Þjóðviljinn - 20.08.1961, Qupperneq 7
PIÓÐVIUINN
firtveí&ndl: Samelnlngarflokkur alþýðu — , Sósíalistaílokkurinn. — Ritstjórar:
Maícnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. —
FréttarltstJórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgelr
iíagnú8son. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Ekólavörðust. 19.
liml 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 45 á mán. — Lausasöluverð kr 3.00,
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Níðingsverk í undirbúniugi
jþað er ljóst orðið að hér á landi vinnur voldug klíka
manna að því að koma íslandi inn í Efnahagsbanda-
lagið. Það á að koma þjóðinni að óvörum. Það á að
dylja fyrir henni afleiðingar slíks skrefs. Það á að
tala um allskonar fyrrvara til að byrja með, jafnvel
setja þá. Það á að fá ýmiskonar yfirlýsingar, eins og frá
Acheson utanríkisraðherra Bandaríkjanna, 1949 við
inngönguna í Atlanzhafsbandalagið um að enginn her
yrði á íslandi á friðartímum, — svo þokkalega sem það
hefur verið haldið. Það á með öðrum.orðum að blekkja
þjóðina með ýmsu móti, — en það á að koma íslandi
mn. Svo mikið er þegar víst. Því veltur nú öll framtíð
íslenzku þjóðarinnur á því að hún átti sig í tíma, rísi
upp og hindri þetta níðingsverk. Ella verður það ekki
íslenzk þjóð ein sem ræður þessu landi og byggir það
ein í framtíðinni.
Jjjfnahagsbandalagið er raunverulega nýtt ríki, sem
er að rísa upp í Vestur-Evrópu, — en þó fyrst og
fremst sameiginlegt efnahagslegt ríki, en þvf er ætlað
'að verða meira. Sem efnahagslegt ríki er það undir
ægishjálmi stórþýzku auðhringanna. Auðvald Þýzka-
lands er að leggja undir sig Vestur-Evrópu í samráði
við auðhringa Frakklands og annara ríkja, — með
hávaðaminna móti en Hitler gerði 1940, er franska auð-
stéttin sveik landið í hendur þýzka auðvaldinu og nas-
istum þess. Auðhringavald þetta vill ráða stóru, vold-
ugu ríki og varðar ekkert um þjóðerni, þjóðmenningu
eða neinn slíkan „hégóma“. Þetta ógnarvald varðar að-
eins um gróða, — sér aðeins gróða og gróðavon og mið-
ar allar aðgerðir sínar við gróða. Þessvegna er höfuð-
atriðið fyrir það frjáls og ótakmarkaður aðgangur að
öllum auðlindum ,,stórríkisins“, ,,frjáls“ fjárfesting all-
staðar og „frjáls“ flutningur vinnuafls milli landa.
y/'erði ísland innlimað í Efnahagsbandalagið, þá geta
hinir voldugu auðhringar og hvaða erlendir brask-
arar sem eru eignast hvaða fyrirtæki, sem þeir vilja,
haft sama aðgang að auðlindum íslands sem íslending-
ar. — Með öðrum orðum: þýzkir iðjuhöldar t.d. réðu
jafnt atvinnufyrirtækjum á íslandi sem í Holstein eða
Suður-iSlesvík. Yfirráð íslendinga yfir eigin efnahags-
lífi væru þar með úr sögunni. — Og það var það, sem
við börðumst fyrir að fá í margar erfiðar aldir. En ekki
nóg með það. Hið drottnandi auðvald Efnahagsbanda-
lagsins krefst þess að fá að flytja fólkið, sem það
ætlar að þvæla út í verksmiðjum sínum, hvaðan að sem
það vill. Það heimtar að geta flutt inn, jafnt til ís-
lands sem Vestur-Þýzkalands, ef ísland er innlimað
i Efnahagsbandalagið, hundruð þúsunda erlendra
verkamanna, ef það álítur sig þurfa þeirra við. Verði
ísland innlimað í Efnahagsbandalag auðhringanna, get-
ur svo farið að það verði ekki íslenzk þjóð, sem byggir
þetta land í framtíðinnifheldur verðum við hér minni-
hluti, sem smásaman missir hér öll yfirráð.
petta eru þau banaráð, sem íslenzku þjóðerni nú eru
brugguð. Það er ekkert að marka neina fyrirvara,
sem hræddir landráðamenn þykjast vilja gera í dag,
meðan þeir eru að beygja þjóðina undir þetta nýja ok.
