Þjóðviljinn - 10.10.1961, Blaðsíða 9
R vann Fram eftir
danleik
•Nú fer serm að liða að loka-
úrsliíum Bikarkeppninnar, og
með sigri KR gegn Fram á
sunnudaginn eru KR-ingar
komnir í úrslit. Um liinn aðil-
a.nn veit maður ekki fyrr en
á summidaginn kemur, en Þ'i
Ieika Keflvíkingar og Akurnes-
ingar um það hvort þeirra leiki
úrslitaleikinn við KR.
Það fór eins og margan
grunaði, að KR-ingum myndi
ganga erfiðlega með Framar-
ana, og það kom á daginn, því
framlengja þurfti leikinn svo
úrslit fengjust.
Fyrri hálfleikur leið án þess
að liðunum tækist að setja
mark, en nálægt þvi voru þau.
því þakverðir þeggja liðanna
þjörguðu á marklínu, Sigurður
Einarsson fyrir Fram og Bjarni
Felixson fyrir KR. Annars var
fyrri hálfleikurinn jafnasti
hluti leiksins, en hvorugu lið-
inu tókst að ná tökum á miðj-
unni. Marktækifærin voru sára-
fá, því hvorugt liðið lék nógu
vel saman og sendingar voru
oft mjög ónákvæmar. Þetta lag-
aðist þegar á leikinn leið, þó
öllu meira hjá KR-ingum, sem
tóku leikinn smátt og smátt í
sínar hendur.
í síðari hálfleik lá meira á
Fram, og undir lokin var press-
an allmikil á mark þeirra, en
KR-ingar nýttu tækifærin oft-
ast illa.
Þrátt fyrir sókn KR-inga
voru það Framarar sem settu
fyrsta markið. Markið kom
þannig að V. úth., nýiiðinn
Ragnar Óskarsson, fékk send-
ingu fram völlinn og lék með
knöttinn innfyfir vítateiginn og
spyrnti þaðan í mai’k með
föstu skoti. 1:0. Nú heyrðust
raddir um það í stúkunni því
Framararnir legðust ekki í vörn
og björguðu því sem bjargað
yrði, því vissulega var til mik-
ils að vinna. En þeir reyndu að
halda áfram sókninni, sann-
færðir um að sóknin væri
bezta vörnin. En það fór á ann-
an veg, því nú urðu KR-ingar
enn ákveðnari og tóku leikinn
algjörlega í sínar hendur og
leið ekki á löngu, þar til þeir
voru búnir að jafna. Markið
setti Gunnar Felixson eftir að
hann var búinn að leika á .
vai-narmann Fram. Hann skaD-
aði sér gott skotfæri inn í víta-
teignum og spyrnti góðu skoti
í horn marksins 1:1.
Ekki voru fleiri mörk skor-
uð í leiknum og lauk honum
þvi með jafntefli. en það er
engin lausn á leikjum Bikar-
keppninnar bví annar aðilinn
verður að fara með sigur af
hólmi. Var bví framlengt 2x15
mín. á mark.
Er nokkrar mín. voru hðnar
af framlengingunni, skeði ó-
hannið fyrir Framarana: Geir
markvörður var búinn að verja
knöttinn og gekk með hann frá
markinu, án þess að kasta hon-
um niður við fjóröa hvert
skref, og var því dæmd á hann
óbein aukaspyrna. örn Stein-
sen framkvæmdi spyrnuna og
sendi til Gunnars Felixsonar
sem spyrnti á markið, Geir
varði, en hélt ekki knettinum
og fór hann afíur til Gunnars
sem spyrnti. með föstu skoti í
mark 2:1. Þetta 'vafc sigurmark
KR-inga og var sigur þeirrá
fyllilega verðskuldaður.
• /
Liðin.
Flestir leikmenn KR-liðsins
léku undir getu. en ef einhvern
ætti að lofa þá er það Gunnar
Guðmannsson, sem á köflurn
sýndi óvenju kröftugan leik og
jákvæðan.
T eikmenn Fram áttu heldur
ekki góðan leik, en mesta at-
hyg’i vakti ungur piltur, Ragn-
ar Ó-.-karsson, er kom inná fyr-
ir Rúnar Guðmannsson, sem
lék sem v. úth., en varð að yf-
irgefa leikvöllinn vegna meiðsla.
