum kaffi í þessum veitinga-
húsalausa bæ.
um innri. dyrnaf. ,þ.að eru enn -
la.us sæti. á; aftasta bekk •— og >:
enn er fólk að kpma. ,Á síðustu
stundu ótta ég.mig;,á að mér;
ber e.kki að taka sæti frá ,fólk-..
inu hér. Það er ekki svo oft'.
sem fólkið ,ýti á latldi á völ
þeirrar beztu listar er þjóðin
á. Raunar hefur það farið. í
Nokkrir piltar ganga víga-
legir framhjá í stelpuleit.
Ljósgrá heilög kýr röltir göt-
una í heimspekilegri ró. Það
fvlgir henni drengur og danglar
öðru hvoru ólarspotta í heilag-
leikann.
Tvær fermingartelpur vagga
framhjá okkur mjöðmum sem
enn skortir fyllingu. í kvöld
æfa þær af kappi nokkuð sem
þær hyggja vera dömufas.
Elskulegar litlar telpur. („Og
ef hún manna vissi það. . . “)
Hópurinn sem bíður við
Við röltum sömu leið til baka
milli tunnuhlaða og húsa. í
Rauðu myllunni sitja nú at-
hvarfslausir aðkomumenn og
„drepa tímann", vanmegna að
nýta tómstundina.
Dyr gluggalausa hússins hafa
nú verið opnaðar, hópurinn að
mestu horfinn inn um dyr
þess.
Eftir hverju hafði fólkið ver-
ið að bíða?
Við förum þangað og sjáum
þá að útum lítið gat á húsi
þessu eru seldir aðgöngumiðar
IIér sézt yfir stærstu söltunarstöðina í þorpinu og má reyndar skynja hvernig allt . er ál fieygiferð og; héndúr ■ látnar standa fram úr
crum, því að hver stund er dýrmæt, þegar silfur hafsins er annarsvegar. Kirkjan og presthúsið í baksýnúóúrþar er rekin;sjómannastofa
BÍflA?
handrita. - Þessir tímar þegar
erlendir kaupahéðnar höfðu í
hendi sér að skrá gengið dag-
lega voru miklir dýrðardagar
fyrir þó, en mjög „erfiðir tím-
ar“ fyrir íslenzka þjóð; svo
erfiðir að við ættum ekki að
gera okkur íeik að því að leiða
aðra slíka yfir okkur að nýju;
ættum ekki að láta erlenda
kaupahéðna eða búðarlokur
þeirra skrá gengið daglega og
skammta á borð íslenzkra
manna.
En þótt forfeður okkar gengju
á kú-skinnsskóm og byggju í
.moldarkofum og „gengi“ ís-
lenzkra vará væri slíkt að þeir
ættu ekki fyrir snæri til að
draga fisk og væru hýddir
fyrir að stela snæri — þótt fá-
tækt og.evmd ætti sér vart
takmörk. há geymdu þeir enn
þær íslenzkar bækur sem góð-
viliaðir erlendir prófessorar
vilja enn ræna á atómöld, —
og þá var manngöfgi og mann-
BJÖRN FRANZSON:
trúboði á steini í Brennugjá og
sýnir ljóslifandi ofstæki trú-
boðans og er svo vígfimur í
þrætum við vantrúarhunda að
það hvarflar að manni að lík-
lega hefði hann getað orðið
skeinuhættur pólitískur þrætari.
Eigi veit ég hvenær Harald-
ur Biörnsson byriaði að leika;
sjálfur á ég honum margar
góðar stundir að þakka í meir
en 30 ár. Fyrir fáum dögum
varð ha^n sjötugur. — á svið-
inu í leikför úti á landi. Ætia
mætti að stiórnarvöldin sæ.iu
sóma þióðarinnar í því að
launa -301110 hans og langt starf
að verðleikum. — Máski er
honum sjálfum kærast þakk-
læti þess fólks er sialdna'it á
bess kost að njóta snilldar
hans.