Þjóðin hefur þegar reynsluna af því. Loforðið, sem þeir
gefa í dag, svíkja þeir á’ morgun.
það er hart fyrir oss íslendinga, þjóð manngildisins
og frelsisins, að eiga einmitt á þessari örlagastundu
yfir oss ríkisstjórn hinna feitu þjóna. En erlendir herr-
ar skulu 'ekki of snemma hrósa sigri yfir kotkörlum
á Islandi. Sú þjóð, sem nú er barin af feitum þjónum
auðsins sem væri hún þrælar. mun rísa upp og sýna
auðkóngum Evrópy, að hún er MIKIL þjóð, þótt fámenn
sé, og ætlar sér EIN að ráða því landi, sem forfeður
hennar gáfu henni, hvað sem það kostar.
Þessi orð blasa við á cirtöflu þegar komið er noklcuð inn í garðinn. Þessi garður sem kon-
ur gerðu er mjög óvcnjulcgur — annar slíkur garður finnst hvergi á landinu. Af þeim 430
tegundum er vaxa hér á landi er 390 að finna í licssum garði, flestar þeirra í tveimur beðum.
Nokkurnveginn örugg vissa er fyrir því að áþessu sumri bætist garðinum 10—20 tegundir og
vantar þá ekki nema herzlumuninn til þess að í liann sé komið sýnishorn alls þess gróðiirs
sem vex hér á fslandi. Auk þess var þar í sumar gerð fyrsta tilraun með að safna hór
grænlenzkum plöntum.
títlendar tegundir cru alls um 1200 svo alls eru í garðinum kringum 1600 tegundir.
Myndir úr Lystigarði Akureyrar. Á myndinni til hægri sést plöntusafnið (ísienzka flóran) í langbeðunum sitt hvoru megin við grasflötinn.
Margarjethe Schjöth var gerð að heiðursborgara Akureyrar á 70 árá afmæli sínu og sést hún hér
á myndinni með heiðursskjalið.
Hvaða garð ertu að tala um
maður? spyrjið þið kannski.
Vitanlega Lystigarð Akureyrar,
— eina garðinn sem þjóðin á.
íbúar Akureyrar 1. des. s.l.
voru ........, þá voru íbúar
Reykjavíkur ........ Samt er
það Akureyri en ekki Reykja-
vík sem kom upp fyrsta gras-
garði landsmanna. Á hátíðleg-
um stundum hefur þó verið
rætt um slíkan garð í Reykja-
vík, en það hefur verið látið
sitja við rómantískar ræður og
fögur orð. Reynslan heíur sýnt
að vonlítið má telja um slíka
stofnun í Reykjavík meöan
sauðþrátt Reykjavíkuríhaldið
ræður þar ríkjum. Það fæst
nefnilega enginn hermangsgróði
af menningarstofnunum.
Eitt megineinkenni Akureyrar
eru hinir fögru garðar. Ibúar
Reykjavíkur hafa raunar hii»
síðustu ár gerzt mjög hættu-
legir keppinautar Akureyringa
í blómarækt, en samt stenzt
hvorki Reykjavík né aðrir ís-
lenzkir bæir samanburð, í gerð
trjágarða stendur Akureyri
fr'emst.
‘Mikill hluti landsmanna hefur
sennilega einhverntíma komið
til Akureyrar, og þá vafalítið
einnig í Lystigarðinn; skal því
elíki reynt að lýsa honum hér.
Samt skulum við fræðast ofur-
lítið um hann af Jóni Rögn-
valdssvni fortöðumanni hans.
„Konur gerðu garðinn". Og
því skal ekki gleymt að það
voru danskar konur sem frum-;
kvæði áttu, þótt raunar væru
þær íslenzkir borgarar. Sjálft
nafnið, „Lystigarður“, segir til
um hverjir það voru sem geng-
ust fyrir stofnun hans árið 1912.