Raanar setti eina mark Fram í
leiknum og var auk þess mjög
duglegur og leikinn. Þegar
Raanar setti markið. sat
Egill sem stiarfur í stúkunni,
og heyrðist hann kalla síðar í
leiknum: „nassiöi pattann,"
„passaði pattann".
Dómari var Grétar Norðfjörð
og dæmdi hann vel.
. H.
• í undirbúningskeppninni
undir HM í knattspyrnu, sem
fer fram í Chile, sigraði Sví-
þjóð Belgíu 2:0. Belgirnir áttu
mun meira í leiknum, en Sví-
arnir skoruðu mörkin. Yngve
Brodd gerði bæði mörkin og
markmaðurinn Zamora átti
mjög góðan leik. Svíar hafa
nú mikla möguleika á að
komast í lokakeppnina— þeir
leika við Sviss í lok mánað-
arins.
Evrópuliðunum er skipt í
10 riðla. Ungverjar eru þeg-
ar komnir í lokakeppniná og
Spánn og Júgóslavía eiga eft-
ir að keppa við Marokkó og
S-Kóreu til að komast í loka-
keppnina. Einnig- er búizt við
að Frakkar og V-Þjóðverjar
verði sigurvegarar í sínum
riðlum en óvíst þykir um
aðra riðla. í S-Ameríku eru
Argentína, Uruguay o.g Col-
ombia sigurvegarar í sínum
riðlum, en Paraguay og Mexi-
kó eiga eftir að leika til úr-
slita.
Brasilía og Chile fara und-
irbúningslaust í lokakeppn-
ina. sem heimsmeistarar og
gestgjafar.
• Þýzkaland vann nýlega
Tékkóslóvakíu í frjálsum
íþróttum 122—90 og Finnar
unnu Júgóslava 129—81.
Finnarnir unnu 17 greinar af
20.
• Varsjá 8/10 — V-Þýzka-
land sigraði í dag Pólland í
landskeppni • i knattspyrnu
2:0.
• Á íþróttamóti í Palermo
Italíu á laugardag hljóp Foik
Póllandi 100 m á 10.1, en
þessi árangur verður ekki við-
urkcnndur, þar sem meðvind-
ur vax of mikiil. Ottolina
ftalíu hljóp á 10.3. Svara, ítal-
íu setti nýtt Iandsmet í
110 m grhl. á 14.0 og Cristin
setti ítalskt met í sleggjukasti
61.96.
• Vín 8/10 — Austurríki
sigraði í dag Ungverjaland í
Iandskeppni í knattspyrnu 2:1
(1:0 í hálfieik).
• Um helgina kepptu Ðan-
mörk og Svíþjóð í tennis, og
sigruðu Svíar, 4:1.
® Olympíska nefndin í Arg-
entínu hcfur ákveðið að sækja
um réttinn til að lialda sum-
arolympíuleikina 1968. Ríkis-
st.iórn Argentínu hefur gefið
loforð um að veita stuðning
sinn.
• Um helgina var haldið
frjálsíþróttamóti í Vesterás, og
þar setti Per Owe Trollsás
nýtt sænskt og norrænt met
í 200 m grhl. á 23.7. Finninn
Rintamaki átti fyrra metið
23.8. 1 300 m hlaupi setti Ove
Jonsson sænskt met 33.3.
• Vestur-Þýzkaland og Ung-
verjaland háðu landskeppni í
frjálsum íþróttum um helgina
og sigruðu þeir fyrrnefndu
119.5 á móti 92.5. Nagy kast-
aði kúlu 18.81. Urbach Þ setti
nýtt met 18.08. Hering Þ vann
spjótkast 80.84.
• Pólland si.eraði Italíu í
landskenpni í frjálsum íþrótt-
um með 127 stigum gegn 80.
Sosgornik P kastaði kúlunni
18.58 og Cavalli 1 sigraði í
þrístökki 16.17.
• Dublin 8/10 — Tékkóslóv-
akía si.craði írland á sunnu-
dag í undirbúningskennni fyr-
ir HM 3:1 (1:1 í hálfleik). —
Leikurinn fcr fram í Dublin
að viðstöddum 30 þúsund á-
horfendum.