Á Kiliankvöldi siáum við
snöggvast Guðmundsen kaun-
mann, --altfisksbarón úr Brekku-
kostannál, forvera dollaragríns-
millanna í dag. Ennfremur nú-
að Kiljanskvwldi. Sý.ning á senra ■ Bófgarfiþðf, Tagt leið sína um
að hefjast. Við förum.inn. í foí- i Snæféllshes, Ðali, Húnavatns-
dyt’i .. þessa, .gluggfilgusa - húss • sýsiút. Skagáfjörð, Eyjafjörð og
þrír lögregluþjónar,. alvarlegin. .- hváfvetrta vefið góð aðsókn (að
góðlegir en virðist leiðast mjög.u éirium stað undanskildum).
að standa . hér; Við lítum .irœ • í formála að Kiljanskvöldi
Segir á þá leið :að brugðið skuli
-upp myndum úr lífi genginna
kvnslóðá. Og’ við, Islendingar
bílá-;fJuevéla- og vetnisvopna-
• aida.r, höfum gött af því að
mifmast þess endrum og eins
•dð'við erúm ekki hingað dottn-
ir af himníim ofán, fyrstu menn
á íandirtu. heldur eigum okkur
vöxt að hópar úr höfuðstaðn-. fóftið ög bjóðarsögu. Þeir tím-
um ferðuðust um landið á' ar eru ekki langt að baki er
sumrum til a.ð sk?rpmta .fólk- • förféðurnír urðu að hýrast í
inu á „útkjálkupqm“. Af við- toi'fbfeöium undir steinahlíðum
ræðum við fólk ,á nokkrumion f úeglausu iandi óg skipalausu,
slíkum stöðutn hef ég orðið þegár það tók ár að ná fundi
þess vísari qð. . það undrást si’jóinarvalda og konungs — ef
mjög bve mikið af .því sem frá menti bá tíkki fórust í hafi.
höfuðstaðnqm kemur : á sumra . Ei'tóndir káupah’éðnar höfðu ís-
in er graðhestamúsik og fimm-i lahd- á Teigu og skömmtuðu
aurabrandarar. prfaa á öllum- vörum og gættu
1 kvöld erum við á Raufar-'ó þcss ætíð að verðið á innfluttu
höfnj en ég var.svo -stálheppH.'.:’ vörunam' Væri' miklu hærra
inn að vera.áður,staddur á;stað .. öti.-‘vertð’- á íslenzkum vörum
þar aem, Lárus Pálsson og.flokk að'-.'>þeir gætu fyrir „gengis-
hans, þau lielga Valtýsdóttiii*- > )milninn“ byggt sér hallir í er-
Ilaraldur Björnsson og Rúrik ,;<lenðri - borg • og haldið þar dýr-
jlaraldsson þ.ar ,að qgarði, þótt " Tega fagnaði':meððn Islendingar
ekki væru.þar þiðraðir, Kiljansk.í urðu að bjafgá tórunni með
kvöldsmenn höfðu byrjað í. . áti -skóbóta og- glötun skinn-
Hér sést yfir tjörnina í miðbiki þorpsins og í baksýn verk-
smiðjan, sem malar gull dag og nótt í sumar, og skilar drjúg-
um arði í þjóðarbúið.
gildi ekki í minni metum en
nú í dag.
Persónurnar í sögum Kiljans
eru raunar fæstar eða engar
nafngreindar eftir mönnum Is-
landssögunnar, en þó þekkja
þær allir, — þær eru -svo sann-
ar að íbúar margra þorpa
standast vart reiðari en sé dreg-
ið í efa að Kiljan hafi haft
einmitt þeirra Bogesen til fvr-
irmyndar! Þessvegna er Kilj-
anskvöld íslandssaga. Og hvað,
sýnir þetta Kiljanskvöld okkur?
Lárus Pálsson er þar ógievni-
anlegur íslenzki bóndinn, ljúf-
ur, en lætur ekki fangast, og
selur ekki hulduhest barnanna
sinna fyrir fé, — og gerir samt
enga kröfu til að vera talinn
mikilmenni. Bóndinn sem
gengur á konungsfund og á-
varoar hann sem jafningja sinn.
Rúrik er hinn röggsami góðvilj-
aði sýslumaður — og við bykj-
umst kenna gerfið. Helea Val-
týsdóttir sýnir okkur hina
saklausu fávísu bóndadóttur
sem veit ekki hvað hún vill
— og veit það þó!
