Þjóðviljinn - 10.10.1961, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 10.10.1961, Blaðsíða 1
SCSÍALISTAR Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur fund í Iðnó annað kvö'.d kl. 8,30. Á fundinum flytur Þór Vigfússon hag- fræðingur erindi um Efna- hagsbandalag Evrópu — Sjá viðtal við Þór á 3. síðu. Heimtuðu danskon fána við fœreyska myndlistarsýningu! FurSuleg framkúma danska sendiherrans og Gylfa Þ. Ghlasonar menntamálaráóh* í sambandi við færeysku mynd- listarsýninguna sem hér er haldin um þessar mundir gerðust þeir furðu- legu og ósæmilegu atburðir að sendi- Tierra Dana á íslandi, Bjarne W. Paulsen, og Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra kröfðust þess að danski fáninn yrði láíinn blakta :fyrir utan Þjóðminjasafnshúsið þar sem sýningin er haldin. Gekk ofur- kapp þeirra svo langt að á sunnudag var enginn fáni fyrir utan húsið, þar sem menntamálaráðherra lagði bann við því, fyrst sá danski væri ekki hafður með! í gær gáfu þeir félagar sig loks og blaktir íæreyski fáninn nú einn á stöng fyrir utan hina merku sýningu. Eins og kunnugt er bauð menntamálaráð íslands Færey- ingum ,að halda hér myndlist- arsýningu, og fór það boð auð- vitað á engan hátt um hendur danskra stjórnarvalda. En nokkrum dögum áður en sýn- ingin skyldi opnuð gerði*stvþau tíðindi að Bjarne W. Paulson sendiherra sneri sér til íslenzka utanríkisráðuneytisins og krafð- ist þess að danski fáninn yrði hafður á stöne við opnun sýn- ingarinnar, þar sem Færeyjar í dag fer fram setning Álþingis og hefst hún kl. 13.30 með guðsþjónustu í dómkirkjunni. Séra Jón Auðuns dómprófastur pre- dikar við setninguna en organleikari verður dr. Páll Isólfsson. Að guðsþjónust- unni lokinni munu alþing- ismenn ganga í þinghúsið og þar lýsir l'orseti Islands, Ásgeir Ásgeirsson, Alþingi sett. væru hluti af Danmörku! Ut- anr.'kisráðuneytið kom þessari kröfu á framfæri við mennta- málaráðuneytið og það aftur við menntamálaráð.^Þegar fær- eysku myndlistarmennirnir sem hér eru staddir heyrðu um þessa kröfu danska sendiráðs- ins aftóku þeir að sjálfsögðu alveg að danski fáninn kæmi nokkuð nálægt sýningunni. Síð- an tóku fyrirsvarsmenn menntamálaráðs þá ákvörðun að islenzki og færeyski fáninn skyldu blakta einir við inn- gang sýningarinnar, og var sú afstaða síðar samþykkt ein- róma á fundi menntamál-aráðs. Bannaði með ráðherravaldi Mertntamálaráðherra og danski sendiherrann komu saman á opnun sýningarinnar s.l. laug- ardag, en þar var mikill fjöldi boðsgesta saman kominn. þeirra á meðal forsetahjónin. Hnykkti þeim félögum mjög er þeir sáu fánana, og mun-hafa leg- ið nærri að menntamálaréð- herra neitaði að opna sýning- una! Áttaði hann sig þó að lokum og flutti ræðu og lýsti sýninguna hátíðlega opnaða undir þjóðfánum íslands og Færeyja og viðurkenndi þahnig tilhögun menntamálaráðs. Bjuggust menn þá við að þetta furðulega mál væri úr sögunni en snemma á sunnudagsmorg- un geiðust enn þau tíðindi að hringt var frá menntamála- ráðuneytinu til fyrirsvars- manna Þjóðminjasafnsins og lagt bann við því með ráð- herravaldi að nokkrir fánar blöktu á stöng meðan fær- eyska listsýningin stæði fyrst sá danski fengi ekki^ að vera þar! Stóðu stangirnar fyrir ut- an Þjóðminjasafnið fánalaus- ar. alian sunnudaginn. Færeyski fáninn dreginn að hún Þegar þetta hafði gerzt lýstu færeysku myndlistarmennirnir yfir þv' að