• Búkarest 810 — Rúmenía
sigraði í dag Tyrkland 4:0 í
landskeppni í knaítspyrnu.
Noreeur á að leika við Tyrk-
land 29. þ.m.
• Bo’grad 8/19 — Júgósiavía
sigraði í dag S-Kóreu í und-
irbúningskeppni fyrir HM 5:1.
Ragnar Óskarsson Fram var skeinuhættur í leiknum. (Ljm. Bj. B.j.)
Hressingarleikfími kvenna
Fyrir forgöngu Kvennanefnd-
ar ÍSÍ munu nokkrir aðilar efna
í haust og vetur til sérstakra
leikfimitíma fyrir konur. Á und-
anförnum árum hefur slík
starfsemi verið fastur þáttur í
vetrarstarfi nokkurra íþróttafé-
laganna, en aðsókn hefur verið
meiri en hægt hefur verið að
sinna.
Með aukinni vélvæðingu og
fjölgun bifreiða er orðið nauð-
synlegt fyrir manninn að auka
þrek sitt með æfingum, göngu-
ferðum og fjallgöngum. Mæling-
ar sýna að svo er, og er það
orðið áhyggjuefni víða um lönd
hvert stefnir í þessu efni, jafnt
með unga sem gamla. Þess má
geta, að nú er rekin öflug her-
ferð í Svíþjóð fyrir auknum
þrekæfingum fyrir allan al-
almenning.’ -
Þessi starfsemi er ætluð til
þess að veita konum, sem hafa
margar rniklar innisetur og litla
hreyfingu, tækifæri til þes-s að
leita hresslngar og hreyfingar í
hentugum æfingum undir stjórn
íþróttakennara.
Vetrinum verður skipt í 2
námskeið, og lýkur því fyrra
um miðjan desember, og verður
náinskeiðsgjald fvrir haust-
tímabilið kr. 200,00. I hverjum
flokki verða um 30 konur.
Laugarnesskólinn: Þar kennir'
Ástbjörg Gunnarsdóttir og
verða æfingar á mánudögum og
fimmtudögum kl. 8.30. Aldurs-
takmark 25—40 ára.
Miöbæjarskólinn: Á mánu-
dögum og fimmtudögum verða
þar 3 flokkar, á vegum Iþrótta--
félags kvenna verða tveir fl.,
yngri flokkur kl. 8.00 undir-
stjórn Sæunnar Magnúsdóttur,.
og eldri flokkur kl. 8.45 undir-
stjórn Margrétar Bjarnadóttur.
Á vegum KR verður einn fl.
í Miðbæjarskólanum undir-
stjórn Gunnvarar Bjöi’nsdóttur.
Verður hann á mánudögum ogri
fimmtudögum kl. 9.30.
Allir þessir flokkar byrjuðti'
í gær.
eSIi og
í Vest-
Reykjavíkur- og íslandsmeist-
ararnir í 2. flokki Þróttar
kepptu í Vestmannaeyjum um
helgina í boði heimamanna
þar. Fyrri leikurinn á laugar-
dag’ varð jafntefli 0:0, en þann
síðari á sunnudag sigraði
Þróttur með 5 mörkum gegn
engu.
ÍA vann Fram B
Á sunnudag kepptu Akranes og:
Fram B í bikarkeppninni. Leik-
urinn fór fram á Akranesi og.
sigruðu heimamenn 3:0.
■ „
1 Lúxemburg vann
í óvænt Portúgal í
! kuattspyrui 4:2
■ *
■
: Þau óvæntu tíðindi gerðust
• á sunnudag, að Lúxemburg
; sigraði stórvcldið Portúgal í
• knattspyrnu 4:2. Þetta var
j undirbúningsleikur fyrir HM í
• Chile. England er efst í þess-
! um riðli með 5 stig, síðan
j Portúgal með 3 og Lúxemburg
■ 2. Sjá nánar um heimsmeist-
j arakeppnina í „Sitt af hverjit
• utan úr heimi“.
ri: Frimann Helgason
Þriðjudagur 10. október 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (Q
01:3
$3l2to H)