Haraldur Björnsson gerist
tímamanninn Pétur okkar þrí-
hross. Að lokum 4 atriði úr
íslandsklukkunni — og hana
þekkja allir. Við sjáum tímann
þegar Islendingar drukku sig
fulla við hallirnar er byggðar
höfðu verið við erlendan sæ
fyrir „gengismuninn" á erlendri
og íslenzkri vöru á íslandi“;
d.rvkku sig fulla vegna þess að
, I -land var sokkið hvort sem
vp’-“. Samt var það íslenzkur
maðnr er fróðast.ur var allra í
Panaveldi um bókmenntir og
átti bað safn bóka er hvergi
fe.’-’rist annað slíkt.
ivrinnisstæðast frá Kiljans
kvöldinu er mér þó Lárus Páls-
soo’ sem hinn svarti Jón
Hr»ggviðs'-0n 'þegar hann
f"p,’nmi fyrir því erlenda pen-
inff>!><,styrmi er lagði til húsið.
gsrðinn og peningana og keypti
bókmann Islands, lýsir þeim
konuaugum íslenzkum er
„horfðu á Jón Hreggviðsson
boim augum sem munu ríkja
yfir íslandi þegar afgangurinn
af heiminum er fallinn á sínum
illvérkum."
J. B.
rlí Kvaran
Karl Kvaran sendir mér
nokkur orð í Þjóðviljanum
hinn 9. þ.m. undir einkunnar-
oi’ðunum „Dæmið ekki, til þess
að þér verðið ekki dæmdir“.
Þetta eru, í alvöru talað,
einkar heopilega valin einkunn-
arorð, vegna þess hversu þau
bregða skæru ljósi á þá stað-
reynd, sem er undirrót orð-
•sendingar Karls og einkennir
afstöðu margra hinna ungu
tízkulistamanna vorra. En stað-
reyndin er bessi: Þeir vilia ekki
bola gaanrýni. Það má ekki
dæma bá, nema þá lofsam-
le°um dómum. Skyldi einhver
dirfast að dæma á hinn veg-
inn, má sá hinn sami eiga
víst að verða s.iálfur dæmdur
óvægilega af listamönnum bess-
um, sem hafa reyndar sjaldn-
ast tiltækar aðrar röksemdir
en þær, a.ð hann sé „geövond-
ur“, „hrokagikkur“, „smekk-
leysingi“ og þar fram eftir
götunum. Mér hafa þeir sent
tóninn þessum og þvílíkum
orðum í dagblöðum bæjarins
Hafsteinn Austmann, Hjörleifur
Sigurðsson, Þorvaldur Skúla-
son og fleiri tízkumenn, af
því að þeim hefur ekki þótt
ég vera nógsamlega hrifinn aí
málverkum þeirra. Og nú upp-
hefur Karl Kvaran einnig sína
raust í svipuðum tón, án þess
þó að öllu meira fari fyrir
rökfærslunni hjá honum en
hinum.
II
Af orðum Karls verður vart
annað skilið en að hann hafi
ætlazt til, að ég gerði sérstaka
grein fyrir skoðun minni á
hverri mynd sýningarinnar á
málverkagjöf Ragnars Jónsson-
ar í athugasemdum þeim um
sýninguna, sem ég skrifaði í
Þjóðviljann 2. þ.m. En sé þess
minnzt, að myndirnar voru 77
að tölu, þá má ljóst vera, að
slík umsögn hefði orðið dálít-
ill bæklingur, en ekki venju-
leg blaðagrein, og hvorki hefði
ég haft tóm til slíkra skrifa né
Þjóðviljinn rúm til að birta
þau. Á það má þó gjarnan
minna í þessu sambandi, að stað-
hæfing getur verið sönn, þó að
ekki fylgi rækileg rökstuðning,
og hún getur verið gagnleg
lesanda með því að benda hon-
um á hið rétta, en láta hann
sjálfan um að leita röksemda,
ef honum sýnist svo, enda er
hvort sem er hver frjáls að
sinni skoðun í þessum efnum.
En þó að í grein minni væri
að sjálfsögðu ekki kostur ítar-
legra rökræðna um sérhverja
mynd út af f.vrir sig. ber bess
að minnast. að greinin fjallaði
um ýmis fleiri atriði. að því
er varðar myndasafn þetta og
framtíð bess. og mun enginn
geta saat með sanni, að þau
siónarmið, sem þar voru sett
fram, hafi verið órökstudd.
