Þjóðviljinn - 03.10.1961, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 03.10.1961, Blaðsíða 12
Ung lézt barsmíðar drukkins ma Sveinn Sæmundsson, yfirlögregluþjónn, kvaddi frétta- anenn á sinn fund í gær og skýrði frá því að ung kona, Ásbjörg Haraldsdóttir, hefði látizt á sunnudagsmorgun £tf völdum áverka er eiginmaður hennar Hubert Rósmann Morthens veítti henni í ölæði aöfaranótt sunnudags. Það er upphaf þessa máls, sagði Sveinn. að í gaer (sunnu- <Iag) kl. 13.30 var komið í slysa- -varðstofuna með konu, Ásbjörgu Haraldsdóttur. sem er fædd 30. nóv. 1926. Hún var látin er kóm- ið var í slysavarðstofuna. Með lienni kom maáur hennar Hubert .'.Rósmann Morthens (f. 26. febr. 1926) sjómaður til heimilis að TLaugarnesvegi 118. Kom strax íram að hann var á einhvern Thátt valdur að áverkum á lík- inu. Við tókum þetta strax til •athugunar og við yfirheyrslu lærðist Hubert ekki undan því eð áverkarnir væru af hans ■völdum. Nánara sagði hann svo frá, að hann hefði komið að ilandi á laug'ardagskvöld með "togaranum Neptúnusi, er var að lcoma úr söluferð, oa hefði kona sín komið að taka á móti hon- um. Um borð drakk Ásbjörg þjór, en Hubert bjór og vín. TÞau fóru heim laust fyrir kl. 2 um nóttina. Héldu þau áfram drykkju, og telur Hubert, að jþau hafi verið orðin bæði all- mikið drukkin er þau tóku að Tcýta, sem var ekki óvenjulegt þegar þau voru undir áhrifum, og þar hafi komið fram . ágrein- ingsefni. Hubert eru mjög óljós öll tímatakmörk. en einhvern- tíma seinnipart nætur eða und- ir morgun virðist afbrýðisemi hafa gagntekið hann og' eins og hann orðar það sjálfur: hafi hann alveg tryllzt og þá skeði hörmungin. í gær gat Hubert ekki greint frá einstökum atriðum, sagði Sveinn. og évíst hvort hann geti það nokkurn t'ma. Áverkar á líkinu voru ekki miklir að ut- an, en áverkar innvortis því meiri. Hubert hélt áfram skýrslu sinni: Ég vissi svo ekki af mér um tíma, en það næsta sem ég man eítir er bað að konan ligg- ur á gólfinu í stofunni. Ég tók hana upp og bar hana inni svefn- herbergið og lagði hana í rúmið og tel ég að hún hafi ekki ver- ið dáin bá. Seinna, sennilega eft- ir hádegi á sunnudag, þurrkar Hubert af henni blóð og þá eru allar líkur til að hún sé látin, því þá gerir hann sér grein fyr- ir hvað hafði skeð. Hubert hring- ir þá til frænku konunnar og kemur hún strax til hans. Síðan er kallað í sjúkrabifreið ög kon- an flutt á slysavarðstofuria, en frænkan tók síðan börn þeirra hjóna í sína vörzlu. Börnin eru þrjú, 2ja, 6 og 7 ára, og sváfu þau í svefnherberginu. Fólk í næstu íbúðum heyrði til þeirra hjóna (þau bjuggu í 3ja hæða sambýlishúsi) en hafð- ist ekkert að, þar sem áður hafði heyrzt hávaði úr þessari íbúð. Rannsóknarlögreglan athugaði 'búðina og var sýnt af þeirri rannsókn að ekki höfðu orðið þar mikil átök og Htið brotið eða bramlað. Réttarkrufning var fram- kvæmd i gærmorgun, en ekki lágu niðurstöður hennar fyrir síðara hluta dags í gær. Hubert situr í gæzluvarðhaldi. Þriðjudagur 3. október 1961 26. árgangur — 245. tölublað Ákvörðun um qagníræðaskólastjóra á Selíossi vekur íurðu Nýlega hefur Gyifi Þ. Gíslason mcnntamálaráðherra skipað nýj-! an skólastjóra við gagnfræða- skólann á Selfossi, Árna Stefáns- son, og