Það var Anna Katharine
Schiöth, tendamóðir Marga-
rjethe Schiöth, sem gekkst fyr-
ir stofnun garðsins árið 1912.
Hún var þá orðin aldin að ár-
um er hún réðst í þetta, en
tengdadóttir hennar Margrét
tók við af henni og hélt starfi
hennar áfram. Anna stofnaði á
sínum tíma Lystigarðsfélag Ak-
ureyrar og starfaði það eitthvað
fyrst, en fljótlega kom að því
að hún varð sjálf að bera hit-
ann og þungann af ræktun
garðsins. Stefán Stefánsson
skólameistari var um þær
mundir bæiarfulltrúi. á Akur-
eyri og mun hafa stutt þetta
mál vel. Bærinn tók að styrkia
garðinn og æ meira bví lengra
sem leið. unz hann tók að fullu
við starfrækslu hans fyrir 8 ár-
um.
Margrét Schiöth tók fljótlega
við starfi önnu í garðinum og
vann að ræktun hans óslitið þar
til fyrir 2—3 árum, en hún er
nú 90 ára og orðin mjög heilsu-
tæp. Oft hóf hún starf í garð-
inum kl. 7 að morgni og vann
bar löngum stundum. Um langt
árabil hafði Þura í Garði allan
veg og vanda af garðinum og
umsión hans, eða syo lengi sem
heilsa og krai'tar entust. Það er
bví sannmæli er á. eirtöfhmni
stendur: Konur gerðu garðinn.
Jón Rögnvaldsson hefur verið
umsjónarmaður garðsins. síðan,
1954. Mörg ykkar þekkið til
hans — það var hann sem
skrifaði bókina Skráðgarðar. En
hver er Jón Rögnvaldsson?
Hann er Eyfirðingur, -fæddur í
hinum þingeyska hluta,: ættað-
ur úr báðum sýslunum ,.Uann
byrjaði garðyrkjustprf um ferm-.
ingaraldur hjá Sigurði búnaðar-
málastjóra í Gróðrarstöðinni á
Akureyri, Sigurður búnaðar-
málastjóri hóf árið 1912 að
safna þar plöntum, en seinna
var þeirri starfsemi hætt. Á
vorin voru 6—8 vikna garð-■
yrkjunámskeið í Gróðrarstöðinni:
ög sumir unnu bar einnig allt:;
sumarið. Var bar fyrst vakinn
áhugi margra fyrir ræktun.
En við ætluðum a.ð rspða um
Jón Rögnvaldsson. Eftir dvöl í
Gróðarstöðinni fór hann í Gagn-
fræðaskólann á Akureyr.i, og
komst þá töluvert niöur í grasa-
fræði hjá Stefáni skóiampiptara.
Jón mun hafa hugað á; fram-
haldsnám, fór til Reykjayíkur,
í því augnamiði, en ,lenti í
spönsku veikinni 1918, ojL.varð'
það endirinn að hann . fþr til.
Ameríku Þar komst hann; síðar
í búnaðarháskólann, garðyykju-
deildina, í Winnipeg.; Síðan
vann hann í 3 ár v.ið skógrækt <
hiá Kanadastjórn. „Eftir f». ára
dvöl í Kanada hélt, hann . heim
til fslands og gerðist garðyrkju-
bóndi í Fífilgerði í,- Eyjafirði.
(Þeir sem hafa trúað aði Fífil-
gerði betta sé á Akureyri ..fara
villt, en skammt er þang;ið).
í Fífilgerði hóf Jón að safna
plöntum í garð sinn og var
korhinn vel áleiðis með íslenzku
flóruna þegar hann tók við um-
sjón Lystigarðs Akureyrar.
— Hvenær var byrjað á gras-
garðinum hér í Lystigarðinum?
— Það var ekki fyrr en 1955
og Sfðan, svaraði Jón Rögn-
váldssott. Fram að 1954 voru
ekki mjög margar tegundir í
gárðinum, hann hafði ekki ver-
ið ræktáður í því augnamiði að
hafa þar - plöntusafn.
— Fluttirðu svo þitt safn
hingað?
— Já. og svo hélt ég stöðugt
áfram að bæta við þeim plönt-
—---------------------------------
um sem eg
getað náð í.
— Hve margar íslenzkar teg-
undir eru hér í grasagarðinum?
— Hér eru nú 390 tegundir
af þeim 420 sem vaxa hér á
landi. Af þeim sem okkur vant-
ar eru nokkurnveginn öruggt að
við fáum 10—12 tegundir nú
í sumar.
— Hvað er það sem ykkur
vantar?
— Það er t. d. tvíeggblaðka
hún vex í Þrastaskógi, hlíða-
burkni — vex í grennd við
Hesteyri, marhálmur — vex við
Breiðafjöfð, vatnalaukur — vex
í Skorradalsvatni, burstajafni —
Þura í Garði
vex í Breiðdal, knjápuntur —
hann vex í Herjólfsdal í Vest-
mannaeyjum, ennfremur vantar
okkur nokkrar sjaldgæfa punta
og starir.
Aftrur á móti höfum við hér
skeggburkna, — hann er nýr í
flórunni, fannst í Höfðahverfi í
fyrrasumar.
— Er gott að rækta hér?
— Já, það er að mörgu leyti
gott. Hér þarf aldrei að óttast
sjávarstorma, þeir ná ekki hing-
að. Hér er staðviðri og oft mik-
ill snjór á vetrum og snjóalög
skýla því plöntunum.
Á einum stað í garðinum er
beð eitt, þakið steinum og
sandi að mestu og heldur
hrjóstrugur gróður. Því spyr ég
hvað þarna sé saman komið.
— Þetta er frá Grænlandi,
svaraði Jón.
— Hvernig er það hingað
komið?
— Kristján bróðir minn
komst til Meistaravíkur fyrir
stuttu í surnar og safnaði þá
fyrir mig plöntum. Flugvélin
hafði aðeins fjögurra stunda
viðdvöl, svo þetta er aðeins frá
því svæði sem hann gat gengið
á þeim tíma. Hann kom þó
aftur með 20—30 tegundir sem
ekki vaxa hér. Eftir er svo að
vita hvernig því vegnar hér
því þetta er allt heimskauta-
gróður.
í garðinum eru nokkur bjark-
artré er hafa ýmis einkenni
þess að þar sé um hengibiörk
að ræða, en hvort sérfræðing-
arnir hafa kveðið upp endan-
legan dóm um það er mér ekki
kunnugt.
Slenot skal að bylja hér um
erlendar tegundir, sjaldséðar
hér á landi, tilbúna læki, gos-
brunna o. s. frv. Upphaflega
mun garðurinn hafa verið 1 ha
að stærð en hefur síðan tvisvar
verið stækkaður, er nú 3 ha.
Það verður gaman að siá hvern-
ig sá hluti verður orðinn eftir
nokkur ár. — J. B.
MESKALIN OG PSILOCYBIN
Þessa dagana er verið að
halda þing sálfræðinga í Kaup-
rnánnahöfn. Einn hinn helzti
á þingi þessu er Aldous Huxl-
...ey riíhöfundur og er hann í
fylgd • með prófessor nokkrum
írá Harward, sem heitir Tomo-
thy Leary.
Þessir menn hafa ekki lítinn
; boðskaþ að flytja, töfralyfið,
sem veldur manni þeirri breyt-
ingu, sem Matthías Jochum-
son hróþaði á, en bjóst ekki
; við áð hljóta fyrr en í dauð-
• anum í fyrsta lagi, er þegar
■ fyrir hendi. Lyf þetta heitir
psilocybi (náskylt meskalíni)
og ér framleitt í efna- og lyfja-
verksrniðjunni Sandoz í Sviss.
Á-• föstudaginn (18. ágúst) flutti
Aldous Huxley erindi í tón-
leikahöllinni í Tivoli um psilo-
• cybin: sem hann segir valda
„góðrt ög allt að því yfirskil-
vitlegri aukningu (eða eflingu)
skilnings og skynjunar.“
Hér fer á eftir viðtal við
dr. Leary, sem birtist í Poli-
tiken laugardaginn 12. ágúst.