Revndar mæt.ti Karl Kvaran
heldur en ekki láta hendur
standa fram úr ermum við
skriftirnar. ef bann viidi taka
listdóm.endur til bæna. í hvert
sinn er beir gera ekki ítarlegri
grein fvrir dómum sínum en ég
f áðurnefndri grein. Ég hef
til dæm’.s milli handa umsögn
listdómara stærsta daeblaðsins
í höfuðstaðnum um málverka-
sýnineu eins helzta afstrakt-
málarans. bar sem allt er einn
fjálglegur lofsöngur, án þess
þó að minnzt sé sérstaklega á
eina einustu mynd sýningar-
innar, hvað þá að kveðinn sé
upp um nokkra þeirra rök-
studdur dómur. Og þetta er
vissulega ekkert ein-sdæmi.
Ekki hefur þó borið á því,
að Karl Kvaran eða samherjar
hans hafi átalið þetta á prenti.
En ef til vill er honum rök-
stuðningur ekkert aðalatriði,
þegar verið er að hæla sjálf-
um honum eða stallbræðrum
hans í hópi tízkumálara.
Vonandi skilur enginn orð
mín svo, að kröfur um full-
nægjandi rökstuðning dóma um
list séu mér hégómamál. Það
hefur oft 01'ðið mér umhugs-
unarefni, hversu mikið skortir
á í þessu efni hjá oss. Væri
til þess ætlazt, að listdómend-
ur gerðu ítarlega grein fyrir
dómi sínum um sérhverja mynd
sýningar, þá héldist þeim vissu-
lega síður uppi að hæla gegnd-
arlaust hvers konar fánýti, eins
og nú á sér stað alltof oft.
Það væri því sannarlega æski-
legt, að vel hæfir listdómend-
ur fengju-st til að skrifa ítar-
legar og vandlega rökstuddar
ritgerðir um hverja málverka-
sýningu, blöðin fórnuðu rúmi
undir slíkar umsagnir og nógu
margir lesendur vildu lesa þær
og gera sér að íhugunarefni.
Hætt er þó við, að á þessu
geti orðið nokkur bið.
Hins vegar mætti ætla um
mann, sem gerir eins strang-
ar kröfur um rökstuðning
hverrar staðhæfingar og Karl
Kvaran í grein sinni, að hann
væri ekki sjálfur með órök-
studdar fullyrðingar einmitt í
hinni sömu ritsmíð. En hann
lætur sér reyndar nægja að
kalla niðurstöður mínar „móðg-
un við lesendur“ og „sleggju-
dóma“, sem almenningur taki
„ekkert mark á“, án þess að
gera einu orði grein fyrir því,
með hverjum hætti ég hafi
rangt fyrir mér að hans dómi.
Þetta mun hann nú víst ekki
kalla sleggjudóma hjá sjálfum
sér né brot gegn boðorðinu
„Dæmið ekki“, — eða hvað?
III
Karl spyr mig, hvers vegna
ég álíti myndir Kjarvals „Hell-
isheiði" og „Fjallamjólk11 verð-
mætustu málverk safnsins. Ég
skal játa, að þetta getur verið
álitamál, þó að ég sé þessar-
ar skoðunar. Hitt mun enginn
listskyggn maður véfengja, að
þessar myndir eru með því
allrabezta í safninu, og það er
raunar aðalatriðið. Karl Kvar-
an má vera á annarri skoðun
um þetta fyrir mér.
Hann spyr í annan stað.
hvers vegna ég álíti fráleitt að
tel.ia Jón Stefánsson jafnoka
Ásgríms og Kjarvals. Mig
skortir að vísu ekki rök fyrir
svo augljóslega réttri skoðun,
en mun þó ekki fara að ræða
það mál frekar hér, minni
aðeins á það, að margir vel
dónibærir menn hafa löngu
séð í gegnum þjóðsöguna urn
mikilleik Jóns Stefánssonar og
skipað honum til sætis ein-
hversstaðar nálægt mið.iu í
metm’ðastiga íslenzkra mynd-
listarmanna. Það er vissulega
engin vansæmd að eiga þar
sæti, og i slíku mati felst síð-
ur en svo nokkur óvirðing við
Framh. á 10 síðu
6) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 19. ágúst 1961
Laugardagur 19. ágúst 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (7