Þjóðviljinn - 15.10.1961, Page 12
Netin halda áfram að veiða
Málvcrkið hér að ofan nefnist „Ævintýri í hrauni“ og er það á sýningu Eiríks Smiths
í Listamannaskálanum. — (Ljósm. Þjóðv.)
Frakkar grófu fanga lifandi
og líflétu fjölda unglinga
Glœpir Frakka i Bizerte afhjúpaSir
Sunnudagur 15. október 1961 — 26. árgangur — 236. tölublað
GENF 14/10 — Fransltir hermenn
grófu fanga úr hópi Túnismanna
lifandi þegar barizt var um Biz-
erta í suinar. Þetta hroðalega
íramferði franska NATO-hersins
er staðfest af alþjóðlegri nefnd,
sem rannsakað hefur sannleiks-
gildi fullyrðinga Túnismanna um
hryðjuverk og glæpi franska
hersins í Túnis.
Nefndin hefur einnig fundið
sannanir fyrir því, að franskir
lallhlífarhermenn . tóku af lífi
unga Túnisbúa, sem teknir höfðu
verið til fanga í bardögunum um
Bizerta. Einnig hefur nefndin
komizt að því að Frakkar lim-
lestu fólk og pyntuðu með ó-
hugnanlegum aðferðum, og brutu
' á margan hátt Genfar-samning-
) ana um hernað.
Þessi alþjóðlega nefnd, sem
hefur afhjúpað enn nýja glæpi í
hinni ljótu hryðjuverkasögu
franska hersins, er skipuð af Al-
þjóðasambandi lögfræðinga sam-
kvæmt beiðni Túnisstjórnar.
Nefndin var send til Bizerta 5.
sptember. 1 henni eru þrír menn
og er Bretinn Gerald Gardiner
formaður hennar.
Eitt af vitnum þeim, sem
nefndin hefur yfirheyrt, -segist
hafa séð franska fallhlífarher-
I menn hrúga fjölda af líkum Tún-
ishermanna í eina gröf. Vitnið sá
þó að Túnismennirnir voru ekki
allir dauðir. Einn þeirra var með
Verður gerð gangbraut
undir Suðurlandsbraut?
Morgunblaðið hefur nú hafið
mikinn áróður fyr.r bví að gerð
verði gangbraut undir Reykja-
nesbrautina í Kópavogi. því hin
mikla umferð þar sé hættuleg,
ekki sízt fyrir börn sem þurfi
að far.a í skóla yfir götuna. Seg-
ir blaðið að umbætur á þessu
sviði séu mikið áhugamál Sjálf-
stæðisflokksins.
Af þessu tilefni hefur íbúi í
smáíbúðahverfinu í Reykjavík
komið að máli vjð Þjóðviljann
Námskeið í Hí'
Danski sendikennarinn v.ð há-
skólann, cand. mag. Erik Sön-
derholm, mun í vetur halda
námskeið í dönsku, sem eink-
um er ætiað dönskukennurum.
Fyrirhugað er að hafa tvær
kennslustundir í viku. í annarri
kennslustundinni verður far;ð
yfir danska hljóðfræði og hafðar
talæfingar. en hinni verður var-
ið til lestrar nútímabókmennta
(..Vintereventyr“ eftir Karen
Biixen),
t>e‘r. Sém kynnu að vilja taka
þátt í námskeiðinu. eru beðnir
>að koma til viðtals við kenn-
arann mánudaginn 16. október
kl. 20.15 í VI. kennslustofu há-
skólans (á miðhæð).
og bent á að þessi skrif hlytu
að leiða til tafarlausra fram-
kvæmda hér í Reykjavík. Suð&r-
landsbraut er án efa mesta og
háskalegasta umferðargata lands-
ins. Samt er því svo háttað að
öll börn í smáíbúðahverfinu
verða allt frá sjö ára aldri að
fara yfir Suðurlandsbrautina til
þess að komast í Laugarnesskól-
ann og stundum oft á dag. Sé
nokkursstaðar ástæða t.l þess að
gera gangbraut til öryggis gang-
andi fólki og sérstaklega börn-
um er það á þessum stað. Er
þess að vænta að áhugi Morg-
unblaðsins tryggi það að þegar
verði hafizt handa.