— Við höfum gert tilraunir
á 170 manns síðan efnið var
tilbúið og fullunnið í efnarann-
sóknastolum segir dr. Leary,
en síðan er eitt ár. Áhrifin
eru mjög misjöfn, og fer það
eftir því hvprnig á þeim liggur,
sem efnið tekur. Því betur sem
á honum liggur, því betra. Og
séu þessar töflur gefnar þeim
■sem á þeim veit engin deili,
hefur enga hugmynd um þær
breytingar á skynjunum og
meðvitund sem af þeim hljót-
ast, getur sá hinn Sami orðið
ákaflega hræddúr þegar breyt-
ingarnar korna. Þessvegna segj-
um við fólktnú á undan allt
sem nákvæmlégast um það á
hverju það á von, og forðumst
að halda nokkru leyndu. Venju-
lega tekur læknirinn sjálfur
skammt um leið.
Af þessu fólki voru það 77
af hundraði, sem fullyrða að
sú reynsla, sem þessu er sam-
í'ara, hefði gerbreytt þeim.
Níutíu og einn af hundraði
sagðist vilja reyna aftur.
Einn af þeim sem létu gera
t.ilraunir á sér, var Koestler
rithöfundur. 1 fyrra skiptið
fékk hann töflurnar þegar mjög
illa hafði legið á honum, og
áhrifitt urðu ill, hann sá í of-
siónum orma sem breyttust í
dreka, fólk sem verið var að
háíshöggva og annað álíka
skemmtilegt. í seinna skiptið
fékk hann þær eftir að hafa
verið í glöðu skapi, og áhrifin
urðu öll. önnur, hver maður
virtist honúm fagur og fríður,
góður og vinsamlegur. Tónlist-
in, sem hann var látinn hlusta
á, hafði ekki nein hversdags-
leg áhrif, honum fannst hann
skilja innsia eðli tónlistarinn-
ar í fyrsta sinn. En ekki
gat hann gert grein fyrir því
á eftir hvert væri „hið innsta
eðli tónlistarinnar“.
— Já það er margt sem við
hérna á Vesturlöndum eigum
engin 'orði yfir.
Grænlendingar eiga 20—30
nöfn sem tákna snjó, ensku-
mælandi menn eiga ekki nema
eitt. Á Austurlöndum er ein-
stæður fjöldi orða sem táknar
ást, og ýms hugtök sem þessar
þjóðir hafa eru óþýðandi á
tungumál Vesturlanda.
Þessvegna erum við að reyna
að finna hugtök sem lýsi í senn
dulrænni reynslu austurlanda-
manna og hegðun eða látæði
vesturlandamanna. Ungur mað-
ur, sem vill verða læknir, hlýt-
ur að taka á sig gervi og látæði
læknis, og halda því svo með-
an hann er í embættinu. Það
sem styður hann í þessu hlut-
verki er honum gagnlegt, hið
gagnstæða skaðlegt.
Sá sem tekur þessar töflur,
sannar ef til vill fyrir sjálfum
sér og að líkindum í fyrsta
sinn, að metnaðargirni er einsk-
is verð, og að til er slík dá-
semdarfegurð í tilverunni, að
persóna manns bliknar fyrir
þessu sem kalla mætti fegurð-
ina eins og hún er í sjálfu sér.
— Þér hefðuð getað orðið
góður prestur!
— Ég er nokkurskonar prest-
ur, og ég er viss um að Aztek-
arnir gerðu rétt í því að sam-
eina meskalínneyzlu og trúar-
athafnir.
— Ætlið þér að stofna ný
trúarfélög?
Framh. á 10 síðu
L I
Fyrsfi grasgarcSúr íslendin ga - Wœ/t400\íslenzkar tegundir W. 20-30 grœnlenzkar heimskaufajurtir
. : - - Um tólf þúsund erlendar tegundir eðo sexfán þúsund jurtategundir alls
KONUR GERÐU GARÐINN StSfgS 5
l
«; — ÞJÖÐVILJINN gunnudagur 20. ágúst 1961
■Suhnudagur 20. ágúst 1961
— ÞJÓÐVILJINN —