hefur sú stöðuveiting vakið mikla atli^gli á staðnum. Sambandsstjórnarfundi Æsku- lýðsfyikingarinnar, Siambands ungra sósíalista, lauk s.l. sunnu- dagskvöld í Kópavogi. Sam- kvæmt nýjum skipulagsháttum ÆF er sambandsstjórn nú skip- uð fulltrúum úr kjördæmunum auk framkvæmdanefndar, og kemur sambandsstjórnin saman annaðhvort ár. Fundurinn hófst s.l. fimmtu- dagskvöld i félagsheimilinu Þing- hól í Kópavogi. Á fur.dinum var fjallað um starf, skiþuiag og stefnumál samtaka ungra sósíal- ista og voru samþýkktar margar ályktanir. Nánar verður skýrt frá ály’ktunum oe starfi fundar- ins á æskuiýðssíðu blaðsins á næ'stunni. Á vegum fundarins voru flutt tvö erindi: Hjalti Kristgeirsson flutti erindi um Efnahagsbandalag Evrópu og fyr- irætlaniv ríkisstjórnarinnar um að ánetja ísland þv', og Eggert Þorbjarnarson flutti erindi um iðnvæðingu íslands. Guðmundur J. Guðmundsson, varaformaður Dagsbrúnav. heimsótti fundinn til að ræða verkalýðsmál. Þessi fundur var ný.jung í stárfi Æskulýðsfylkingarinnar og mjög mikilvægur fyrir starf hennar. Þrír kennarar sóttu um starfið: Öli Þ. Guðbjartsson, Leifur Eyj- ólfsson og Árni Stefánsson. Skóla- nefndin mælti algerlega einrómá með Óla Þ. Guðbjartssyni, en menntamálaráðherra lét ákvörð- un hennar sem vind um eyru þjóta. Þegar ráðherrann hefur hegðað sér þannig áður, eins og í Kópa- vogi sællar minningar, hefur hann afsakað sig með því að hann hefði tekið þann umsækj- andann sem hafði lengstan starfs- aldur. Ekki átti sú ,,regla“ held- ur við á Selfossi. Óli Þ. Guð- bjartsson hefur starfað við skól- ann í nokkur ár og verið mjög ‘ vei látinn — en Árni Stefánsson hefur aldrei starfað fyrr við nokkurn skóla. Fróðlegt væri að vita eftir þetta hver er nýjasta regla Gylfa Þ. Gíslasonar í sambandi við stöðuveitingar. En ef til vill má það verða til nokkurrar skýring- ar að Árni Stefánsson er bróðir Unnars þess, sem verið er að reyna að gera að leiðtoga -Al- þýðuflokksins í Suðurlandskjör- dæmi! veifflir van Beirut 2 10 — Byltingarfor- ingjarnir í Sýrlandi hafa gert xáðstafanir til aö Sýrland veröi viðurkennt sjálfstætt og aöskiliö xíki. Frcttum deiluaöila um at- hurðinn í Iandinu ber hinsvcgar alls ckki saman. Framhrldscðal- fundur ÆFR Framhaldsaðalfundur Æ. F. R. verður haldinn fimmtudaginn 5. október klukkan 9 e.h. — Á dag- skrá eru þessi mál: a) Reikning- ar sumarstjórnar. b) Eysteinn TÞorvaldsson forseti Æ.F. skýrir ±rá sambandsstjórnarfundi Æ. F. (sem haldinn var í Þinghól, fé- lagsheimili Æ. F. K. dagana 28. sept,—1. okt.) c) önnur mál. Munið skikdag- inn á morgun Þriðji skiladagurinn fyrir Reykjavík í Afmælishapp- drætti Þjóðviljans verður á xiorgun, miðvikudag 4. októ- ier. Þá þurfa félagarnir að skila verkefnum sínum í skrif- stofuna og lyfta þannig undir neð árangurinn fyrir sína deild og happdrættið sjálft. Skrifstofan, Þórsgötu 1, verð- ur opin í dag til kl. 7 síðdegis og á morgun frá kl. 10 árdegis 11 11 urn kvöldið. Nasser forseti sagði í dag að barizt væri í Damaskus og víðar í Sýrlandi. Hinsvegar er haft eft- ir ferðamönnum, sem komu frá Damaskus til Beirut í dag, að ekki sé barizt í borginni, en bryndrekar séu á ferli um göt- urnar. Ekki sé merkjanleg virk andstaða gegn hinum nýju vald- höfum, en ekki heldu.r nein hrifn- ing hjá fólki yfir umskiptunum. Abdel Hamid Sejaraj, sem var varaforsetí Sameinaða arabalýð- veldisins, hefur verið handtekinn af byltingarmönnum í Sýrlandi. Hann hélt til Damaskus frá Kairo fyrir tveirri vikum. Vilja í S.