Sýrland í SÞ
NEW YORK 13/10 — Fulltrúi
Sýrlands tók sæti á þingi Sam-
einuðu þjóðanna í gær án þess
að nokkur hreyfðj andmælum.
Fulltrúinn, Farid Chehlaoui,
lýsti yfir því að stjórn sín
myndi fylgja hlutleysisstefnu og
vinna að einingu araba, jafn-
rétti og frelsi.
Mong.i Slim, forseti allsherjar-
þingsins, bauð Sýriand velkom-
ið í samtök Sameinuðu þjóð-
anna.
Bretland hefur nú viðurkennt
hina nýju stjórn í Sýrlandi, og
hafa þá öll stórveldin gert það.
Er togarinn Víkingur var á veiðum á Selvogsbanka á dögunum
fékk hann netatrossur í nær hverju hali og var ýmist lifapdi fisk-
ur, nýdauöur fiskur, eða ganialúldinn fiskur í trossunum. —
p2
Víkingur kom til Akraness í fyrradag með um 100 torin áf fiski.
Hefurnáinskeiíðineri
um nútímabókmen
Nýlega er kominn hingað til
lands prófessor Gerald Thorson,
sem er yfirmaður ensku deildar-
innar í Augsburg College í Minne
apolis í Bandaríkjunum. Próf-
essor Thorson tók doktorspróf
við Columbia University í New
York, og hafa birtzt eftir hann
margar greinar um enskar og am-
erískat’ Bákmenntír. Hann mun
starfa í vetur sem sendikennari
við Háskóla Islands, á vegum
Fulbright-stofnunarinnar, og flyt-
ur þar fyrirlestra og kennir am-
erískar og enskar bókmenntir.
Prófessor Thorson mu.n halda
nómskeið í amerískum nútíma-
bókmenntum fyrir stúdenta og
aðra, sem vilja taka þótt í því.
Þar mun hann flytja fyrirlestra
um þróun skáldsögunnar í Bandft
ríkjunum og uiri verk ýmissa am-
erískra rithöfunda, t.d. Henry
James, Willa Cather, Sinclair
Lewis, F. Scott Fitzgerald, John
Steinbeck, Ernest Hemingway,
William Faulkner, Herman Wouk,
William Styron, J. D. Salinger.
Prófessor Thorson biður þá,
sem vilja taka þátt í námskeið-
inu, að koma til viðtals þriðju-
daginn 17. október kl. 6.15 e. h.
í VII. kennslustofu háskólans.
ORAN 14/7 — Sjö manns létu
lífið í heiftarlegum óeirðum í
borg'nni Oran í Als.'r í gær.
Urðu hörkuátök milli evrópskra
manna og araba. Þrettán manns
hlutu sár. Af hinum föilnu voru
sex arabar o.g einn evrópskur.
Arabarnir sex voru vegnir
snemmdægurs en Evrópumaður-
nn féll í vopnuðum átökum i
gærkvöldi.
Samkvæmt vopnahléssamn'ng-
unum á að afhenda alla fanga
fyrir næsta mánudag. Herlið S.
Þ. og Katangaher í mið- >„qg
norðurhluta Katanga rrulmi
halda þeirri v’gstöðu. sem þeir
höfðu áður en bardagar brut-
ust út. Herirnir haíá /frglgi; til
að ferðast eins og þeir þurfa t l
að gegna hlutverki sínu. Lið S.
Þ. verður að lóta af hendi allar
þær opinberar byggingar í Elisa-
bethville, sem það h:áfði,: á,,sínu
valdi, þar á meðal er aðalpóst-
húsið og útvarpsstöð.n.