þeir myndu loka sýningunni ef færeyski fáninn fengi ekki að blakta á stöng sem tákn færeysks bjóðernis og siálfstæðrar færeyskrar menn- , ingar. Voru haldnir tveir fund- ir um málið í menntamálaráði fyrrihiuta dags i gær, og þar i lýsti ráðið einróma samþykki við þá tilhögun sem höfð var á laugardag, eins og áður er sagt. Voru jafnframt teknar upp viðræður við menntamála- ráðuneylið og lauk þeim eftir nokkurt þóf með því að ráðu- neytið afturkallaði bann sitt við færeyska fánanum án þess að setja nokkur skilyrði um þann danska. Var færeyski fáninn síðan dreginn að hún Framhaid á 3. síðu. Færeyski fáninn við hún á annarri fánastönginni við aðaltröppur þ.jóðniinjasafnsbygginga rinnar. ® ® WASHINGTON 9 10 - Salinger, biaðafulitrúi Pierre ríkisráðherra Sovétríkjanna, á Kenne- j Iaugardáginn. Þótt samnings- dys forseta, sagði í dag enga hæfu vera í fréttum þess efn- is að forsetanum hefði þótt mið- ur hvernig tókst til um við- ræður hans og Gromikos, utan- Sinfóníuhljómsveitin hefur fjölbreytt vetrarstarf sitt A fimmtudaginn verða fyrstu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands á nýbyrjuðuj starfsári hennar í Iláskólabíói, en ákveðið «r áð hljómsveitin efni til 15 al- mennra tónleika í vetur, auk nokkurra æskulýðstónleika og tónleika í útvarpssal. Aðalstjórn- andi í vetur verður Jindrieh Rohan frá Tékkóslóvakíu. Tónleikaskrá fyrir starfsárið hefur verið geíin út og jafnframt hafin sala aðgöngumiða til á- skrifenda að öllum tónleikunum á starfsárinu. Fjölbrcytni mikil Á fyrstu tónleikunum, n.k. íimmtudagskvöld, leikur hljóm- sveitin Karneval eftir Dvorak, fiðlukonsertinn í e-moll eftir, Mendelssohn og ScheheraZade, sinfóníska svítu eftir Rimsky- Korsakoff. Einleik í fiðlukons- ertinum leikur bandariski fiðlu- snillingurinn Michael Rabin. Næstu tónleikar verða síðan 26. okfóber ög síðan hálfsmán- aðarlega að jafnaði. Einum tón- leikanna í vetur mun dr. Róbevt A. Ottósson stjórna, en einsöngv- arar á tonleikunum verða I-Ianna Bjarnadóttir, Guðmund- ur Jónsson, kór: Fílharmonía. Þá, 23. nóvember, verður flutt Þýzk sálumessa eftir Brahms. Viðfangsefni á tónleikunum í vetur verða bæði innlend verk og útlend, ný og gömul. Frum- fiutt verða verk eftir Jón Leifs og Jón Nordal, haldnir norrænir tónleikar (22. febrúar) og ís- lenzkir (17. maí). Einleikarar verða auk áðurnefnds fiðlusnill- ings Einar G. Sveinbjörnsson, Jindrich Rolian Ásgeir Beinteinsson, Mariluise Draheim, Einar Vigfússon, Guð- rún Kristinsdóttir. Björn Ólafs- son og Jórunri Viðar. grundvöllur hei’ði ekki fundizt, teldi Bandaríkjastjórn ekki að viðræðurnar hefðu verið alger- lega neikvæðar. 1 Washington er talið að skoða beri þessa yfirlýsingu Salingers ofanígjöf viö vesturþýzka sendi- herrann í Bandaríkjunum, dr. Grewe, en hann hafði sagt við Framhald á 5. síðu. i Aldersfmælis Nansens minnzt víða um heim í dag verður þess minnzt um víða veröld að hundrað ár eru liðin frá fæðingu norska vís- indamannsins, landkönnuðarins og mannvinarins Fridþ.þfí's Nan- sens. Mest verða hátiðahöldin að sjálfsögðu í heimalandi hans, en einnig í öðrum löndum verður minning hans heiðruð á ýmsau hátt, ekki hvað sízt í Sovétríkj- unum, en þar kunna menn hon- um sérstakar þakkir fyrir hjálp hans í hungursneyðinni á Volgu- bökkum árið 1921. — Sjá grein á opnu blaðsins í dag. ,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.