Þ. Tilkynnt var í stöðvum Sam- einuöu þjóðanna í New York í dag, að Sýrland myndi sækja um aðild að S.Þ. Fimm ríki hafa við- urkennt hina nýju valdhafa í Sýrlandi, Jórdanía, Tyrkland, Guatemala, Iran og Formósa. Hinsvegar hefu.r Makarfos erki- biskup á Kýpur sent Nasser boð- skap, þar sern hann lýsir yfir hryggð vegna atburðanna í Sýr- landi. Ríkisstjórn Túnis hefur farið fram á að stjórnmálanefnd Arababandalagsins verði kvödd saman til að ræða ástandið í Sýr- landi. Stöðugt er verið að flytja brott Egypta, sem verið hafa búsettir í Sýrlandi, og komu 600 þeirra í dag til Líbanon. AHs munu vera um 27000 Egyptar í Sýrlandi og eru hermenn þá ekki með talðir. Nasser forseti hélt ræðu í dag, og sagði að svik byltingarforkólf- Framhald á 5. síðu. Við komu forsetahjónanna til Reykjavíkur í fyrramorgun. Frá vinstri: Dóra Þórhallsdóttir forseta- frú, Bjarni Benediktsson forsætisráöherra, Friðjón Skarphéðinsson forseti Sameinaös þings og Ás- geir Ásgeirsson forseti. Bak við forseta sést í forseta Hæstaréttar, Jónatan Halivarðsson. Minnumst Kanadaferðar- ínnar með mikilli ónœgju -seg/r forseti islands vi3 heimkomuna „Við minnumst þessarar feröar meö alveg sérstakri ánægju“, sagöi forseti íslands, lierra Ásgeir Ásgeirsson, er harrn ræddi viö fréttamenn um Kanadaförina í skrif- stofu sinni í alþingishúsinu í gærmorgun. Forsetahjónin komu til Reykja- víkur frá Kanada á áttunda tímanum á sunnudagsmorgun ásamt fylgdarliði.. Farkosturinn var flugvél Loftleiða, Snorri Sturluson, og var lagt upp frá Montreal í Kanada. Handhafar forsetavalds, Bjarni Benedikts- son forsætisráðherra, Friðjón Skarphéðinsson forseti sameinaðs þings og Jónatan Hallvarðssson forseti Hæstaréttar, tóku á móti forsetahjónunum á Reykjavíkur- flugvelli. Á fundi sínum með frétta- mönnum í gærmorgun. gerði forseti fyrst l'tillega grein fyr- ir aðdraganda Kanadaheimsókn- arinnar. Gat hann þess að Lest- er Pearson, fyrrum utanrikisráð- herra Kanada, heíði minnzt á það við þau hión er hann heim- sótti ísland fyrir fáum árum, hvort þau myndu ekki þiggja heimboð ríkisstjórnar hans. Formlegt boð hefði borizt í fyrra, meðan landhelgisdeilan við Breta stóð sem hæst, og þvi verið tekið. enda kvaðst forseti alltaf hafa litið á það sem emb- ættisskyldu að hitta fslendinga er búsettir væru í Vesturheimi. því að þar byggi hvorki meira né rninna en fjórði hver maður af íslenzku bergi brotinn, flestir í Kanada. Förin um íslendingabyggðirn- ar í Kanada var að því leyti ein- kennilegt ferðalag, sagði Ásgeir forseti. að mér fannst sem ég væri ekki erlendis,- íslenzku heyrði maður talaða svo víða og jafn- vel þótt yngra fólkið kynni ekki íslenz.ku nem.a þá að mjög tak- mörkuðu leyti. bá var allt við- mót þess og yfirbragð býsna ís- lenzkt. Við vorum meir undr- andi yfir því hve íslenzkan Hfir þrátt fyrir allt vestra, og þó sérstaklega ættræknin, en hinu sem gleymzt hefur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.