í Reutersfrétt fegir. a,ð , í
samningunum viðurkenni Sam-
einuðu þjóðirnar rétt Katanga.
til að verjast g'egn órás utárifrá.
Þetta mun þýða það. að sátt-
málinn telst ekki brotirin þótt
Katangaher myndi snúast með
vopnavaldi gegn tilraunuriT.
stjórnarinnar í Leopold.ville tll
að sameina Katanga Kongó á
ný. Hinsvegar fékk Tshombc-
ekki framgengt þeirrj krofú/ 'aÖ
allt lið S.Þ. hyrfi frá Katanga.
Uppiýsingamálaráðherra stjórn-
arinnar í Leopoldv.lle, Joseph
Ileo, sagði á blaðamannafundi: í
gær, að stjórn s:n teldí sig alls-
ekki bundna af þessum samri-
ingum um vopnahlé miilr
Tshombe og Sameinuðu þjóð-
anna. Það yrði áfram unnið áð-
því að b.'nda enda á sundrung-
arstarfsemi Tshombe og kump-
ána hans. Katanga-, t'ilheyr.ði
Kongó og yrðj saméinað því.
Þúsundir drepnar.
Eftir atburðina í Bizerta var
gefið upp að aðeins um 600-700
manns hefðu fallið í bardögun-
um eða verið drepnir af frönsk-
um hermönnum. Franska blað-
ið L’Express heldur því hinsveg-
ar frarn fyrir skemmstu, að a.m.
k. 5000-6000 manns hafi fallið
fyrir morðhendi franskra her-
manna eða í bardögunum um
borgina.
Samningar um endanlegt
vopnahlé íKatanga-héraði
Eiisabethville 14/10 — Mahmoud
Kh’ari, fulltrúi Sameinuðu þjóð-
anna, og Tshombe, valdsmaður
í Katanga, hafa undirritað sam-
komulag um endanlegt vopnahlé
í Katanga. Samkvæmt þvi lýkin-
öllum bardögum milli liðs S.Þ.
og hers Tshombe.
Samkomulagið var undirritað
í gærkvöld. en samningaviðræð-
ur höfðu staðið í 23 daga.
fullri meðvitund, en ósjálíbjarga
sökum limlestinga. Höfðu frönsku
hermennirnir höggvið af honum
báða handleggina. Þessi limlesti
maður hrópaði til vitnis um það
að láta Rauða krossinn vita hvað
verið væri að gera. Eitt annað
„lík‘r hafði einnig hrópað, sagði
vitnið. Síðan var dauðum og lif-
andi hrundið ofan í fjöldagröf
og mokað yfir.
Unglingar drepnir.
Nefndin segir, að það sé hafið
yfir allan vafa, að margir hópar
fanga hafi verið skotnir af
frönskum hermönnum í Bizerta.
Aðallega voru það óbreyttir borg-
arar í sjálfboðaliðssveitum Tún-
ismanna, sem drepnir voru þann-
ig, og félagar í æskulýðssamtök-
um Neo-Destour-flokksins (stjórn-
arflokksins). Þeir yngstu úr
æskulýðssamtökunum voru aðeins
14 ára. Nefndin tekur það fram
að unglingarnir hafi ekki tilheyrt
neinni deild túníska hersins,
heldur hafi þeir aðeins verið ó-
vopnaðir borgarar.
Myndin tekin í Hafnarfirði á dögunum, er verið var að úða stein-
steypta götu þar með efni sem vatnverja er kallað, þéttiefni sem
á að koma í veg fyrir að vatn eða annar vökvi smjúgi inn í múr-
inn, myndi í honum sprungur og fleygi úr honum flísar. Efnið er
framleitt í verksmiðjunni Kisill í Reykjavík, sem starfrækt hefur
verið í tvö ár. — Efni þetta hefur verið mikið notað við húsbygg-
ingar að undanförnu, en Hafnfirðingar eru hinir fyrstu sem nota
það á steyptar götur. Þá mun og ákveðið að það verði notað á
sama hátt á Norðfirði og e.t.v. víðar.